Dagblaðið - 29.03.1978, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 29.03.1978, Blaðsíða 9
9 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978. SMJORFJALUÐ HEFUR MINNKAÐ UM 450 T. — salan ekki neitt óskapleg, segja kaupmenn „Eftir því sem viö komust næst hefur smjörfjallið minnkað úr um ellefu hundruð tonnum í 650,” sagði Óskar Gunnarsson framkvæmdastjóri. Osta- og smjörsölunnar í viðtali við DB. „Salan á smjöri er orðin jöfn nú- orðið en hún var mikil fyrstu vik- urnar.” Verð á smjöri var lækkað úr um 1400 krónum 20. febrúar sl. i 880 kr. klóið. Tók fólk því vel, eins og gefur að skilja, en nú hefur dregið eitthvað úr sölunni eins og Óskar raunar nefndi. „Verðið á smjörinu var orðið alltof hátt miðað við þær vörur sem við keppum við,” sagði Óskar ennfremur. „Þetta verð verður í gildi eitthvað áfram, það er auðvitað gott að hafa minnkað birgðirnar eitthvað en nú fer sumarframleiðslan að hefjast á ný.” Dagblaðið leitaði til nokkurra kaup- manna um álit þeirra á smjörsöl- unni og fara svör þeirra hér á eftir: „Kaupmaöurinn á Horninu”: Salan hefur nú ekki verið svo óskaplega mikil. Hún jókst í byrjun, en nú hefur dregið úr henni. Það hefur lítið borið á því að fólk væri að hamstra aðallega er það þá eldra fólk sem hefur keypt óvenjulega mikið. „Stór kjörbúö”: Það hefur ekki verið nein óskapleg pressa i sölunni. Sennilega hefur hún ekki orðið það, sem þeir ætluðu sér með þessari verð- lækkun. „Stórmarkaður”: Salan er heldur meiri en hún var fyrir hækkunina en það hefur dregið úr smjörsölu yfirleitt, kannski vegna áróðurs um fæðu- tegundir. Leikf élag Kópavogs 20 ára: NÚ ER BOÐIÐ FRÍTT í LEIKHÚS Þeir bjóða mönnum ókeypis í leikhús, Kópavogsmenn, á morgun, fimmtudag, kl. 20.30 i Félagsheimili Kópavogs. Verður fólki gefinn kostur á að kynna sér starfsemi leikfélagsins og opnar húsið kl. 20. Mikil gróska er nú í starfsemi félags- ins, þrjú leikrit á fjölunum og miðnætur- sýningar fyrirhugaðar á Jónsen sáluga , sem notið hefur mikillar hylli. Leikritið sem sýnt verður ókeypis annað kvöld verður Vaknið og syngið eftir Clifford Odets. Myndin er úr því leikriti. Óhapp Arnarflugsþotunnar á Heathrow f lugvelli: HÖRÐ LENDING SENNILEGASTA ORSÖKIN — f lugstjórinn þaulreyndur þotuf lugmaður Flest bendir nú til að hörð lending , olli hinni hörðu lendingu en margt hafi orsakað bilunina í nefhjólsbúnaði óvænt getur komið upp við slík tæki- Arnarflugsvélarinnar i lendingu á færi. Flugstjórinn, Kristmundur Heathrow flugvelli á laugardag, fremur Magnússon, er vel reyndur flugmaður en um bilun í hjólabúnaðinum hafi með 7,500 flugtíma að baki og þar af veriðaðræða. 2100 tíma á Boeing 720, eins og Arnar- flugsvélin er.Flaug hann m.a. í þó nokk- Brezk flugmálayfirvöld eru nú að ur ár þotum fyrir hollenzka flugfélagið rannsaka málið og í gær fór Skúli Trans Avia. Þotan var nýkomin úr Sigurðarson frá íslenzka loftferðaeftirlit- skoðun þar sem ekkert fannst að hjóla- inu til London vegna þessa máls. búnaðinum. Hins vegar var í gær óljóst hvað G.S. Röng mynd Þau mistök urðu í blaðinu í gær, að birt var röng mynd með kjallaragrein Guð- mundar Jónssonar Kópsvatni. Hér fylgir hin rétta mynd af greinarhöfundi. Andlega f ramfarasinnaðar konur taka á móti fyrsta kvenjóganum hér á landi „Fyrsti kvenjóginn sem kemur hingað til lands er væntanlegur 30. apríl næst- komandi,” sagði Ágústa Stefánsdóttir í samtali við DB. Ágústa er úr hópi ungra kvenna sem kalla sig andlega framfara- sinnaðar og starfa á vegum Ananda Marga hreyfingarinnar. „Þessi kvenjógi sem hingað kemur heitir Acarya Kalpana Deve og er fædd í Ástralíu. Hún hefur unnið mest í Þýzka- landi og kemur þaðan. Annars hefur hún einnig unnið víða um Evrópu,” sagði Ágústa. Til styrktar þessari jógaheimsókn hyggjast hinar andlegu framfarasinn- uðu konur halda tvenns konar basara. Næstkomandi fimmtudag, 30. marz hyggjast þær selja bækur og hljómplötur að Laugavegi 42, annarri hæð á venju- legum verzlunartíma. Fimmtudaginn 5. april verður kökubasar á sama stað. A.Bj. - .JjM t -; 1 . j ' Kínversk-íslenzka menningarfélagið: Sjónvarpið gætir ekki nægrar hlutlægni í Kína-fréttum sínum „Formaður gat þess i skýrslu sinni að íslenzkir fjölmiðlar hefðu fjallað all- mikið um kínversk málefni og væri fréttaflutningur ærið misjafn. Taldi hann að Sjónvarpið gætti ekki nægi- legrar hlutlægni í fréttum sínum og vonaðist til að úr skorti þeim, sem er á kinversku efni i dagskrá þess, yrði bætt.” Svo segir í fréttatilkynningu frá Kin- versk-islenzka menningarfélaginu, sem nýlega hélt aðalfund sinn. Félagið hefur haldið uppi tilþrifamiklu starfi undan- farið, m.a. fóru 50 manns til Kina á vegum félagsins. Félagar eru nú um 300 talsins og bættust 67 nýir félagsmenn við á síðasta starfsári. Væntanlegur er hingað listdanshópur frá Tíbet í sam- bandi við 25 ára afmæli félagsins. Stjórn félagsins var endurkjörin, en hana skipa þeir Arnþór Helgason for- maður, dr. Jakob Benediktsson varafor- maður, Anna Einarsdóttir ritari, Ólafur Elínmundarson gjaldkeri og Kristján Jónsson meðstjórnandi. JBP Söluhörn vantarí eftir- talin hverfi í Reykjavík: Hverfi 30 a. Kleppsvegur Hverfi 1. Seltjarnarnes Lindarbraut Vallarbraut Miðbraut Melabraut að Bakkav. Skólabraut að Bakkav. Unnarbraut Bakkavör ásamt bæjum í kring. Hverfi 30 Laugarás Laugalandið Múlavegur Engjavegur Holtavegur Dyngjuvegur Sunnuvegur Hverfi 31 Kleppsspítalinn Holtav. frá Langholtsvegi Vikan Efstasund að Holtav. Skipasund að Holtav. Sæviðarsund að Holtav. Hverfi 32. Álfheimar Hverfi 2. Látraströnd Fornaströnd Selströnd Skólabraut rest Melabraut rest Suðurbraut ásamt bæjum í kring. Uppl. í síma 36720.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.