Dagblaðið - 29.03.1978, Síða 6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978.
6_______________
Miðausturlönd:
Begin neitar að breyta
stefnu stjómar sinnar
—- að sögn egypzka blaðsins ALAhram.
— PLO fellst á vopnahlé
Menachem Begin forsætisráðhera
Israels hefur sent Sadat Egyptalandsfor-
seta bréf, þar sem hann neitar að breyta
stefnu stjórnar sinnar varðandi vestur-
bakka Jórdanár og Gazasvæðið. Þetta
kom fram í forsíðugrein Al-Ahram, hins
hálfopinbera málgagins egypzku stjórn-
arinnar.
Þar segir einnig að Begin hafi ítrekað
þá ákvörðun sina að viðhalda „hinni
þrákelknislegu stefnu" sinni i samninga-
viðræðunum við Egypta. 1 bréfinu segir
einnig að Israelsmenn muni ekki hverfa
frá frekari búsetu á herteknu svæðun-
um.
Frá Ísrael bárust þær fréttir að Begin
hefði sent Sadat bréf, þar sem hann lagði
til að friðar- og hernaðarviðræður á milli
þjóðanna yrðu hafnar á nýjan leik. Að
sögn útvarpsins i ísrael sagði Begin utan-
ríkis- og varnarmálanefndum israelska
þingsins, Knesset, að bréfið hefði verið
sent i gegnum bandariska sendiráðið i
Tel Aviv.
Begin sagði að bréfið væri svarbréf
við bréfi frá Sadat Egyptalandsforseta,
sem hann fékk skömmu áður en hann
lagöi upp i för sina til Bandaríkjanna á
dögunum, til viðræðna við Carter for-
seta. Begin gat ekki um efni bréfsins, en
útvarpið gat þess að Begin heföi látið svo
um mælt, að verið gæti að Ezer Weiz-
man, varnarmálaráðherra Israels, færi
til Kaíró i vikunni.
Dagblöð í Kairó birtu án athuga-
semda tilkynningu ísraelska útvarpsins
um að Weizmann kynni að koma til
Kaíró. Friðar- og hernaðarviðræðurnar
hafa legið niðri frá því fyrr á þessu ári, er
Sadat hætti þeim skyndilega.
Begin mun gera þinginu grein fyrir
viðræðum sínum í Bandarikjunum siðar
i dag. Sem kunnugt er deildu Carter og
Begin hart í viðræðum sínum og er aðal-
ágreiningurinn um vesturbakka Jórdan-
ár og búsetu Israelsmanna á hemumdu
svæðunum.
Gæzlusveitir Sameinuðu þjóðanna í
Líbanon héldu áfram að koma upp
búðum á milli Israelshers og skæruliða
Palestínumanna, eftir að Yasser Arafat
leiðtogi PLO, frelsishreyfingar Palest-
ínumanna, hafði heitið gæzlusveitunum
stuðningi, eftir fund með foringja gæzlu-
sveitanna, Emmanuel Erskine.
„Við veitum þennahstuðning," sagði
Arafat, „til þess að stuðla að skjótari
brottflutningi hersveita Ísraels frá
Líbanon."
Stöðugur flótti hefur verið frá Suður-Líbanon frá því að Israelsmenn gerðu innrás þar. Hér má sjá flóttamenn með lest
úlfalda og allt sitt hafurtask á þeim. Hundruð þúsunda manna hafa yfirgefið heimili sin og búa nú I ömurlegum flóttamanna-
búðum. Frelsishreyfing Palestinumanna PLO hefur nú samþykkt vopnahlé til þess að auðvelda gæzlusveitum Sameinuðu
þjóðanna að koma hersveitum tsraelsmanna frá Libanon.
Frakkland:
AUKINN LEKIIÍR LESTUM
STRANDAÐA OLÍUSKIPSINS
Franski f lotinn bíöur þvf með aðgeiðir til að sprengja lestir þess
OUumengunin hefur haft mjög alvarleg áhrif á fugla- og sjávarlif. Hér sést ung stúlka
horfa á dauðan fugl á strönd Brest i Frakklandi.
