Dagblaðið - 29.03.1978, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 29.03.1978, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978. 23 i I Utvarp Sjónvarp Sjónvarp í kvöld kl. 21.40: Erfiðir tímar ERFKHJM TÍMUM AD UÚKA Þá er komið að síðasta þætti brezka myndaflokksins um erfiða tíma eftir Charles Dickens. í síðasta þætti elti Harthouse höfuðs- maður Lovísu á röndum er honum var boðið að dveljast á sveitasetri Bounder- bys. Og ekki nóg með það að eiginkona Bounderbys virðist vera vægast sagt mjög óánægð i hjónabandinu, heldur er banki hans rændur, þannig að allt virðist ganga á afturfótunum fyrir vesalings Bounderby. Blackpool hefur sézt á vappi í kringum bankann og er því strax grunaður um græzku. Ekki eru þó allir á einu máli um sekt hans því að Lovísa. telur að Tom bróðir hennar sé eitthvað viðriðinn málið. Enn gefst Harthouse tækifæri til að reyna að tæla Lovísu, er Bounderby fer að heiman í viðskiptaerindum og notar hann hvert tækifæri sem honum býðst. Frú Sparsit verður vitni að því er Harthouse reynir að lokka Lovtsu með sér að heiman. Lovísa veit ekki sitt rjúkandi ráð og að lokum flýr hún fárveik á náðir föður síns. Myndin er i litum og þýðandi er Jón O. Edwald. -RK Nýjasta útgáfa á hljómsveitinni Tívolí. Sjónvavp í kvöld kl. 18.35: Hér sé stuð TÍVOLÍ Þátturinn Hér sé stuð hefur valdið nokkrum umræðum og skrifum siðan hann hóf göngu sina, m.a. í Dagblaðinu. Virðist fólk ekki vera á einu máli um ágæti þáttarins og hefur hann því hlotið bæði slæma og góða dóma. Hlýtur þó ágæti hans að vera þó nokkuð undir frammistöðu hljómsveitanna komið og ættu þær því að leggja metnað sinn í að standa sig sem bezt. í kvöld ætlar hljómsveitin Tívoli að skemmta okkur með spili og söng og er þátturinn í litum. Áður bar þessi hljómsveit nafnið Kvintett Ólafs Helgasonar en snemma á árinu 1977 ákváðu meðlimir kvintettsins að breyta nafninu i Tivolí enda kvintett- inn enginn kvintett lengur. Eins og gengur og gerist hafa orðið talsverð mannaskipti í hljómsveit- inni frá upphafi. I dag er hljómsveitin skipuð þannig: Efst frá vinstri á mynd- inni er Ólafur Helgi Helgason, hljóm- sveitarstjóri og trommuleikari. Þá er Ey- þór Gunnarsson hljómborðsleikari við hlið hans. Fyrir miðju frá vinstri er Frið- rik Karlsson, gítarleikari parexellence og við hlið hans Andrés Ólafsson bassaleik- ari. Fremstur stendur svo Sigurður Sig- urðsson söngvari. Hin efnilega söngkona Ellen Krist- jánsdóttir söng með hljómsveitinni áður en hún hélt til Bandaríkjanna. Ellen mun þó vera væntanieg með vorinu og er ekki loku fyrir það skotið að hún gangi þá í lið með þeim félögum að nýju. Þátturinn hefst kl. 18.35 og er stjórn upptöku í höndum Egils Eðvarðssonar. RK Hvernig ætli Erfiöum timum Ijúki? fpAmvm Miðvikudagur 29. marz 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Reynt að gleyma” eftir Alene Corliss Axel Thorsteinson les þýðingu sína (11). 15.00 Miðdegistónleikar. Wilhelm Kempff leik- ur Pianósónötu i C-dúr eftir Schubert. Edith Mathis syngur Ijóðsöngva eftir Mozart: Bern- hard Klee leikur á pianó. Julian Bream og Cremona-strengjakvartettinn leika Kvintett i e-moll fyrir gítar og strengjakvartett op. 50 nr. 3 eftir Boccheóni. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15) Veðurfregn- ir). 16.20 Popphorn HalldórGunnarsson kynnir. 17.30 (Jtvarpssaga barnanna: „Dóra” eftir Ragnheiði Jónsdóttur Sigrún Guðjónsdóttir les (21). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Gestir í útvarpssal: Elisabet Erlingsdóttir söngkona. Kristinn Gestsson píanóleikari og Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari flytja lög eftir Sigfús Einarsson, Emil Thoroddsen og Þórarin Jónsson. 20.00 Á vegamótum Stefanía Traustadóttir sér um þátt fyrir unglinga. 20.40 Dómsmál Björn Helgason hæstaréttar ritari segir frá. 21.00 Stjörnusöngvarar fyrr og nú Guðmundur Gilsson rekur söngferil frægra söngvara. Tiundi þáttur: Joseph Schmidt. 21.30 Ljóð eftir Ingólf Sveinsson. Höfundurles. 21.40 Sinfóniskir tónleikar a. Itzhak Perlman og Konunglega fílharmoníusveitin í Lundún- um leika Carmen-fantasiu fyrir fiölu og hljóm- sveit op. 25 eftir Pablo de Sarasate; Lawrence Foster stjórnar. b. Sinfóniuhljómsveit útvarps- ins i Miinchen leikur sinfóníska ljóðið „Rík- harð þriðja” op. 11 eftir Bedrich Smetana; Rafael Kubelik stjórnar. 