Dagblaðið - 26.05.1978, Síða 21
25
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1978.
Líklega kannast flestir við hana Idu,
eiginkonu Rösks í myndaflokknum
Röskir sveinar. En ekki er víst að allir
viti hvað hún heitir í raun og veru.
Hún heitir sem sagt Gurie Nordwall
og er 44 ára gömul.
Jafnvel þótt hún hafi leikið stór
hlutverk á leiksviði frá því hún var 19
ára gömul var hlutverk hennar sem
Ida hennar fyrsta hlutverk í sjónvarpi.
Og eftir aðeins örfáar vikur var hún
elskuð og virt af löndum sínum og hún
hefur einnig hlotið verðlaun fyrir að
vera bezta leikkona ársins 1 Svíþjóð og
það á hún Idu að þakka.
„Það er dásamlegt hve sjónvarps-
myndaflokkur getur haft mikil áhrif á
svo margt fólk. Meðan þættirnir um
Röska sveina voru sýndir i Svíþjóð
fékk ég vikulega fjöldann allan af bréf-
um og siminn minn, sem ?kki var van-
ur að láta mikið 1 sér heyra, þagnaði
ekki allan daginn," segir Gurie.
„Líklega hafa þessir þættir ýtt ræki-
lega við löndum mínum. Margar eldri
konur skrifuðu mér bréf og sögöu mér
Ida heimsótt
frá barnæsku sinni og báru gjarnan
sitt eigið líf saman við lif Idu. Þaö var
t.d. ein kona sem skrifaði mér langt
bréf vikulega um sína eigin ævi,” sagði
Gurie.
„Eg varð mjög hrærð í hvert skipti
sem ég fékk bréf og svaraöi flestum
þeirra. Minna getur maður ekki gert.
Eitt sinn var ég á gangi á götu hér í
Stokkhólmi. Þá stanzaði allt i einu stór
vörubíll á götunni við hlið mér. Bíl-
stjórinn rauk út, kyssti mig á kinnina
og sagði: Þakka þér fyrir að leika Idu.
Síðan stökk hann aftur upp í bílinn og
keyrði af stað.
Skömmu síðar kom ég inn i stórt
verzlunarhús og ætlaði að kaupa mér
blússu. Þegar ég rétti afgreiðslustúlk-
unni blússuna og sagðist ætla að
Guríe segir það hafa veríð sérstaklega
skemmtilegt að leika á mðti Sven.
„Hann er sérstaklega geðfelldur mað-
ur,” segir híin.
urinn sjálfur, Vilhelm Moberg, hefur
einnig haft það í huga.”
Ida hefur þekkt Moberg frá því hún
var bam. Hann var tiður gestur á
heimili hennar og þau urðu brátt góðir
vinir. Einu man Ida sérstaklega eftir.
Moberg gekk alltaf með hælajárn á
skónum sínum og hefur þvi að öllum
líkindum eyðilagt nokkuð mörg park-
etgólf. En enginn sagði neitt við því og
allt var í stakasta lagi, bara vegna þess
að þetta var Moberg. „Eiginmaður
minn, Per Sjöstrand, skrifaði handritið
að myndaflokknum og ræddu þeir
Moberg oft um verkið áður en Moberg
dó,” sagði Gurie.
Mótleikari Gurie i Röskum svein-
um var Sven Wollter.
„Sven er sérstaklega indæll maður.
Flestir taka fyrst eftir hlýjum og fal-
legum augum hans og ég get fullvissað
alla um aö bak við þessi fallegu augu
er hlýja og vinsemd.”
Sven og Gurie- ólust upp í sama
hverfi sem börn. Þau léku sér saman
og þegar þau fóru á skauta bar Sven
alltaf skautana heim fyrir Gurie. Einn-
ig var hún sjálfsagður gestur I afmælis-
veizlum heima hjá honum, bæði i
hans eigin afmælum og systkina hans.
Innan skamms munu Gurie og mað-
ur hennar yfirgefa heimili sitt í
Bromma I Stokkhólmi því Gurie hefur
tekið að sér að leika í nýjum sænskum
myndaflokki sem á að taka upp í
Gautaborg. Þessi myndaflokkur nefn-
ist Mor gifter sig eða Mamma giftir sig
og fer Gurie með aðalhlutverkið.
Sonur þeirra, Jónas, sem er fjórtán
ára og lék eitt barna þeirra Rösks,
mun fara með þeim og svo ætlar Gurie
að taka með sér páfagaukana sína, því
þeir verða lika að fá að skoða sig ofur-
lítið um i heiminum, þótt ekki sé farið
lengra en til Gautaborgar.
Farandsalinn freistaðiIdu með fallegu köOóttu efni I kjól.
kaupa hana, leit hún á mig og sagði:
Ó, þarna ertu. Síðan hljóp hún grát-
andi í burtu og ég stóð eins og flón eft
ir með blússuna í hendinni. Ég flýtti
mér að leggja hana frá mér og fara út.
En ég hef ekki enn skilið hvers vegna
stúlkanfór aðgráta.”
Gurie skilur hins vegar vel að Ida
geti haft sterk áhrif á aðra því hún hef-
ur haft mjög mikil áhrif á hana sjálfa.
„Ida er mjög sterk og góð kona.
Hún trúir á guð, sem hjálpar henni, en
hún reynir ekki að þvinga aðra til þess
að trúa því sem hún trúir sjálf.
