Dagblaðið - 18.03.1978, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 18. MARZ 1978.
LEIKFÖNG
í ÚRVALI
Hin vinsælu PLAY MOBIL leikföng fást
hjá okkur. Einnig búsáhöld og falleg-
ar enskar leirvörur o.fl. o.fl.
Við höfum innanhússbílastæði.
Sendum í póstkröfu hvert á land sem
er.
LEIKBORG
Hamraborg 14, Kópav. Sími 44935.
Tilboö
Tilboð óskast í timbur úr gamalli
bryggju í Keflavík, hentugt í
girðingarstaura o.fl.
Timbrið er til sýnis hjá hafnarstjóran-
um í Keflavík. sem jafnframt veitir
frekari upplýsingar.
Tilboðum skal skila á skrifstofu
hafnarstjóra, Víkurbraut 13, Keflavík,
þar sem þau verða opnuð, þriðjudag-
inn 28. mars kl. 14.00, að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.
LANDSHÖFN KEFLAVÍK — NJARÐVÍK
i
Hlutaslaóa ieklors í almennri handlæknisfræói og
hliitastaóa lektors í Ivflæknisfræói vió tannlæknadeild
Háskóla íslands eru lausar til nmsóknar.
I.aun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknnm skuln fvlgja ítarlegar upplýsingar nm rit-
smíóar og rannsóknir, svo og námsferil og stiirf.
Umsóknir skulu sendar menntamálaráóuneytinu.
Hverfisgiitu fi. Revkjavík fyrir I. april.
Menntamálaráóuneytiö, 7. mars 1978.
FJÖLMENNIR HÓPAR
Á SNÆFELLSNES 0G
hftDCMftPtf — Íslendingarviljalíka
PUROmUlllV ferðast innanlands
Mikil jiátttaka og, góð virðist
a’tla að verða i páskaferðum inn-
ttnlands og ferðalangar munu
vafalaust skipta einhverjum
hundruðum þo beir verði ekki
eitis margir og utanfarar. Utivist
og Ferðafélag tslands efna til vel
uhdirhijinna ferða og útlit er
fvrir góða þátttöku.
ÚTIVIST Á
SNÆFELLSJÖKUL
Páskaferð Utivistar er á Snæ-
fellsnes. lagt verður upp á skir-
dagsmorgun kl. 9 og komið annan
i páskum. Gist er í upphituðu
félagsheimili að I.ýsuhóli þar sem
er góð eldunaraðstaða. rafmagns-
vélar í stóru eldhúsi Sundlaug er
á staðnum.
Meðal þess sem skoðað verður
má nefna jökulinn sjálfan . hellis-
risturnar fornu í Sönghelli. gjárn-
ar og gatklettinn að Arnarstapa.
haðstofuhellinn að Hellnum og
gengin verður þjdðleiðin forna til
Stapa. Komið verður að Bárðar-
laug. Fram-Búðir skoðaðar og
gullsandurinn við ströndina.
gengið i hellinn í Búðahrauni og
rótarhnvðjur tindar i fjörunni
inilli I.óndranga og Malarrifs.
Tröllakirkja verður skoðuð og afl-
raunasteinarnir á Djúpalónssandi
skoðaðir o.fl. o.fl. Alla dagana eru
gönguferðir við allra. ha’fi og
kvöldvökur öll kvöld.
Mikil þátttaka er þegar i.ferð-
inni. um 70 manns á skrá. i'ii húizt
er við allt að hálfu öðru hundraði
Ferðin kostar 13.700 krónur
F.í. í ÞÓRSMÖRK
0G VÍÐAR
Ferðafélagið fer sina aðalför i
Þórsmörk Verða ferðirnar
reyndar tvter. sú fvrri á skirdags-
morgun kl. 8 og sú síðari á laugar-
dagsmorgun kl. 8. Kostar 10.500
kr. í lengri ferðina en 8.000 kr. í
síðari.
t Þórsmörk verður efnt til
gönguferða á hver.jum degi undir
leiðsögn og ferðum nokkuð hagað
eftir veðri.
Ferðafélagið er einnig m<>ð ferð
á Snæfellsnes og skiðafi’rð er i
Uandmannalaugar og verður
gengið þangað frá Sigöldu
Um 80 manns voru komnir á
skrá í Þórsmerkurferðirnar i ga’r
<’n litlir hópar í hinar - ASt.
Saf naðarheimili í Árbæjarhverf i vígt á sunnudaginn:
FJÖRUTÍU MILUÓNIR
K0MNAR í BYGGINGUNA
'
Formaöur sóknarnefndar. organleikarinn og stjórnandi kirkjukörsins
Geirlaugur Arnason. söknarpresturinn séra Gudmundur Þorsteinsson
og Maria Guómundsdóttir sem er i kirkjukórnum og á sæti í sóknar-
nefndinni standa þarna viö nýja predikunarstólinn. .\ veggnum bak
\ ió veróur altarinu komiö fyrir, veröur veggurinn tjaldaóur meó rauöu
flaueli og sömuleiðis gráturnar.
