Dagblaðið - 24.05.1978, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. MAl 1978.
7
Bamadauöi eykstí flótta-
mannabúðum f Bangladesh
— þúsundirflóttamanna bætast við daglega
Fornsalar
ákærðirfyrir
að selja
gamlanasista
búninga
Tveir fornsalar í Vestur Þýzkalandi
hafa verið úrskurðaðir í varðhald vegna
þess að þeir eru grunaðir um að hafa selt
gamla nasistaeinkennisbúninga, borða
og heiðursmerki. Samkvæmt vestur-
þýzkum lögum er ekki heimilt að dreifa
nasiskum áróðri en saksóknari landsins
telur áðurgreinda muni heyra undir þaö.
í Vestur-Berlín eru ellefu manns fyrir
rétti sakaðir um að hafa stofnað nasista-
flokk i borginni.
Meira en tvö hundruð flóttamenn
hafa dáið í flóttamannabúðum í
Bangladesh þar af meginhlutinn börn,
samkvæmt tilkynningu opinberra yfir-
valda þar i gær. Flóttamennirnir sem
hafa flykkzt frá nágrannarikinu
Burma undanfarna daga eiga ekki sjö
dagana sæla og að sögn þjáir þá bæði
matarskortur og veikindi auk flóða
sem stafa af miklum rigningum und-
anfarið.
Á þriðja hundruð þúsund manns
eru í átta búðum sem stjórn Bangla-
desh hefur komið upp. Þar sem það er
eitt fátækasta ríki heims og hefur hing-
að til ekki verið fært um að fæða eigin
ibúa hefur það leitað til Alþjóða
Rauða krossins um aðstoð. Hefur
hann nýverið sent hjálparbeiðnir um
allan heim.
Þeir sem látizt hafa, sem eins og
áður sagði eru aðallega börn, féllu að-
allega úr hungri eða magasjúkdómum
sem stafa af fæðuskorti. Enn koma
þúsundir manna dag hvern yfir landa-
mærin. Eru þeir að eigin sögn að flýja
grimmdarlegar hefndaraðgerðir af
hálfu Burmastjórnar. Aftur á móti
segir hún að fólkið sé á flótta undan
opinberum embættismönnum vegna
þess að það hafi ekki löglegt landvist-
arleyfi i Burma.
Yfirvöld I Bangladesh hafa safnað
flóttafólkinu saman í búðir en nokkuð
mun orðið um að það fari burt og
reyni að koma sér fyrir í sveitum
Bangladesh.
KVIKMYNDARI
FERST VIÐ FALL-
HLÍFARSTÖKK
Myndatökumaður, sem var að kvik-
mynda fallhlífarstökkvara í Indiana í
Bandaríkjunum hrapaði í gær meira en
þrjú þúsund fet og lézt. Verið var að
vinna að gerð auglýsingamynda.
Slysið mun hafa orðið vegna þess að
kvikmyndatökumaðurinn, sem var
tuttugu og átta ára, rakst á einn fall-
hlífarstökkvarann, þegar þeir stukku
úr flugvélinni. Féll myndatöku-
maðurinn siðan til jarðar án þess að
opna fallhlif sina. Hinn aðili málsins
mun hafa slasazt eitthvað þvi hann var
fluttur i sjúkrahús eftir að hafa lent með
fallhlif sina hálfopna.
Bandaríkin:
LÉn Á VIÐSKIPT-
UMVIÐ
UNGVERJALAND
Fulltrúadeild Bandarikjaþings gera sér ljóst, að Ungverjaland væri
samþykkti í gær tillögu Carters forseta hernumið land en ekki frjálst ríki.
um að létta á viðskiptahömlum gagn- Samþykkt þessarar tillögu táknar að
vart Ungverjalandi. Athygli vakti þó viðskiptakjör Ungverja í viðskiptum
hve litlu munaði á milli þeirra sem við Bandarikin verða mun hagstæðari
studdu tillöguna og hinna sem andvig- en áður. Einnig verða felldar niður
ir vóru. Atkvæðatölur voru 209—173. ýmiss konar takmarkanir, sem hingað
til hafa gilt. Hingað til hafa aðeins
Gamli kaldastríðstónninn er sagður Júgóslavía, Pólland og Rúmenia notið
hafa svifið yfir þingdeildinni við um- sambærilegra kjara og Ungverjaland
ræðurnar og einn þingmanna repú- fær á næstunni. Er þá að sjálfsögðu
blikana sagði að nauðsynlegt væri að aðeinsátt viðaustantjaldslöndin.