Ég lít svo á,” segir Gurie, „að í
myndaflokknum sé verið að hrósa
þeim sem hafa löngun og getu til þess
að lifa og berjast áfram við slæm lífs-
skilyrði. Og ég er viss um að rithöfund-
Gurie gefur sér tlma á hverjum degi til þess að rabba ofurbtið við fuglana sina.
Stjarnan Jack Nicholson
„Hann er snillingur,” segja kvik-
myndagagnrýnendurnir. „Hann er
dýrlegur,” segja stúlkurnar.
Það er enginn annar en leikarinn
Jack Nicholson sem fær þessi vægast
sagt lofsamlegu ummæli.
Hann fæddist fyrir 42 árum í New
Jersey og starfaði faðir hans sem
skiltamálari. Þegar foreldrar hans
skildu stofnsetti móðir hans snyrti-
stofu til þess að geta fætt og klætt
börnin sín, Jack og tvær stúlkur. Nich-
olson klóraði sig einhvern veginn í
gegnum skólann og eftir að hafa lokið
skólagöngu sinni starfaði hann sem líf-
vörður. Síðan gerðist hann sendi-
sveinn hjá kvikmyndafyrirtæki og var
þar þangað til honum var boðið smá-
hlutverk I kvikmynd.
Árið 1958 var honum boðið að leika
snarvitlausan ungan mann og smátt
og smátt bárust hlutverk, lifil þó, upp I
hendur hans.
Það var þó ekki fyrr en árið 1969
sem hans stóra tækifæri kom, þá lék
Punkarinn
og mamma
hans
Hegðun punk-rokk stjörnunnar
Johnny Rotten var með bezta móti er
hann kom til Englands fyrir skömmu.
Ástæðan er einfaldlega sú að mamma
hans var með hónum til þess að hafa
auga með því að allt færi vel fram.
Hún segist örugglega vera ákafasti að-
dáandi sonar síns, að furðulegri hegð-
un hans slepptri.
Rotten er meðlimur i hljómsveitinni
Sex Pistols en eitthvað slettist upp á
vinskapinn í hljómleikaferð hljóm-
sveitarinnar um Bandaríkin því þeir
hafa ekki leikið saman siðan. Rotten
hefur því ákveðið að koma fram einn
og vitanlega verður mamma einhvers
staðar nálæg til þess að hafa taumhald
á drengnum.
hann I myndinni Easy Rider og „sló i
gegn”. Upp frá því var hann stjarna.
Árið 1975 lék hann í myndinni
Gaukshreiðrið sem var jólamynd
Tónabíós sl. jól. 1 þeirri mynd lék
hann uppreisnarsegginn McMurphy
sem er lagður inn á geðveikrahæli og
vogar sér að spyrja þeirrar spurningar
hver sé veikur þar og hver heiíbrigður.
Fyrst fékk Nicholson 1,2 milljónir
dollara fyrir leik sinn i þeirri mynd og
siðan Óskarsverðlaunin.
Konumar í lífi Nicholsons hafa ver-
ið nokkuð margar, eins og oft vill
verða með kvikmyndaleikara. Fyrir
u.þ.b. tveimur árum varð hann yfir sig
ástfanginn af Winnie Hollmann, en
það leið fljótt hjá og síðan hefur hver
vinkonan komið á fætur annarri. Árin
1961—1966 var hann giftur Söndru
Knight og eiga þau eina dóttur, Jenny.
Jack Nicholson er sagður hafa tekið
eiturlyf um nokkurra ára skeið, en
hvað sem því líður segist hann vera
óskaplega hamingjusamur maður.
Hann veit að hann er stjarna og er
ekkert feiminn við að viðurkenna það.
Punk-rokk
stjarnan
Johnny Rotten
ogmóðirin
sem dáir strák
að undanskilinni
furðulegrí hegðun
hans.
■fl/jivaz
Nýir umboðsmenn
Dagb/aðsins
Vopnafjörður
Ragnhildur Antoníusdóttir
Lónabraut 29; sími 97-3223.
Búðardalur
Anna Flósadóttir, Sunnubraut, sími 95-2159.
Til sölu
þrjár pökkunarvélar (vacuum)
REYKIÐJAN H.F.
Smiðjuvegi 36, Kópavogi,
Simi 76340.
Q&p VÉLSKÓU
fSLANDS
Inntökuskilyrði
1. stig: a) Umsækjandi hafi náð 17 ára aldri, b) Umsækjandi sé ekki
haldinn næmum sjúkdómi eða hafi líkamsgalla sem geti orðið honum
til tálmunar við starf hans, c) Umsækjandi kunni sund.
2. stig: 1) Umsækjandi hafi náð 18 ára aldri, b) sama og fyrir 1. stig, c)
sama og fyrir 1. stig, d) Umsækjandi hafi lokið miðskólaprófi eða
hlotið hliðstæða menntun, e) Umsækjandi hafi eitt af þrennu: 1.
lokið vélstjóranámi 1. stigs með framhaldseinkunn, 2. öðlast a.m.k.
tveggja ára reynslu I meðferð véla eða í vélaviðgerðum og staðist
inntökupróf við skólann, 3. Lokið eins vetrar námi í verknámsskóla
iðnaðar I málmiðnaðargreinum og hlotið a.m.k. 6 mánaða reynslu að
auki i meðferð véla eða vélaviðgerðum og staðist sérstakt
inntökupróf.
Umsóknir
Umsóknareyðublöð liggja frammi í skrifstofu skólans I Sjómanna-
skólanum, 2. hæð. Umsóknir berist skólanum fyrir 10. júni 1978.
Kennsla hefst I byrjun september.
Skólastjóri.