Dagblaðið - 29.03.1978, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 29.03.1978, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978. Ritarar óskast Opinber stofnun óskar að ráða vana ritara, annan í afleysingar 4 til 5 mánuði. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist blaðinu fyrir 1. apríl nk. merkt: „Vanur ritari.. Auglýsingateiknari óskast að starfandi auglýsingastofu. Til greina kemur að viðkomandi gerist meðeig- andi í fyrirtækinu. Umsóknir leggist inn á afgr. Dagblaðsins merkt „Auglýsingateiknari” Til sölu 2ja herb. hugguleg risíbúð í Vogahverfi með góðum kvistum, rúmgóð íbúð í fjölbýlishúsi, laus nú þegar. Hagkvæmir greiðsluskilmálar. 3ja til 4ra herb. íbúð á neðri hæð i tví-, býlishúsi við Efstasund. Mjög vel útlítandi. Góður garður i kringum húsið, laus nú þegar. Hagkvæmir greiðsluskilmálar. 4ra herb. íbúð í Hlíðunum ásamt 5 herb. í risi. Góðar geymslur, sólrikar svalir, mjög vel skiptanleg útborgun. Sumarbústaðaland í nágrenni bæjarins stærð 1500 ferm. Bókhaldsþjónusta Bjarna Garðars Austurstræti 7. 2. hæð. Heimasími sölumanns 82768. ' ................................ mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmwmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmmammmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmmm A' V , EIGNAÞJÓNUSTAN 4..... |\ A FASTEtGNA OGSKIPASALA V I I Æ NJÁLSG0TU23 ÍÉMÉ# SÍMI: 2 66 50 Kastalagerði Höfum til sölu 5 herbergja jarðhæð, 110 ferm með sérinngangi á bezta stað i Kópavogi. Skiptanlcg útb. aðeins 6,5—7,0 millj. Sölustj.: Örn Scheving. Lögm.: Ólafur Þorláksson. Fasteignasalan EIGNABORG sf. Hamraborg 1 — Símar 43466 — 43805 Kópavogsbraut 2ja herbergja íbúð, ca 80 ferm. Verð 7,5 milljónir. Hamraborg 2ja herbergja ibúð, 55 ferm. 8 1/2 til 9 milljónir. Efstaland 2ja herbergja ibúð, 50 ferm. 8 1/2 milljón. Melgerði 3ja herb. íbúð, 80 ferm. 7 1/2 til 8 milljónir. Kvisthagi 3ja herbergja íbúð, 100 ferm. 10 milljónir. Kópavogsbraut 4ra herbergja íbúð, 100 ferm, er í risi. lOmilljónir. Asparfell 4ra herbergja íbúð, 120 ferm. 15 milljónir. Hlégerði 4ra herbergja ibúð, 100 ferm. 15 milljónir. Lækjarkinn 4ra herbergja, ca 100 ferm. 11 1/2| milljón. Grenigrund 4ra herbergja íbúð í eldra tvibýlis- húsi, 90ferm. 12 milljónir. Stigahlíð 5 herbergja íbúð í fjölbýlishúsi, stórglæsileg, 140 ferm. 17 milljón- ir. Helgaland Fokhelt einbýlishús með gleri og hágengnu þaki. Verð 13 millj. Markarflöt Stórglæsilegt einbýlishús á góðum stað, ca 190 ferm. Verð 35 milljón- ir. Þinghólsbraut 4ra til 5 herbergja einbýlishús á góðum stað, ca. 125 ferm. 18 til 20 milljónir. Þorlákshöfn Stórglæsilegt viðlagasjóðshús, laust fljótlega. Verð 11 1/2 milljón. Hveragerði. Gott raðhús, verð 7 milljónir, laust strax. Vilhjálmur Einarsson söiustjórí og Pétur Einarsson lögfræöingur. Samtök leigjenda íbúðarhúsnæðis í undirbúningi: Embættismenn erlendis ogútiálandi aðai- leigusalar húsnæðis á Reykjavíkursvæðinu Skattamál og nútíma lóðaúthlutunaraðferðir talin eiga stóran þátt í vanda leigjenda „Talið er að 20—30% heimila á Reykjavíkursvæðinu búi við leigu- húsnæði. Þessi þjóðfélagshópur á við mjög þröngan kost að búa nú er húsnæðisskortur rikir. Réttur leigjenda er hvergi tryggður í lögum, en hinsvegar eru t.d. skattalög landsins þessu fólki mjög andstæð. Verð leiguhúsnæðis er gjörsamlega háð framboði og eftirspurn, samkeppni er hörð meðal leigjenda yfir- boð tíð og því uppsprengt verðlag á leiguhúsnæði. 