Dagblaðið - 11.02.1978, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978.
<1
Útvarp
23
Sjónvarp
i
Útvarp kl. 19.35 í kvöld:
Vatnajökull
Útvarpið kl. 19.25 á sunnudaginn:
Kvikmyndaþáttur
Grundvallaratriði
kvikmyndagerðar
Vatnajökull verður viðfangs-
efni Tómasar Einarssonar í út-
varpsþætti í kvöld kl. 19.35. Er
þetta fyrsti þáttur Tómasar af
fjórum og mun sá fyrsti fjalla
um vatn og ís. Sagðist Tómas
hafa fengið sér til aðstoðar þá
Helga Björnsson jöklafræðing
og Sigurjón Rist vatnamælinga-
mann. Mun Helgi ræða um land
undir jökli, hvernig jökullinn
var áður og hvernig hann hefur
breytt sér og er orðinn nú.
Einnig mun rætt um þykkt
jökulsins. Sigurjón mun fjalla
um árnar sem renna frá jöklin-
um og hlaupin. Þá verður lesin
vel þekkt grein eftir Þórberg
Þórðarson, Vatnadagarnir
miklu. Annar þáttur fjallar um
eldstöðvarnar undir jökli, en
Tómas sagði þær vera þrjár.
Þátturinn er hálfrar klukku-
stundar langur. -RK.
Þorsteinn Jónsson er umsjónar-
maður kvikmyndaþáttar útvarps-
ins á sunnudaginn.
Kvikmyndaþáttur er á dagskrá
útvarpsins á morgun kl. 19.25 og
mun Þorsteinn Jónsson kvik-
myndagerðarmaóur sjá einn um
þáttinn að þessu sinni. Þorsteinn
sagðist myndi fjalla um myn,dmál-
ið og mun hann þá taka fyrir
helztu grundvallaratriði þess
hvernig saga er sögð með kvik-
mynd. Hann mun koma inn á hin
ýmsu myndskeið og fjalla um
eiginleika þeirra og gerðir, s.s.
kvikmyndatöku og klippingu.
Þorsteinn leggur áherzlu á öll
grundvallaratriði í þessum þætti
og að gera hin einstöku atriði
kvikmyndagérðar sem auðskiljan-
legust. RK
LAUGARDAGUR
11. FEBRÚAR
.00 Morgunútvarp.
sjuklinga kl. 9.15: Kristín Sveinbjörns-
dóttir kynnir. Barnatími kl. 11.10:
Dýrin okkar.
12.00 Daíískráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
* 12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynn-
inííar. Tónleikar.
13.30 Vikan framundan. Siíímar B. Hauks-
son sér um þáttinn.
15.00 Miðdegistónleikar.
15.40 íslenzkt mál. Ásf’cir Blöndal
Mafínússon flvtur þáttinn.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Vinsælustu popplögin.
17.00 Enskukennsla (On We Go). Leið-
beinandi: Bjarni Gunnarsson.
17.30 Framhaldsleikrit barna og unglinga:
..Antilópusöngvarinn". Ingebrifít
Davik samdi eftir sögu Rutar Under-
hill. Þýðandi: Sigurður Gynnarsson.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fróttaauki. Tilkynningar.
19.35 Vatnajökull. Fyrsti þáttur: ís og
vatn: Umsjön: Tóinas Einarsson. M.a.
rætt við Helga Björnsson jöklafræð-
ing og Sigurjón Rist vatnamælinga-
mann.
20.05 Óperutónlist: Atriði úr óperunni
..Mörtu" eftir Flotow.
20.55 Umrœður um umhverfismál á
Norðurlöndum. Borgþór Kjærnested
stjórnar þætti með viðtölum við um-
hverfisverndarmenn. og tónlist frá
mótum þeirra. Lesari: Björg Einars-
dóttir.
21.40 Vínarvalsar. Ríkishljómsveitin í Vín
leikur; Robert Stolz stjórnar.
22.00 Úr dagbók Högna Jónmundar. Knút-
ur R. Magnússon les úr bókinni
„Holdið er veikt" eftir Harald Á. Sig-
urðsson.
22.20 Lestur Passíusálma. Hlynur Árna-
son guðfræðinemi les 17. sálm.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Danslög.
SUNNUDAGUR
12. FEBRÚAR
8.00 Morgunandakt. Séra Pétur Sigur-
geirsson vígslubiskup flytur ritning-
arorð og bæn.
8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Útdráttur úr forustugr. dagbl.
8.35 Morguntónlaikar: Frá Bach-vikunni í
Ansbach i Þýzkalandi í fyrra.
Flytjendur: Rolf Jbnghanns og
Bradford Tracey semballeikarar
Pierre Amoyal fiðluleikari og Bach-
hljómsveitin í Ansbach.
