Dagblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978.
Félagsstof nun Stúdenta
íbúðir — herbergi óskast
Félagsstofnun Stúdenta óskar að taka á leigu
íbúðir og herbergi í vesturbænum fyrir náms-
fólk frá Norðurlöndum, sem verður á nám-
skeiði í Háskóla íslands í ca 5 vikur í sumar.
Húsnæðið óskast frá 12. júní næstkomandi í 5
vikur. Vinsamlegast hafið samband við Fé-
lagsstofnun Stúdenta í síma 16482.
= 1
BILASALAN
Flestargeröir
bifreiöa
Opibíhádeginu
Sbnar29330og29331
VITATORGI
li
AUGLÝSING
um aðalskoðun bifreiða i Hafnarfirði,
Garðakaupstað og í Bessastaðahreppi í
júní og júlí 1978.
Fimmtudagur l.júní G—1801 til G—1950
Föstudagur 2. júni G—1951 til G—2100
Mánudagur 5. júní G—2101 til G—2250
Þriðjudagur 6. júní G—2251 til G—2400
Miðvikudagur 7. júní G—2401 til G—2550
Fimmtudagur 8. júní G—2551 til G—2700
Föstudagur 9. júní G—2701 til G—2850
Mánudagur 12. júni G—2851 til G—3000
Þriðjudagur 13. júni G—3001 til G—3150
Miðvikudagur 14. júní G—3151 til G—3300
Fimmtudagur 15. júní G—3301 til G—3450
Föstudagur 16. júní G—3451 til G—3600
Mánudagur 19. júni G—3601 til G—3750
Þriðjudagur 20. júní G—3751 til G—3900
Miðvikudagur 21. júnl G—3901 til G—4050
Fimmtudagur 22. júní G—4051 til G—4200
Föstudagur 23. júní G—4201 til G—4350
Mánudagur 26. júni G—4351 til G—4500
Þriðjudagur 27. júní G—4501 til G—4650
Miðvikudagur 28. júní G—4651 til G—4800
Fimmtudagur 29. júni G—4801 til G—4950
Föstudagur 30. júní G—4951 til G—5100
Mánudagur 3. júli G—5101 til G—5250
Þriðjudagur 4. júli G—5251 til G—5400
Miðvikudagur 5. júli G—5401 til G—5550
Fimmtudagur 6. júli G—5551 til G—5700
Föstudagur 7. júli G—5701 til G—5850
Skoðun fer fram við Suðurgötu 8 Hafnarfirði frá kl.
8.15—12.00 og 13.00—16.00 alla framangreinda
skoðunardaga.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja
bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bif-
reiðanna leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber
skilríki fyrir því að bifreiðaskattur sé greiddur og vá-
trygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. Athygli skal vakin
á því að skráningarnúmer skulu vera læsileg.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á
auglýstum tíma verður hann látinn sæta sektum sam-
kvæmt umferðarlögum og bifreiðin tekin úr umferð
hvar sem til hennar næst.
Athygli er vakin á að vegna sumarleyfa starfsmanna
Bifreiðaeftirlits ríkisins verður gert hlé á skoðun bif-
reiða á framangreindum stöðum frá 10. júlí — 12. ágúst
1978.
Verður auglýst síðar um framhald skoðunarinnar.
Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga að máli.
Bæjarfögetinn í Hafnarfirði og Garðakaupstað.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu, 18. maí 1978.
Einar Ingimundarson.
Afríkuríki á frönsku
áhrifasvæði ætla að
verjast sameiginlega
Afríkuríki sem eru á frönsku áhrifa-
svæði hafa hug á að koma sér upp
sameiginlegum vörnum gegn innrásar-
liði eins og réðst inn i Shabahérað i
Zaire á dögunum. Er þetta haft eftir
heimildum á sameiginlegri ráðstefnu
Afrikuleiðtoga sem haldin var í Paris í
gær og fyrradag. Þar ákváðu leiðtogar
ríkjanna að sameiginlegar varnir
þeirra skyldu hafa forgang meðal verk-
efna samtaka þessara rikja. í þeim
samtökum eru fjörutíu og níu riki.
Tuttugu og einn fulltrúi sótti ráðstefn-
una í París. Talsmaður ráðstefnunnar
sagði að ekki væri vitað um neitt
svæði álfunnar þar sem þörf væri á að-
stoðalvegástundinni.
Fregnir hafa borizt um að hersveitir
frá Marokko séu komnar til Zaire
Mobuto og stjórn hans til aðstoðar. í
fyrra, er innrásartilraun var gerð i
Shaba, komu þær Zairestjóm til hjálp-
ar og hröktu innrásarliðið á flótta.
í útvarpsviðtali við Bongo forseta
Gabon sagði hann að kúbanskir og
sovézkir hermenn í Afríku væru nú
fleiri en fimmtíu þúsund. Þess vegna
væri nauðsynlegt fyrir riki Afríku sem
tengd væru Frakklandi að fara fram á
aðstoð Frakka við að verja riki sin,
bæði með samvinnu á sviði hernaðar
ogáannanhátt.
ÍRANSKEISARIVILL
SEUA SOVÉTRÍKJ-
UNUM OLÍU
Ef Sovétríkin greiða hið sama fyrir
olíuna og aðrir þá sé ég ekkert á móti þvi
að þeir kaupi olíu af ríkjum samtaka
olíuframleiðsluríkja OPEC. sagði
Shahinn af íran, og voru ummæli hans
birt i morgun. Hann sagði ennfremur að
hugsanlegt væri að oliusölubanni yrði
beitt gegn ísrael til að fá það til að sýna
meiri sveigjanleika í friðarumleitunum
við Arabaríkin. Þó yrði ekkert gert nema
i samræmi við samþykktir Sameinuðu
þjóðanna. Slikt væri hægt þvi augljóst
væri að tilvera allra þjóða heims
byggðist á orku. Án hennar gæti enginn
verið.
Shahinn af tran sagðist ekki hafa
tekið um það ákvörðun hvort hann
hygðikt beita sér fyrir verðhækkun á
olíu. sem OPEC ríkin seldu. Þyrfti hann
að ráðgast við önnur ríki bandalagsins
og þá sérstaklega Saudi Arabíu.
Víðar verð-
hækkanir
en hérlendis
Framfærslukostnaöur i Portúgal
hefur hækkað um 35.6% á einu ári. að
þvi er hagstofa Portúgala greindi frá
fyrir helgina. Að meðaltali var verð á
matvöru 19% hærra en í april 1977.
Flugmað-
urinn gekk
út heill
Hann gleymir þessu atviki liklega
seint flugmaðurinn sem var innanborðs i
flugvélinni sem við sjáum eftir að hún
hrapaði niður í skógivaxið hálendi i
Varmland í Sviþjóð. Atburðurinn varð á
laugardaginn var. Mun vélin hafa hrap-
að vegna ofhleðslu. Eins og sjá má er
furðulegt að nokkur skuli hafa komizt
lífs af.
Höfum kaupendur að eftirtöldum
bifreiðum:
1. Volvo 1974, fólks- og station.
2. Volvo 1976244DL.
3. Mazda og Toyota 1974station.
4. Bronco 1974.
Við
seljum
bílana!
Bílasalan
SKEIFAN
Skeifunni 11, nordurenda
og einnig suöurenda.
Sími84848 - 35035.
Opid alla daga frá kL 9-19
nema sunnudaga
• Rumgóöur og bjartur
sýningasalur
• Þvottaaóstaða
• Kappkostum fljóta og
öruggahjónustu.