Dagblaðið - 01.04.1978, Side 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1978.
23
<§
D
Útvarp
Sjónvarp
Sjónvarpíkvöld
kl. 21.55:
Óbyggðirnarkalla
Sjónvarpsmynd byggð á
sögu eftir Jack London
Óbyggöirnar kalla (The call of the
wild) nefnist bandarísk sjónvarpsmynd
sem er á dagskrá í kvöld kl. 21.55. Þessi
mynd er gerð eftir sögu hins þekkta rit-
höfundar Jack London en sagan hefur
komið út i íslenzkri þýðingu Ólafs
Friðrikssonar.
Söguhetja myndarinnar er hundur.
Hann hefur alizt upp við mjög gott
atlæti i Kaliforníu. Einn góðan veður-
dag er honum stolið og fara ræningj-
arnir með hann til Alaska. Þar kaupa
tveir gullleitarmenn hann svo að senni-
lega verður nokkuð erfitt fyrir eiganda
hans að hafa upp á honum.
Jack London, þessi mikli ævintýra-
maður, er fæddur áriö 1876 í Kaliforníu.
Hann var um skeiö einn af víðlesnustu
RAGNHEIÐUR
KRISTJÁNSDÓTTI
iC
Aðalleikari myndarinnar I kvöld er
hundur.
Sjónvarp sunnudag kl. 20.30: Gagn og gaman
Starfskynning í sjónvarpinu
„Gagn og gaman er starfsfræðslu-
þáttur. Hugmyndin að honum er gömul
og er upprunnin hjá Iðnnemahreyfing-
unni. M6r finnst vanta mikið á starfs-
fræðslu í skólum og er ég þess fullviss að
bæði útvarp og sjónvarp gætu mikið gert
til þess að bæta úr þessu. Þetta er fyrsta
tilraun til starfskynningar af þessari teg-
und i sjónvarpinu og höfum við óskaö
eftir því að þættirnir verði fleiri. Gott
væri að geta kynnt 20 starfsgreinar i 10
þáttum. Ekki mun þó sjónvarpið taka
ákvörðun i þessu máli fyrr en að lokinni
sýningu þessa þáttar.”
Þessar upplýsingar fengum við hjá
Gesti Kristinssyni en hann ásamt Val-
gerði Jónsdóttur er umsjónarmaður
þáttarins Gagn og gaman sem er á dag-
skrá sjónvarpsins á sunnudagskvöldið
kl. 20.30.
i þessum þætti mun útvarpsvirkjun
kynnt. Farið verður á ýmsa vinnustaði,
s.s. öryrkjabandalagið þar sem fram-
leiddir eru gjaldmælar í bifreiðar. Þá
verður Iðnskólinn einnig heimsóttur og
einnig verður eitthvað vikið að
radióamatörum.
Þvi næst mun Þórður Sigurgeirsson
útvarpsvirki sitja fyrir svörum fjögurra
unglinga um námið og starfið.
Þvi næst eru frímínútur. í þeim mun
Trítiltoppakvartettinn leika og syngja.
Þessi kvartett er skipaður þremur
nemendum úr Menntaskólanum við
Hamrahlíð og einum úr Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti. Þau hafa litið komið
fram, en hafa þó leikið og sungið fyrir
aldraða á elliheimilum, og þá aðallcga á
vegum Æskulýðsráðs.
Eftir frímínútur mun meinatækni
kynnt. Verður notuð sama aðferðin við
kynningu hennar og útvarpsvirkjunar-
innar. Farið verður i heimsóknir á
vinnustaði meinatækna og fylgzt með
störfum þeirra. Því næst mun Elísabet
Kristbergsdóttir meinatæknir svara
spurningum fjögurra unglinga um
starfið.
Þátturinn er i litum og er um 45
minútna langur. Stjórn upptöku
annaðist Örn Harðarson. RK
í þættinum Gagn og gaman verður útvarpsvirkjun kynnt.
