Dagblaðið - 29.03.1978, Page 1
frjálst
úháð
dagblað
4. ÁRG. - MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978. - 64. TBL.
RITSTJÓRN StÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.— AÐALSÍMI27022.
.......... ......................
Ferðalangarnir ennþá í Sandbúðum
Landsbankamálið:
Greinargeið
rannsóknar-
lögreglustjóra
væntanleg
„Rannsókn málsins hefur verið haldið
áfram og ég mun senda frá mér greinar-
gerð þegar þess er kostur,” sagði Hall-
varður Einvarðsson, rannsóknarlög-
reglustjóri rikisins, þegar DB leitaði
frétta af Landsbankamálinu.
Hallvarður kvaðst ekki geta sagt
hvenær sú greinargerð kæmi en taldi
þess ekki langt að biða.
Sakborningur í Landsbankamálinu,
Haukur Heiðar, fyrrum forstöðumaður
ábyrgðadeildar bankans, var látinn laus
úr nær þriggja mánaða gæzluvarðhaldi
um miðjan mánuðinn. Hann sætir far-
banni úr lögsagnarumdæmi Reykjavik-
ur, Kópavogs og Seltjarnamess þar til 1.
júni. Eins og fram hefur komið i DB
hefur Haukur neitað að veita rann-
sóknarlögreglu rikisins heimild til að
skoða útskriftir af American Express-
reikningum sínum, en talið er að með
því móti mætti fá gott yfirlit yfir ferðir
Hauks óg fjármunaflutning.
ÓV/BS
Fljúgandi hálka
og hríð á Akureyri
Blindhrið var á Akureyri í morgun og
var drungalegt um að litast í allar áttir er
Akureyringar vöknuðu til daglegra
starfa. Hitastigið var við frostmarkið á
niunda timanum og hriðin þvi blota-
kennd.
Fljúgandi hálka var á öllum götum
nyrðra og umferðin rétt mjakaðist
áfram. Ekki höfðu orðið teljandi óhöpp
því allir mátu rétt aðstæður þessa
vormorguns. Tók lengri tíma en vant er
að drauja sér milli húsa.
A.St.
Höllvinnu-
veitenda grýtt
í gærmorgun varð þess vart að ráðizt
hafði verið að húsi Vinnuveitendasam-
bandsins við Garðastræti 41 og er það
ekki alveg í fyrsta sinn sem það hús
verður einhverjum að skotspæni.
Brotnar voru tvær rúður i húsinu en
engin merki sáust um að farið hefði
verið inn í húsið. Hvenær verknaðurinn
var framinn er ekki alveg ljóst, en þeir
sem fyrstir komu þangað til vinnu eftir
páska tilkynntu verknaðinn.
ASt.
„Jú, jú, þeir eru hérna ennþá,”
sagði Vilmundur Þ. Kristinsson í
Sandbúðum í morgun þegar hann var
inntur eftir ferðalöngum þeim, sem til
hans og konu hans, Lísbetar Sigurðar-
dóttur, komu um hátíðirnar. „Ég veit
ekki hvað jafnréttið segir en ég segi að
þetta séu 5 konur og 11 karlmenn eða
lómanns alls.”
Vilhjálmur taldi ófært frá búðunum
i dag. í morgun voru þar 9 vindstig
með skafrenningi þannig að skyggni
var innan við 50 metra. Svipað þessu
hefur veðrið verið frá því
ferðalangarnir komu, þó hefur aðeins
létt til öðru hvoru en ekki nóg til þess
að lagt væri í hann.
Allir voru i góðu yfirlæti í mórgun
og höfðu nóg að bita og brenna og
bíða hinir rólegustu eftir þvi að eitt-
hvað rofi til í veðurofsanum.
Vorið er sem sé ekki alls staðar farið
að knýja á, enda þótt það sé farið að
gera það á suðvesturhorni landsin.
-DS-
Við veitum
Norðmönn-
um ef na-
hagsaðstoð
— sjá kjallaragrein
Leós M.Jónssonar
ábls. 11
Líkuráþvíað
Bítlarnirkomi
samanáný
MuhammedAli
leikurþræl
í nýrri kvikmynd
SANDBÚÐIR. Þar er vetraríki hiö
mesta enda þótt Reykvikingar vakni i
indælis vorveöri. Ijólmynd Kristján Grant
Sleðahundarnir
réðustáeiganda
sinnogdrápu
— sjá erL fréttir
bls.6-7
Islandsmeistara-
tigninni fagnaö
KR varð i gær Islandsmeistari í
körfuknattleik — sigraði Njarðvík
96-86. KR-ingar voru vel að sigrin-
um komnir — hrepptu sinn sjötta
meistaratitil. Einar Bollason fagna honum, Sigrún Ingólfsdóttir
hreppti því íslandsmeistaratign að ásamt syni þeirra — gleðin leynir
nýju — en hann hætti um tíma og sér ekki. íslandsmeistaratign í
var formaður KKÍ. Kona og sonur höfn. Sjá íþróttir í opnu og bls. 14.
Líklega óffært þaðan í dag
Skoðanakönnun DB:
BJÓRNUM VEX FYLGI