Dagblaðið - 11.02.1978, Side 5

Dagblaðið - 11.02.1978, Side 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978. 5 „Gráa skýrsla” Hafrannsóknarstofnunar: Hvað má veiða, hvenær, hvar; hvemig— og hversu mikið? í skýrslu Hafrannsóknarstofn- unarinnar um ástand nytjafiska á íslandsmiðum og aflahorfur áriö 1978 eru settar fram tillögur stofnunarinnar um það hvað leyfilegt skuli að veiða af hverri fisktegund fyrir sig. Kennir þar margra grasa en auðsætt er að stofnunin reynir eftir megni að fá menn til að skilja nauðsyn þess að sóknin í þorskstofninn minnki verulega og reynt verði að beina veiðunum í aðra fiskstofna. Hafrannsóknarstofnunin hefur áður gert slíkar tillögur en telja verður að henni hafi orðið lítið ágengt enda við ramman reip að draga þar sem er furðulegt tóm- læti og afskiptaleysi æðstu yfir- valda þessara mála. 1 tillögum Hafrannsóknar- stofnunarinnar kemur fram að þeir telja auk þeirra friðunarað- gerða, sem þegar eru í gangi, að réttast sé að þorskafli 1978 og 1979 fari ekki fram úr 270 tonnum hvort árið. Leggja þeir til að aflasamsetning veröi sem hér segir: 3-4 ára 35 þús. tonn 5-6 ára 167 þús. tonn 7 ára og eldri 68 þús. tonn Afli alls 270 þús. tonn Auk þessa er lagt til í skýrslu Hafrannsóknarstofnunarinnar að gripið verði til skyndilokunar svæðis ef 20% af afla (eftir fjölda) er undir 58 cm fram til 1. júlí en 20% af afla undir 62 cm það sem eftir er ársins. ÝSA Mikil breyting varð til batnaðar er möskvar voru stækkaðir í 155 mm hvað varðar ýsustofninn hér við land er möskvar voru stækkaðir í 155 mm. Er talið að núverandi sóknarþungi og möskvastærð muni gefa hámarksafrakstur niðja þegar fram í sækir og telur stofnunin hæfilegt að veidd verði 40 þús. tonn af ýsu í stað 30 þús. tonna í fyrra. UFSI Bráðabirgðatölur sfðastliðsins árs benda til þess að afli hafi verið svipaður þeim og leyfilegur var það árið, eða um 60 þús. tonn. Þó er talið réttast, með hliðsjón af ástandi stofnsins að hækka ekki þann kvóta fyrir árið í ár, heldur hafa hann hinn sama. KARFI Sókn okkar íslendinga i karf- ann minnkaði verulega árið 1977 og hefur karfaafli því dregizt saman. Er talið að við höfum veitt sjálfir um 28 þús. tonn en aðrar þjóðir, þá sérstaklega Þjóðverjar, meira. Heildaraflinn á karfa á íslandsmiðum er talinn nema um 62 þús. tonna á árinu. Samkvæmt alþjóðlegri rann- sókn, sem gerð hefur verið á karfastofninum, kemur í ljós að smákarfi hefur verið mikið veiddur við A-Grænland, hann vex hægt og er óvissa ríkjandi um raunverulegt ástand karfans. Leggur Hafrannsóknarstofnun þvi til að hámarksafli á karfa hér við land verði um 60 þús. tonn en þann kvóta eigum við íslendingar að geta fullnýtt okkur nú þegar við sitjum einir að aflanum. SKARKOLI Skarkolastofninn hér við land er vannýttur. Allt frá því að Bretar hættu skarkolaveiðum hér við land hefur ásókn í þær veiðar verið lítil, aðeins veidd um 4500 tonn. Leggur stofnunin til að þær veiðar verðt stórlega auknar og nefnir 10 þús. tonna hámarksafla í því sambandi. GRÁLÚÐA, lúða, og steinbítur eru fiskistofnar hér við land sem ýmist hafa verið ofnýttir eða eru fullnýttir eftir undanfarandi of- nýtingu. Hámarksafla þeirra er haldið í sama horfi og verið hefur, 15 þús. tonn, 2 þús. tonn og 13 þús. tonn. SPÆRLINGUR Meðalafli á spærlingi á árunum 1969 til 1976 hefur verið 7.600 tonn. Er lagt til að spærlings- veiðar verði auknar verulega. Lýsa, langa, blálanga, keila, skötuselur, langhalar, gulilax, litli karfi og hrognkelsi. Um alla þessa fiskistofna er fjallað sérstaklega í skýrslunni en þeir eiga það sammerkt að um raunverulegt ástand þeirra er ekki vitað í flestum tilfellum en veiðar verið litlar. Er talið óhætt að mæla með aukinni sókn í þessa fiskistofna. SÍLD Hafrannsóknarstofnunin gerir að vonum ákveðnar tillögur um hámarksafla og tilhögun síldveiða fyrir árið 1978: a. Leyfilegur hámarksafli verði 35.000 tonn. b. Þessum afla verði skipt milli hringnóta- og reknetabáta, en þar sem 3-4. ára síld (20-30 cm) verður í miklum meirihluta á mið- unum á hausti komanda er ein- dregið lagt til að sú aflaaukning sem gert er ráð fyrir frá fyrra ári verði fyrst og fremst tekin með reknetum og hringnótaveiðar ekki auknar frá því sem var árið 1977. c. Hringnótaveiðar verði leyfðar frá 20. sept. — 20. nóv. en reknetaveiðar frá 20. ág.