Dagblaðið - 26.05.1978, Blaðsíða 6
AUGLÝSING
Föstudagur 26. mai 1978 —43. árg.—167. tbl.
DAGBLAÐÍÐ. FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1978.
Þið, sem ekki verðið heima á kjördag:
Kjósið strax
Kosningaskrifstofa G-listans er á jarðhæð að
Grensásvegi 16. Simi: 83281 og 83368.
■ Opifi hréf frá Guðrúnu Helgadóttur til Revkvíkinga: |
jTokum höndum saman j
á simnudagmn kemurj
Fyrir nokkrum dögum komu tveir
skrautlegir bæklingar inn um bréfalúg-
una hjá mér. Báöir voru frá flokkunum,
sem nú sitja i rikisstjórn. Báðir báru yf-
irskriftina BORGIN OKKAR. Og ósköp
átti þaö vel við. Þetta ernefnilega borgin
„þeirra.” Áð minnsta kosti fannst mönn-
um það, þegar fulltrúar þeirra réttu upp
10 hendur til stuðnings refsiaðgerðum
gegn starfsmönnum borgarinnar, þegar
þeir leyfðu sér að mótmæla riftun kjara-
samninga sinna 1. og 2. mars s.l. Þá var
Reykjavik fyrst og fremst „borgin
þeirra”, ekki okkar. Þeir spurðu okkur
ekki þá, hvort við vildum refsa starfs-
mönnum okkar. Þó hefði verið full ástæða
til, þvi að peningarnir sem þeir eru með I
höndunum eru þó óumdeilanlega pening-
arnir okkar. Það erum viö sem borgum.
Um það verður kosið á sunnudaginn,
hvernig við viljum verja þessum pening-
um. Það veröur kosið um það, hvort
Reykjavik verður áfram höfuðvígi fjár-
magnseigenda i skjóli steinrunnins borg-
Guðrún HelgadótUr: Það eru aðeins tvær
leiðir.
arkerfis, eða hvort hún verður borg allra
Reykvikinga, borg þar sem vinnandi
hendur framleiða verðmæti, sem öllum
borgurunum koma til góða, ekki bara
sumum. Ef menn velja siðari leiöina —
þvi að þær eru aöeins tvær —, þá greiða
Reykvikingar Alþýöubandalaginu at-
kvæði sitt á sunnudaginn kemur.
A lista Alþýðubandalagsins er hópur
fólks á öllum aldri, sem hefur umfangs-
mikla þekkingu á málefnum borgarinnar.
En fyrst og fremst hefur þetta fólk að
leiöarljósi þá hugsjón sem allt starf þess
hlýtur að byggjast á, hugsjón jafnréttis
allra manna.þá viröingu fyrir frelsi ein-
staklingsins, sem sannur gósialismi
grundvallast á. Það frelsi er i þvi fólgiö að
sérhver maöur i samfélaginu eigi rétt á að
lifa frjóu menningarlifi við efnalegt sjálf-
stæði i heilbrigðu samfélagi við aðra
menn. Ef eitthvaö annað er kallað sósial-
ismi, er þaö rangnefni.
Þetta samfélag langar okkur Alþýöu-
bandalagsmenn að reisa hér i Reykjavik,
fyrir börnin, fyrir gamla fólkið, fyrir hina
sjúku og fötluðu, fyrir okkur öll. Við get-
um þetta, ef þið veitiö okkur umboð ykk-
ar. Og ef þið gerið það nógu mörg, er okk-
ur ekkert að vanbúnaöi. Þá verður
Reykjavik BORGIN OKKAR.
Tökum höndum saman á sunnu-
daginn kemur og greiðum Al-
þýðubandalaginu atkvæði okkar.
Hittumst heil.
I
EÐVARÐ SIGURÐSSON um bráðabirsðalösin:
Harkaleg árás sem
verður eldd látið ósvarað
Þeim verður svarað í verkalýðsbaráttunni
og þeim verður svarað í kjörklefanum
Breiðholt III
SJA 11. SIÐU
UNGT
FÓLK
Dansleikur
og skemmt-
un í Sigtúni
í kvöld
Sjá auglýsingu
á 3. síðu
Verka iýðshrey f i ng i n
sættir sig ekki við bráða-
birgðalögin sem úrslit
mála í y f irstandandi
kjaradeilu/ sagði Eövarð
Sigurðsson formaður
Dagsbrúnar í stuttu viðtali
við Þióðviljann í gær.
