Dagblaðið - 26.05.1978, Qupperneq 7

Dagblaðið - 26.05.1978, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. MAt 1978. LJOSMYNDIR BJARNLEIFUR BJARNLEIFSSON y 1,11 X Hart barizt í Kópa voginum: „Flokksleysingjar og flðkkulýður,> Hvergi virðist óvissa i komandi bæjarstjórnarkosningum meiri en i næststærsta bæ landsins, Kópavogi. t síðustu kosningum voru fjóri listar í boði en nú eru þeir sex og sundrung og flokkadrættir ráðandi. Núverandi bæjarstjórn er skipuð fjórum sjálf- — kosningaskrifstofur allra lista heimsóttar og baráttuhugurinn kannaður K-listinn: Herbragð sjálfstæðismanna t hringferð okkar um kosningaskrif- stofurnar i Kópavogi lá leiðin fyrst til Skúli Sigurgrímsson, Jóhann H. Jónsson og Magnús Bjarnfreðsson, B-lista. stæðismönnum, og þremur mönnum frá Framsóknarflokki og Samtökum frjálslyndra og vinstri manna og skipa þessir menn meiri hluta bæjarstjórnar. í minni hluta eru þrir menn frá Al- þýðubandalagi og einn frá Alþýðu- flokki. Nú gengur Sjálfstæðisflokkurinn klofinn til kosninga, boðnir eru fram D-listi Sjálfstæðisflokksins og S-listi Sjálfstæðisfólks. Þá er boðinn fram nýr listi, K listi, Listi borgaranna, og á honum munu vera menn úr flestum stjórnmálaflokkum, en hann er þó að nokkru sagður byggður utan um Sam- tök frjálslyndra og vinstri manna. Auk þessara þriggja lista eru síðan A-listi Alþýðuflokks, B-listi Framsóknar- flokks og G-listi Alþýðubandalags. Rétt þótti að kanna hljóðið í mönn- um nú rétt fyrir kosningar, sem ljóst er að verða mjög spennandi og því voru kosningaskrifstofur allra listanna heimsóttar. Að sjálfsögðu voru allir vongóðir, en þó leyndi sér ekki að nokkur skjálfti er í mönnum, enda er að miklu leyti rennt blint í sjóinn. t bæjarstjórn í Kópavogi eru nú 11 menn, en samkvæmt áætlunum við- mæilenda okkar þurfa þeir að vera á bilinu 15—17 ef allt á að ganga úpp þegar þeir tala um örugg sæti og bar- áttusæti. kosningar verða viðræður en þeir verða að breyta afstöðu sinni. Ef sjálf- stæðismenn halda áfram fjórum mönnum í Kópavogi, verður það áreiðanlega S-listanum að þakka.” Hvað önnur framboð í Kópavogi snertir töldu þeir stöðu Alþýðubanda- lagsins veika, Framsóknarflokkurinn fengi tvo menn og að framboð Borgar- anna K-listans væri endanlega brostið þar sem þeir væru hvor á móti öðrum Sigurjón Ingi Hilaríusson og fimmti maður á listanum Sigurður Helgason. Það framboð væri ekki annað en fram- boð Samtaka frjálslyndra og vinstri manna í sauðargæru. D-listi: Flokksleysingjar og f lökkulýður „Það er aðeins einn listi Sjálfstæðis- flokksins í þessum kosningum i Kópa- vogi og það er D-listinn,” sögðu þeir Bragi Michaelsson og Árni Örnólfsson en þeir skipa þriðja og sjöunda sæti lista flokksins. „Hitt eru aðeins flokks- Bragi Michaelsson og Árni Örnólfsson, D-lista. leysingjar og flökkulýður. Við hörmum að þetta skyldi þurfa að koma fyrir þvi eðlilegast er að allir sjálfstæðismenn komi fram i einum flokki. Það eru þessir prófkjörssjúku menn sem ekki gátu sætt sig við að verða undir og una ákvörðun fulltrúa- ráðsins, en það ber ábyrgð á framboði flokksins. Það er okkar trú að við höldum okkar fjórum mönnum og við getum óhræddir lagt okkar verk undir dóm kjósenda. En það má svo sem segja að nú séu fleiri sjálfstæðismenn í baráttunni en nokkru sinni og ef S-lista menn vilja vinna í anda sjálfstæðisstefnunnar, þá er ekkert sem mælir á móti samstarfi við þá menn.” A-listi: Sundrung eiginhagsmuna- aflanna „Hér í Kópavogi er mikil sundrung og því valda eiginhagsmunir,” sagði Steingrímur Steingrímsson á kosninga- skrifstofu Alþýðuflokksins, en Stein- grímur skipar þriðja sætið á A- listanum. „Enginn vill missa neitt og allir reyna að pota sér áfram. Kópa- vogsbúar hafa ekki leyfi til þess að hleypa þessum sundrungaöflum inn í bæjarstjórn eða styðja þessa kosninga- brellu Sjálfstæðisflokksins að hafa 56 menn i framboði. Bæði K og S-listinn biðla til D-listans. Sjálfstæðisfólk hér er með tvo lista og stór itök í þeim þriðja. Alþýðubandalagið er í kyrrstöðu og heldur þremur mönnum en ég hef ekki trú á því að þriðji maður hjá Framsókn, Magnús Bjarnfreðsson, komist inn. Það er