Dagblaðið - 11.02.1978, Síða 9

Dagblaðið - 11.02.1978, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978. 9 Bent komst ekki áfram. Fyrir það afrek var Friðrik sæmdur titli stórmeistara. MESTI YFIRBURDA- SIGUR FRIÐRIKS Þá er komið fram á árið 1959 — þar mættust kapparnir fyrst á hinu fræga Beverwijk-móti I Hol- landi. Friðrik hafði svart.gegn Larsen og vann skákina. Sigraði á mótinu með tveimur vinningum meira en næsti maður — mesti yfirburðasigur, sem Friðrik hefur unnið á skákmóti erlendis. Aðeins örfáir mánuðir liðu og aftur settust Friðrik og Bentgegnthvor öðrum við skákborðið. Nú austur í Moskvu. Friðrik hafði svart og vann Bent — en þegar þeir tefldu í Zurich i Sviss þetta sama ár stýrði Bent svörtu mönnunum. Venjan hélzt. Bent vann. 1960 tefldu þeir tvær skákir. Fyrst í Beverwijk og síðan í Berg en Dal. Bent hafði svart í fyrri skákinni og vann — Friðrik í þeirri síðari og vann. HLÉ ÍFIMM ÁR — SÍÐAN HÖFN Nú var langt hlé, þar til þeir hittust aftur við skákborðið — enda tefldi Friðrik lítið á næstu árum. Bent Larsen gerðist hins vegar atvinnumaður í skák. Hefur verið það sfðan. En 1965 tefldi Friðrik á opna danska meistaramótinu og Bent var þar einnig meðal þátttakenda. Lengi vel leit út fyrir, að þeir myndu ekki tefla saman innbyrðis — Bent stóð sig illa framan af, en teflt var eftir Monrad-kerfi. Þó kom að því undir lokin og f annað skipti í skákum þeirra varð jafntefli. Sigurvegari á þessu móti varð danskur skákmaður, sem ekkert hefur heyrzt frá síðan. Friðrik varð í öðru sæti með 5 vinninga ásamt tveimur öðrum skákmönnum. Larsen hlaut 4.5 vinning. Árið eftir mættust þeir á 1. borði f viðureign Islands og Dan- merkur á Olympíuskákmótinu f Havana á Kúpu. Friðrik vann þá skák — á svart auðvitað. En 1967 var ísinn brotinn á skákmóti í Dundee á Skotlandi. Þeir Friðrik og Bent tefldu saman í síðustu umferðinni og Friðrik hafði svart. Allt virtist benda til þess, að þar yrði ekki um neina undantekn- ingu að ræða frá reglunni. Friðrik fékk yfirburðastöðu. Skákin var létt unnin, þegar þeir tóku til við biðskákina — án hvíldar — og aðeins tímaspursmál hvenær Bent gæfist upp. — Friðrik átti nægan tíma — en Bent komst í mikið tímahrak. Alveg öfugt við það, sem venjulega gerist í skák- um þeirra. Bent þráaðist við að gefa og allt f einu var Friðrik sleginn skákblindu — lék hroða Jega af sér og Bent vann. Skákin birtist litlu sfðar f Sunday Telegraph ásamt stöðumynd, þegar Friðrik lék af sér, og sagði hinn kunni skákmaður enski, Alexander, að sennilega liði ár og dagur, þar til Larsen hlyti aftur annan eins heppnisvinning. En hvað sem þvf lfður, þá missti Friðrik af efsta sætinu á mótinu fyrir bragðið. Gligoric varð efstur með 6l/4 vinning, en Friðrik og Bent deildu með sér öðru sæti — hlutu 5Ví vinning hvor. Siðan liðu þrjú ár, þar til kapp- arnir mættust