Dagblaðið - 01.04.1978, Blaðsíða 24
Tæknilegar innheimtuaðgerðir orsök erfiðleika RARIK á Austurlandi:
Engir rafmagnsreikningar
hafa borizt f rá í haust
— með gömlu innheimtuaðferðinni hefði verið unntað standa undir
rekstrarútgjöldunum
„Við hefðum getað staðið undir
rekstrarútgjöldum svo sem greiðslu
fyrir oliu o.fl. ef innheimta raforku-
gjalda hefði verið með sama hætti i
vetur og undanfarin ár, en hið nýja
allsherjarinnheimtukerfi fyrir landiði
hefur virkað þannig að nú eigum við
útistandandi tugi milljóna. sem við
hefðum ella verið búnir að inn-
heimta," sagði Erling Garðar Jónas-
son rafveitustjóri Rafmagnsveitna
rikisins á Austurlandi í viðtali við DBI
gær.
Umdæmi skrifstofunnar á Egils-
stöðum nær frá Lónsheiði í suðri til
Langaness i norðri. Þar til sl. haust sá
Egilsstaðaskrifstofan um innheimtu
raforkugjalda á þessu svæði og voru
Austfirðingar beztu og skilvisustu
greiðendur á landinu, að sögn Erlings,
bæði einstaklingar og fyrirtæki.
Þá var það í okt. sl. að ákveðið var
að taka upp samræmt innheimtukerfi
fyrir allt landið og skyldi útskrift
reikninga fara fram hjá Skýrsluvélum
rikisins.
Eftir því sem Eiiing vissi bezt komu
upp erfiðleikar við gerð „prógrams”
fyrir tölvuvinnsluna og jafnframt
framkvæmd innheimtu með þeim af-
leiðingum sem fyrr greinir.
Sagði hann þetta hafa skapað gífur-
leg vandamál i rekstrinum, svo sem
komið væri á daginn. Notkun væri
lang mest yfir vetrartímann og ættu
þvi innheimtutekjur að vera i há-
marki. Þannig þyrfti það að vera því
rekstrarkostnaður væri einnig mestur
yfir veturinn.
Hann tók fram að þótt tekjustreymi
hefði verið með eðlilegu móti í vetur,
hefði það ekki leyst allan fjármagns-
vanda Rarik á Austfjörðum, heldur
hefði rekstrarútgjöldum verið horgið
og þannig t.d. verið komið i veg fyrir
hótanir um afgreiðslubann á olíu til
dísilrafstöðva o.fl.
- G.S.
Reykjavíkurborg vatnslaus vegna óhapps hjá verktaka:
Hundruð manna urðu
verklausir í vatnsleysinu
Er verktakafyrirtækið Hlaðbær var
að byrja að grafa fyrir nýrri aðalæð fyrir
hitaveituna rétt vestan við gamla
skeiðvöllinn fóru þeir í 600 mm
kaldavatnsæð og settu, hana í sundur,”
sagði Þóroddur Sigurðsson vatns-
veitustjóri i samtali við DB.
Höfuðborgin var kaldavatnslaus fram
eftir degi í gær því loka varð fyrir
aðalvatnsæðina til borgarinnar á meðan
viðgerð fór fram á æðinni sem I sundur
fór.
vatnsskorturinn illa til sin. í fisk-
verkunarstöðinni varð sjálthætt við
vöskun en þá hafði tekizt að bjarga nýj-
um fiski. Var hægt að snúa sér að
umstöflun þar til dagvinnu lauk svo fólk
héll vinnu sinni.
í frystihúsinu átti að vinna fram eftir
kvöldi en við það varð að hætta og voru
menn þar illa settir. Unnið var til kl. 5 í
Bæjarútgerðinni.
„Frá 600 mm æðinni liggur önnur
800 mm æð i bæinn. Þegar átti að loka
fyrir þá æð bilaði stopplokinn sem er á
aðalæðinni. Vegna framleiðslugalla
brotnaði spindill og þar með var ekki
hægt að loka þessari æð frá aðalæðinni.
Loka varð þvi fyrir allt kalt vatn til
bæjarins," sagði Þóroddur.
í Hampiðjunni urðu 170 manns at-
vinnulausir vegna vatnsskorls en þar er
kalt vatn nauðsynlegt ni þes að nýju
plastvélarnar þeirra geti gengið.
Viða annars staðar mun vatnsskortur-
inn hafa sagt illilega til sin og stöðvað at-
vinnu fólks og framleiðslu.
A.Bj./A.St.
Um fimrn leytið i gærdag var viðgerð
lokið og byrjað að hleypa vatni á aftur.
Sagði vatnsveitustjórinn að langan tima
tæki að fylla æðarnar aftur, þvi mörg
hverfi voru orðin vita vatnslaus.
Það var ekki fyrr en um hádegisbilið i
gær sem Ijóst var að loka varð fyrir allt
vatn til borgarinnar.
Kaldavatnsleysi hefur i för með sér
gifurlegt tjón og skapar óskapleg vand-
ræði.
Hjá Bæjarútgerð Reykjavikur sagði
Er loka átti fyrir rennsli í aðala'ð til
borgarinnar brast spindill i lokanum.
Vatnsflaumurinn fyllti brunninn og
maðurinn sem stóð við lokann synti upp
úr brunninum.
DB-myndir Ragnar Th.
Tættistsundurá Ijósastaur
: -
Undarlegustu atvik koma fyrir i umferðinni og það sýnir þessi mynd ljóslega.
