Dagblaðið - 24.05.1978, Síða 13
DAGBLAÐID. MIÐVIKUDAGUR 24. MAt 1978.
13
TVÍSÝNAR KOSNINGAR FRAMUNDAN
1 síðustu kosningum á Grundarfirði
eða Eyrarsveit, eins og hreppurinn heit-
ir, voru boðnir fram þrir listar, Sjálf-
stæðisflokkur, Framsóknarflokkur og
Alþýðubandalag. Sjálfstæðisflokkurinn
fékk hreinan meirihluta, eða þrjá menn,
en hinir listarnir sinn manninn hvor. Nú
bætist hins vegar við listi Alþýðuflokks-
ins en talið er að fylgi hans hafi áður far-
ið að mestu til Sjálfstæðisflokksins. Það
er þvi Ijóst að kosningamar núna verða
spennandi. Vangaveltur eru um það að
Alþýðuflokkurinn nái manni af Sjálf-
stæðisflokknum eða að Alþýðubanda-
lagið fái tvo. Flestir telja aö Framsókn-
arflokkurinn eigi öruggan einn mann.
Sjálfstæðismenn eru þó ákveðnir i að
halda meirihlutanum.
Atvinnulíf er að langmestu leyti byggt
upp á sjávarútvegi og gerður er út einn
skuttogari frá Grundarfirði, Runólfur,
og margir smærri bátar. Ný höfn var
tekin í notkun á siðasta ári við Gröf.
Ibúar í Eyrarsveit eru nú um 800, þar af
um 700 á Grundarfirði.
Hér á eftir fara viðtöl við fulltrúa
þeirra fjögurra lista sem í kjöri eru.
Tveir efstu menn Alþýðubandalagsins
voru ekki viðlátnir er DB heimsótti
Grundarfjörð og nær enginn af lista Al-
þýðuflokksins. Það er þvi rætt við þriðja
mann á lista Alþýðubandalagsins og ni-
unda mann á lista Alþýðuflokksins, Júli-
us Gestsson, en hann er gamalgróinn
forvstumaður Alþýðuflokksins i Grund-
arfirði.
Hjálmar Gunnarsson B-lista:
Gera þarf nýja vatnsveitu
— Heildarskipulag vantar fyrir Grundarfjörð
„Brýnustu verkefnin eru bætt aðstaða
undirstöðuatvinnugreinanna, útgerðar
og fiskvinnslu,” sagði Hjálmar Gunnars-
son útgerðarmaður en hann skipar efsta
sætið á lista Framsóknarfélags Eyrar-
sveitar. „Markvisst verður að vinna að
þvi að hér rísi feitmjölsverksmiðja og að
fyllsta hagræðis sé gætt.
K
Hjálmar Gunnarsson: „Bæta þarf að-
stöðu undirstöðuatvinnuveganna.”
Lengja og lagfæra verður hafskipa-
bryggjuna. Bæta verður við viðlegukanti
í nýju höfnina og dýpka hana frekar.
Unnið skal að byggingu iþróttahúss og
þvi lokið sem fyrst. Finna þarf lausn á
húsnæðisvandamáli tónlistarskólans.
Núverandi vatnsveita erekki nægjan-
leg fyrir bæinn og hefjast verður handa
við gerð nýrrar vatnsveitu úr Hafliða-
gili. Grundarfjörður er vaxandi bær og
það þarf að gera heildarskipulag fyrir
bæinn og finna iðnaði pláss.
Áfram þarf að vinna að varanlegri
gatnagerð og sjá þarf til þess að flugvöll-
urinn sé ávallt opinn.
Vinna þarf að byggingu nýs félags-
heimilis og bæta aðstöðuna við íþrótta-
völlinn. Styrkja skal alla félagastarfsemi.
Læknir þarf að vera staðsettur í Grund-
arfirði og sjá þarf fyrir fullnægjandi að-
stöðu honum til handa.
