Dagblaðið - 26.05.1978, Blaðsíða 18
22
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1978.
EF MENN EIGA EITTHVAÐ VANTALAÐ VIÐ RÍKIS-
STJÓRN ER HÆGT AÐ GERA ÞAÐ EFTIR MÁNUÐ
— segir Birgir ísleifurGunnarsson, efsti maðurá
lista Sjálfstæðisflokksins við borgarstjórnar-
kosningarnar
Birgir Isleifur Gunnarsson hefur verið
borgarstjóri í hálft sjötta ár. Hann hefur
setið í borgarstjórn síðan 1962 — en þá
var hann aðeins 26 ára gamall. Hann
var á sínurn tíma formaður Vöku og
stúdentaráðs i Háskóla íslands og var
formaður Heimdallar 1962 þegar hann
tók sæti i borgarstjórn.
Það er stundum talað um unga menn
sem stjórnmálaflokkarnir „ali upp”, og
eru þeir af og til nefndir „pabbadrengir”
stjórnmálaflokkanna. Framavegur
þeirra er sagður beinn og breiður upp
eftir metorðastigum flokkanna. Birgir
Isleifur er meðal þeirra sem nefndir hafa
verið sem dæmi um slíkan feril. í
upphafi spjalls fréttamanns DB við borg-
arstjóra vegna borgarstjórnar-
kosninganna á sunnudaginn var Birgir
Isleifur spurður hvort hann gæti fallizt á
að þessi skilgreining ætti við hann.
„Nei, ég get ekki fallizt á það,”
svaraði borgarstjóri. „Min pólitísku af-
skipti, þeir áfangar sem eru undanfari
þess að ég sit nú í þessum stól, eru
nokkuð tilviljanakenndir. Ég hef alltaf
verið áhugasamur um stjórnmál, allt frá
þvi að ég fór að lesa stjórnmálakenning-
ar í gagnfræðaskóla. Síðan fékk ég
áhuga á að gera meira en að lesa svo ég
gekk i Heimdall, þegar ég hafði aldur til.
Það æxlaöist þannig, að ég var formaður
Heimdallar 1962, þegar borgarstjórnar-
kosningar fóru fram. Menn í kringum
mig töldu æskilegt að fá ungan mann á
listann svo ég gaf kost á mér í prófkjör
flokksins sem þá fór fram. Nú, ég komst
inn og hef verið í borgarstjórn siðan, en
það er langt i frá að ég hafi farið að hafa
afskipti af stjórnmálum í þeim tilgangi
að verða borgarstjóri.”
„Um hvað verður kosið að þínu mati í
þessum borgarstjórnarkosningum?”
„Það er von mín og ósk að kosið verði
um borgarmálin í heild sinni — hvernig
til hafi tekizt að stjórna borginni undan-
farin ár, hvaða trú menn hafa á að ég og
flokksbræður minir geti stjórnað
borginni svo vel fari. Það hefur verið
reynt aö drepa kosningabaráttunni
nokkuð á dreif og dengja landsmálunum
inn í, samanber kjaramálin. Mitt svar
við því er að það er stutt í þingkosningar
og ef menn telja sig eiga eitthvað van-
talað við ríkisstjórnina, er hægt að gera
það eftir mánuð.”
„Hvað sýnist þér hafa farið bezt í
málefnum borgarinnar á siðasta kjör-
timabili?”
„Það er erfitt fyrir mig að meta það,
sérstaklega þar sem maður er alltaf í
miðri hringiðunni. Erfiðast hefur verið
að halda fjármálunum í skefjum.
Verðbólgan hefur verið óvenju ör á kjör-
tímabilinu og það kemur hart niður á
sveitarfélögunum sem gera sínar fjár-
hags- og framkvæmdaáætlanir í upphafi
árs en síðan þýtur verðbólgan áfram
með ógnarhraða. Það hefur haft í för
með sér að við höfum neyðzt til að skera
niður framkvæmdir á miðju ári. Hins
vegar er ég ánægður með að fjárhagur
borgarinnar er mjög traustur.”
Telur þú að þetta atriði hafi komið i
veg fyrir framkvæmd grænu bylting-
trinnar?”
„Hluta hennar. Græna byltingin
s okallaða var í fjórum meginþáttum og
raunar hefur ekki nema einn orðið eftir,
það er gerð gangstíga og hjólreiðastiga
milli hverfa. Frágangur grænna svæða
hefur verið samkvæmt áætlun, þótt röð
hafi eitthvað verið breytt, og sömuleiðis
gangstigagerð innan einstakra hverfa og
uppbygging útivistarsvæða í Bláfjöllum
og Ellióaársvæði."
„En hvað hefur farið verst á kjörtíma-
bilinu?”
