Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 11.02.1978, Qupperneq 10

Dagblaðið - 11.02.1978, Qupperneq 10
10 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978. "" B WBIAÐW hjálst, úháð dagblað Útgefandi Dagblaðið hf Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Krístjánsson. Fréttastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjórnar: Jóhannes Reykdal. íþróttir: Hallur Símonarson. Aöstoöarfréttastjóri: Atli Steinarsson. Handrit: Ásgrímur Palsson. Blaöamenn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurðsson, Dóra Steffónsdóttir, Gissur Sigurðsson, Hallur Hallsson, Helgi Pétursson, Jónas Haraldsson, Ólafur Geirsson, Ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lár. Ljósmyndir: Árni Póll Jóhannsson, Bjarnleifur Bjarnleifsson, Hörður Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurðsson, Sveinn Þormóðsson. Skrifstofustjori: Ólafur Eyjólfsson, * Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: Mór E.M. Haildórsson. Ritstjórn Síöumúla 12. Afgreiðsla Þverholti 2. Áskriftir, auglýsingar og skrifstofur Þverholti 11. Aðalsími blaðsins 27022 (10 línur). Askrift 1700 kr. á mónuði innanlands. mds. í lausasölu 90 kr. t lausasölu 90 kr. eintakið. Setning og umbrot: Dagblaðið og Steindórsprent hf., Ármúla 5. Mynda-og plötugorö: Hilmir hf. Síðumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skeifunni 19. Launþegasamtök spottuð Óviturlega fer ríkisstjórnin að, þegar hún kýs að skopast að verkalýðshreyfingunni, um leið og hún leggur fram ráðagerðir um mikla kjaraskerðingu. Lengi hefur verið viðurkennt, að raunhæfum efnahagsaðgerðum ' verði varla komið við án samráðs og samstarfs við verkalýðshreyfinguna. Þetta hlýtur fyrst og fremst að gilda, þegar verulegur þáttur að- gerða er skerðing kjarasamninga. En í höndum Geirs Hallgrímssonar verða samráðin argasta háð. Að frumkvæði forsætisráðherra var fyrir meira en ári stofnuð svonefnd verðbólgunefnd með fulltrúum þingflokka og ýmissa hags- munahópa. Látið var að því liggja, að tilvist þessarar nefndar mundi valda straumhvörfum í efnahagsmálum. Hér hefðl forsætisráðherra brotið blað. Niðurstöður nefndarstarfsins liggja nú fyrir. Útkoman varð hin sama og hefði fulltrúum þessara aðila verið hóað saman á helgarfund. Nefndin klofnaði í marga hluta, þar sem hver hélt fram hagsmunum síns hóps. í rauninni notaði ríkisstjórnin nefndina ein- ungis sem skálkaskjól. Henni þykir skárra að reyna að fela sig bak við tillögur óljóss meiri- hluta í nefndinni en bera þær fram sem sínar tillögur eingöngu. Að sjálfsögðu falla tillögur meirihluta nefndarinnar og tillögur ríkis- stjórnarinnar saman. Meirihlutinn var ein- göngu að vinna verk fyrir ríkisstjórnina. Nefndin var því markleysa. Fulltrúar launþegasamtaka, ASÍ og BSRB, sátu í verðbólgunefnd. Þeir fengu að gera tillögur um lausn efnahagsvandans, en þeim var að sjálfsögðu enginn gaumur gefinn. Auk þess fengu þeir undir lokin að sjá, hvaða „val- kosti“ meirihlutinn hafði sett á blað. Fulltrúar launþegasamtakanna virtust á því stigi enn telja, að einhver samráð kæmu til greina. Því skoðuðu þeir nánar þann eina valkost, sem ekki fól í sér ógildingu kjarasamninga, kost, sem gerði ráð fyrir skattahækkunum. En ríkis- stjórnin hafði launaþegafulltrúana að fíflum. Auðvitað stóð ekki til að fara aðra leið en að ógilda kjarasamninga. Tilburðir í þá átt að leyfa launþegafulltrúum