Dagblaðið - 26.05.1978, Side 12
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1978.
HVAfl
VILJA
ÞEIR?
J
FRAMBOÐ '78 I
|fc_.
Reykjavík
Sjöfn Siguröjörnsdóffir, A-lista:
MÁLEFNIFJÖL-
SKYLDUNNAR MÍN
HJARTANS MÁL
„Ég mun aðallega beita mér fyrir mál-
efnum fjölskyldunnar,” sagði Sjöfn Sig-
urbjörnsdóttir, er fréttamaður DB
spurði hana, hverju hún hygðist beita
sér fyrir. Fréttamaður spurði hana
hvernig og á hvaða sviðum hún hugsaði
sér að gera þetta. Hún sagði: „Fjölskyld-
an er meðal homsteina þjóðfélagsins I
öllum skilningi. Hún er eins og minnkuð
mynd af samfélaginu. Samstaða innan
fjölskyldu er mikiis virði. Eðlileg fjöl-
skyldusambönd eru bæði einstaklingum
og þjóðfélaginu styrkur.”
„Ýmis frumskilyrði þarf að uppfylla.
Meðal annars, hvernig búið er að henni
t.d. varðandi húsnæði, svo og umhverfi
bæði heima og á vinnustað. Á fleira er
að líta svo sem vernd, menntunarað-
stöðu, útivist og dagvistun yngri sem
eldri, sem sagt allt það, er skapað getur
öryggi og fegurra mannlif,” sagði Sjöfn.
„Nauðsyn ber til að koma á raunhæf-
ari samvinnu skóla og foreldra i þvi
skyni að leggja grundvöll að heilbrigðum
félagsþroska strax I upphafi.
Þá vil éggera börn og ellilifeyrisþega
virkari i samfélaginu. Síðast en ekki sízt
verður að taka miklu meira tillit til
heima- og útivinnandi kvenna en gert
hefur verið. Sérstaklega þarf að bæta að-
stöðuna til endurmenntunar og starfs-
náms.”
— Hvað segir þú um glundroðakenn-
inguna, sem svo er nefnd?
„Mér hefur alltaf fundizt þeir, sem
halda henni fram, vera að óvirða kjós-
endur og dómgreind þeirra. Ég held að
sivaxandi flokkapólitík i stórum byggð-
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir I upptökusal útvarpsins.
arlögum sé ekki til góðs. Vitanlega á að stjórnmálaflokki þeir fylgja,” sagði Sjöfn
kjósa um menn og málefni. Menn eru aðlokum.
hvorki betri né verri fyrir það eitt, hvaða BS.
Elín Pálmadóttir, 8. maður á D-lista:
ÞAÐER LÍFSFORM OKKAR
SEM KOSIÐERUM
Sjálfstæðisflokkurinn vill styðja fólk til að hjálpa sér sjálft
„1 þessum borgarstjórnarkosningum
er kosið um einstaklinginn og lífsstíl
hans í þessari borg,” sagði Elin Pálma-
dóttir blaðamaður, 8. maður á D—list-
anum. „Aldrei hefur komið betur i ljós
en í þessari kosningabaráttu munurinn á
grundvallarskoðunum sjálfstæðisfólks
og alþýðubandalagsmanna, sem mundu
ráða ef sjálfstæðismenn misstu meiri-
hlutann. Þeir vilja haga öllum málum
svo, að þurfi undir opinbera aðila að
'sækja um hvað eina, húsnæði í opinber-
u
Elin Pálmadóttir leggur mesta áherzlu á
umhverfismálin.— DB-mynd Hörður.
um leiguíbúðum, atvinnu i bæjarrekn-
um fyrirtækjum og allar lífsins þarfir i
stofnunum, sem greiddar eru af sífellt
þyngri skattsjóði. Allt frumkvæði komi
frá skrifstofum pólitíkusa og embættis-
manna, en ekki einstaklingnum sjálfum.
Við sjálfstæðismenn viljum styðja —
ég legg áherzlu á styðja — fólk til að
hjálpa sér sjálft hvort sem er i félagslegri
aðstoð eða til atorkusamrar atvinnu-
starfsemi. Það er því lífsform okkar, sem
um er deilt, hvort við viljum hið alvalda
forsjárþjóðfélag með miðstýringu opin-
berra aðila, eða hvort við stefnum að
frjálsri umhyggju og ást einstaklinganna
hver við annan, þar sem stuðningur op-
inberra aðila beinist að því að gera þeim
fært að veita slíka persónulega og sjálf-
valda samhjálp.
Elín hefur undanfarin 4 ár einbeitt sér
mest að umhverfismálum í borgarstjórn,
en þar eru þau mál nýr málaflokkur.
„Að fengnum brýnustu nauðsynjum, at-
vinnu, húsnæði o.s.frv., koma í Ijós kröf-
ur um betra umhverfi og fjölbreyttari
möguleika til lífsfyllingar," sagði Elín.