9.30 Veiztu svariö? Jónas Jónasson
stjórnar spurningaþætti. Dómari:
ólafur Hansson.
10.10 Veðurfregnir. Fréttir.
10.30 Morguntónleikar — framh.
11.00 Messa í Hallgrimskirkju. Prestur:
Séra Ragnar Fjalar Lárusson. Organ-
leikari: Páll Halldórsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.20 Þjóðfélagsleg markmið islendinga.
Gylfi Þ. Glslason prófessor flytur
hádegiserindi.
14.00 Miðdegistónleikar: Frá Beethoven-
hátiðinni i Bonn i sept. i haust.
15.00 Upphaf spírítisma á íslandi; — siðari
hluti dagskrár. Helga Þórarinsdóttir
tekur saman. Lesarar með henni:
Broddi Broddason og Gunnar
Stefánsson.
15.50 Létt tónlist: Sigmund Groven leikur á
munnhörpu. Ketil Björnstad píanó-
leikari, Hindarkvartettinn o. fl. leika
með.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Endurtekið efnl: a. Sagan af Söru
Leander. Sveinn Ásgeirsson hag-
fræðingur tekursaman þátt um ævi
hennar og listferil og kynnir lög, sem
hún syngur. Fyrri hluti. (Aður
útvarpað 6. ágúst I sumar). b. Kynni af
merkum frnðaþul. Sigurður Guttorms-
son segir frá Sigfúsi Sigfússyni
þjóðsagnaritara. (Aður á dagkrá í maí
1976).
17 30 Útvarpssaga bamanna: „Dóra" eftir
Ragnheiði Jónsdóttur. Sigrún Guðjóns-
dóttir les(3).
17.50 Djassgestir í útvarpssal. Niels
Henning örsted Pedersen, Ole Koch
Hansen og Axel Riel leika. Kynnir:
Jón Múli Árnason.
18.30 Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Um kvikmyndir. Friðrik Þór
Friðriksson og Þorsteinn Jónsson sjá
um þáttinn, sem fjallar um hvernig
kvikmynd er unnin.
20.00 Kammertónlist.
20.30 Útvarpssagan: „Sagan af Dafnis og
Klói" eftir Longus. Friðrik Þórðarson
sneri úr grísku. Óskar Halldórsson les
sögulok(9).
21.00 íslenzk einsöngslög 1900-1930 VI.
þáttur. Nína Björk Elíasson fjallar um
lög eftir Sigvalda Kaldalóns.
21.25 „Heilbrigð sál í hraustum líkama";
þriðji þáttur. Umsjón Geir V.
Vilhjálmsson sálfræðingur. Rætt er
við læknana Björn L. Jónsson, Leif
Dungal og Sigurð B. Þorsteinsson,
Martein Skaftfells og fleiri.
22.15 Sónata fyrír selló og píanó oftir
Arthur Honegger. Roman Jablonski og
Chrystyna Boruzinska leika.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Kvöldtónleikar: Frá nýárstónleikum
danska útvarpsins.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
^ Sjónvarp
LAUGARDAGUR
11. FEBRÚAR
16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.15 On We Go. Enskukennsla. Fimmt-
ándi þáttur endursýndur.
18.30 Saltkrákan (L). Sænskur sjón-
varpsmvndaflokkur. 6. þáttur. Þýð-
andi Hinrik Bjarnason. (Nordvision
— Sænska sjónvarpið).
19.00 Enska knattspyrnan (L).
Hlé.
20.00 Fróttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Alþjóðlega skákmótið í Reykjavík.
(L).
20.45 Nadia (L). Nýlega fóru bandarískir
sjónvarpsmenn. með gamanleikarann
Flip Wilson i broddi fvlkingar. til
Rúmeníu og heimsóttu ólympíumeist-
arann í fimleikum kvenna. Nadia
Comanechi. en hún býr i litlu þorpi i
Karpatafjöllum. Þar gengur hún í
skóla. æfir íþrótt sína og skemmtir sér
með jafnöldrum. Þýðandi Ellert
Sigurbjörnsson.
21.35 Janis Carol (L). Söngkonan Janis
Carol hefur um nokkurt skeið starfað
i Svíþjóð. Þessi þáttur var gerður.
meðan hún var hér á landi i jólaleyfi.
Stjórn upptöku Egill Eðvarðsson.
21.55 „Gleðin Ijúf og sorgin sár". (Pennv
Serenade). Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1941. Aðalhlutverk Carv Grant og
Irene Dunne. Ung stúlka. sem vinnur
i hljómplötuverslun. verður ástfangin
af hlaðamanni. Þau giftasi. þegar
hann á að fara til Japans vegna at-
vinnu sinnar. Þýðandi Ragna Ragn-
ars.
