Dagblaðið - 11.02.1978, Side 13

Dagblaðið - 11.02.1978, Side 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978. 13 Regnboginn sýnir Brúðuheimilið: Hvaðan kemur þessi kuldi? Rognboginn „Bnj6uh«imlli6" Englond 1973 Laikstjórí: Jossph Losoy. Það er ekki langt siðan Brúðuheimili Ibsens var sýnt í Þjóðleikhúsinu og hlaut góðar viðtökur, ef ég man rétt. 1 fréttatilkynningu Þjóðleikhúss- ins hefur áreiðanlega staðið, að sýningin hafi hlotið „frábærar viðtökur" áhorfenda og gagn- rýnenda. Það er bandariska leikkonan Jane Fonda sem leikur aðal- hlutverkið, Noru. Frammistaða hennar er vægast sagt mjög misjöfn. Trevor Howard er öllu betri í hlutverki læknisins Ranks. Hann er í rauninni sá eini sem virkar trúverðugur 1 myndinni — en hún ber tals- verðan keim af þvi að vera kvikmyndað leikrit, jafnvel þótt hún hafi ekki átt að vera það. Brúðuheimili Ibsens er tvi- mælalaust eitt af meiriháttar leikritum siðustu aldar. Þeir sem sáu sýningu Þjóðleik- hússins á sínum tima sögðu svo frá, að sýningin hefði virkað trúverðug og kröftug. Myndin er hvorugt. Sýningin í Regn- boganum (D-sal) var liðlega hálfnuð'þegar ég fór að velta þvi fyrir mér hvað ylli þessum óvenjulega kulda, sem mér fannst stafa frá myndinni; tilfinningaleysi og gervi- mennsku. Þegar stúlka á næsta bekk fyrir framan mig fór i kápuna varð mér ástæðan ljós: það var iskalt í salnum. Þetta er kannski bió realismans — myndin gerist að mestu leyti að vetri til og allir klæddir i loðfeldi og ullarföt. Þetta var útúrdúr. Kvik- jnyndataka og ytri gerð mynd- arinnar virðist öll til fyrir- myndar — en liklega er það leikstjórinn Losey sem hægt er að skamma fyrir slaka frammistöðu leikaranna. Meira að segja I Iokaatriðinu, þegar Nora tekur ákvörðun um að fara frá Þorvaldi pungrottu, manni sínum, þá trúir maður henni alls ekki. Og því siður trúir maður að hann setji það fyrir sig. En þvi verður ekki neitað, að Jane Fonda er falleg kona. -ó. vald. Kvik myndir SKELFING LEIÐIST MÉR ÞESSI , ÁRSTÍMI! QUACK QUACK! QUACK QC/Ac/c Moa/K.j ÉGFÆ \ BÚFERLISHÖFUDVERK! ÁFRAM TIL PERÚ. ÞYRLAN NÆR|ÁFANGASTAD SÍNUM — HINUM JARDSKJÁLFTAÞJÁDU LANDSV/EDUM ÞAR SEM HID FORNA KRÚNUDJÁSN PERÚ ER FALIÐ. i V hinn forni gud og 'byggingameistari hlýtur, g' AD BROSA AF jHfewÁNÆGJU... GRUNLAUS UM FYRIRÆTLAF TEKUR LÍKLEGA TÍMANN SINN AD GRAFA DJÁSNID UPP!! PviD GETUM NOTAÐ ÞYRLUNA SEM BÆKISTOÐ TIL AÐ BYRJA ÞARNA ' ^ EINHVER, VELKOMNIR VINIRjKOMID EIN | OG AF OKKAR VORU

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.