Stuðla þarf að blómlegum landbúnaði
í sveitunum I kring með tilstuðlan sveit-
arfélagsins. Við fordæmum þau niður-
rifsöfl sem reka sifelldan áróður á það
fólk sem býr i sveitum."
—JH.
Ámi Emilsson D-lista:
Ör uppbygging undir stjórn
S já If stæð isf lokksins
— dreifbýlið þarf að halda vöku sinni gagnvart Reykjavíkurvaldinu
Halda verður áfram að vinna með
þeirri framkvæmdagleði sem hér hefur
ríkt,” sagði Árni Emilsson sveitarstjóri
en hann skipar efsta sæti á lista Sjálf-
stæðisfélags Eyrarsveitar.
„Höfuðáherzlu verður að leggja á að
hér risi feitmjölsverksmiðja. Á næstu
tveimur árum ættum við að geta lokið
byggingu iþróttahúss. Hér þarf að stað-
setja lækni og koma á heilsugæzlustöð
Hl.
Viðskipti sveitarfélagsins við atvinnu-
rekendur og hin almennu félagasamtök
hafa verið mjög góð og þeim viljum við
halda áfram. Sem dæmi má nefna að
Rauða krossdeild Grundarfjarðar er að
byggja með okkur leikskóla og er það
bæði fjárhagslegur og siðferðilegur
stuðningur.
Við höfum þegar lokið við að leggja
varanlegt slitlag á 55% gatna. Því verk-
efni viljum við Ijúka og áætlað er að var-
anlegri gatnagerð verði lokið árið 1981.
Nýja höfnin hefur verið lengd um 50
metra og viðlegukantur dýpkaður, sam-
kvæmt áætlun Hafnamálastofnunar.
'Ljúka þarf byggingu leiguíbúða og
byggja þarf áhalda- ogslökkvistöð.
Við leggjum ofurkapp á að halda
meirihluta sjálfstæðismanna i hrepps-
stjórn. Með þeim hætti einum verður
framhald á þeirri öru uppbyggingu sem
hér hefur átt sér stað undanfarin ár.'
Dreifbýlið þarf að halda vöku sinni
gagnvart Reykjavíkurvaldinu. Tekju-
stofna sveitarfélaga þarf að endurskoða
meðhliðsjón afþví.”
—JH.
Árni Fmilsson: „Höfuðáherzlu verður
að leggja á að hér rísi feitmjölsverk-
smiðja.”
Sigurvin Bergsson G-lista:
Mikill áhugi fyrir feitmjöls-
verksmiðju — Góð skilyrði í Grundarfirði
ir að gamlir GrundBrðingar hrekist frá
sinum heimahögum.”
„Við reynum að vinna að öllum vel-
ferðarmálum sem eru byggðarlaginu
fyrir beztu,” sagði Sigurvin Bergsson
fiskmatsmaður en hann skipar þriðja
sætið á lista Alþýðubandalagsins. „Hér
hefur margt verið gert en enn er margt
ógert. Við eigum iþróttahús í byggingu
og því verður að halda áfram. Sama er
að segja um varanlega gatnagerð og
vinna þarf áframhaldandi að hafnarmál-
um.
Hér er mikill áhugi fyrir feitmjöls-
verksmiðju og góð skilyrði fyrir slikum
verksmiðjurekstri hér. Vandræði hafa
verið með nýtingu á feitum fiski.
Okkur vantar félagsheimili en hér er
gamalt samkomuhús, allt of litið. og háir
það félagsstarfsemi. Bæta þarf félagsað-
stöðu fyrir unglingana. Halda þarf
áfram byggingu leiguibúða og koma þarf
upp ibúðum fyrir aldraða Grundfirðinga
þannig að þeir þurfi ekki að hrekjast i
burt frá sinum heimahögum að loknum
starfsdegi." —JH.!
Úrslitífjórum
síðustu
kosningum
1974 1970 1966
Framsóknarflokkur 66-1 63-1
Sjálfstæðisflokkur 178-3 150-2 172-3
Alþýðubandalag 97-1 64-1
Framsókn og óháðir 124-2
Alþýðubandalag og óháðir 57-1
1962
óhkitb.kosn.