á ný — á stór- meistaramótinu í Luganó f Sviss 1970.Tefld var tvöföld umferð — Bent sigraði f fyrri umferðinni og nú á hvítt eins og f skákinni í Dundee, en jafntefli varð f sfðari umferðinni. Bent varð sigur- vegari í mótinu. Friðrik í öðru sæti, svo hlutur Norðurlanda var mikill á þessu móti, sem — eins og nafnið gefur til kynna — var aðeins setið stórmeisturum. AFTUR HLÉ í FIMM ÁR Friðrik tefldi ekki mikið á næstu árum og það var ekki fyrr en 1975 að kapparnir tefldu saman á ný. Það var á skákmóti í Las Palmas 1975. Eftir heldur rólega skák varð jafntefli. Sömu úrslit urðu hjá þeim, þegar þeir tefldu á 1. borði í viðureign Islands og Danmerkur f sex- landakeppninni f Ribe 1975. Á skákmóti f Genf 1977 sigraði Bent Friðrik, seni stýrði svörtu mönn- unum, og minnkaði muninn á þeim niður í tvo vinninga. A Reykjavíkurmótinu sl. sunnudag náði Friðrik svo aftur þriggja vinninga forskotinu, sem hann hefur haft allt frá 1953. Tvær síðustu skákir þessara snjöllu skákmanna hafa unnizt á hvftt. Er nú framundan hjá þeim nýtt 12 skáka tímabil, þar sem litur mannanna á skákborðinu skiptir sköpum? Nú hvítt — ekki svart eins og á árunum 1957-1967. Tím- inn verður að skera úr því en það verður alltaf viðburður í hugum íslendinga, þegar Friðrik og Larsen setjast gegnt hvor öðrum við skákborðið. hsfm Krossgáta S i i i , 'ovstt uR/N R/sr/ FjflR ' LFLGV VE/áfiR KROTftR SERHL fiKáfiN HESTuR m r-m 1 Pfp1 FoRSK 1- r T>u& „ LE6UR L't TiLL 'oL/k/R fiáN/R SKjoift /njö'ú miKLft /n'flN. 5 KRN l * H£ITI þEFfiR ftm/ELfl SHEmmft efstuR mYNN/ oP 1 'ftRNftD VB/SLfl Y£- S/£L/ mfttJUR í ' St/NáS VEÐUR TfíUFL fi R. 'ftRSTÍÐ SNJ'O riLEYTfi Fu&u 5Æ« þ lengd fiRm'ftLc E/N. STSLPft éL£t>/ ^ _ / Q/FfiR hv'l TuR f 5Lhín V ' Bok STfiFuR KNfiPP flR fi£y VflGft SER- Hlj• BYRÐ/ Fj'flVU FRfl/n FöfZ FoRrr ÓEN6UR fiDfiLS mENN DYRfl m'flL GfíFFA LL.JN/Y KE/Ð v£R 1) FfiNTft BRfióD* BEiSkhi/ BRÚ/< Y/STfl eRómu F'/n áERDftR : f 6RJÖT 5 KÓL/<r 'fi REIK/J. JfiRÐ VEGUR R/Tfi BERS m'ftLftR FORSE. UN6 HROS S NÉ5 H£L$/ SKR'ft fiöHfiR ÖáN/N FEJT/ S/Lfi KEPP/R Sv/Ð- IN6UR f D'oSin/ SuÐft sliT/hn QORÐ/ 'OL'/K/R S'fiR "t- hKLftZ ÓLftTftp HLUT/ 'iþRoTr Þ/N6D SKR'fl -T-L f SÍERTur LfiS/N FROST B/T %E/NS HftPP frosk mftNN m£R/ LÓPP HLÝT : fiáN/R H/NDR BR DfiNS NUNNk / /nfttJUR : T W) (/) (/) (/) '3 es (/) kco Cs VA r cv; VD K vo K Ck: u. k N <t: vn vr> í) X 3: * «a: K K Ui Ckc vo 0. <^ vn :s <*. <3: vn V3 Ri V- Qí q: vo \ k '0: . vn «5: Q; -4 <*: * Ul vo K <P 3s: ■vl <3: P) • vn - - • K r cí: <3; <3: VT) K Ul • •S; <t: VD <£ Pk: r o N <3: k • 4: <3: vn vn • Pf •í) «*: Csc - vn <?: VD \ <í: CD ■4 • VQ ■s; K * • cs: ’Al VD 'J . • vn o: K <*: «*: vr> Uj QC N «4: VD * <!: íí: * RV Ckc <í: K K QC .<3; K ki Pc -J <c U. <t: .o 2: VD <3: • vn • CO • VT> vn • VD .<3: vn •

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.