Dagblaðið - 26.05.1978, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 26.05.1978, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. MAl 1978. JAMAICA fyrir norðan „sunnanhljómsveitir yfirkeyra markaðinn” „Þetta er orðið anzi erfitt, því það má segja að flestir staðirnir hér norð- anlands séu upppantaðir af hljóm- sveitum að sunnan,” sagði Snorri Guðvarðsson gítarleikari hljómsveit- arinnar Jamaica á Akureyri í viðtali við DB. Tíðindamaður poppsíðu var á ferðalagi þar nyrðra fyrir skömmu og fékk þá að líta inn á æfingu hjá hljómsveitinni, en auk Snorra skipa hana þeir Helgi Magnússon (píanó+elka), bræðurnir Árni og Matthías Hénriksen (báðir á tromm- ur), Kristján Jónsson (bassi) og Ólaf- ur Sigurðsson (gitar). Þeir Ólafur, Matthías, Snorri og Kristján stóðu saman að hljómsveit- inni Hjólið, sem starfaði um tíma fyrir norðan, en fyrir skömmu gengu þeir Helgi og Árni til liðs við þá og var sveitinni gefið nýtt nafn auk þess, sem strangt hefur verið æft að undanförnu. „Við höldum okkur ekki við neitt ákveðið tónlistarlega séð og við telj- um það hafa verið rétta stefnu því þetta hefur gengið vel það sem af er,” sagöi Snorri ennfremur. „Við eigum næst að leika á Akureyri á þjóðhátíðardaginn og reyndar einnig Jamaica á æfingu i kjallaranum í Glerárþorpi: Ólafur Sigurðsson, Árni Henriksen, Kristján Jónsson, Matthias Henriksen, Snorri Guðvarðsson og Helgi Magnússon. DB-mynd: FAX. þann 16. Það verður á Ráðhústorg- inu.” Fyrir utan Jamaica er hljómsveit- „Músík”blaöið Halló erkomið tífc MEGIÞAÐ DEYJA DROTTNI SÍNUMSEM ALLRA FYRST Er kynferðislíf aðstandenda „músík” blaðsins Halló ekki alveg í lagi? Sú spurning gerist áleitin, þegar w 1.TBL. 1.ÁRG. MAt.1978. VEHD.KR.4Sa,- HAMM STÓHGRÆfilB Á t>VÍ ÁO VERA' HOMf.t! tJEtREAU STÓRÞJÓFÓTTÍR jy' reið henni AFTAN FRÁ EN ÉG KVERKAOi HANA SVO IVtED HUÓO- nfmasnúrhnmí blaðinu er flett. Tónlist situr þar alla- vega ekki í fyrirrúmi, heldur miklu fremur frásagnir af kynferðislega brengluðu tónlistarfólki. „Hann stórgræðir á því að vera hommi”, „Pungrokk-ræflarokk”, „Cheetah reið henni aftan frá en ég kverkaði hana með hljóðnema- snúrunni”og „Þeir eru stórþjófóttir” eru uppsláttarfyrirsagnir þessa nýja „músík”-blaðs sem sent var á markað fyrir nokkru. Þessir stórþjófóttu eru islenzkir lagasmiðir. Annars er efni Hallós utan þess kynferðisbrenglaða mestmegnis nei- kvæðir punktar, aðdróttanir alls konar og úreltar myndir. Eini Ijósi punkturinn í Halló er stutt rabb við Gunnar Jökul Hákonarson mat- vörukaupmann og fyrrverandi trommuleikara. Stafsetningarvillur i Hallói eru fleiri en svo að taki því að telja þær og ritstill skrifaranna rís sjaldnast upp úr meðalmennskunni. Ef formúlan til að gera hressilegt tónlistarblað er sú ein að reyna að hneyksla fólk með alls kyns efni,sem hæfir betur tímaritinu Konfekti og frænkum þess af sömu gerð, er tími til kominn að fara að endurskoða málin frá grunni. Ritstjóri Hallós boðaði á sinum tíma útkomu þriggja tölublaða af afkvæmi sínu og siðan yrði fjármálahliðin skoðuð. Vonandi hefur Halló dáið drottni sinum áður en til þess kemur. Afstyrmi eins og það eiga ekki tilverurétt. Ásgeir Tómasson. Bréffrá Kissaödáendum Vilja fá hljómsveitakynn- ingará poppsíöuna Abba, Smokie og Boney M, heldur grúppur, sem ekki eru í útvarpinu á hverjum degi, eins og Kiss, Rain- bow, Queen og fleiri álika. Og ekki mætti gleyma punkinu, sem er stór- kostleg músík.” Svan Meginstefnan hefur verið allt frá þvi er Dagblaðið hóf göngu sína að segja nýjustu tónlistarfréttirnar á poppsíðunni. Út af þessu hefur þó verið brugðið öðru hvoru, til dæmis með löngum viðtölum og ýmiss kon- ar öðru efni s.s. hljómsveitarkynn- ingum. Nokkuð er síðan til greina kom að kynna fyrirbærið Kiss, en tími ekki unnizt til þess ennþá. Hver veit nema sá timi gefist áður en langt um líður. —ÁT— Mick Abrahams sýnirlífsmark Kiss-aðdáendur skrifa: „Okkur hefur lengi langað til að spyrja poppsiðu Dagblaðsins að einu: Hvernig væri að þið tækjuð fyrir eina og eina hljómsveit og kynntuð hana rækilega? Við erum ekki að tala um hljómsveitir á borð við Mick Abrahams, fyrrum gítarleik- ari Jethro Tull, Bloodwyn Pig og sinnar eigin hljómsveitar um nokk- urra ára skeið hyggst nú snúa sér aftur að lifandi tónlist eftir tveggja ára hlé. Áformað er að efna til stórra hljómleika í London og fara síðan i ferðalag út frá þeim. Abrahams * ætlar ekki að stofna formlega hljóm- sveit fyrir ferðina en koma þess í stað frarn I eigin nafni með undirleikara á bak við sig. Um þessar mundir er Mick Abra- hams að hljóðrita plötu sem áætlað er að komi út á miðju sumri. Honum til aðstoðar eru stúdíóhljóð- færaleikarar. ÚrMELODYMAKER in Hver starfandi á Akureyrarsvæð- inu, en menn muna kannski eftir henni úr sjónvarpi í vetur. Þá er hljómsveit Finns Eydal „föst” í Sjall- anum. —HP. nnnn) \ Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum í lagningu dreifikerfis í Gerðum 1. áfanga, Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hita- veitu Suðurnesja, Vesturbraut 10A Keflavík og á verkfræðistofunni Fjarhitun h.f. Álfta- mýri 9 Reykjavík, gegn 20.000 kr. skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja fimmtudaginn 8. júní kl. 14.00. h HITAVEITA SUÐ URNESJA * TIMARIT A ENSKU

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.