Dagblaðið - 13.01.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1978.
5'
Gamli miðbærinn yngdur upp:
ÞETTA ER SMJÖRHUS
HW NÝJA VIÐ TORGIÐ
„Þetta veröur byrjunin á
uppbyggingu gamla miðbæjarins
til þess að lífga upp á hann á
nýjan leik. 22. desember sl.
samþykkti byggingarnefnd
borginnar endanlega teikningu að
byggingunni og platan undir
fyrstu hæðina var steypt á Þor-
láksmessu." Þetta sagði Kristján
Knútsson fasteignasali hjá Eigna-
markaðinum, Austurstræti 6, í
samtali við DB. Hann er að
byggja hina glæsilegu byggingu
sem fer senn að rísa við sjálft
Lækjartorg, þar sem áður var
Smjörhúsið, síðar Veiðimaðurinn
og Bókaverzlun Braga.
Þarna mun rísa þriggja hæða
hús, um 5000 rúmmetrar að
stærð, en flatarmál verður 440
ferm á 1. og 3. hæð, en önnur hæð
verður 596 ferm.
>,Bygging þessi er samkvæmt
nýjasta_ skipulagi Reykjavíkur-
borgar sem gerir ráð fyrir
uppbyggingu gamla miðbæjarins
sem samþykkt var 19. desember
sl. og gerð var af Gesti Olafssyni.
A fyrstu hæð hússins verður
aðstaða fyrir Strætisvagna
Reykjavíkur, auk þess sem þar
verða verzlanir. Nú þegar hafa
tveir aðilar keypt húsnæði á
fyrstu hæðinni. Eru það fyrir-
tækin Optik og Garðar Ólafsson
úrsmiður. Báðar þessar verzlanir
hafa verið við Lækjartorg um ára-
bil.
Á fyrstu hæðinni verður einnig
blaðasala, blóma og minjagripa-
sala auk veitingasölu, og
snyrtiherbergja. Neðsta hæðin
verður öll flísalögð, ekki ósvipað
járnbrautarstöðvum erlendis.
Kappkostað verður að hafa þarna
allt sem glæsilegast.
Á annarri hæðinni er enn
óráðstafað um 500 ferm
verzlunarhúsnæði. Þriðju
hæðinni er einnig óráðstafað enn
sem komið er, en ákveðnir aðilar
hafa lýst áhuga á að koma þar á
fót veitingastað. Yrði það mjög
skemmtilegur veitingasalur, því
svalir verða í kringum alla þriðju
hæðina,“ sagði Kristján.
Stefnt er að því að húsið verði
uppsteypt 1. júní og að þar verði
hægt að hefja verzlunarrekstur
eigi síðar en í
nóvember/desember næst-
komandi.
Arkitekt hússins er Bjarni
Marteinsson á Teiknistofunni Ár-
múla 6. Tækniþjónustan annast
verkfræðiþjónustu og tillögur að
skiptingu 1. og 2. hæðar hefur
Finnur Fróðason innanhúss-
arkitekt, Laugavegi 18, gert.
Útboð hafa verið gerð á verk-
inu og verða þau opnuð í dag og
reiknað er með að hægt verði að
hefja framkvæmdir strax í næstu
viku. -A.Bj.
Þarna má sjá líkan að hinu nýja
stórhýsi í miðbænum og sýnir af-
stöðu þess til Lækjartorgs og Út-
vegsbankans. Takið eftir að gamli
söluturninn er þarna kominn á
torgið. Verið er að vinna að því að
koma honum fyrir þarna. Bíla-
stæðisvandamálið í gamla
miðbænum hyggst borgin leysa
sjálf með því að reisa stórar bíla-
geymslur i miðborginni.
Eyiar: Björgunaraðgerðir eftir flóð ígær
Gríðarleg rigning var í Vest-
mannaeyjum í gærmorgun.
Mest rigndi milli kl. hálf átta og
hálf níu. Kjallarar fylltust af
vatni víða í bænum en einna
verst varð Kiwanishúsið úti, en
það stendur við Strandveg. Þar
varð að dæla vatninu út og þeg-
ar að var komið var parketgólf
hússins, sem er mjög nýlegt,
hreinlega á floti!
Var fengin að láni brunadæla
til þess að dæla vatninu út.
Niðurföll í bænum höfðu
ekki undan vatnsflaumnum og
víða flaut vatn upp um salerni.
Eyjabúar voru því í
björgunarstarfi í gær og
reyndu að bjarga því sem
bjargað varð úr rennvotum í-
búðum sínum. — Kiwanishúsið
var tryggt fyrir vatns-
skemmdum og taldi fréttaritari
DB í Eyjum að sömu sögu væri
að segja um önnur hús á staðn-
um.
-R.S./abj.
’íýVýSt:*/,’:'--!.
.*vwV.V'V.-::• í'
i.H'-V'. £■ ÍvXú
■ ■'■; 'jvv !’•'.»' /."••'-Sy■•
. »!• i .• !•■■". ýVí,••-'•'• í i
mses
ÍÍK'ÍK/-'
S>Í
w
NY
SENDING
s) af karlmannaskóm, lágir ítalskir
\ leðurkuldaskór, svartir, reimaðir
eða með rennilás, stamur
gúmmísóli, stærðir 41-46
Verð kr. 3.990.-
Uppháir finnskir, með rennilás,
brúnir með stömum sóla
Stærðir 7-11%
vtessst:
V- - -.1 :.V1
VÍvV-S'-
'^ví'.Arv.
•;.••• • •
-■
^»,Verðkr.8.500.^^R8#8Si
~u: .., -X■ .S"'--'-'— ——„' ú'',- vv.s