Dagblaðið - 26.05.1978, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 26.05.1978, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1978. Jarðvegsþjappa óskast! Óskum eftir að kaupa góða jarðvegsþjöppu, 100 til 200 kg. Aðeins gott verkfæri kemur til greina. Uppl. í sima 94—4150 og helgarsími 94—3939. BÍLAPARTASALAN Höfum urval notaóra varahluta íýmsar tegundir bifreiða, tildæmis: Nýkomnir varahlutir í: Willys árg. '55, Citroen Ami 8 árg. '72, Peugeot 204 árg. '70, Vauxhall Viva árg. '69, Fíat 128 árg. '72. NORÐMENN HAFA MILUÓNA- TUGIUPP ÚR LÚÐUVEIÐIVIÐ Hafa hérundanþáguílandhelgi fyrir45 skip án þess að láta nokkuð í staðinn ÍSLAND Uppgripaafli hefur verið hjá norskum línubátum sem stunda lúðuveiðar fyrir austan Island. Eru Norðmenn einráðir í þessum lúðuveiðum hér við land og græða vel að sögn Auðuns Auðunssonar skipstjóra. Það er hvítlúða sem Norðmennirnir veiða fyrri hluta sumars en grálúðu síðari hluta sumars. Þessar veiðar hafa, að sögn Auðuns, gefið norskum sjó- mönnum vel í aðra hönd því verð er hátt á lúðu á Norðurlöndum. „Verð á lúðu hér á landi er aðeins um þriðjungur af því verði sem fyrir hana fæst á Norðurlöndum,” sagði Auðun. Kvað hann fást fyrir hana hér um 300 kr. á kílóið en á sænskum mörkuðum gengur hvítlúða á 1000—1500 kr. hvert kíló og þangað selja Norðmenn hana. Grálúðumarkaðurinn er hins vegar betri i Noregi. Auðunn harmaði að hér á landi væri ekkert gert til að ýta undir sjómenn til að stunda lúðuveiðar og taldi mikil verð- mæti ganga islenzkum sjómönnum úr greipum. „Islenzk yfirvöld veita Norðmönnum undanþágu til veiða á islenzkri landhelgi og stunda þeir veiðamar upp að 12 mílum frá lslandsströnd. Hafa Norð- menn veiðileyfi fyrir 45 skip í landhelg- inni og nýta þau skip sín veiðileyfi vel. Við fáum ekkert frá Norðmönnum i staðinn. Aðrar þjóðir skipta á jafnréttis- grundvelli á veiðiheimildum í Iandhelgi sinni. Slik pólitík sem hér er rekin í þess- um málum er augljóslega röng,” sagði Auðunn. - ASt. 26.51968 Svona var umferðin á Miklubraut í Reykjavfk rétt áður en skipt var yfir til hægri. Skritið, ekki satt? í dag, 26. maí, 10 ár frá H-degi: FJÁRSK0R1UR ÓGNAR STARF- SEMIUMFERDARSKÓLANS — póstburðargjöld dýrari en sjálft efnið sem skólinn sendir út Einnig höfum við úrval af kerruefni, til dæmis undir vélsleða. Sendum um allt land. BÍLAPARTASALAN Höfðatúni 10- Simi 11397 Steypuhrærivél. 300 lítra steypuhrærivél til sölu. (1 til 2ja poka). Rafmagnsstýrð. Uppl. í síma 94—4150. Helgarsími 94—3939. Framhaldsskólanám að loknum grunnskóla Athygli er vakin á að umsóknarfresti um inngöngu á ýmsar námsbrautir á framhaldsskólastigi lýkur 10. júní, og nemendur sem síðar sækja geta ekki vænst skólavist- ar. Tilskilin eyðublöð fást í þeim grunnskólum, sem brautskrá nemendur úr 9. bekk, og í viðkomandi fram- haldsskólum. Leiðbeiningar um hvert senda skuli um- sóknir eru á umsóknareyðublöðunum. Manntamélaráðuneytið, 25. mai 1978. í dag, 26. maí, eru 10 ár síðan hægri umferð var tekin upp á íslandi. Þann 26. mai 1968 skiptu ökumenn yfir i hægri umferð. Umferðarfræðsla var stóraukin og 1970 var Umferðarráð sett á laggirn- ar. Umferðarskólinn var og settur á stofn en nú 10 árum eftir H-daginn eru allar likur á að skólinn verði að draga verulega úr starfsemi sinni vegna fjár- skorts. Umferðarskólinn hefur einkum starfað meðal barna á forskólaaldri og mælzt vel fyrir meðal foreldra og barna. Þar hefur verið unnið heilladrjúgt starf. En fjárskotur háir nú starfseminni. Kostnaður vegna póstburðargjalda er meiri en vegna sjálfs efnisins sem sent er til barna. Fjárveitingar til Umferðarráðs hafa hraðminnkað i óðaverðbólgu sið- ustu ára. Umferðarráð berst nú í bökk- um við að koma efninu út og halda uppi eðlilegri starfsemi. „Við veigrum okkur mjög við að auglýsa vegna fjárskorts,” sagði Sigurður Ágústsson, fulltrúi hjá Umferðarráði, í viðtali við DB. ísland hefur haft lága slysatíðni miðað við aðrar Evrópuþjóðir. „Með hægri breytingunni gafst tækifæri til að stokka upp. Umferðarmenning stórbatn- aði þó mér finnist hafa hallað undan fæti undanfarið en mikil aukning öku- tækja á þar vafalítið drjúgan þátt,” sagði Sigurður ennfremur. í kjölfar breytingarinnar 1968 fækkaði slysum næstu tvö árin en fjölgaði síðan. Frá 1973 hefur slysum aftur farið fækk- andi. En eins og málum er háttað er hið mikla starf, sem unnið hefur verið og sá árangur sem náðst hefur í hættu vegna minnkandi fjárveitinga til umferðar- fræðslu. H Halls OLÍUFÉLAGIÐ HF. FÆR NÚ SINN BENSÍNSKAMMT ÚR RÚSSNESKA SKIPINU — Hafnfirzkir verkamenn töldu ekki réttað mismuna félögunum með þvíað standa við löndunarbannið íHafnarfirði Á fundi trúnaðarmannaráðs fengu þá aðeins Shell og Olís skammta birðgalög ríkisstjómarinnar frá í fyrra- Verkamannafélagsins Hlifar í gær var sina þar sem Olíufélagið hefur sína dag, heldur hafi trúnaðarráðið talið ákveðið að heimila Oliufélaginu hf. bensinhöfn i Hafnarfirði og verka- rétt að endurskoða afstöðu sína þegar losun á bensínskammti sínum i rússn- mennþarhöfðuekkiheimilaðlosun. Ijóst var að meirihluti farmsins yrði eska skipinu Pobeta. Sem kunnugt er Talsmaður Hlífar tók fram að þetta losaður annars staðar. var losun'heimiluð í Reykjavík og stæði ekki I neinu sambandi við bráða- G.S.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.