1 sumum tilfellum er um hreint leiguokur að ræða.” Þannig segir í fréttatilkynningu frá nefnd er nú starfar að undirbúningi að stofnun samtaka leigjenda. Nefnd þessi er til orðin fyrir frumkvæði nokkurra leigjenda og hafa ýmis hinna stóru verkalýðsfélaga skipað fulltrúa til að vinna að stofnun samtaka sem gæta mættu hagsmuna þeirra er í leigu- húsnæði búa. Er stefnt að stofnun slikra samtaka leigjenda í næsta mánuði. Margar hliðar á leigumálunum Dagsbrún, Iðja og Sókn eru meðal þeirra félaga er fulltrúa hafa skipað til undirbúnings stofnunar samtakanna. „Einn aðalvandinn er að húsaleiga er ekki frádráttarbær á neinn hátt til skatts” sagði Guðmundur J. Guðmunds- son form. Verkamannasambandsins í stuttu spjalli við DB. „Húsnæðisleigu mál í höfuðborginni hafa ýimsar hliðar. Hér er gamalt fólk sem hefur húsnæði aflögu til leigu. Það vill alls ekki okra á leigunni, en það vill fá góða leigjendur. Sumt af þessu fólki þorir ekki að leigja af ótta við að fá slæma leigjendur. Svo er hér á markaði slatti af húsnæði á hrika- legu verði. Allalgeng er 40 þús. krónu leiga fyrir 3ja herbergja ibúð og ársfyrir- framgreiðsla. Það er þungur biti fyrir launafólk,” sagði Guðmundur J. einstaklingsherbergja. Þessi leigumáti þrengdi kosti fjölskyldufólks til leigu- húsnæðis. Embættismenn og utanbæjarmenn leigutakar Úthlutunaraðferðir gallaðar Guðmundur taldi að óeðlilega lítið væri af leiguhúsnæði í Reykjavík miðað við fjölda íbúa. Taldi hann þar margt* koma til t.d. hækkandi fasteignagjöld, erfiðleika með hluta af þeim hópi fólks- sem leigir og siðast en ekki síst byggingarmátann i höfuðborginni. Nú væri ýmist byggt í blokkum, raðhúsum eða einbýlishúsum þannig að fólk hefði ekki húsnæði aflögu til leigu. Áður t.d. er byggt var í Norðurmýri og í Hlíðun- um byggðu tveir fjölskyldufeður tvær hæðir og annarri fylgdi kjallari, hinni risíbúð. Margar þessar íbúðir hefðu alla tíð verið reknar sem leiguhúsnæði. Guðmundur lagði áherzlu á að ætið væri viss hópur fólks sem þyrfti að leigja og hefði ekki aðstæður til að byggja. Hagur þess fólks væri oft á tiðum bágur. Aðrir hópar fólksþyrftuá skamm- tímalausn að halda t.d. námsfólk og einstaklingar á vissu árabili. Leigumáti þessa fólks væri nú öðruvísi en áður. Námsfólk eða stúlkur á vinnumarkaði tækju sig saman og leigðu ibúðir í stað Guðmundur taldi að verulegur hluti af eigendum þess húsnæðis er væri á leigumarkaði i Reykjavík byggi erlendis eða utanbæjar. Væri þar um embættis- menn s.s. lækna, sýslumenn, póst- meistara að ræða svo og útgerðarmenn og fleiri sem ættu ibúðir í Reykjavík ýmist til að varðveita fé sitt gegn verð- bólgunni eða til afnota fyrir sig eða börn sin síðar. Væri þetta atriði athyglisvert er kastljósi væri beint að leiguhúsnæðis- málum höfuðborgarsvæðisins. 1 umræðum er fram hafa farið varð- andi stofnun sambands leigjenda hefur verið bent á hversu veigamikill þáttur skattamál af húsaleigu væri. öll húsa- leiga er tvísköttuð, fyrst greiðir leigutaki skatta af þvi fé sem hann notar til húsa- leigugreiðslunnar og leigusalinn aftur skatta af sama fé. Talið er að breyttar reglur um þetta atriði gætu haft áhrif til minnkandi spennu á leigumarkaðnum. Ljóst er að augu manna hafa opnazt fyrir nauðsyn á löggjöf um málefni leigj- enda og ýmsum öðrum atriðum er snerta þann þjóðfélagshóp er leigir, bæði að því er varðar réttindi þess hóps og skyldur. ASt. Scandinavian Fashion Week: DROTTNINGIN í ÍSLENZKU DEILDINNI Margrét Danadrottning kom í heim- sókn á Scandinavian Fashion Week í Belle Center i Kaupmannahöfn á dögun- um. Meðal annars kom hún við í íslenzka básnum þar sem 8 íslenzk fyrir- tæki sýndu vöru sína. 1 fréttum frá Utfiutningsmiðstöð iðnaðarins segir að sala fyrirtækjanna á sýningunni hafi gengið að óskura, enda þótt svo hafi litið út að gróft prjón og þjóðlegur fatnaður sé ekki eins mikið í tizku og verið hefur. Þá er og ljóst að samkeppni við erlenda framleiðendur, sem notast við íslenzkt ullarband, fari nú vaxandi. Virðist oft sem þar sé um hreinar eftirlíkingar á islenzkri þrjónavöru að ræða. JBP

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.