Sjór braut á flaki risaoliuskipsins
Amoco Cadiz i gærkvöldi og orsakaði
meiri leka úr lestum skipsins, en enn
munu vera u.þ.b. 20 þúsund lestir i hinu
strandaða skipi. Strand skipsins hefur
valdið mestu olíumengun i sjóferðasög-
unni, en um 200 þúsund lestir af hráolíu
hafa runnið úr lestum skipsins og eytt
fugla- og sjávarlifi undan ströndum
Bretagne á Frakklandi og stórmengað
fjörur.
Vegna þess að sjór braut á skipinu og
orsakaði aukinn leka úr þvi, hætti
franski flotinn í bili við áætlanir um að
sprengja göt á lestar skipsins til þess að
ná oliunni úr því, en fiskimenn hafa
óskað eftir þvi að olían fari fremur öH I
sjóinn nú, heldur en að hún leki smám
saman úr skipsflakinu.
Hálfur mánuður er nú liðinn frá
strandi skipsins og hefur mengun frá
skipinu spillt ströndum Frakklands á
u.þ.b. 200 km löngum kafla.
Kafarar flotans eru tilbúnir að kafa
við flakið til þess að sprengja þá einu lest
skipsins sem enn er heil, ef hún lætur
ekki undan sjóum, en enn er ekki vitað
hvort öruggt er að kafa við skipshliðina.
Þegar öll olía er komin úr skipinu verður
hreinsiaðgerðum flýtt sem unnt er, en
fjöldi sjálfboðaliða vinnur nú við hreins-
un á ströndum.
Norðvestur-Kanada:
Sleðahundarnir
drápu eigandann
— ísledakeppni
Kona nokkur, sem tók þátt í keppni á
hundasleðum við Red River í norðvestur
héruðum Kanada, fór heldur illa út úr
keppninni. Hundar hennar, fimm að
tölu, réðust á hana og hlaut hún bana af,
að sögn lögreglunnar.
Konan, sem hét Bella Miditch og var
36 ára að aldri, leiddi keppnina framan
af, en þegar sleði hennar var kominn um
tvo og hálfan km frá rásmarkinu réðust
hundarnir á hana með fyrrgreindum af-
leiðingum.
Þegar sleðinn sem var á eftir sleða
Miditch, kom á staðinn var ekki hægt að
bjarga henni og konan dó áður en tókst
að ná henni frá hundunum.
Að sögn lögreglunnar geta sleða-
hundar orðið mjög æstir í keppni sem
þessari, en að öðru leyti voru engar skýr-
ingar fengnar á árás hundanna. Hund-
arnir voru drepnir eftir atburðinn.
Empain
barón
laus
Kmpain barón
Edouard Jean Empain barón,
sem mannræningjar höfðu haft I
haldi í 62 daga, var látinn laus á
sunnudagskvöld. Hinn belgiski
auðmaður og iðjuhöldur var látinn
laus án lausnargjalds.
Lögreglan handtók Alain
Caillol, sem talinn er vera foringi
mannræningjahópsins, á föstu-
dagskvöld. Hann var tekinn eftir
skotbardaga við lögreglu, þegar
lögreglan blekkti ræningjana, með
því að þykjast koma umbeðnu
lausnargjaldi fyrir á ákveönum
stað. Empain var síðan látinn laus
eftir að Caillol talaði við félaga
sina.
Lögreglan leitar nú ákaft manna
sem taldir eru tilheyra hópi
hryðjuverkamanna sem rændu
auðjöfrinum. M.a. er bróður
Caillol leitað en talið er að þeir
bræður hafi stjórnað hópnum.
Empain var fluttur á sjúkrahús i
gær til rannsóknar en hann átti
heldur bága vist meðal ræningj-
anna. Hann var m.a. i hlekkjum
og geymdur i tjaldi í þessa tvo
mánuði frá þvi honum var rænt á
götu i Frakklandi.