„Enginn sleppur frá umhverfi sínu og
því er nauðsyn að halda i það sem bezt
er í umhverfinu^hreint loft, hreint vatn,
víðáttu og rými til útivistar í auknum frí-
stundum.”
Elín benti á margt sem að hefði verið
unnið. Áherzla hefði verið lögð á við-
fangsefni þar sem fjölskyldan væri sam-
an, skiðasvæði í Bláfjöllum, aðstöðu fyr-
ir hestamennsku og hvers konar útilíf.
Elín sagði að hafnar væru athuganir á
þvi hvort fá mætti meira líf í borgina
með skemmtigarði og eins með því að
finna leiðir til að fá fólk aftur í gömlu
hverfin í auknum mæli.
—ASt.
Sigurjón Pétursson, G-lista:
KJARA- OG ATVINNUMÁUN
í BRENNIDEPU
Eins og málin standa nú, legg ég
höfuðáherzlu á tvö mál, sem ég álít þess-
ar kosningar standa um: atvinnumálin
og kjaramálin, sagði Sigurjón Péturs
son, trésmiður 1. maður á G-lista.
Þótt frambjóðendur haldi fram ein-
hverjum ákveðnum kosningamálum,
verða þeir, sem ná kjöri, að taka afstöðu
til allra þeirra fjölmörgu mála, sem fyrir
eina sveitarstjórn geta komið á kjörtíma-
bilinu, en það eru flest mál er varða
mannlífiö í samfélaginu.
Þess vegna skiptir ekki höfuðmáli, að
minni hyggju, hvaða afstöðu menn hafa
til slikra einstakra mála, heldur skiptir
meginmáli hvaða heildarstefnu og lífs-
viðhorf sú stjórnmálahreyfing hefur,
sem frambjóðandinn er fulltrúi fyrir.
1 dag eru kjaramálin i brennidepli.
Með lögum hefur ríkisstjórnin skert kjör
allra launþega sem nemur 5 vikna
launum miðað við ár. Þegar launafólk
mótmælti með skyndiverkföllum, gekk
borgarstjórn Reykjavíkur, undir forystu
borgarstjóra, fram fyrir skjöldu í því
skyni að refsa þeim starfsmönnum borg-
arinnar, sem tóku þátt í verkfallinu.
Allir sjálfstæðisfulltrúar og annar
f ramsóknarfulltrúinn samþykktu að
draga 32% af mánaðarlaunum þeirra
starfsmanna, sem höfðu verið aðeins 2
daga i verkfalli. Þetta sýnir betur en flest
annað afstöðu borgarstjórnarmeirihlut-
ans til réttindabaráttu launafólks.
A.m.k. árlega og jafnvel oftar á ári
koma kjaramálin til kasta bæði sveitar-
og ríkisstjórnar. Afstaða til þeirra skiptir
þvi miklu máli. Þess vegna verður óhjá-
kvæmilega kosið um þau á sunnudaginn
kemur.
Þá verða atvinnumálin einnig í
brennidepli einmitt nú. 1 Ijós hefur
komið við rannsókn að undirstaða at-
vinnulífs i Reykjavik stendur á mjög
ótraustum grunni. Þeim málum hefur
ekkert verið sinnt skipulega af hálfu
meirihlutans á undanförnum áratugum
og afleiðingin er sú að hér hafa fram-
leiðslu- og úrvinnslugreinar dregizt
saman, en viðskipta- og þjónustugreinar
þanizt út að sama skapi. Flótti fyrir-
tækja til nágrannabyggðanna hefur far-
ið hraðvaxandi á síðustu árum.
Alþýðubandalagið hefur lagt fram
ítarlegar atvinnumálatillögur þar sem
lögö er áherzla á að borgin sjálf hafi
frumkvæði og forystu um uppbyggingu
atvinnulifs. Við viljum styðja atvinnu-
reksturinn með þeim hætti að borgin
öðlist hlutdeild og beri ábyrgð á fyrir-
tækjum til jafns við framlag sitt til
þeirra.
Þama er grundvallarskoðanamunur á
milli Alþýðubandalags og annarra
flokka í borgarstjórn. í tillögum sjálf-
stæðismanna sem framsóknarmenn
styðja heilshugar, miðast allur
stuðningur við að styrkja at-
vinnurekendur, án þess að borgin hafi
þar nokkra aðild eða áhrif.
Skoðanakannanir síðdegisblaðanna
leiða það í Ijós, þegar tillit hefur verið
tekið til allra fyrirvara, að baráttan
virðist standa milli 9. marms D-lista og
4. manns G-lista. Ég bið Reykvíkinga að
hugleiða hvilikt gagn það væri borgar-
stjórn Reykjavíkur að jafn ágætur
fulltrúi og Guörún Helgadóttir (4.
maður G-lista) ætti þar sæti næstu 4 ár.
-G.S.
1»
Sigurjón: „Borgin taki sjálf þátt I at-
vinnuuppbyggingunni.” Þjóðvmynd.