Dagblaðið - 26.05.1978, Síða 31

Dagblaðið - 26.05.1978, Síða 31
.35 BÍLASALAN Flestargeróir bifreida Opid íhádeginu Stmar29330og29331 Söngkonan Wenche Myhre ásamt tveimur barna sinna. Sjónvarp í kvöld kl. 21,00: Margt getur skemmtilegt skeð NORSKA SÖNGKONAN WENCHE MYHRE Margt getur skemmtilegt skeð nefnist danskur skemmtiþáttur sem verður á dagskrá sjónvarpsins í kvöid kl. 21.00. Er það norska söngkonan Wenche Myhre sem skemmtir ásamt Per Palle- sen, Eddie Skoller, Jimmie James og hljómsveit Bent Fabricius-Bjerre. Árlega er haldin samkeppni evrópskra sjónvarpsstöðva um skemmtiþætti, og fer keppnin fram í Montreux í Frakk- landi. Til þessarar samkeppni, sem fór fram nú í maí, sendu Danir þátt þann sem við sjáum í kvöld. Skemmtikröftum er það mikill heiður að vinna þessa samkeppni og eru sigurverðlaunin hvorki meira né minna en rósúrgulli. Þessi norska söngkona, Wenche Myhre, sem kemur fram fyrir hönd Dana, er 31 árs gömul. Hún er gift dönskum tannlækni og býr í Danmörku. Auk þess að vera þekkt og vinsæl söng- kona í Danmörku er hún einnig mjög vinsæl í heimalandi sínu, Noregi, Svíþjóð og í Þýzkalandi, en i Þýzka- landi hefur hún nýlega tekið við verð- launum fyrir söng.en þessi verðlaun eru nefnd Gullmyndavélin. Þýzka sjón- varpsblaðið Hör-Zu veitti henni þessi verðlaun og i keppninni yfirbugaði Wenche bæði þær Mireille Mathieu, sem vann söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva sl. ár, og einnig eftirlæti Þjóðverja, Caterinu Valente. Wenche byrjaði að syngja aðeins fjög- urra ára gömul. Þremur árum síðar keyptu foreldrar hennar handa henni fiðlu, en úr fiðlunámi varð litið sem ekk- ert, þvi að söngurinn hafði þá þegar náð tökum á henni. ^ Sjónvarp Föstudagur 26. maí 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dapskrá. 20.35 Bavianar (Li. Dýralifsmynd úr mynda- flokknum „Survival". í Botswana i Afriku býr samhent fjölskylda bavíana, samtals um 120 apar. Þessi mynd sýnir, að bavíanar eru skyn- söm og ástrík dýr, sem hugsa vel um aflcvæmi sin og búa þau undir framtíðina. Þýðandi og þulurGuðbjörn Björgólfsson. 21.00 Margt getur skemmtilegt skeð (L). Norska söngkonan Wenche Myhre skemmtir ásamt Per Pallesen, Eddie Skoller, Jimmie James og hljómsveit Bent Fabricius-Bjerre. Þessi þáttur er framlag danska sjónvarpsins til samkeppni evrópskra sjónvarpsstöðva um skemmtiþætti, sem haldin er ár hvert í Mon- treux í Frakklandi. (Nordvision — Danska sjónvarpið). 21.40 Eyðingin hljóða(L). (Holt vidék) Ungversk biómynd frá árinu 1972. Leikstjóri István Gaál. Aðalhlutverk Mari Törocsik, István Fernczi og Irma Patkós. Þorp nokkurt i Ung- verjalandi er að mestu leyti komið í eyði. íbú- arnir hafa flust til borganna, þar sem betri lífs- kjör bjóðast. Enn eru i þorpinu ung hjón og gömul kona. Þýðandi Jón Gunnarsson. 23.20 Dagskrárlok. Eftir stúdentspróf hafði Wenche hugsað sér að nema læknisfræði, en af því varð ekki, einkum vegna þess að á þeim árum var hún þegar orðin eftirsótt- ur skemmtikraftur. Árið 1964 tók hún þátt í söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva og fékk önnur verðlaun fyr- ir lagið Lad mig være ung. Núna er Wenche þriggja barna móðir og á fjölskyldan hús i Danmörku og Noregi. í Noregi á hún mjög stórt hús á eyjunni Nesöya sem liggur um 15 km frá Osló, en lögheimili hennar er i Dan- mörku, í Charlottenlund. Það verður því gaman að fá að heyra í þessari söngkonu, sem er svo vel þekkt og vinsæl hjá frændþjóðum okkar en hefur ekki enn notið vinsælda hér hjá okkur íslendingum. Þátturinn er í litum og um 40 mín- útna langur. RK Föstudagur 26. maí 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegíssagan: „Glerhúsin” eftir Finn Söeborg. Halldór S. Stefánsson les þýðingu sina (5). 15.00 Miðdegistónleikar. Alexander Schneider kvintettinn leikur Strengjakvintett í E-dúr nr. 5 op. 13 eftir Boccherini. Marilyn Horne syngur ariur úr óperunum „Carmen" eftir Bizet og „Samson Dalila" eftir Saint-Saens. Óperuhljómsveitin í Vin leikur. Henry Lewis stjórnar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veður- fregnir). 16.20 Popp. 17.20 Tónlistartími barnanna. Egill Friðleifsson sér um timann. 17.40 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Boðið til veizlu. Bjöm Þorsteinsson prófessor flytur sjöunda og siðasta þátt sinn úr Kínaferð 1956. 20.00 Frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands 27. apríl sl. Halldór Vilhelmsson syng- ur með söngsveitinni Fílharmoniu og Sin- fóniuhljómsveit íslands „Sigurljóð" eftir Johannes Brahms. Stjórnandi: Marteinn Hunger Friðriksson. Kynnir: Jón Múli Ama son. 20.30 Hákarlaútgerð Eyfirðinga á siðari hluta 19. aldpr. Jón Þ. Þór sagnfræðingur flytur þriðja erindisitt. 21.00 West Side Story. Sinfóníuhljómsveitin i San Francisco leikur „Sinfóniska Dansa" úr West Side Story eftir Leonard Bernstein; Seiji Ozawa stjórnar. 21.20 „Straumendur”, smásaga eftir Jón Helgason. Ámi Blandon les. 21.40 Sinfónía nr. 49 í f-moll eftir Haydn. Ungverska filharmoníusveitin leikur; Antal Dorati stjórnar. 22.05 Kvöldsagan: Ævisaga Sigurðar Ingjalds- sonar frá Balaskarði. Indriði G. Þorsteinsson les siðari hluta (13). 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Áfangar. Umsjónarmenn: Ásmundur Jónsson ogGuðni Rúnar Agnarsson. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Hjallafiskur Mcrkið sem vann harðfisknum nafn Fœst hjó: Kaupfélag Þingeyinga Hjallur hf. - Sölusimí 23472 Bílavík hf. Baldursgötu 14, Keflavík — Sími 3570. Heimasími 2423. Bílaleiga. Vélastillingar. Almennar viðgerðir. Varah/utirá staðnum. Reynið viðskiptin. Selfoss og nágrenni múrþéttingar, sprunguviðgerðir. Margra ára reynsia. KJARTAN HALLDÓRSSON SÍMI3863 HREVnLL Sími 8-55-22 BAST Q LJOS 1 VERDFRA KR. 6.965.- RIS- KÚLUR Ýmsar gerðir frákr. 1.770.- Landsins mesta /ampaúrva/ LJOS & ORKA Suðurlandsbraut 12 simi 84488 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. MAÍ1978.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.