Verkalýðshreyfingin mun
hugsa sitt ráð og þaö þarf
allt launafólk að gera# ekki
sist nú þegar gengið er til
tvennra kosninga.
Menn þurfa að hafa það rikt i
huga aö þaö eru ekki aöeins þessi
bráðabirgöalög og lagasetningin
frá I vetur sem viö er að glima,
heldur yfirlýsingar stjórnarflokk-
anna um að kjaraskerðingaraö-
gerðirnar i vetur væru aðeins
upphaf aö öðru meira.
Það sem meö bráðabirgöalögun-
um er það að fólk sem vinnur á
'lægstu kauptöxtunum fær nokk-
urn veginn fulia visitölu á það
kaup sem það vinnur fyrir í dag-
vinnu. Þetta er verulegt undan-
hald hjá rikisstjórninni. Hins veg-
ar er langt frá þvi að kaupskerð-
ingunni sé i heild aflétt, og ráöist
er mjög harkalega á samnings-
bundin réttindi verkafólks.
Arás á 8 st. vinnudaginn
Alag fyrir yfirvinnu er lækkað
úr þeim hlutfallstölum sem það
hefur verið i undanfarinn áratug
— 80% og 40% — þannig að ef
þetta stendur um nokkurn tima
eins og bráöabirgöalögin mæla
fyrir, þá veröur eftirvinnukaupiö
oröið það sama og dagvinnukaup-
iö. Með þessu væri' i reynd verið
að afnema 8 stunda vinnudaginn,
og menn ynnu á sama kaupinu —
dagvinnukaupi — 10 stundir. Þá
væri okkur kippt 30 - 40 ár aftur i
timann.
Jafnvel er fræðilegur möguleiki
á þvi að eftirvinnukaupið yrði
lægra en dagvinnukaup, ef þetta
fyrirkomulag fær að haldast. Meö
sama hætti mundi næturvinnu-
taxtinn nálgast eftirvinnutaxt-
ann.
Ég tók eftir þvi, sagði Eövarð
Sigurösson, að forsætisráðherra
hagaði oröum sinum i útvarpinu
þannig um bónusmálin að fjöldi
VERKAM ANN ASAMBANDIÐ:
Eftvarð Sigurftsson.
fólks skildi það svo að ekki yröi
þar um slerðingu aö ræða. Hiö
rétta er að fólk fær ekki fulla
heldur hálfa visitölu á það kaup
sem bónusinn er reiknaður út frá,
þannig að kaupaukagneiðslan
skerðist á sama hátt og yfirvinnu-
greiöslur.
Félagsleg réttindi skert
Óskiljanlegur er sá naglaskap-
ur aö lifeyrissjóðstillög má ekki
reikna af verðbótaviðaukanum,
og útreikningstalan fyrir orlof er
einnig undir skeröingarákvæöun-
um. Höfuðtilgangurinn virðist
vera aö skeröa þessi félagslegu
réttindi fólks til lifeyris og orlofs,
eöa er meiningin bara sú að gera
allt málið flókiö og illviðráðanlegt
i launaútreikningum kaupgreið-
Framhald af 19. siðu.
Útflutningsbanniö áfram
Á f ramkvæmdastjórnarf undi Verkamannasam:
bandsins í dag vár ákveðið að allar þrýstiaðgerðir
sambandsins/ svo sem útf lutningsbann, standi áfram
uns öðruvísi verður ákveðið. Verkamannasambandið
mótmælir eindregið setningu bráðabirgðalaganna og
boðar til ráðstef nu á þriðjudaginn til að marka f rekari
stefnu til aðgerða, svo að markmið verkalýðs-
félaganna um óskert kaup og óskert réttindi nái f ram
aðganga.
Boðar til ráðstefnu á þriðjudaginn