—20. nóv. d. Reglugerð um bann við veiði smásíldar verði breytt þannig að 27 cm síld og minni megi ekki vera meiri en 25% í afla í stað 50% (eftir fjölda). L0ÐNA Til þess að tryggja viðvarandi hámarksafla loðnu og stuðla að öflun góðs hráefnis leggur Haf rannsóknarstofnunin til að settar verði eftirfarandi takmarkanir við loðnuveiðar: a. Hámarksafli verði ein millj. tonna á tímabilinu 1. júlí 1978 til 30. júní 1979. b. Loðna 12 cm á lengd og minni verði friðuð með a) svæðislokunum b) ákvæðum um aflasamsetningu eins og nú er, c) setningu reglugerðar um lágmarksmöskvastærð 19 mm. c. Veiðibann frá lokun vetrarver- tíðar til 15. júlí meðan yngri árgangurinn er að taka út sumar- vöxt, loðnan að fitna og átuinni- hald er mest. KOLMUNNI Astandi kolmunnastofnsins og fyrirhugðum veiðum á honum er hægt að lýsa með orðum Hafrann- sóknars'tofnunarinnar: ,,Sá afli sem hingað til hefur verið tekinn. er svo örlítið brot af stofninum að telja verður hann mjög lítið nýttan“. HUMAR Talið er að stofninn hafi verið kominn í 13.200 tonn á sl. ári sem er aukning frá þvi sem áður hefur verið. Er hún fyrst og fremst rakin til nýliðunar í árgangana 1969 til 1971 í nýtanlegum hluta humarstofnsins á árunum 1975 til 1977 fyrst sem smáhumri og síðar millihumri. Hluti stórhumars hef- ur að mati Hafrannsóknarstofn- unarinnar farið sífellt minnk- andi. HÖRPUDISKUR Varðandi hörpudisk telur Haf- rannsóknarstofnunin að veiðiþol þekktra miöa sé um 5000 tonn i Breiðafirði, 1000 tonn á Vest- fjörðum og a.m.k. 1500 tonn í Húnaflóa, eða samtals um 7.500 tonn. RÆKJA Rækjuvertíðin hefst víðast hvar i október eða nóvember og fæst oft einn þriðji til helmingur vertíðaraflans fyrir áramót. Með hliðsjón af varanlegum hámarks- afrakstri og til að reyna að tryggja sem jafnastan afla frá ári til árs gerir Hafrannsóknarstofn- Sem betur fer erum við lausir við þann ófögnuð sem erlend verksmiðjuskip eru. Myndin sýnir austur þýzka togara undan ströndum Bandarikjanna. unin eftirfarandi tiliögur um hámarksafla á veiðisvæðunum: V eMirit ’.n veturinn 1977-7 8 1978-79 tonn tonn Arnarfjörður 600 590 Isafjarðardjúp 2500 2500 Ilúnaflói 2000 2000 Axarfjörður 850 850 Berufjörður 85 75 HVALUR 0G HVALVEIÐAR Hvalveiðar eru víðast hvar mjög umdeildar en hvalstöðin hér verður þó varla talin stærsti skað- valdurinn á því sviði, enda hefur hún sjálf sett sér ýmsar takmark- anir. Alþjóðahvalveiðiráðið hefur gert það að tillögu sinni að hámarksafli á meðalári verði ekki meiri en 254 langreyðar og 84 sandreyðar. Enn hefur ekki verið settur hámarkskvóti fyrir búr- hvali hér við land. Leyfilegt er að veiða 200 hrefnur á þessu ári. SELIR OG SELVEIÐAR Selveiðar hafa verið enn eitt deilumálið að undanförnu í heiminum. Hér við land er talið að um 30 til 35 þúsund selir lifi góðu lífi og enn hafa engar tak- markanir verið settar á fjölda selkópa er veiða má við landið. Samantekt —HP. Auglýsing um hönnun bygginga með tilliti tilfatlaðra Á fundi menntamálaráðherra Norðurlanda í Re.vkja- vík í júní 1974 var lögð áhersla á að í menningarsam- starfi beri að taka sérstakt tillit til þeirra, sem fatlaðir eru. >g búa þannig í haginn að þeir geti í sem ríkuslum mæii tekið þátt í og notið þess sem um er að ræða á sviði menningarmála. í orðsendingu frá menntamáiaráðu- neytinu 15. júlí 1974, sem birt var í fjölmiðlum, var þeim tilmælum beint til allra sem hanna bvggingar, er varða starfssvið menntamálaráðunevtisins að einhverju levti, svo sem skólahús, félagsheimiíi, safnahús o.s.frv., að þess sé vandlega gætt að gera fötluðu fólki sem auðveldast að komast inr, í húsin og fara í kringum þau. í bréfi til Arkitektafélags íslands og Sambands íslenskra sveitar- félaga 11. mars 1975 minnti ráðuneytiö á þetta ntál og æskti góðrarogarangursríkrarsamvinnuallra’ r um þetta mál fjaila. Um leið og ráðunevtið minnir enn á þessi viðhorf sín vekur það athygli á að það mun ekki staðfesta teikningar að b.vggingum nema framangreindra atriða sé gætt. í MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU, 9. febriúar 1978. SEGLBATUR með OG GENOA ÐAR FYRIR R. SKROKKUR BATSINS ER OR TREFJAGLERIj EN YFIRBYGGING ER SMIÐUÐ 0R MAHOGANY VIÐI. SÍMI 2 18 14

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.