Dagblaðið - 26.05.1978, Blaðsíða 30
34
Spennandi og skemmtileg ný ævintýra-
mýnd frá Disney-félaginu.
íslenzkur texti
David Hartman
Agneta Eckemyr
Sýndkl. 5,7og9.
SlmU.1476
Eyja víkinganna
Kyikmyffidir
Austurbæjarbíó: Útlaginn Josey Wales (The Outlaw
Josey Wales), aðalhlutvérk: Clint Eastwood, kl. 5,
7.30 og 10. Bönnuöinnan lóára. Hækkað verd.
Gamla bíó: Eyja vikinganna. Aðalhlutverk: David
Hartman og Ageneta Eckman. Sýnd kl. 5,7 og 9.
Hafnarbíó: Þrjár dauðasyndir kl. 3, 5, 7, 9 og II.
Bönnuöinnan lóára.
Háskólabíó: Að duga eða drepast (Marchor Die):
Aðalhlutverk: Gene Hackman, Terence Hill, Max
von Sydow. Bönnuð innan 14 ára. Sýnd kl. 5,7 og 9.
Laugarásbió: Car Wash. Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Nýja bió: Fyrirboöinn (The Omen), kl. 5,7.10 og 9.15.
Myndin er ekki fyrir viðkvæmar sálir. Bönnuö innan
lóára. Hækkað verð.
Stjömubíó: Shampoo, leikstjóri Hal Ashby, aðalhlut-
verk Warren Beatty, Goklie Hawn og Julie Christie,
kl. 5,7.l0og9.l0.
Tónabió: Maðurinn með gylltu byssuna (The Man
with the Golden Gun), leikstjóri Guy Hamilton, aðal-
hlutverk Roger Moore, Kristopher Lee og Britt
Ekland, kl. 5, 7.30 og 10. Bönnuð innan I4 ára.
Hækkað verð.
®Lóðasjóður
Reykjavíkurborgar
Auglýst er eftir umsóknum um lán úr lóða-
sjóði Reykjavíkurborgar. Lán úr sjóðnum tak-
markast við úttekt á malbiki og muldum ofan-
íburði frá Malbikunarstöð og Grjótnámi
Reykjavíkurborgar og pípum frá Pípugerð.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu
borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð og
þurfa umsóknir að hafa borist á sama stað fyr-
ir 15. júní. Eldri umsóknir ber að endurnýja.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
BLAÐBURÐARBÖRN
ÓSKAST STRAX:
Hverfisgata 4—117 Tjarnargata
Gunnarsbraut Suðurgata
Skipholt
Uppl. á afgreiðslunni,
sími27022.
mnBunw
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1978.
Sjónvarp
I)
(i
Útvarp
Sjónvarpíkvöld
kL 20,35: Bavíanar
DÝRALÍF
í AFRÍKU
í kvöld kl. 20.35 verður sýnd í sjón-
varpinu mynd um baviana. Er þetta
dýralífsmynd úr myndaflokknum Sur-
vival. í Botswana í Afríku býr samhent
fjölskylda baviana, samtals um 120 ap-
ar. Þessi mynd sýnir, að bavíanar eru
skynsöm og ástrík dýr sem hugsa vel um
afkvæmi sin og búa þau undir framtið-
ina.
Myndin er í litum og 25 minútna
löng.
Þýðandi og þulur er Guðbjöm Björg-
ólfsson.
RK
u
Þáttur þeirra Ásmundar Jónssonar og
Guðna Rúnars Agnarssonar, Áfangar,
erá dagskrá útvarpsins í kvöld kl. 22.50.