„Nú rekurðu mig alveg á gat. Þetta er
náttúrlega afstætt. Það sem mér þykir
leiðast er að ýmsar framkvæmdir sem
maður hafði áhuga á að drifa áfram
hefur ekki verið unnið við sem skyldi
vegna þessa erfiða efnahagsástands. Það
er alltaf erfitt að meta hvað eigi að sitja
fyrir og hvað eigi að verða eftir, en við
höfum reynt að hafa þetta nokkuð
jafnt.”
Borgarstjóri kvaðst ætla að félags- og
heilbrigðismál yrðu veigamestu málin á
komandi kjörtímabili, þau yrðu
kostnaðarsömust og rúmfrekust í
áætlunum. Áfram yrði haldið að bæta
aðbúnað aldraðra og uppbyggingu dag-
vistunarstofnana. „Þá verða heilbrigðis-
málin mikill póstur,” sagði Birgir
Isleifur. „Haldið verður áfram byggingu
heilsugæzlustöðva og framkvæmdum
við byggingu Borgarspítalans. Það
verður einnig haldið áfram að vinna að
endurbótum gatnakerfisins, næsta stofn-
braut verður milli Árbæjar- og
Breiðholtshverfa. Áætlun um umhverfi
og útivist verður haldið áfram og búið er
að raða niður verkefnum þar.”
„Viltu spá um úrslit kosninganna á
sunnudaginn?”
„Ég hef aldrei verið mikill spámaður I
stjórnmálum og sízt þaí sem maður er í
hringiðunni alla daga. Ég geng með
ákveðnar vonir og vissa bjartsýni en
augljóslega má ekkert missasig til að við
sjálfstæðismenn getum haldið meirihlut-
anum.”
„Er það ákveðin og skipulögð
baráttuaðferð að vara stöðugt við
hættunni á að Sjálfstæðisflokkurinn
missi meirihlutann?”
„Nei, þetta eru einfaldlega beinharðar
staðreyndir. Ég get nefnt sem dæmi að
1966, þegar við höfðum níu borgar-
fulltrúa og Sjálfstæðisflokkurinn veitti
forystu i ríkisstjórn eins og nú, þá
misstum við níunda mann og munaði
aðeins 280 atkvæðum að við misstum
líka áttunda manninn. Svipað var uppi á
teningnum 1970 þannig að greinilega
má ekki slaka of mikið á.”
ÓV.
Mw A thugið framhald afbls. 15 f€
REYKJAVtK — um áratuga skeið hafa staðið sviptingar pólitisku flokkanna um
höfuðborgina. Sjálfstæðisflokkurinn hefur þó alltaf náð meirihluta í bæjar- og
síðar borgarstjórn, oft með miklum meirihluta.
Markús ðrn Antonsson, D-lista:
KJÓSENDUR DÆMIUM AT-
HAFNIR OG ÁRANGUR
„Þar sem sumir andstæðinganna vilja
glepja kjósendur með þvi að halda þvi
fram að kosningarnar á sunnudaginn
eigi að snúast um landsmál, einkum
kjaramál, finnst mér ástæða til að undir-
strika að kosið verður um borgar-
u
Markús: „Fyrir mitt lcyti vil ég beita
mér fyrir að uppbyggingu þjónustu-
stofnana i Breiðholti verði hraðað.” DB-
mynd Hörður.
stjórnarmálefni og við sjálfstæðismenn
leggjum þá undir dóm kjósenda athafnir
okkar og árangur af stjórn sjálfstæðis-
meirihlutans síðasta kjörtímabil,” sagði
Markús örn Antonsson ritstjóri, 7.
maður D-lista.
Við væntum að í Ijósi þess taki kjós-
endur hlutlæga afstöðu til hvort sjálf-
stæðismönnum er treystandi til að fara
áfram með meirihluta i borgarstjórn.
Sjálfur efast ég ekki um að ef kjósend-
ur líta á staðreyndir þessa máls og láti
okkur njóta sanngirni í dómum sínum,
verði þeir okkur hliðhollir.
Næsta umhverfi mitt innan borgar-
markanna er Breiðholt, Fella- og Hóla-
hverfi. Þekki ég mætavel af eigin reynslu
að þar eru ótal verkefni sem biða okkar í
næstu framtíð. Hverfið er enn í upp-
byggingu, t.d. er nú verið að ráðast í
stórfelldar byggingaframkvæmdir verka-
mannabústaða. Ekki er þvi komin
endanleg mynd á hverfið. Ég vildi fyrir
mitt leyti stuðla aö þvi á næsta kjörtima-
bili að framkvæmdum við þjónustu-
stofnanir í þessu hverfi verið hraðað, svo
og frágangi gangstétta og stíga og
opinna svæða sem hverfisbúum eru
ætluð til útiveru og yndisauka.”
■ GS.