erfitt að spá í Borgaralistann en það er engin eining innan hans. Við Alþýðuflokksmenn vitum að það verður aukning hjá K-listans, Lista borgaranna. Þar var fyrir Sigurjón Ingi Hilaríusson, efsti maður á lista. „Ég tel stöðu okkar mjög góða og samkvæmt skrifum and- stæðinga okkar erum við hinn sam- eiginlegri óvinur þeirra allra. Þeir ótt- ast að við munum hrófla við sam- tryggingarkerfinu. Ég tel okkur nokkuð örugga með tvo menn inn en hvað verður fram yfir það er erfitt að spá um. Alþýðubandalagið stendur í stað. Það er ekki hægt að greina neina sókn hjá því. Þessir tveir sjálfstæðis- listar eru sami grauturinn og öruggur samruni þeirra eftir kosningar. Ég tel þetta herbragð Sjálfstæðisflokksins og ekki kæmi mér á óvart að Framsókn hefði staðið á bak við þetta til þess að tryggja áframhaldandi meirihlutastarf með Sjálfstæðisflokknum.” S-listi: Mikið verður Tryggvi Felixson fyrir miöju, en hann veitir kosningaskrifstofu G-listans forstöðu. Til hjálpar við störfin eru tveir ungir menn, Hannes Þorsteinsson og Skúli Páls- son. — DB-myndir Bjarnleifur. Steingrímur Steingrímsson, A-lista. Ég hef trú á því að S-listinn komi inn manni, en ég hef aldrei haft trú á því þegar barizt er um völd á milli manna, en málefnin látin fjúka.” að breytast ef list- arnir eiga að renna okkur og stefnum að þvi að fá tvo menn. Ég tel nokkuð öruggt að breyt- ing verði á meirihluta eftir kosningar.” Guðni Stefánsson og Eggert Steinsen, S-lista. B-listi: „Umrót á fylgi flokkanna" „Við erum hinir bröttustu, enda þýðir ekki annað,” sagði Jóhann H. Jónsson, efsti maður á lista Fram- sóknarflokksins, en hann var á kosningaskrifstofu flokksins ásamt Skúla Sigurgrímssyni og Magnúsi Bjarnfreðssyni, öðrum og þriðja manni listans. „En það er erfitt að spá,” sagði Jóhann. „Ég held að það komist töluvert rót á fylgi flokkanna að þessu sinni. Við leggjum höfuðkapp á að koma Magnúsi Bjarnfreðssyni inn í bæjarstjórn. Ef ekki kemur einn nokkuð samstilltur hópur út úr kosn- ingunum getur alger glundroði ríkt að þeim loknum. G-listi: Blekkingar- bragð Sjálfstæðis- flokksins eftir peningafylliríið. Sigurjön Ingi Hilaríusson, K-lista. saman Að fenginni þessari yfirlýsingu Sigurjóns Inga um lymskulegt her- bragð Sjálfstæðisflokksins þótti rétt að kanna ástandið I báðum herbúðum sjálfstæðismanna. Á kosningaskrif- stofu S-lista sjálfstæðisfólks hittum við fyrsta og annan mann listans, þá Guðna Stefánsson og Eggert Steinsen. Þeir töldu að miðað við óbreytt ástand mætti mikið gerast ef þessir tveir listar, S og D rynnu saman eftir kosningar. „Sumir í hinum her- búðunum hafa þótt dálitlir eiginhags- munamenn auk þess sem þeir hafa farið út i persónulegar svivirðingar, en það höfum við ekki gert. Sú staðreynd bendir til rökþrota þeirra og veikrar stöðu. Hitt er svo annað mál að eftir „Ef fólk notar skynsemina náum við inn fjórum mönnum,” sagði Tryggvi Felixson á kosningaskrifstofu G-lista Alþýðubandalagsins. „Fólk 'hlýtur að gera sér grein fyrir því að þetta er blekkingarbragð hjá sjálf- stæðismönnum að bjóða fram tvo lista. Þeir vita að þeir eru orðnir svo óvinsælir í bænum eftir Stefnisbraskið og peningafylliriið. Þetta er bragð til þess að ná í þá óánægðu. Þá er lítill málefnalegur grundvöllur hjá K-listanum, sem samanstendur af félagshyggjumönnum og einstaklings- hyggjumönnum til helminga. Það er hávaði i Framsókn og þeir skella allri skuldinni á íhaldið og geta kannski slegið ryki í augun á einhverjum með þvi. En þeir ganga í eina sæng með h verjum sem er eftir kosningar.” Heitt í kolum Eins og sjá má að framan er víða nokkuð heitt undir og verður fróðlegt, svo ekki sé meira sagt, að fylgjast með útkomunni. En væntanlega slíðra menn sverðin að loknum kosningum og vinna sem bezt að málefnum bæjar- félagsins, þótt hart sé barizt þessa stundina. Vegna óvissunnar í Kópavogi hefur því verið fleygt að ríkisútvarpið muni loka mann inni, þar sem talning fer fram, sem síðan mun senda beinar fréttir af talningu í bænum. - JH Bahá'iar. Munið einingarhátíðina í Kristalsal Hótel Loftleiða í kvöld kl. 20.30.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.