Dagblaðið - 04.04.1978, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1978.
7
Diane Keaton fékk Oskarsverðlaunin fyrir leik sinn I kvikmyndinni Annie Hall.
Richard Dreyfuss fékk Óskarinn fyrir leik sinn i kvikmyndinni The Goodbye Girl.
BURTONVARÐ
ENNAF
ÓSKARNUM
— Richard Dreyfuss og Diane Keaton hrepptu verðlaunin
fyrir beztan leik í aðalhlutverkum—Woody Allen bezti
leikstjórinn og með beztu myndina — Annie Hall
Diane Keaton vann i nótt Óskars-
verðlaun fyrir beztan leik konu í aðal-
hlutverki í myndinni Annie Hall,
gamanmynd Woody Allens. Richard
Dreyfuss fékk Óskarsverðlaun fyrir
aðalhlutverk í myndinni Goodbye
Giri, gamanmynd Neil Simon.
Vanessa Redgrave fékk Óskar fyrir
aukahlutv. i myndinni Julia og Jason
Robards fékk einnig Óskar fyrir auka-
hlutverk í myndinni Julia. Robards
sem er 55 ára að aldri fékk Óskars-
verðlaun fyrir aukahlutverk, einnig í
fyrra, en þá fyrir hlutverk í kvikmynd-
inni All the Presidents Men. Þar lék
hann ritstjóra.
Óskarsverðlaunin fyrir leikstjórn
fékk Woody Allen fyrir stjórn á kvik-
myndinni Annie Hall. Verðlaunin
fyrir tónlist fékk kvikmyndin Star
Wars, beztu útsetningu A Little Night
Music, beztu kvikmyndun Close
Encounters of the Third kind, klipping
Star Wars,- bezti söngur You Light up
my life, Irving Thalberg verðlaunin til
framleiðenda: Walter Mirisch, frum-
samin mynd: Woody Allen og
Marshall Bricklin fyrir Annie Hall,
kvikmyndahandrit eftir sögu: Alvin
Sargentfyrir Julia.
Bezta mynd ársins var kjörin Annie
Hall undir leikstjórn Woody Allens,
en hún fjallar um unga elskendur og er
i gamansömum tón. Raunar búa þau
saman Woody Allen og Diane
Keaton. sem leikur aðalhlutverkið i
myndinni og fékk nú Óskarsverðlaun
fyrir hlutverkið.
Gyðingar höfðu hótað mótmælum
við verölaunaafhendinguna vegna út-
nefningar Vanessa Redgrave til verð-
launa. Þegar til kom var mótmælenda-
hópurinn lítill og hafði ekki mikil
áhrif.
Baráttan um Óskarsverðlaunin fyrir
aöalhlutverk kvenna stóð á milli
Diane Keaton og Jane Fonda, en hún
lék í kvikmyndinni Julia. Helzti keppi-
nautur Dreyfuss um verðlaunin var
Richard Burton fyrir hlutverk sitt í
Equus, en hann hefur verið útnefndur
til Óskarsverðlauna sjö sinnum, en
aldrei hlotið þau.
Woody Allen, sá frægi háðfugl, var valinn bezti leikstjórinn. Kvikmyndin sem hann framleiddi og leikstýrði, Annie Hall, var
valin bezta mynd ársins og Diane Keaton, sem lék aðalhlutverkið i þeirri mynd, fékk Óskarinn að launum. Þau búa reyndar
saman að sögn en ekki er Ijóst hvort veraldleg eða gcistleg yfirvöld hafa blessað sambúðina.
Bandaríkin:
Sjónvarpsgláp
veldur ótta,
óöryggi og
ofbeldishneigö
Sjónvarpsefni sem elnkum er ætlað
börnum i Bandarikjunum er talið sýna
þrisvar sinnum meira ofbeldi en efni
fyrir fullorðna.
Samkvæmt nýgerðum rannsóknum á
efni síðastliðins árs, en þær fram-
kvæmdu aðilar á vegum háskólans í
Pennsylvania, er ofbeldi i einhverri
mynd í 75% af öllu sjónvarpsefni.
Þar skar sig sérstaklega úr sjónvarps-
efni, sem sýnt er fyrri hluta laugar- og
sunnudaga. Að meðaltali sextán of-
beldisaðgerðir voru þá sýndar í klukku-
tíma en ekki nema fimm í efni fyrir full-
orðna.
1 niðurstöðum rannsóknarinnar á
sjónvarpsefni segir að sannað sé að þeir
sem mikið horfi á „kassann” þjáist meir
af ótta og öryggisleysi en þeir sem minna
horfk
Hinum fyrrnefndu hætti meir til að
óttast að fara út fyrir hússins dyr eftir að
skyggja tekur. Þeir kaupi einnig fremur
byssur sér til varnar, einnig varðhunda
og sérstakar dyralæsingar á heimili sín.
Skólabörn voru spurð hvenær réttlæt-
anlegt væri að slá annan aðila sem reitti
þau til reiði. Þau sem mikið horfðu á
sjónvarp svöruðu mun oftar að slíkt
væri nær alltaf réttlætanlegt.
Þúsundir viðriðnar
tryggingasvikin
Talið er að þúsundir manna muni
blandast í trygginga og sjúkrasjóða-
svikin sem upp komst um í Ástraliu
um síðustu helgi. Þau munu hafa farið
þannig fram að læknar gáfu fólki —
flestu af grísku bergið brotið — röng
læknisvottorð, sem siðan voru notuð
til að svikja fé úr tryggingarstofnun-
um. Ákveðið var i gær að stöðva alla
þá sem greiðslur fá úr sjúkra og trygg-
ingasjóðum og ætla úr landi þar til mál
þeirra hafa verið rannsökuð.
Yfirvöld i Ástraliu munu hafa hug á
að fá 350 manns sem nú búa i Grikk-
landi til að snúa aftur til Ástralíu og
gera grein fyrir máli sínu. Nú er talið
að svikin hafi átt sér stað á tímabilinu
frá 1972 fram til dagsins í dag og hafi
kostað Ástralíustjórn í"það minnsta 50
milljónir dollara eða jafnvirði nærri 13
milljarða íslenzkra króna.
FISKIMENNICADIZ
SLÁST VID LÖGREGLU
Fiskimenn í borginni Cadiz á Spáni
efndu til óeirða eftir að yfirvöld þar
höfðu leyst upp mótmælafund þeirra.
Fiskimennirnir, sem eru i verkfalli
og krefjast hærri launa, höfðu safnazt
saman kröfum sínum til stuðnings.
Talið er að i það minnsta 700 fiski-
menn hafi verið á fundinum en þeir
brutu glugga, rifu upp götusteina og
grýttu lögreglumenn.
Fyrir viku meiddist einn lög-
reglumaður og þrir verkfallsmenn í
svipuðum átökum i Cadiz.
Lögregluyfirvöld í borginni segja að
fimmtán manns hafi verið handteknir
i óeirðunum. Einnig segja þau aö
nokkrum bensínsprengjum hafi vcrið
kastað að ráðhúsi borgarinnar og lóg
reglubifreiðum.