22.05 Kvöldsagan: „Dagur er upp kominn” eftir Jón Helgason Sveinn Skorri Höskuldsson les (3). 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Djassþáttur i umsjá Jóns Múla Árna- sonar. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. Fimmtudagur 30. marz 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. MorgunleikHmi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgun- stund barnanna kl. 9.15: Þórunn Hjartardóttir les „Blómin i Bláfjöllum” eftir Jennu og Hreiðar Stefánsson (3). Tilkynningar kl. 9.30. Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög milli atr. Llm fæðingarhjálp og foreldrafræðslu kl. 10.25: Hulda Jensdóttir forstöðukona Fæðingar heimilis Reyi javikurborgar flytur þriðja erindi sitt. Tónleikar k|. 10.40. Morguntónleikar kl. 11.00: Kenneth Gilbert leikur Sembalsvitu í e-moll eftir Jcan Philippe Rameau / Igor Oistrakh og Zertsalova leika Sónötu fyrir fiölu og pánó í E-dúr eftir Paul Hindemith / Bracha Eden og Alexarider Tamir leika Fantasiu fyrir tvö pianó op. 5 eftir Serge Rachmaninoff. Sjónvarp D Miðvikudagur 29. mars 18.00 Ævintýri sótarans (L). Tékknesk leik- brúðumynd. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.10 Loftlög (L). Bresk mynd án orða um hreyfingar loftsins. 18.35 Hér sé stuð (L). Hljómsveitin Tívoli skemmtir. Stjórn upptöku Egill Eðvarðsson. 19.05 On We Go. Enskukennsla. Tuttugasti þáttur frumsýndur. 19.20 Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Skíðaæfingar (L). Þýskur myndaflokkur. Sjöundi þáttur Þýðandi Eiríkur Haraldsson. 21.00 Vaka (L). Stjórn upptöku Egill Eðvarðs- son. 21.40 Erfiðir tímar (L). Breskur myndaflokkur, byggður á skáldsögu eftir Charles Dickens. Fjórði og siðasti þáttur. Efni þriðja þáttar: Harthouse höfuðsmanni er boðið til dvalar á sveitasetri Bounderbys, og hann notar hvert tækifæri til að gera hosur sinar grænar fyrir Lovisu. Banki Bounderbys er rændur. Stephen Blackpool. sem sést hefur á vappi viö bank- ann, er grunaður, en Lovisa telur. að Tom bróðir hennar sé viðriðinn ránið. Bounderby fer að heiman í viðskiptaerindum. og Hart- house reynir að tæla Lovisu til að hlaupast að heiman. Frú Sparsit hlerar samtal þeirra. í stað þess að fara með Harthouse flýr Lovísa fársjúk a náðir föður síns. Þýðandi Jón O. Ed- wald. 22.30 Dagskrárlok. 29555 OPIO VIRKA DAGA FRÁ 9—21 UM HELGAR FRÁ 13-* & Álfaskeið ca 45 f m 2ja hb. góð ibúð á l. hæð, stórar suðursvalir, bilskúrsréttur. Verð 7,5 m. Bergþórugata 50 f m 3ja hb. á l. hæð, sér inng. Verð tilboð. Útb. 4-4,3 m. Dvergabakki 135 fm 4ra hb. góð ibúð 2 svalir. Verð 15 m. Útb. 10 m. Langholtsv. 100 fm 4-5 hb., sérlega falleg risibúð, litið undir súð, öll nýstandsett, góðar innréttingar, ný teppi, nýtt verk- smiðjugler. Útb. 9m. Ljósheimar 100 fm. 4ra hb. góð íbúð i háhýsi. Verð 13-13,5 m. Útb. 9.5 m. Gaukshólar 138 fm 5 hb. 4 svefnherbergi, svalir + bilskúr. Dyngjuvegur 110 fm 4-5 hb. falleg jarðhæð. Öll nýendurnýjuð. Verð 13,5 m. Mosfellssveit — viðlagsj. hús. 3 hús. Útb. 9m, Freyjugata 3x100 fm Einbýli 2 hæðir + ris sér 2ja hb. íbúð á jarðhæð, 4 hb. á 2. hæð, ris óinnréttað. Verð 30 m. Útb. 20m. Grettisgata — einbýli Haf narfjörður 95 fm. 4ra hb. efri hæð + 2 hb. í kj. + bílskúr. Verð 12 m. Hrauntunga 150 fm Vorum að fá í einkasöiu sérlega vandað hús, 2 stofur, 4 svefnher- bergi, bilskúr, 40 fm. Til greina kemur að taka 4-5 hb. góða ibúð upp i, fremur í austurbænum í Reykjavik. Seltjarnarnes -einbýli 150 fm bilskúr 60 fm. fokhelt glerjað. Rauðagerði — einbýli Fokhelt, 172x2 fm, 1. hæð, 2ja hb. ibúð. 2. hæð, 7-8 hb. ibúð. Verð tilboð. Mosfellssveit — einbýli 146 fm. fokhelt, 42ja fm bilskúr. Glæsileg eign. Engjasel — Raðhús Fokhelt, 2 hæðir + kjallari, púss- að utan, glerjað, ofnar og einan- grun fylgir. Verð 14 m. Útb. 8,5 Seljendur! Vegna gifurlegrar eftirspurnar vantar okkur ailar gerðir eigna á skrá hvar sem er á Stór-Reykja- vikursvæðinu. f|3 EIGNANAUST Laugavegi 96 (við Stjömubíó) Sími 2 95 55 SÖIX'M.: Hjdrtur Gunnarsson. Lárus HeigasQn, Sigrún Kröyer LÖGM.:£vaiuir Þór Vjlhjálmsjon hdl

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.