Sagði Guðni Rúnar okkur að
aðaluppistaða þáttarins væri tónlist, sem
ætti rætur sinar að rekja til innblásturs i
bókmenntaverkum. Þessi stefna kom
fyrst upp í Kaliforniu árið 1965 og náði
hámarki vinsælda sinna árið 1967. Þapr
hljómsveitir sem fluttu slíka tónlist
höfðu yfirleitt mjög vel menntuðum
hljómsveitarmeðlimum á að skipa, því
vitanlega urðu þeir að hafa vit á því sem
þeir voru að fást við. Sumar þessara
hljómsveita eru starfandi enn í dag, en
með árunum hefur þessi tónlistarstefna
tekið miklum breytingum, og sagði
Guðni Rúnar, að ekki væri eins djúpt
farið í hlutina og áður. Rannsóknir á
bókmenntaverkum sem tónlistin er
Útvarpiðíkvöld
kl 22,50: Áfangar
legurbak-
grunnur
tónlistarinnar
Þeir Ásmundur Jónsson og Guðni
Rúnar Agnarsson ætla að kynna tónlist
sem á bókmenntalegan bakgrunn i þætti
sinum Áföngum i útvarpinu i kvöld.
samin eftir er grunnfæmari en á blóma-
skeiði tónlistarinnar.
En það er ekki bara lagið sem sækir
hráefni til bókmenntanna, það er einnig
mjög mikilvægt að textinn sé góður. Þá
þýddi litið að semja lög með textanum
„I love you” út í gegn.
Sagði Guðni Rúnar að meðal þess
sem flutt væri í þættinum væri lagið
Triad með hljómsveitinni Jefferson air-
plain. Það er byggt á vísindaskáld-
sögunni Stranger in a strange land..Segir
hún frá jarðarbúa, sem alinn er upp á
stjörnunni Marz, en flyzt til jarðarinnar
aftur. Hann kemur hingað með nýja
siði, ný trúarviðhorf og speki sem jarðar-
búum er algjörlega ókunn. t þessari
skáldsögu er vatn það mikilvægasta i
lifinu og votta menn hver öðrum
vináttu sína með þvi að drekka vatn
saman. Einnig er þessi Jarðar-Marzbúi
giftur tveimur konum og hjá þeim
þekkist hvorki afbrýðisemi né illindi.
Einnig verður flutt verk með hljóm-
sveitinni Doors, en forsprakki hljóm-
sveitarinnar, Jim Morrison, er mjög vel
menntaður á sviði bókmenntanna.
Heitir verk þeirra End of the night og er
byggt á sögu Lous Céline, Journey to
theEndofthe Night.
Sagði Guðni að oft virtist sem bók-
mentalegur grunnur tónverks væri
nokkuð langsóttur, en þegar ferill og
félagslegur bakgrunnur tónlistarmann-
anna er rannsakaður, á enginn að vera
lengur i vafa.
Einnig sagði Guðni að það kæmi til
greina að fjalla um tónlist, sem hefði
orðið til við innblástur frá kvikmyndum.
•RK.
Sjónvarp íkvöld kl. 21,40: Eyðingin hljóða
BETRILÍFSKJÖR í B0RGINNI
Eyðingin hljóða (Holt vidék) nefnist
ungversk bíómynd frá árinu 1972, sem
er á dagskrá sjónvarpsins i kvöld kl.
21.40.
Lítil og vinaleg þorp er hægt að finna
út um allan heim, og i Ungverjalandi er
eitt slíkt. Smám saman taka þó íbúar
þorpsins að flytjast til borgarinnar, þar
sem betri lífskjör bjóðast, og þegar þessi
mynd hefst eru aðeins ung hjón og göm-
ul kona orðin eftir i þorpinu. En hvað
það er sem heldur i þau er ekki gott að
vita og fáum við væntanlega að vita það
í kvöld.
Með aðalhlutverkin í myndinni fara
Mari Törocsik, István Fernczi og lrma
Patkós. Myndin er í litum og er hún
rúmlega hálfrar annarrar klukkustundar
löng.
Þýðandi er Jón Gunnarsson.
RK.
Hvernig ætli sé að búa aðeins með manninum sinum og gamalli konu i heilu þorpi?