Dagblaðið - 04.04.1978, Side 24
Eftir tæpar tvær vikur verður einn
af áskrifendum Dagblaðsins orðinn
glæsilegri bifreið ríkari. Þá verður
dregið úr nöfnum áskrifenda í get-
raunaleiknum, sem blaðið efndi til
síðla i októbermánuði sl. Vinningur-
inn er glæsileg CHEVROLET
NOVA-bifreið, en slík farartæki kosta
hátt i fjórar milljónir eftir siðustu
gengisfellingu.
Þeir sem gerast áskrifendur næstu
dagana munu verða með i þessum leik
okkar. Tölvan sér um að þeir eigi
„miða” i leiknum okkar. Þeir sem voru
áskrifendur fyrir 24. október sl. eiga
fleiri „miða” ef svo mætti segja þ.e.
einn fyrir hvern mánuð sem liðinn er
frá því leikurinn hófst.
Sá eða sú sem verður svo heppin(n)
að verða {ireginn út af tölvunni fær
það verkefni að halda til ritstjórnar
Dagblaðsins og svara ósköp einfaldri
spurningu: „Hver er ritstjóri Dag-
blaðsins?”
Ætti það ekki að verða neinum til
trafala — og þá verða lyklar að glæsi-
legu farartæki afhentir.
Áskriftarsími Dagblaðsins er 27022,
en skrifstofa blaðsins er í Þverholti 11.
Verður húnopin eins og venja er til
allt til kl. 22 á hverju kvöldi. -
JBP
áskrifandi
dollaragrín”
DB-myiid SveinnÞorin.
Hinir
frelsandi
englar!
Óhappið gerðist, þegar stoppað
var við „bæjarins beztu”, þ.e.
pylsuvagninn við Tryggvagötu.
Nú voru góð ráð dýr! En birtast
ekki allt í einu tveir ungir lögreglu-
menn eins og frelsandi englar. Það
vafðist ekki fyrir þeim að koma
varadekkinu undir míní-bílinn en
vinkona ökumannsins virðist gera
grín að framtaksleysi hennar við
minni háttar bílaviðgerðir. Þess
skal getið af jafnréttisástæðum að
-sumar konur geta skipt um hjól-
barða á bílum sinum.
ortíheimsókn
ER MAÐUR FÆÐIST
AEIGINLEIKA
SMANS”
Dr. Frank Herzlin: „Miðað við áframhaldandi starf á sama sviði verður eftir
þrjú ár hvergi rekið betra Freeport-”pr6gramm” en á íslandi. Það verður fyrir-
mynd fyrir allan heiminn.” — DB-mynd: Ragnar Th.
— en ekki veröa þeir allir alkóhólistar
— hvað um þig?
„Alkóhólismi er ættgengur sjúk-
dómur og ólæknandi. Allar rannsóknir,
sem gerðar hafa verið á undanförnum
árum í Bandarikjunum benda til að
svo sé. Rannsóknir benda einnig tii að
tíundi hver maður sé fæddur með þeim
erfðaeiginleikum sem þarf til að verða
alkóhólisti. Hins vegar verða þeir ekki
allir alkóhólistar, ekki frekar en allir,
sem fæðast t.d. með eiginleika sykursýki
verða sykursjúklingar. Svo að alkó-
hólistinn verði það sem við köllum
„virkur” þarf fleira að koma til — m.a.
ytri áhrif.”
Það var dr. Frank Herzlin. yfirlæknir
Ereéportsjúkrahússins og stofnandi þess,
sem sagði þessi orð á fundi með frétta-
mönnum i gær. Dr. Herzlin er hér
staddur i boði Samtaka áhugafólks um
áfengisvandamálið og mun tala á
fundum þes; um helgina.
Dr. Herzlin lýsti nokkrum einkennum
alkóhólisma og skipti þeim í fjóra flokka:
1. Líkamleg einkenni: sjúklingurinn
fær ónot í maga, melting verður slæm,
mikil gas- og loftmyndun á sér' stað,
skjálfti er algengur, „black-out” og síðan
fer lifrin að gefa sig.