Ung kona, rúmlega tvítug, var ein á ferð i þessum bíl er ökuferð hans lauk á
þessum staur gegnt Slökkvistöðinni við Hafnarfjarðarveg.
Höggið var mjög mikið og gekk vélin langt aftur i bilinn. Konan hlaut m.a.
mikið höfuðhögg og var eftir rannsókn i slysadeild lögð inn á Borgarspitalann.
Ekki var vitað í gær hvað valdið hafði þessu slysi.
ASt/DB-mynd Sveinn.
Rafkynding úti á landi:
MEIRA EN HELMINGI
DÝRARIEN SYÐRA
Eftir hækkunina á rafmagni til húsa-
hitunar á svæði Rafmagnsveitna rikisins
kostar 124% meira að rafkynda á þvi
svæði en t.d. í Reykjavik. Sem kunnugt
er á þessi hækkun að færa rafveitunum
110 milljóna tekjuaukningu á þessu ári,
en þegar betur er skoðað mun hún ekki
skila nema 70 milljónum á þessu ári og
40 milljónum eftir næstu áramót. Fyrir
hækkunina var húsahitunarrafmagn
84% dýrara á RARIK svæðinu en i
Reykjavík.
Þá eru heimilis- og iðnaðartaxtar á
RARIK svæðinu einnig 85%hærrieni
Reykjavik. Er hér átt við smásöluverð til
neytenda.
Eftir þvi sem blaðið kemst næst telja
fróðir menn að vandi RARÍK stafi af
því að rikið leggur þessu fyrirtæki sínu
ekki til eigið fjármagn. svo að fjármagna
þarf nær allar framkvæmdir með er-
lendu lánsfé á mismunandi óhagstæðum
kjörum. Þá hefur einnig verið eitthvað
sleifarlag á innheimtu RARÍK síðan út-
skrift reikninga var færð í Skýrsluvélar
ríkisinssl. haust.
G.S.
fifálst, úháð dagblað
LAUGARDAGUR I. APRÍL 1978
Deiltásamgöngu-
ráðherra:
Þekkingar-
laus maður
ráðinn
rekstrarstjóri
Vegagerðará
Austurlandi
Allir umdæmisverkfræðingar Vega-
gerðar rikisins en þeir hafa yfirumsjón
með framkvæmdum hver í sínum lands-
hluta hafa mótmælt ráðningu sam-
gönguráðherra i embætti rekstrarstjóra
stofnunarinnar á Austurlandi.
Hafa þeir allir utan einn, undirritað
yfirlýsingu þar sem þeir lýsa megnri
óánægju með að skipaður hafi verið i
stöðuna maður sem enga þekkingu hafi
á þeim störfum, sem honum séu falin.
Sá eini sem ekki undirritar er
umdæmisverkfræðingurinn á Austur-
landi en hann mun hafa ákveðið að
segja starfi sínu lausu vegna þessa máls.
Mikil ólga hefur verið í mönnum fyrir
austan vegna þessá, þó aðallega á
Reyðarfirði, þar sem höfuðstöðvar
Vegagerðarinnareru i fjórðungnum.
Hefur þetta meðal annars valdið
illvígum deilum innan Framsóknar-
félags Reyðarfjarðar.
í yfirlýsingunni segir ennfremur að
yfirstjórn Vegagerðarinnar á Austur-
landi telji að gengið hafi verið fram hjá
hæfum manni sem starfað hafi hjá
stofnuninni í fjölda ára.
Ráðning reynslulauss manns og gjör-
samlega ókunnugs starfsemi Vega-
gerðarinnar geti valdið ómældum
erfiðleikum og jafnvel lamað starf-
semina. Sé einnig erfitt að skapa góðan
starfsanda innan fyrirtækis þegar svo sé
staðið að málum.
Að lokum skora umdæmisverk-
fræðingarnir á umdæmisverkfræðinginn
á Austurlandi og einn vegaverkstjóra á
Reyðarfirði að draga uppsagnir sinar
vegna þessa máls til baka þvi þær muni
skaða starfsemi Vegagerðarinnar.
Undir yfirlýsinguna skrifa: Birgir
Guðmundsson, umdæmisverkfræðingur
Vesturlandi, Eirikur Bjarnason, Vest-
fjörðum, Rögnvaldur Jónsson, Reykja-
nesi, Guðmundur Svafarsson,
Norðurlandi, Steingrímur Ingvarsson,
Suðurlandi, og Bjöm Ólafsson, áður
Vestfjörðum nú í sérverkefnum í
Reykjavik. -ÓG.
Skoðanakönnun
sjálfstæðis-
mannaí
Borgarnesi:
BJÓRN
EFSTUR
Björn Arason kaupmaður fékk
flest atkvæði í skoðanakönnun
sjálfstæðismanna i Borgarnesi, 59
alls. Annar varð Örn Simonarson
bifvélavirki með 56 atkvæði, þriðji
Jóhann Kristjánsson bílstjóri með
47. Þá kom formaður Sjálfstæðis-
félagsins Kristófer Þorgeirsson
með 32, María Guðmundsdóttir
með 21, Guðmundur Ingi Waage
20 og Jón Helgi Jónsson 16.
Alls kusu 75 og skilaði einn
auðu. Trúlega mun listi sjálf-
stæðismanna í Borgarnesi verða
skipaður þessu fólki og í sömu röð
við hreppsnefndarkosningarnar í
næstamánuði. -JBP-
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
!
I
i
í
4
í