Utvarpí kvöld 1. aprílkl. 21,40: Teboð
GETUM VID TREYST
ff
FRÉTTUM FJÖLMIDLANNA?’
I kvöld, laugardaginn 1. apríl,
ætlar Sigmar B. Hauksson að fjalla um
áreiðanleika fjölmiðla í þætti sínum
Teboð. Sagðist Sigmar einkum ætla aö
fjalla um hvort almenningur gæti
treyst þeim fréttupi, sem fjölmiðlar
bera honum, en þvi miður verðum við
oft vör við misræmi i fréttaflutningi á
sömu fréttinni.
Sigmar gerði sér ferð niður i miðbæ
með hljóðnemann og spurði vegfar-
endur aö þvi hvort þeir treystu
fjölmiðlunum. Voru svörin nokkuð
misjöfn, en þó virðist fólk almennt
hafa vaðið fyrir neðan sig i þessum
efnum.
Litið sem ekkert hefur verið rætt
um áreiðanleika fjölmiðla og er þetta
að minnsta kosti í fyrsta sinn sem slikt
er gert eftir að frjálst og óháð Dagblað
Sigmar
Teboðs.
Hauksson, stjórnandi
hóf göngu sina. Flest blaðanna eru
málgögn einhverra stjórnmálaflokka
og sagði Sigmar þvi skrif þeirra mótast
mikið af því hverjir sætu i stjórn. Það
væri þvi ekki auðvelt fyrir fólkið að
treysta i einu og öllu þeim fréttum sem
slík blöð bera okkur. 1 þessu tilfelli
væru ríkisfjölmiðlarnir sjónvarp og
úvarp mikils virði.
Kvað Sigmar fólk eiga kröfu á að
fjölmiðlar vandi sig við fréttaflutning,
þvi að það væru nú einu sinni þeir sem
mótuðu skoðanir okkar og hefðu alveg
gifurleg áhrif á daglegt lif okkar.
Sér til aðstoðar hefur Sigmar fengið
þá Einar Karl Haraldsson fréttastjóra
Þjóðviljans og Braga Guðmundsson
fréttastjóra Vísis.
Þátturinn er tæplega klukkustundar
langur.
RK.
Alaska o.fl. Þar sem hann hefur starfað
sem gullleitarmaður i Alaska má búast
við því að hann hafi þekkt alla stað-
háttu og sögusvið myndarinnar í kvöld
sé þvi ekki svo ósennilegt.
Fyrsta bókin sem vakti eftirtekt á
nafni hans var „The son of the wolf” og
kom hún ekki út fyrr en hann var
nálægt þritugu. Eftir það skrifaði hann
nærri þvi sleitulaust næstu 16 árin.
Lifandi myndauðgi, fjör og hraði i frá-
sögn einkennir mjög bækur Londons og
megum við því að öllum likindum eiga
von á spennandi og skemmtilegri mynd í
kvöld.
Með aðalhlutverkin í myndinni fara
John Beck og Bernard Fresson. Þýðandi
,er Ellert Sigurbjörnsson og er myndin i
litum.
RK
skáldsagnahöfundum heimsins og enn
þann dag í dag eru bækur hans álcaflega
víðlesnar, enda sumar skáldsagna hans
taldar til sígildra rita i heimsbókmennt-
unum, einkum fyrstu bækur hans.
Áður en Jack London hóf að rita
bækur af einhverri alvöru lifði hann
mjög ævintýralegu lífi sem ostruþjófur
við strendur San Fransicoflóans, flakk-
ari, selveiðari og gullleitarmaður i
29555
OPID VIRKA DAGA FRA 9—21
UM HELGAR FRÁ 13—17
Álfaskeið
55 fm
2ja hb. górt íbúó á I. hæú, stórar
suóurstalir, bílskúrsréttur. Veró
7.5 m.
Bugðulækur
90 fm
3ja hb. jarðhæð. Verð 11 m.
Bergþórugata
Litil 3ja hb. ibúð á I. hæð, sérinn-
gangur. Útb. 4-4,3 m.