4 listarí kjöri
A—listi
Alþýðuflokks
1. Guðrún Ág. Guðmundsd.
2. Magnús Álfsson,
3. Sigrún Hilmarsdóttir,
4. Ágúst Elbcrgsson,
5. Selma Friðfinnsdóttir,
6. Magnús Magnússon,
7. Niels Friðfinnsson,
8. Ásta Jeremiasdóttir,
9. JúliusGestsson.
Til sýslunef ndar:
Stefán Helgason.
Til vara: JúliusGestsson.
B—listi
Framsóknarfél. Eyr-
arsv.
1. Hjálmar Gunnarsson,
2. Guðni Hallgrimsson,
3. Kristján Guðmundsson,
4. HelgaGunnarsdóttir,
5. FriðgeirV.Hjaltalin,
6. Jón Hansson,
7. Ámi Eiriksson,
8. Gunnar Jóhannesson,
9. ElisGuðjónsson,
10. Hringur Hjörleifsson.
Til sýslunefndar
Friðgeir V. Hjaltalín.
Til vara: Amór Kristjánsson.
D—listi
Sjálfstæðisfél. Eyr
arsv.
1. Ámi M. Emilsson,
2. Sigriður Þórðardóttir,
3. RunólfurGuðmundsson,
4. Halldór Finnsson,
5. Jensina Guðmundsdóttir,
6. Hörður Pálsson,
7. Auðbjörg Ámadóttir,
8. Jón A.Ström,
9. Kristín Friðfinnsdóttir.
I0. Páll Cecilsson.
Til sýslunef ndar
Þorsteinn Bárðarson,
Til vara: Halldór Finnsson.
G—listi
Alþýðubandalags
1. Ragnar Elbergsson,
2. ólafur Guðmundsson,
3.Sigurvin Bergsson,
4. Kristinn Jóhannsson,
5. Kristján Torfason,
6. MatthildurGuðmundsd.,
7. Fjalar Elisson,
8. Ásdis Valdimarsdóttir,
9. Sigurður Helgason,
10. Sigurður Lárusson,
Til sýslunefndar
Lárus Guömundsson.
Til vara: Sigurður Lárusson.
Hvevju spáir þú um
úrslit sveitarstjórnar-
kosninganna?
Ingibjörg Hansdöttir húsmöðir: t-rekar
hugsa ég að sami meirihluti haldist.
Annars hef ég ekki hugmynd um þetta
þvi ég legg ekki hugann að neinum
kosningum.
Friðfinnur Friðlinnsson húsasmíðameist-
ari: Sjáll'stæðisflokkurinn fær tvo. þó
ekki með neinum glans. Alþýðubanda-
lagið fær einn. Framsókn fær einn og
Alþýðuflokkurinn færeinri. Hugsanlegt
er einnig að Alþýðubandalagið fái tvo i
stað Sjálfstæðisflokks. Ég kýs Alþýðu-
flokkinn og fylgi okkar tökum við frá
ihaldinu.
Sigmundur Friðriksson, vinnur i ra-kju-
vinnslunni: Ég reikna frekar með þvi að
Sjálfstæðisflokkurinn haldi sinum þrem-
ur mönnum. Framsókn fær þá einn og
Alþýðubandalagið einn. Spurningin er
hvort Sjálfstæðisflokkurinn missir einn
mann til krata.
Valgerður Gisladóttir húsmóðir: Guð.
ég veit það ekki. Ég fylgist ekkert með
þessu og ég ætla ekki að kjósa.
Guðmundur Runólfsson útgerðarmað-
ur: Það verður sami meirihluti og verið
hefur. Við sjálfstæðismenn eigum nú
þrjá af fimm. Framsókn fær einn og
kommar einn. Eg hef enga trú á þvi að
kratar taki mann frá Sjálfstæöisflokkn-
um.
L