Citroen til
A-þýzkalands
Allar horfur eru taldar á að frönsku
Citroen bifreiðaverksmiðjurnar muni
taka að sér að reisa mikla verksmiðju i
Austur-Þýzkalandi sem framleiða mun
drifsköft í bifreiðar. Að sögn talsmanna
verksmiðjunnar hafa miklar viðræður
farið fram um málið og hófust þær strax
árið 1973.
Helzti keppinautur Citroen verk-
smiðjanna hefur verið brezka fyrirtækið
Quest Kenn and Nettleford en
Frakkarnir hafa nú náð yfirtökunum.
Erlendar
fréttir
REUTER
Það er leikur einn að
slá meö LAWN-BOY
garðsláttuvélinni,
enda hefur allt verið
gert til að auðvelda
þér verkið.
LAWN-BOY
GARÐSLÁTTUVÉLIN
Rafeindakveikja. sem
tryggir örugga gang-
setningu.
Grassafnari, svo ekki
þarf að raka.
3,5 hö, sjálfsmurð tví-
gengisvél, tryggir lág-
marks viðhald.
Hljóðlát.
Slær út fyrir kanta og
alveg upp að veggjum
Auðveld hæðarstilling
Ryöfrí.
Fyrirferðalitil, létt og
meðfærileg.
VELDU GARÐSLÁTTUVÉL, SEM GERIR MEIR
EN AÐ DUGA.
Fólkvangur
í Bláfjöllum
Staða forstöðumanns fólkvangsins í Bláfjöll-
um er laus til umsóknar.
Laun skv. launakerfi borgarstarfsmanna.
Staðan veitist frá 1. júlí nk.
Umsóknarfrestur er til 5. júní. Umsóknir
sendist til íþróttafulltrúa Reykjavíkur, Tjarn-
argötu 20, sem gefur nánari upplýsingar. Sími
28544. Bláfjallanefnd.
Kjörfundur
vegna bæjarstjórnarkosninganna í
Bolungarvík 28. maí 1978.
verður í Félagsheimilinu frá kl. 10 árdegis til
kl. 12 ogfrá kl. 13 til kl. 23.
Kjörstjórn Bolungarvíkurkaupstaðar.
VÉLSKÓLI
ISLANDS
Inntökuskilyrði
1. stig: al Umsækjandi hafi náð 17 ára aldri, b) Umsækjandi sé ekki
haldinn næmurn sjúkoómi eða hafi iíkamsgalla sem geti orðið honum
til tálmunar við starf hans, c) Umsækjandi kunni sund.
2. stig: 1) Umsækjandi hafi náð 18 ára aldri. b) sama og fyrir I siy cl
sama og fyrir 1. stig. d) Umsækjandi hafi lokið miðskólaprófi eða
hlotið hliðstæða menntun, e) Umsækjandi hafi eitt af þrennu. I.
lokið vélstjóranámi 1. stigs með framhaldseinkunn, 2. öðlast a.m.k.
tveggja ára reynslu i meðferð véla eða i vélaviðgerðum og staðist
inntökupróf við skólann, 3. Lokið eins vetrar námi i vcrknámsskóla
iðnaðar I málmiðnaðargreinum og hlotið a.m.k. 6 ntánaða reynslu að
auki i meðferð véla eða vélaviðgerðum og staðist sérstakt
inntökupróf.
Umsóknir
Umsóknareyðublöð liggja frammi i skrifstofu skólans i Sjómanna-
skólanum, 2. hæð. Umsóknir berist skólanum fyrir 10. júni 1978.
Kennsla hefst i byrjun september.
Skólastjóri.