Hverfisgata
2 X 70 fm
Tvær 3ja hb. íbúðir i sama húsi,
hentar vel innan sömu fjólskvldu.
Útb. 8,5 m.
Langholtsvegur
100 fm
4-5 hb. nýuppgerð rishæð, sérinn-
gangur. Útb. 9 m.
Langholtsvegur
90 fm
4ra hb. sérhæð + bílskúrsréttur.
V'erð ug útb. tilboð.
Dvergabakki
135 fm
Ira hb. góð ibúð. ( tb. I0 m.
Ljósheimar
100 fm
4ra hb. ibúð i háhvsi. til: oð.
Gaukshólar
138 fm
5 hb. íbúð, 4 svefnherbergi +
hilskúr. Verð 16.5-17 m.
Dyngjuvegur
110 fm
4-5 hb. nistandsett sérhæð. Verð
og útb. tilhoð.
Hafnarfjörður
95 fm
4ra hb. efri hæð + 2 hh. í kj„
hílskúr. Verð 12 m.
Hjallabraut
Hafnarf. 130 fm
5 hb. sérlega vönduð og falleg íbúð,
40 fm stofur, stórar suðursvalir,
bein sala en skipti koma til greina
á sérhæð, raðhúsi, eða einbýii i
llafnarfirði, Garðabæ eða
Kópavogi.
Snorrabraut
30 fm
K.instaklingsihúð. TilbmV
Hrauntunga
150 fm
Erum með i einkasölu sérlega
vandað einbýli, 2 stofur, 4 svefn-
herbergi, bílskúr, 40 fm. Til greina
kemur að taka góða 4-5 hb. íbúð
uppí, ekki síður f blokk, fremur í
austurbænum i Reykjavik.
Mosfellssveit
Fokhelt
Glæsilegt hús, I46 fm, +• 42 fnt
bilskúr. Tilboð.
Engjasel —
Fokhelt
Raðhús. 2 hæðir + kjaliarí, selst
pússað utan, glerjað, ofnar og
einangrun fylgir. Verðtilboð. Útb.
8,5 m.
Úti á landi
Vogar Vatnsleysuströnd, gott
einbýli, I. hæð og ris, sem er
óinnréttað, 40 fm bílskúr. Óskar
eftir makaskiptum á 3-4 herb. ibúð
með hiiskúr i Reykjavík.
Líka i Vogum
Nýtt einbýli, 170 fm, óskar eftir
makaskiptum á 4-5 herb. íbúð i
Rvík.
Líka í Vogum
Tvibýlishús, 2 4ra herb. ibúðir.
Vantar
llöfum kaupanda að ea 150 fm
verkstæðishúsnæði fvrir bifreiða
stiliingar.
Vantar
100—120 fm einbýli eða raðhús í
llveragcrði.
Vantar
3ja herb. ibúð á 1.-2. hæð i
Noröurmýri-Holtum.
Höf um kaupendur
að raðhúsum. einhýlum, sérhæðum
i llafnarlirði. Kópavogi og Revkja-
vík.
Höfum kaupanda
nteð allt að staðgreiðslu að 4-5
herb. íhúð i Fossvogshverfi.
Höfum kaupanda
að einhýli rneð 2 ibúðunt í Rcvkja-
vik eða kópavogi, getur látið uppi
raðhús með 5 sv.herb. í neðra
Breiðholti.
Höfum kaupanda
að verulega góðri ca 5 hb, fbíið •
austurbæhum, hugsanleg skipti a
góðu einbýli á Seitjarnarnesi.
Ath. Vegna mikillar
eftirspurnar vantar okkur allar
gcrðir eigna á söluskrá. Aðstoðum
fólk við verðmat.
rSK
EIGNANAUST
Laugavegi 96 (við Stjörnubió) Sími 2 95 55
I SÖLUM.: HjÖrtur Gunnarsson. Lárus HolgaMj.i, Sipiiin Kröyer
LOGM.: S'^anuV- Pór Vjlhiálmsson hdl