Dagblaðið - 01.04.1978, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. APRlL 1978.
7
Ekki sama Jón og sr. Jón:
Bflar „óskabarnsins” ólöglegir?
Auðvitað er það sjálfsagt að
lögregian skipti sér af ökutækjum, sem
lagt er að mestu á gangstétt við gatna-
mót og fast að skilti sem tilkynnir að
bannað sé að leggja bifreiðum.
Myndina birtum við á dögunum til að
sýna umferðaröngþveitið i miðbæn-
um.
Vísir menn bentu okkur síðan á
fleiri lögbrot sem myndin sýnir. 1 bif-
reiðalögum segir að hámarkslengd
dráttarbils og festivagns sem við hann
er fastur megi vera 15 metrar.
Hámarkslengd bíls með tengivagn
megi samtals vera 18 metrar og
hámarkslengd eins bíls má vera 12
metrar. Var okkur bent á að dráttar-
bílar Eimskips væru allir ólöglegirl!
DB-menn brugðu sér á vettvang og
mældu lengd þriggja dráttarbíla
Eimskips með festivagnana aftan í sér.
Reyndust tveir þeirra vera hálfur
tuttugasti metri og einn var röskir 20
metrar eða nákvæmlega 20.30 m. Lög-
reglumaðurinn á myndinni skiptir sér
ekki af umferðarlagabroti „ormsins
langa” í eigu Eimskips, enda fást þeir
einhverra hluta vegna skráðir hjá Bif-
reiðaeftirlitinu þótt einkennilegt megi
virðast.
Dæmisagan um Jón og sr. Jón á hér
við sem víða annars staðar í islenzka
!«!«(!»!*!»!» lí ■■•■■11*01
1 f J fifi i Bl-
1 ia H 1 1 I
]H 1®
kerfinu.
V .......... — n
Bodskapur— einkumfyrir
fermingarbörnin
MEÐHJÁLPARINN
GEFUR ÚT BÓK
Páll Hallbjörnsson, fyrrum forstjóri
Harðfisksölunnar og góðkunnur borg-
ari, nú meðhjálpari i Hallgrímskirkju,
hefur gefið út mikla bók. Orð og tilkall,
sem hann tileinkar islenzkri æsku.
Einkum mun bókin vera til þess ætluð
að fermingarbörnin fái í henni gott og
kristilegt veganesti. Orð og tilkall er 479
blaðsíður — óvenju fallega úr garði gerð
og mikið'Skreytt myndum. Bókinni
fylgir biskupinn úr garði með nokkrum
orðum.
PÁLL HALLBJÖRNSSON, meðhjálpari í Hallgrímskirkju, í starfi sínu. — DB-
mynd Ragnar Th. Sig.
Kaupamenn vin-
sælastir á aldr-
inum 13-16 ára
„Það er nú ekki mjög mikið enn „Það má vel vera en það er nú
sem komið er að spurt hefur verið um meira af strákum sem beðið er um en
sveitapláss fyrir unglinga,” sagði stelpum. En stelpur geta gengið að
Guðmundur Jósafatsson fulltrúi hjá sveitavinnu alveg eins og strákar og
Búnaðarfélagi íslands I samtali við standa strákum svona nokkurn veginn
DB. Menn vita líka að það er ekki til a sporði. Ef þær fara á vélarnar eru
neins að spyrja eftir sumarvinnukrafti. þær kannske heldur gætnari en
En undanfarin ár hafa fjölmargir strákarnir," sagði Guðmundur
unglingar komizt í sveitavinnu fyrir Jósafatsson.
okkar milligöngu. Ég býst alveg við Þeir unglingar sem hafa áhuga á að
að svo verði einnig í ár,” sagði komast i kaupavinnu i sumar geta
Guðmundur. látið skrá sig hjá Búnaðarfélaginu i
— Hvaða aldurshópar eru Bændahöllinni og þeir bændur sem
vinsælastir? vj|ja raða rj| sjn röska sumar-
„Það eru þessir á aldrinum 13, 14, vinnumenn eða konur geta sömuleiðis
l5og 16 ára". snúið sér til Guðmundar i Bænda-
— Eru stelpurnar jafn gjaldgengar og höllinni. '
strákarnir? -A.Bj.
Ókeypis bíó í Breiðholti
Junior Chamber klúbburinn I Breið- þessir aðilar til ókeypis kvikmyndasýn-
holti og Framfarafélag Breiðholts III ingar í Fellahelli kl. 3 á sunnudaginn.
ætla að taka höndum saman til að Aðgangur er öllum heimill meðan hús-
skemmta börnum á sunnudaginn. Bjóða rúm leyfir.
ASt/DB-mynd Sv. Þnrm.
Leiðrétting:
Afrek Leifs
eftirtektar-
verðara
I grein minni um Leif Breiðfjörð
glermyndasmið á fimmtudag hefur
prentvillupúkinn komist i málið og
nagað eitt núllið aftan af
mikilvægri tölu. Leifur var sem
sagt einn af 30 útvöldum úr hópi
4000 umsækjenda, ekki 400. Gerir
þetta afrek hans enn eftirtektar-
verðara.
A.l.
Textar—
leikrit
Þorvarðar
Textar heitir ný kilja sem Letur
hf. gefúr út. í bókinni eru fjögur
leikrit eftir Þorvarð Helgason.
Rósamunda, Síðasta viðtal
dagstns, Afmælisdagur og Sigur.
Bókin er fvrsta bókin í Leikrita-
safni Leturs og mun ætlunin að
halda áfram útgáfu slíkra bóka.
Bók Þorvarðar er 122 blaðsíður
og er bókin offsetfjölrituð.
Ný Ijóðabók
fráSigurðiA.
í Ijósi næsta dags heitir ljóðabók
eftir Sigurð A. Magnússon, sem
kom út hjá Helgafelli í gær. Á
bókarkápu segir m.a.: „Sigurður
A. Magnússon á að baki óvenju
fjölbreytt bókmenntaverk: Ijóð.
sögur, leikrit, ferðabækur. ritgerðir
og þýðingar í bundnu og óbundnu
máli. Hann hefur verið skeleggur
gagnrýnandi og aðsópsntikill rit
stjóri undanfarna áratugi. 1 Ijóða
gerð er hann nýst<‘fnumaður og
andlegar og pólitiskar hræringar
samtímans eiga sterk ítök i Ijóðum
hans."
Hin nýja Ijóðabók Siguröar er
76 síðurí kiljuformi.
ÚTBOÐ
Suðureyrarhreppur óskar eftir tilboðum í að
gera fokheldan 2. áfanga grunnskóla á Suður-
eyri.
Útboðsgögn verða afhent frá og með 5. iapríl
1978 á skrifstofu Suðureyrarhrepps og hjá
verkfræðistofunni Hönnun hf., Höfðabakka
9, Revkjavík gegn skilatryggingu að upphæð
kr. 10.000.
Tilboð verða opnuð þann 25. apríl nk. kl. 14.