2. Andleg og tilfinningaleg ein-
kenni: sjúklingnum finnst hann ekki
standa sig, hann fær sektarkennd, finnur
til smánar, einangrar sig frá umhverfi
sinu og nánum ættingjum og vinum.
Hann fer að ljúga um drykkjuvenjur
sinar og fleira.
3. Hegðunareinkenni: hegðun hans
breytist, einkum við drykkju.
Sjúklingurinn drekkur sig oftar fullan,
hugsun slappast og vinnuafköst fara
mjög minnkandi.
4. Félagsleg einkenni: alkóhólistinn
verður stöðugt ergilegur, skapstirður,
sambúð hansáyg samband við fjölskyldu
og vini fer versnandi og hann á stöðugt
erfiðara með að sætta sig við umhverfi
sitt.
Þetta eru aðeins nokkur atriði sem dr.
Herzlin drap á á blaðamannafundinum í
gær. Hann mun ræða þessi atriði
og mörg fleiri á ráðstefnu sem Freeport-
klúbburinn á Islandi gengst fyrir á Hótel
Sögu um helgina, laugardag og sunnu-
dag, kl. 10—12 og 13:30—16 báða
dagana. Ráðstefnan verður öllum opin.
frjálst, úháð dagbJað
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1978.
Dularfullir
hjólbarðar
á Bíldshöfða
Um miðjan dag í gær var kært
vegna innbrots í geymslu SAAB-
umboðsins á Bíldshöfða. í Ijós kom að
engu hafði verið stolið en hurðir
skemmdar m.a. hurð hjólhýsis sem í
geymslunni var.
En það dularfulla er að undir hjól-
hýsinu fundust tveir dýrir hjólbarðar á
felgum af stærðinni 700x15. Enginn
hjá umboðinu kannast við hjólbarð-
ana sem eru tugþúsunda virði. Er uppi
tiigáta um að geymslan hafi verið
notuð sem þjófageymsla. Málið er í
rannsókn.
ASt.
Sjálfstæðismenn
á Austurlandi:
Þingmaðurinn
í fyrsta sæti
Sverrir Hermannsson alþingismaður
verður í 1. sæti á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í Austurlandskjördæmi
við næstu alþingiskosningar.
Framboðslistinn var ákveðinn á fundi
kjördæmisráðs á Reyðarfirði núna um
helgina.
í öðru sæti er Pétur Blöndal forstjóri,
Seyðisfirði, í þriðja sæti Egill Jónsson
ráðunautur, Seljavöllum A-Skaft. i
fjórða sæti Jóhann D. Jónsson
umdæmisstjóri, Egilsstöðum og í fimmta
sæti Tryggvi Gunnarsson skipstjóri,
Vopnafirði.
Austurland hefur verið nefnt fram-
sóknarsvæði en þar eru þeir með þrjá af
fimm þingmönnum. Sjálfstæðismenn
fengu 1344 atkvæði við síðustu
kosningar og einn mann kjörinn, Sverri
Hermannsson. HP
Alþýðuflokkurínná
Norðurlandi vestra:
FinnurTorfi
í efsta sæti
Kjördæmisráð Alþýðuflokksins i
Norðurlandskjördæmi vestra hefur nú
gengið frá endanlegum framboðslista
flokksins i kjördæminu fyrir alþingis-
kosningarnar i vor.
í fyrsta sæti verður Finnur Torfi
Stefánsson, lögmaður, Reykjavik, í öðru
sæti Jóhann Möller ritari verkalýðs-
félagsins Vöku á Siglufirði, i þriðja sæti
Jón Karlsson formaður verkalýðsfélags
ins Fram á Sauðárkróki í fjórða sæti
Elín Njálsdóttir póstmaður, Skagaströnd
og í fimmta sæti Þórarinn Tyrfingsson
héraðslæknir, Hvammstanga.
Við siðustu alþingiskosnningar hlaut
Alþýðuflokkurinn 445 atkvæði en
Alþýðubandalagið, sem hlaut fimmta
þingmanninn, Ragnars Arnalds, hlaut
850 atkvæði.
HP