og stjórnarand- stæðingum að skoða valkosti í nokkra daga voru spé. Launþegafulltrúar sátu í verðbólgu- nefnd og voru kvaddir á fund ráðherra til þess eins að fá kost á að samþykkja það sem ríkis- stjórnin ætlaði sér, ekki til annars. Ekki var hlustað á neinar úrtölur þeirra eða tillögur. Og enn lumaði ríkisstjórnin á spotti. Fulltrúar launþegasamtakanna voru loks kvaddir á fund forsætisráðherra í fyrrakvöld, í þann mund sem lokið var prentun á kjara- skerðingarfrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Til- gangurinn var að lesa þeim, hvað gera skyldi. Og viti menn, enn var ríkisstjórnin með kjara- skerðingu í erminni til viðbótar því, sem áður var fram komið. Obeinir skattar skyldu felldir úr vísitölu um næstu áramót. Von var, að launþegafulltrúarnir hefðu fengið nóg af kímnigáfu forsætisráðherra, þegar hér var komið. 1 111 Orkumálin í brennidepli: OLÍA SÍFELLT MEIRA NOTUÐ í BANDARÍKJUNUM Carter forseti ieggur áherzlu á aukna kolanotkun ogsamdratti mmiutnmgi oiiu Bandaríkjamenn auka enn olíunotkun sína og hún er að verða meginorkugjafi þeirra þrátt fyrir hvatningu Carters Bandaríkjaforseta til þjóðar- innar að nota heldur kol. Þetta hefur komið í ljós í athugunum Ameriean Petrolium Institute. En þær at- huganir leiða einnig í ljós að nokkur árangur hefur náðst í orkusparnaðarmálum í Banda- rikjunum þótt ekki sé það svo mikið að í vaxandi mæli verður að treysta á innflutta olíu sem orkugjafa. ■ Eftirspurn eftir olfu jókst um 5% á síðasta ári og er það heldur minni aukning en varð á árinu 1976, en þá jókst eftir- spurnin um 6.9%. Athyglisvert að eftirspurn eftir aðalolíuaf- urðinni, bensíni, minnkaði jafnvel meira eða féll frá 4.5% í 2.4% árið 1977. ÁHERZLA LÖGÐ Á AÐ NÝTA NÁTTÚRU- AUÐLINDIR BANDARÍKJANNA Minni aukning eftirspurnar á síðasta ári gefur til kynna árangur í orkusparnaðartil- raunum Carters E:. það er ann- að sem er athyglisvert. Olíu- eftirspurn siðasta árs jókst um 5% en eftirspurn eftir öðrum orkugjöfum jókst um 3%, sem bendir eindregið til þess að sl- fellt fleiri snúi sér að notkun olíu sem orkugjafa í stað ann- arrar orku. „Slík tilhneiging undirstrik- ar þörfina á því að finna og vinna meira af náttúruauðlind- um landsins,“ sagði formaður API. „Að halda áfram að mæta aukinni þörf landsmanna fyrir olíu með auknum innflutningi gæti verið of mikil áhætta fyrir öryggi og efnahag Bandaríkj- anna.“ Orkuáætlun Carters forseta sem nú er fyrir þingi, gerir ráó fyrir orkusparnaði og aukinni kolanýtingu. Forsetinn hefur sagt að olíunotkun muni aukast um 31% fram til ársins 1985, þannig að hún verði 22.8 millj- ónir tunna á dag, ef ekki verður farið eftir tillögum hans. Ef það verður hins vegar gert gæti neyzlan orðið 18.2 milljónir tunna á dag 1985 og með aukn- um aðgerðum jafnvel ekki nema 17 milljónir lesta. Með þessum aðgerðum ætlar Carter að hafa dregið úr inn- flutningi erlendrar olíu um 20% árið 1985, en innflutt olía nam 41% af heildarneyzlunni í Bandaríkjunum árið 1976. Þrátt fyrirþað að 1.3% aukning hafi orðið á olíuframleiðslunni innanlandshefur innflutningur aukizt. Aukning á oliufram- leiðslu hefur ekki orðið í Bandaríkjunum síðan 1970 en ástæðan fyrir aukningu á sl. ári var nýja olíuleiðslan frá Alaska. Ekki líta allir orkustefnu Carters forseta jafnhýru auga. * ÞEGAR SAMÚÐIN FÉLL MILLISKIPS OG BRYGGJU Það er kafli sem er þess verður að dveljast við drykklanga