Dagblaðið - 24.05.1978, Síða 1
| ujfiau
f dagblað
4. ÁRG. - MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978 - 107. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGARÓG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. - AÐALSÍMI27022.
--------| ÞAÐ GETUR VERIÐ DÝRT AÐ TRASSA SÖLUSKATTINN! |-
VEXTIR OG VIÐURLðG NÁ
NÚ ALLT AÐ102% Á ÁRI
BRUNALIÐIÐ DREGUR
FRAM FARALDSFÓTINN
- ÍTREKUÐ BROT VARÐA10 MILUÓNA SEKT, AUK VARÐHALDS
OG MISSISSTARFSRÉTTINDA
Tollstjórinn í Reykjavík, Björn
Hermannsson, hefur sent bréf ti!
ýmissa kaupmanna i Reykjavík þar,
sem telur „rétt að vekja athygli á!
breyttum lögum varðandi viðurlög1
vegna vanskila á sölugjaldi.”
1 bréfinu segir að samkv. lögum nr.
26/1978 verði viðurlög 4% á dag
fyrstu fimm daga vanskilanna allt að
20% síðan verða reiknaðir 3% vextir
fyrir hvern byrjaðan vanskilamánuð.
Ársvextir af sölugjaldsvanskilum
verðaþví 53%.
Siðan segir í bréfinu orðrétt: „Ef þér
eða fyrirtæki yðar er í ítrekuðum van-
skilum við Tollstjóraembættið og
vanskil gerð upp eftir hvert álagning-
artimabil skattstofu þá eru raunvextir
yfir árið 102%.” Síðan er tekið dæmi
um vanskil á 1.000.000 kr. sölugjaldi á
hverjum ársfjórðungi og gert ráð fyrir
að greiðandi greiði ekki fyrr en lokun
atvinnurekstrar hans er hótað. Verða
þá viðurlög vegna vanskilanna 260
þúsund kr. á ársfjórðungi eða
1.040.000 áárieða 102%.
í niðurlagi bréfsins er tollstjóri svo
hógvær að benda kaupmönnum á
refsiábyrgð sem stöðugum og
ítrekuðum vanskilum sölugjalds fylgir.
í lögum er kveðið á um allt að 10
milljón króna sektir auk varðhalds og
fangelsis allt að 6 árum og sviptingu
starfsréttinda. Sumum sem bréfið lásu
flaug i hug hvað gert yrði væri dauða-
refsing til í íslenzkum lögum.
Mikill styr hefur lengi staðið milli
kaupmanna og yfirvalda. Hafa
kaupmenn látið i Ijósi þær óskir að fá
einhverja umbun fyrir innheimtu
söluskattsins fyrir rikið. Ofanskráð
bréf sýnir að langt ei iji. !i: eðaðríkið
sjái af einhverjum eyri tn Kaupnv'nna
sem þóknun fyrir innheumuna. -ASt.
Kjarni Brunaliðsins, Pálmi Gunnarsson, Magnús Kjartansson og Sigurður
Karlsson æfðu af kappi I Tónabæ í gær en gáfu sér samt smá tima til upp-
stillingar er Ijósmyndara DB bar að garði. Brunaiiðsferðin hefst á Húsavík
um helgina. DB-mynd: Ragnar Th.
— SjáPOPPábls.19
Fleygja tugum tonna af mat
Af einhverjum furðulegum ástæð-
um hafa bæði frystihúsin á Patreks-
firði kastað tugum tonna af steinbit,
jafnvel á víðavangi, þann tíma sem
steinbítsvertiðin hefur staðið yfir, frá
enduðum marz fram i maí.
Þannig er blaðinu t.d. kunnugt um
14 tonna steinbítsfarm sem barst öðru
húsinu fyrir nokkru og var fleygt i
heilu lagi. Sjómenn og aðrir heima-
menn skilja að vonum ekki hvað hér
er á seyöi, húsin greiða sjómönnunum
milli 60 og 70 krónur fyrir kílóið af I.
flokks steinbít en kasta honum svo eða
selja bræðslunni hann fyrir um 7 kr.
kilóií.
Sjá nánar grein á bls. 4
FYRSTA FERÐAMANNA-,STRANDnwuvi.v
Fyrsia skemmtiferðaskip sumarsins
renndi inn á ytri höfnina í Reykjavík
snemma i morgun og brátt tóku létt-
bátar að flytja ferðamennina í land,
sem flestir munu fara til Gullfoss og
Geysis, ef að líkum lætur, og rölta um
miðbæinn i leit að minjagripum.
Skipið er grískt og heitir Britanis og
er 18000 tonn. Sér ferðaskrifstofan
Úrval um afgreiðslu þess. Mörgunt
landanum þótti í morgun sem undur
og stórmerki væru að gerast, þar sem
saman fór koma skemmtiferðaskips og
einstakt góðviðri.
G.SVDBmynd: Sv. Þorm.
Barnadauð i eykst í f lóttama nnabúðum í Bangladesh
Fornsalar kærðir fyrir að selja gamla nasista-
búninga og merki
— Sjá erlendarfréttirá blaðsíðum6 og7
Bráðabirgðalögin rýmka hinn
fasta ramma febrúarlaganna
Skerðingu léttaf allra lægstu launum
Ríkisstjórnin gefur út bráðabirgða-
lög í dag eða á morgun. Efni þeirra
verður meðal annars að draga í land
frá ákvæðum febrúarlaganna um
skerðingu verðbótavisitölu á öll laun.
Bráðabirgðalögin fella niður skerð-
ingu á allra lægstu laun. Síðan verður
skerðingin stigan.innkuð að vissu
marki launa.
Upphaflega var ráðgert að miða
minnkandi skerðingu febrúarlaganna
við útborguð laun. Launþegasamtökin
hafa hins vegar lagt áherzlu á það, að
miðað verði við dagvinnu einvörð-
ungu en ekki við eftirvinnu- eða vakta-
álag.
í þessu atriði er sennilegt að bráða-
birgðalögin fari einhvern milliveg. Yf-
irleitt rýmka bráðabirgðalögin þann
fasta ramma sem febrúarlögin settu á
verðbætur launa.
Um setningu bráðabirgðalaganna
hefur verið leitað samráðs launþega-
forystunnar. Ekki er þó Ijóst, hvort
húnerþeim samþykk.
BS