23.50 Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR
12. FEBRÚAR
16.00 Húsbnndur og hjú (L). Breskur
myndaflokkur. Heimili óskast.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
17.00 Krístsmann (L). Breskur fræðslu-
myndaflokkur. 8. þáttur. Að vinna sálir
Fljótlega gerðist helmingur Evrópu-
búa mótmælendur. En kaþólska kirkj-
an tók stakkaskiptum, og á hennar
vegum var ötullega unnið að kristni-
boði I Asíu og Ameríku. Þýðandi Guð-
bjartur Gunnarsson.
18.00 Stundin okkar (L). Umsjónar-
maður Ásdís Emilsdóttir. Kynnir
ásamt henni Jóhanna Kristín Jóns-
dóttir. Stjórn upptöku Andrés
Indriðason.
Hlé.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Raykjavíkurskákmótið (L).
20.45 Haimsókn. Styrktarfélag vangef-
inna. Litið er inn á dagheimilin
Lyngás og Bjarkarás og fylgst með
bóklegu og verklegu námi. Rætt er
við' forstöðukonurnar Grétu Bach-
mann og Hrefnu Haraldsdóttur,
Magnús Kristinsson. formann
Styrktarfélags vangefinna, og
Margréti Margeirsdóttur félagsráð-
gjafa. Þá eru viðtöl við foreldra van-
gefinna bama og vistmenn á dag-
heimilunum. Umsjónarmaður Valdi-»
mar Leifsson.
21.45 Röskir sveinar (L). Sænskur sjón-
varpsmyndaflokkur. 5. þáttur. Efni
fjórða þáttar: Farandsali heimsækir
Idu, meðan Gústaf er ekki heima, og
gerist nærgöngull við hana. Henni
tekst að Iosa sig við hann, en kjólefni,
sem hann hafði boðið henni, verður
eftir. Farandsalinn ber út óhróður um
samband þeirra Idu, og margir verða
til að trúa honum, meðal annarra
Gústaf, ekki síst eftir að hann finnur
kjólefnið I læk, þar sem Ida hafði
sökkt því. Matarskortur hrjáir fjöl-
skyldu Gústafs og veldur óbeinlinis
dauða Marteins, yngsta sonar þeirra.
Þýðandi óskar Ingimarsson (Nord-
vision — Sænska sjónvarpið)
22.45 Að kvöldi dags (L). Séra Brynjólf-
ur Gíslason, sóknarprestur I Stafholti
I Borgarfirði. flytur hugvekju.
22.55 Dagskráríok.
Sjónvarp kl. 21.55 í kvöld: Gleðin Ijúf og sorgin sár
Blaðamaður
í Japan
Gleðin Ijúf og sorgin sár
(Penny Serenade) nefnist kvik-
myndin sem verður sýnd í sjón-
varpinu í kvöld kl. 21,55. Þýðandi
hennar er Ragna Ragnars og sagði
hún að aðaluppistaða m.vndar-
innar væri samskipti mjög ólíkra
hjóna. Ung stúlka sem vinnur í
verzlun verður yfir sig ástfangin
af ungum blaðamanni. Hann
verður að fara til Japan vegna
starfs síns og ákveða þau þá að
gifta sig áður en hann fer.
Skömmu síðar tekur eiginkonan
saman föggur sínar og fer til
hans. Þau lenda í ýmsum erfið-
leikum, svo sem jarðskjálftum og
öðrum hörmungum. í þessum
erfiðleikum kemur í ljós hve
hjónin eru ólík og bregðast við
vandamálum sínum á ólikan hátt.
Eftir dvöl sína í Japan snúa þau
Þau Cary Grant og Irene Dunne fara með aðalhlutverkin í kvikmynd-
inni Gleðin ljúf og sorgin sár, sem sýnd verður í sjónvarpinu í kvöld
kl. 21.55.
aftur heim til Bandaríkjanna en
hvort samband þeirra er þá eins
og áður en þau fóru til Japan er
ómögulegt að segja um.
Myndin er bandarisk og er frá
árinu 1941. Með aðalhlutverkin
fara vel þekktir leikarar, þau
Cary Grant og Irene Dunne.
Ragna Ragnars sagði okkur að
þetta væri alveg ágæt mynd og vel
þess virði að horfa á hana.
RK
JASSHLJÓMLEIKAR
Horace Parlan
TRÍÓ
Verða haldnirsem hérsegir:
Laugardaginn
11. febrúarí Menntaskólanum við Hamrahlíð kl. 21,
Sunnudaginn
12. febrúar á Hótel Esju kl. 21
Mánudaginn
13. febrúar á Hótel Loftleiðum kl. 21.
Miðasala á hverjum stað frá kl. 18.00.
JASSVAKNING Á
V