stund hver var þáttur sumra blaðanna og nokkurra stéttvilltra sjómanna er stóðu að því að ófrægja samtök opinberra starfsmanna með ýkjusögum og hrollvekjum er sagðar voru af ómannúðlegri framkomu verkfallsvarða f októbermánuði sl. Fyrir okkur útvarpsstarfsmenn sem höfum gott útsýni yfir Reykjavfkur- höfn verður þetta þvf minnis- stæðara þegar þess er gætt að veðurblíða var einstök þessa verkfallsdaga alla. Rjómalogn og stillur. Tæpast að öldu- gjálfur heyrðist, nema þá logn- aldan sem vaggaði hettumáfum og æðarfugli við Kolbeinshaus. Með þetta f huga varð enn minnisstæðari mynd frá útför Gunnars Gunnarssonar skálds f nóvembermánuði 1975. Hinn aldni höfðingi og væringi skáld- mennta og frægðar kaus sér hinsta hvílustað f fornhelgri mold Viðeyjar. Mælti svo fyrir að fámenn fjölskylda og vinir skyldu fylgja sér i hinstu för á litlum vélbáti úr Reykjavlkur- höfn til Viðeyjar. Uggi Greipsson — Hug- leikurmjögsiglandi er við mun- um, kaus sér Skip heiðrfkjunnar til hinstu farar. Á köldum og næðingssömum degi i norðaustan stinnings- kalda vaggaði skip hans litlu stærra en áttæringur og bar innanborðs dýran farm. Kistu skáldsins og það fylgdarlið er honum var kærast og tengdast tryggustum böndum. Við út- varpsmenn og starfsmenn Fiskifélags og Hafrannsókna- stofnunar fylgdumst með norðanstróknum sem ýfði sjávaröldur er skulfu með ágjöf og ákafa á kinnung fleytunnar. Flestum fannst mikið til um för skáldsins og þótti viðeigandi að höfundur sá er ritað hafði svo margar myndríkar sögur, Svartfugl, Fjallkirkjuna og Jón Arason viki sér með þeim hætti f Viðeyjarklaustur. Kjallarinn PéturPétursson Mér er nær að halda að finna megi lýsingar á hinstu för skáldsins f Reykjavíkurblöðum. Ég minnist þess ekki að hafa séð þess getið að hið látna skáld, aðstandendur þess né út- fararstjórn hafi hlotið ámæli af þessu. Þó fannst þeim sem á horfðu sem hér væri ólíku saman að jafna og þessi umrædda vetrarför tvfsýnni, ef jafnað var við ferðirnar er farnar voru á bátum er fluttu skipverja og ættingja þeirra milli skips og bryggju verkfalldagana. Framtakssamur bátseigandi hafði fyrir nokkrum árum gengist fyrir Viðeyjarferðum og komið á stofn veitingastofu f Viðey. Flutti bátur hans Reyk- víkinga milli lands og eyjar og varð margur til þess að hlýða kalli enda spöruðu blöð og út- varp ekki hvatningarorð um þátttöku. Aldrei heyrðist orð um að hér væri lffi og limum stofnað í hættu né að teflt væri á tæpt vað. Merkur aldinn blaðamaður Morgunblaðsins, Arni Öla, ritaði eitt sinn grein f Morgunblaðið. Þar stakk hann upp á þvf að Viðey yrði fram- tíðargrafreitur — kirkjugarður Reykvíkinga. Við minnumst þess ekki að hafa séð greinar er vændu hann um að ætla sér með þeim hætti að stuðla að ófarnaði landa sinna og sam- borgara. En við BSRB menn máttum una þvf af hálfu Morgun- blaðsins og hjálparkokka þess að vera borið á brýn að við virtum að vettugi öryggi sjómanna og ástvina þeirra. Aðeins einn aldraður heiðursmaður í sjómannastétt lagði okkur lið með smágrein f Velvakanda Morgunblaðsins. Það var Jón Eiríksson fyrrv. skipstjóri á Lagarfossi er ritaði stutta en mergjaða grein og tók sér stöðu við hlið okkar. Það var siður litlu barnanna að kalla á mömmu og klaga, sagði hann. Þetta gera stóru börnin lfka. Aflmiklar vélar, talsamband við land, loftskeyti öflug tæki og tól. Allt er til

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.