Dagblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 12
VILJA ÞEIR? Tónlist LEIFUR ÞÓRARINSSON Povel Ramel og Sven Olsons trio mánudaginn 29. maí kl. 20.30, þriðjudaginn 30. maí kl. 20.30. miðvikudaginn 31. maí kl. 20.30. Aðgöngumiðar á kr. 1.000.- í kaffistofu Norræna hússins. íslensk-sænska f élaqið Norræna húsið Veríð velkomin NORRÆNA HÚSIÐ DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. MAt 1978. Hálíð á Akureyri Hátt á heims- mælikvarðanum Tónlistardagar i maí, sem haldnir voru um hvitasunnuhelgina á Akur- eyri, tókust ótrúlega vel og voru öllum aðstandendum til mikils sóma. Það er ekkert smáfyrirtæki að skipuleggja þrjá stórkonserta, þar sem koma fram fleiri hundruð tónlistarmanna, enda eru víst áreiðanlega fáir bæir af þessari stærð í heiminum, sem geta státað af slíku framtaki. Sennilega hafa Norð- lendingar slegið þarna eitthvert met, í það minnsta miðað við höfðatölu, þó ieikurinn hafi eflaust ekki verið til þess gerður. Auðvitað voru það ekki allt innanbæjarmenn sem komu fram. T.d. var þarna öll sinfóniuhljómsveitin mætt á föstudeginum, með prógramm sem var að mestu leyti hið sama og hún hafði leikið kvöldið áður í Reykja- vík. Eina breytingin var að í stað Konsertkantötu eftir Guðmund Haf- steinsson, sem lofar reyndar mörgu góðu um það tónskáld, þó langt sé og ívið sundurlaust, var kominn for- leikurinn að HoUendingnum eftir Wagner. Páll Pampichler stjórnaði honum og öðru af sUkum fítonskrafti, að annað eins hefur sjaldan heyrst hér á landi. Var ekki laust við að færi um mann á hápunktunum, sérstaklega i lokaverkinu, Furutrjám Rómaborgar eftir Respighi, þar sem tjaldað er öllu sem sinfóniuhljómsveitin hefur yfirað ráða í hljómmögnun, og reyndar bætt við extrablásurum og fuglasöng. En merkilegasta og fallegasta verkið var þó víólukonsertinn eftir Béla Bartók og honum stjórnaði Páll með hárfínni tilfinningu fyrir smágerðum blæ- brigðum og frjálsu en markvissu formi. Einleikarinn, Unnur Svein- bjarnardóttir, sem er ógleymanleg frá tónleikum hjá Tónlistarfélagi Reykja- víkur i vetur, vann þarna enn einn stórsigur, og hef ég sjaldan eða aldrei heyrt íslending leika jafn margslungið og erfitt verk af slíku „átoríteti.” Má undarlegt heita, ef hún á ekki eftir að ná hátt á heimsmælikvarðanum. Já, þetta var glæsileg byrjun á tónlistar- dögum og áfram var haldið í samvirk- um takti með bros á vör. Lúðrahljómur Næsti leikur, á laugardagskvöldið, var heimamanna að mestu. Þar kom fram Lúðrasveit Akureyrar, styrkt nokkrum hljóðfæraleikurum úr sinfóníunni og félagar úr hvorki meira né minna en sex kórum, Passíukórn- um, kirkjukórum Akureyrar og Lög- mannshlíðar, kvennakómum Gigjunni, karlakór Akureyrar og karlakórnum Geysi. öllu þessu stjórnaði Roar Kvam, sem er norskur tónlistarkennari þama á staðnum, og var greinilegt þegar í fyrsta stykkinu,1 forleik eftir Mendelsohn.að þarna var bæði kunnáttu og dugnaóarmaður að verki. öll verkin á þessum tónleikum voru flutt i fyrsta sinn hér á landi, og þó þau væru í býsna ójöfnum gæða- flokkum var að þeim talsverður fengur. Það var ýmislegt gott og gilt í Styrkt lúðrasveit Akureyrar og einn af sex kórum er fram konu. Rapsódiu fyrir einleiksklarinett og lúðrasveit eftir Alfred Reed, sem Sigurður I. Snorrason lék af mikilli prýði, og sömuleiðis Hollenskri svítu eftir Lijnschoten. En áhugaverðust var stórskritin sorgar- og sigursinfónía eftir Berlioz, full með hetjurembing og grófleg banalítet svo allt ætlaði um koll að keyra. Þama komu kórarnir til skjalanna, og þó aUsvakalegur lúðrahljómurinn hleypti þeim ekki í gegn nema á köflum, virtist allt á sín- um stað og vel og vandlega unnið. Stundum var þó þrýstingurinn á hljóðhimnurnar næsta skuggalegur, og er ekki víst að aUir hafi náð sér