Dagblaðið - 24.01.1978, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. JANUAR 1978.
Burma:
Dauðadómur vegna
eiturlyfjasölu
— eiturlyf fyrir 200 milljónir dala
Burmabúi nokkur hefur verió
dæmdur til dauða fyrir stórkost-
lega eiturlyfjadreifingu eftir að
lögreglan fann eiturlyf í húsi
hans að verðmæti mörg hundruð
milljónir dollara.
Þetta eiturlyfjamagn er það
mesta sem nokkurn tíma hefur
náðst í einu í Suðaustur-Asíu. í
húsinu fundust 675 kg af eitur-
efnum, þar af 84 kg af heróíni og
130 kg af ópíum að verðmæti yfir
tvö hundruð milljón dollarar.
Árið 1974 voru innleidd ströng
lög í Burma hvað varðar sölu og
dreifingu eiturlyfja og er fang-
elsisvist og dauðarefsing fyrir al-
varlegt brot.
Bifreiðastillingar
NICOLAI
Brautarholti 4—Sími 13775
Til sölu notuð
skrifstofuhúsgögn, m.a. skrifborð,
stólar, fundarborð og fleira.
Uppl. í síma 23476 og52405 eftir kl. 18.
Skipstjóra- og stýri-
mannaf élagið Aldan
Aðalfundur skipstjóra- og stýrimanna-
félagsins Öldunnar verður haldinn nk.
sunnudag 29. jan. kl. 14 að Hótel Loft-
leiðum, Kristalsal.
FUNDAREFNI:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál. STJÓRNIN
Hafnarfjöröur!
Blaðburðarbörn óskast í
suðurbæ
og fleirí hverfi
Upplýsingar í síma 52354
kl.5til 7.
msBiAÐia
ST10RNMALA-
FLOKKURINN
Skrifstofur Stjórnmálaflokksins eru að I.augavegi 84 II.
hæð, síini 13051 og eru opnar alla virka daga frá kl. 5 til 7
e.h.
STUÐNINGSMENN. Komið á skrifstofurnar eða hringið
og látið skrá vður.
STJÓRNMÁLAFLOKKURINN.
BJÖRNINN
Smurbrauðstofan
Njúlsgötu 49 — Sími 15105
Josep Luns f ramkvæmdast jóri N AT0:
Ottast mjög kommún-
istastjóm á Ítalíu
„Gripum til okkar ráða gegn kommúnistum á íslandi,
og víðar og þau dugðu”
Joseph Luns framkvæmda-
stjóri NATO sagði í Brussel í
gær að það væri mjög alvarlegt
ef kommúnistar settust í
embætti utanríkis- eða varnar-
málaráðhrra einhvers vestræns
ríkis. Þessi.vfirlýsing Luns er
tilkomin vegna stjórnar-
kreppunnar á Ítalíu, þar sem
kommúnistar sækja fast að
komast í stjórn.
Luns sagði að bandalagið
hefði glímt við kommúnista í
rikisstjórnum NATO ríkja og
nefndi ísland, Portúgal og
Frakkland og bætti við „Við
gripum til okkar ráða og þau
dugðu“.
En Luns sagði málið alvar-
legra hvað varðaði Italíu.
Stjórnin í Róm er fastur með-
limur í kjarnorkuáætlunarráði
NATO, sem fjallar um hvernig
bandalagið myndi heyja kjarn-
orkustríð við Sovétríkin og
hefur þannig aðgang að
viðkvæmustu leyndarmálum
NATO.
Síðasti Fólksvagninn kvaddur. Eins og DB skýrði frá nýlega hættu v-þýzku Volkswagenverksmiðjurn-
ar frainleiðslu á hinni margfrægu Volkswagenbjöllu sinni nú í fvrri viku. Hér má sjá síðasta
Volkswagenbílinn af þessari gerð nýkominn úr verksmiðjunni, blómum skrýddan. Þessi bíll var nr.
16.222.000, en fyrir utan þessar rúmlega 16 milljónir hafa verið framleiddar 3.3 milljónir bjallna víða
um heim í verksmiðjum Volkswagen.
París:
Einum ríkasta manni
veraldar rænt í gær
óvístum tilganginn
Enn er ekki vitað hverjir
standa á bak við ránið á
belgíska iðjuhöldinum
Edouard-Jean Empain, sem
rænt var af grímuklæddum
mönnum í París í gær. Empain
barón er yfirmaður fyrirtækja-
samsteypu, sem í eru um 500
fyrirtæki víðs vegar um heim.
Baróninn er talinn einn auðug-
asti maður heims, en hann er
fertugur að aldri.
Einkabifreið barónsins
stöðvaði þar sem flutningabíll
hafði lagt þvert fyrir veginn og
maður af mótorhjóli lá í
götunni og svo virtist sem um
slys væri að ræða. Þegar bíll
barónsins stoppaði stukku tveir
grímuklæddir menn út úr
flutningabílnum og yfirbugðu
bílstjóra barónsins og óku á
brott með baróninn í bíl hans.
Bílstjórinn var hart leikinn og
getur litla lýsingu gefið á
mönnunum.
Baróninn hefur oft sætt
gagnrýni vinstri hópa en ekki
er vitað hvort mannránið er af
pólitískum toga eða hvort
ræningjarnir ætla að krefjast
fjárupphæðar í skiptum fyrir
baróninn. Frakklandsforseti
ræddi mannránið þegar við
innanríkisráðherra sinn og
fylgjast þeir stöðugt með fram-
vindu málsins.
Vaxmyndasafn Madame Tussaud:
Helmut Schmidt f ríkkaður
—enda var hann úttaugaður og bólugraf inn
Vaxmyndin af Helmut
Schmidt kanslara í Vestur-
Þýzkalands í Vaxmyndasafni
Madame Tussaud í London
hefur nú fengið andlits-
Ivftingu.
Gestir, sem heimsóttu safnið
frá Þýzkalandi og víðar að,
höfðu kvartað yfir því að
kanslarinn væri slæptur að sjá
og úttaugaður og ekki bætti úi
skák að vaxmyndin væri
bólugrafin þar sem hún stæði
við hlið annarca fyrirmenna í
safni frúarinnar.
Safnið sagði að eftirmyndin,
sem gerð var af kanslaranum
hefði verið gerð á þann hátt að
skinnið væri gróft, enda fyndist
sumum kanslarinn strangur og
miskunnarlaus í útliti. En
vegna áskorana hefur safnið nú
ákveðið að húð kanslarans
verði mjúk eins og barnsrass og
hann mildaður í útliti.
Ekki er óalgengt að hressa
þurfi upp á vaxmyndir og
nefndi talsmaður safnsins að 13
útgáfur hefðu verið gerðar af
Winston Churchill á meðan
hann var og hét.