Dagblaðið - 09.01.1978, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 09.01.1978, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 9. JANUAR 1978. Útvarp Sjónvarp Útvarp íkvöld kl. 20.50: Gögn oggæði Margt af mörgu Meðal annars verður komið inn á vandamál íslenzka ullar- og skinna- iðnaðarins í þættinum Gögn og gæði í kvöid. Á þessari mynd sjást stúikur hjá SÍS súta skinn. Magnús Bjarnfreðsson. „Ég ætla að leiða saman full- trúa útgerðarmanna á Suðurlandi og á Vestfjörðum, sem deilt hafa nokkuð upp á síðkastið eins og líklega allir vita,“ sagði Magnús Bjarnfreðsson er hann var spurður um þáttinn Gögn og gæði sem er á dagskrá útvarpsins í kvöld klukkan 20.50. „Svo verður rætt við Hjört Eiríksson deildarstjóra iðnaðar- deildar SambandsinS og þá aðal- lega um vandamál ullar- og skinnaiðnaðar. Þá er talað við Þórhall Hálfdán- arson hjá sjóslysanefnd um slys þau sem verða á sjó. Að síðustu verða landbúnaðar- mál tekin fyrir. Rætt verður við Gunnar Guðbjartsson formann Stéttarsambands bænda, sem hót- að hefur að segja af sér ef kjör bænda verði ekki bætt. Á móti honum verður fulltrúi meirihluta við verðlagningu landbúnaðar- vara og verður rætt um hana. Eins og sjá má af þessari upp- talningu Magnúsar er margvíslegt efni í þættinum hans í kvöld og verður án efa mjög gaman að hlusta á hann. Þessir þættir hans njóta töluverðra vinsælda en það spillir fyrir þeim eins og mörgum öðrum ágætum þáttum í útvarpi að þeir eru ekki á nógu góðum hlustunartíma. Fólkið sem fylgist með sjónvarpi að einhverju ráði heyrir þá ekki og er það miður. Líklega er ekki hægt að hafa alla þætti á góðum tíma en þó hvarflar oft að manni að betur mætti vanda valið á því sem haft er á bezta tímanum. Líklega verða aldrei allir ánægðir. -DS. sterka rvksuean... # Styrkur og dæmalaus ending hins þýðgenga. stilianlega og sparneytna mótors, staðsetning hans oghámarks orkunýting. vegna lágmarks loft- mótstöðu í stóru ryksíunni. stóra. ódýra pappirspokanum og nýju kónísku slöngunni, afbragðs sog- stykki og varan- legt efni. ál og stál. Svona er NILFISK: Vönduð og tækniiega ósvik- in. gerð til að vinna sitt verk fljótt og vel. ár eftir ár. með lág- marks truflunum og tilkostnaði Varanleg: til iengdar ódýrust. Nýr hljóð- deyfir: Hljóðlótasta ryksugan. Traust þjonusta Ný keilu-slanga: 20% meira sogafl, stíflast síður. Afborgunarskilmólar HANIY HÁTÚN6A lUlllA SÍMI 24420 Raftækjaúrval — Næg bflastæði ELANSKMI margargerðir Völvuspár- blaöið eruppselthjáafgreiðslunni Þeir útsölumenn sem kunna að eiga einhver eintök óseld eru beðnir að hafa samband við afgreiðsluna nú þegar, svo unnt verði að miðla blöðum til þeirra er ekki hafa fengið nóg. Uppl.ísíma36720 Vikan ALPINA SKÍÐASKÓR nr. 38-45. Verð kr. 12.949.- SKÍDABÚNINGAR bama — dömu—herra TYROLIA öryggisbindingar ALPINA SKÍÐASKÓR nr. 35-41. Verð kr. 9.361.- REIMAÐIR SKÍÐASKÓR nr. 32-39 Verzlið hagkvæmt— Póstsendum Laugavegi 13 Sími13508

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.