..Þeir eru margir safnaðar-
mennirnir sem eiga steina i þessu
húsi. Safnaðarfélögin og einstakl-
ingar hafa lagt mikið af mörkum
og ýmsar stórgjafir hafa okkur
borizt". sagði Guðmundur Þor-
steinsson sóknarprestur i
Arbæjarsöfnuði i samtali ' ið DB
er blaðamanni var sýnt nýtt
safnaðarheimili sem vigt verður
næstkomandi sunnudag, pálma-
sunnudag. Safnaðarheimilið er
rétt hjá barnaskólanum. á
fegursta stað við Elliðaárnar á
móti suðri.
Áður en Árbæjarsókn var
stofnuð árið 1967 tilhevrðu
ihúarnir i hverfinu Lágafells-
kirkju. Fyrsti prestur safnaðarins
var séra Bjarni Sigurðsson á Mos-
felli. Séra Guðmundur Þorsteins-
son var kosinn fyrsti prestur
safnaðarins 1. janúar 1971. Þegar
Selásinn verður orðinn fullhvggð-
ur er reiknað með að sex þúsund
manns verði í sókninni en í henni
eru nú á fimmta þúsund manns.
Við vígsluna á sunnudaginn.
sem hefst kl 14.00, mun hiskup-
inn vfir tslandi. herra Sigurhjörn
Einarsson. framkvæma vígsluna.
Gengið verður í skrúðgöngu frá
hátíðasal Árhæjarskóla í nýja
safnaðarheimilið. Vigsluvottar
verða þeir Bjarni Sigurðsson
lektor. séra Glafur Skúlason dóm-
prófastur. Geirlaugur Arnason
formaður sóknarnefndarinnar og
Guðmundur Sigurjónsson með-
hjálpari. Séra Guðmundur Þor-
steinsson predikar. Kirkjukór
safnaðarins svngur undir stjórn
Hilmars Guðjónssonar og
Geirlaugs Árnasonar sem er
organleikari safnaðarins. Við at-
höfnina verður bæði skírn og
altarisganga.
Aðalþungi " bvggingafram-
kvæmdanna hefur hvílt á söfnuð-
inum sjálfum en nokkurn stvrk
hefitr hvggingin fengið frá
kirk.jubyggingasjóði Reykjavíktir-
horgar. Hafa safnaðarfélögin.
kienfélagið, bræðrafélagið og
kirkjukórinn ttnnið ötullega að
fjáröflunarstarfi á vegum
saf laðarins.
N'argar verðmætar gjafir hafa
horizt. meðal annars gaf Fram-
faraælag Seláss og Árbæjar-
hvercis söfnuðinum húseign sem
seld var og fengust fimm
milljónir króna fyrir. Framfara-
félagið fær í staðinn aðstöðu i
nýiu byggingunni.
I nyju byggingunni skapast
m.jög góð aðstaða f.vrir öflugt
safnaðarstarf sem hingað til
hefur farið fram í Árbæjarskóla
og Árbæ’.iarkirkju.
Þetta er þó aðeins fyrsti áfangi
kirkjubvggingarinnar en það er
jarðhæðin undir sjálfu kirkju-
skipinu sem nú verður tekin í
notkun. Sta>rð hennar er 320 fer-
metrar að flatarmáli, þar af er
stærsti salurinn 132 fermetrar.
Þar verður predikað þangað til
sjálft kirkjuskipið rís.
Þegar öll bvggingin verður
risin verður grunnflötur hússins
um þúsund fermetrar eða 4150
rúmmetrar. Þá verður hægt að
hafa ýmiss konar starfsemi i
gangi samtímis.
Talið er að nú þegar séu komn-
ar um fjörutíu milljönir í
safnaðarheimilisbygginguna.
Fvrsta skóflustungan var tekin i
ágúst 1973 en framkvæmdir
hófust ekki fvrr en um vorið 1974.
Arkitektar hússins eru Manfreð
Vilhjálmsson og Þorvaldur Þor-
valdsson. Formaður kirkjubygg-
ingarnefndar er Heiðar Hall-
grímsson. formaður kvenfélags-
ins er Halldóra Steinsdóttir, for-
maður bræðrafélagsins er Gunnar
Petersen. formaður kirk.jukórsins
er Maris Guðmundsson og for-
maður fjáröflunarnefndar er
Ásta Gunnarsdóttir.
A.Bj.
Safnaóarheimilió er vfirlætislaus bygging er mun í framtíóinni hýsa
merka starfsemi Arba’jarsafnaöar. Húsið er allt hiö vistlegasta og var
verió aó leggja síóustu hönd á smíðina er DB kom þar í heimsókn.
DB-nivndir Bjarnleifur.
HESTAMENN
Með einu símtali
er áskrift tryggó
SÍMAR 8 5111 -288 67