jafn- fljótt eftir þær raunir. En ekki hefði ég þó viljað missa af þessu fyrir nokkurn mun. Bach og Mozart Lokatónleikamir voru svo á sjálfan hvitasunnudag, og þeir voru i rauninni mesta fyrirtækið. Passíukórinn, sem er með bestu kórum landsins, söng þarna með kammersveit úr sinfóníunni, og fjórir afbragðs einsöngvarar, Ólöf K. Harðardóttir, Ruth Magnússon, Jón Þorsteinsson og HaUdór Vilhelmsson, létu Ijós sin skína. Efnisskráin var engin smásmíði; heljarmikil kantata (Ich hatte viel Bekúmmernis) eftir Bach og aUt(og óstytt) Requiem eftir Mozart. Stjómandi var aftur Roar Kvam, og verður ekki annað en dáðst að elju og þrautseigju hans að koma þessu á fót. Það þarf ekkert smávegis úthald til að kenna misjafnlega tíma- bundnum áhugasöngvurum allar raddir í svona flóknum verkum. Að koma þessu á raunverulega listrænt plan, þar sem allt verður sungið og leikið eðUlega og án erfiðismuna, nálg- ast kraftaverk. En það tókst, mér er eiður sær, og hef ég raunar ekki lengi orðið jafn snortinn á tónleikum. Nú er spurningin, hvernig fara Akureyringar eiginlega að þvi að framkvæma þessa hluti? Einhverja opinbera styrki hafa þeir eflaust fengið, einhver nefndi 400.000, krónur, og mörg fyrirtæki og einstaklingár á staðnum eru skráðir styrktaraðilar í efnisskrá. En aUur undirbúningur var unninn í sjálfboða- vinnu, nafnlaust að því er virðist, og svo var það auðvitað áhugi staðar- manna, sem fyUtu íþróttaskemmuna alla þrjá dagana, sem reið bagga- muninn. Já, það er meira gleðiefni en orð fá lýst þegar kemur á daginn að meistara- verk tónlistarinnar geta orðið al- menningseign, þrátt fyrir efnahags- og menningarlega rangsnúið þjóðfélag. Það eru miklir gæfumenn sem þar fá lagt hönd á plóginn, og verður þeim seintfullþakkað. Leifur Þórarinsson. Júlíus Gestsson A-lista: Óeðlilegtað aðalatvinnu- tækið sé á einni hendi — hreppurinnþarf að hafa höndíbagga JúUus Gestsson: „Nauðsynlegt er að hafa lækni, a.m.k. á vertiðinni.” „Halda verður þeirri uppbyggingu, sem verið hefur, áfram," sagði Július Gestsson, niundi maður í lista Alþýðu- flokksins. „Þar á ég m.a. við frekari gatnagerð og hafnarframkvæmdir en aðstöðu vantar tilfinnanlega fyrir smá- báta. Okkur þykir slæmt að aðalatvinnu- tækið hér, skuttogarinn, er á einni hendi, þótt Guðmundur Runólfsson út- gerðarmáður eigi annars allt gott hrós skilið. Togarinn var t.d. leigður burtu í fyrra og slikt skapar ótryggt atvinnu- ástand. Koma þarf heilbrigðisþjónustu i betra ástand, hér þarf a.m.k. að hafa lækni á vertiöinni, sUkt er öryggi mikið þvi dæm- in sýna að ófært getur orðið til Stykkis- hólms. Þá er ég óánægður með það hvað lítið er gert fyrir ungUngana en öll íþrótta- starfsemi er í lágmarki. Hreppurinn þarf að leiða í þessu efni, t.d. með því að út- vega krökkunum þjálfara. Atvinna hefur verið næg en verður það varla í sumar, en það byggist að miklu leyti á togaranum. Bæjarfélagið þarf að hafa hönd í bagga með slíkum stórfyrirtækjum og einnig þarf hreppur- inn sem stórhluthafi í frystihúsinu að styðja að þvi að annaðhvort verði keypt- ur nýr togari eða floti smærri báta.” —JH. Unnur Sveinbjarnardóttir vann stórsigur á Akureyri með einleik sinum og lék á heimsmæUkvarða. DB-myndir F. Ax. ZV AÐALFUNDUR Aðalfundur Hagtryggingar hf. árið 1978 verður haldinn í Tjarnarbúð í Reykjavík laug- ardaginn 27. maí og hefst kl. 14.00. Dagskrá: Aðalfundarstörf skv. 15 gr. samþykkta félagsins. Aðgöngumiðar að fundinum og atkvæða- seðlar verða afhentir hluthöfum eða öðrum með skriflegt umboð frá þeim í skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraút 10, Reykjavík, dagana 23. til 27. maí á venjulegum skrif- stofutíma. Stjórn HAGTRYGGINGAR HF. JÓNAS HARALDSSON Grundarfjörður

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.