Dagblaðið - 19.06.1978, Page 3

Dagblaðið - 19.06.1978, Page 3
Spurning dágsins DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19.JÚNÍ 1978. Ætla andstöðuflokkamir líka að fara illa með bifreiða eigendur? 1368—1686 skrifar: Það er ein spurning sem mig langar að leggja fyrir andstöðuflokka rikis- stjórnarinnar. Ef þeir komast að völdum hvort þeir ætla að rétta hag bifreiðaeigenda eða halda áfram að fara í vasa þeirra? Það eru margir 'bifreiðaeigendur hér á landi, enda ríkisstjórnin búin að tapa tugum þúsunda atkvæða fyrir hömlulaust svínarigagnvartþeim. Hvernig geta ráðherrar sem brotið hafa stjórn- arskrána boðið sigfram? Magnús Guömundsson á Patreksfirði skrifan Nokkur orð vegna alþingiskosning- anna sem fram fara 25. júní en þá fá landsmenn tækifæri til þess að dæma og velja sér fulltrúa til Alþingis. Það eru ótrúlega margir sem telja alþingis- menn og ráðherra ábyrgðarlausa en þvi fer fjarri. Þeir bera mikla ábyrgð og er hægt að lögsækja þá rétt eins og aðra menn. Á síðasta löggjafarþingi var þvi haldið fram af alþingismanni að ráðherra væri sannur að skjalafölsun- um og svikum. Þingmaðurinn lýsti því. yfir að skýrsla iðnaðarráðherra vegna Kröflu væri svikin og fölsuð. Skjala- fölsun varðar við hegningarlögin. Hvernig getur ráðherra boðið sig fram til Alþingis ef hann er talinn hafa svikið skjöl? Stjórnarskrá lýðveldisins ber að halda og eiga alþingismenn og ráð- herrar að virða hana og halda vörð um að ákvæði innan hennar séu virt. Með lögum skal land byggja en ólögum eyöa. Það gerðist einnig á síðasta lög- gjafarþingi að forsætisráðherra setti „lög” sem brutu í bága við stjórnar- skrána, ólög sem tættu í sundur samningsréttinn. Síðan bað Geir landsmenn að virða ólögin. Fjármála- ráðherra refsaði opinberum starfs- mönnum fyrir að virða ekki ólögin. Menn sem haga sér svona eiga ekki heima á Alþingi Islendinga. Til að staðfesta framanskráð skal hér vitnað i lög um ráóherraábyrgð: „J. gr. Ráðherrar bera ábyrgð á stjórnarfram- kvæmdum öllum eftir því sem fyrir er mælt i stjórnarskrá og lögum þessum. 3. gr. Sá ráðherra sem ritar undir lög eða stjórnarerindi með forseta ber ábyrgð á þeirri athöfn. 8. gr. Ráðherra ber ábyrgð á ef hann annars fram- kvæmir sjálfur, fyrirskipar fram- kvæmdir á eða lætur viðgangast að framkvæmt sé nokkuð það sem fer i bága við stjórnarskrá lýðveldisins 10. gr. Loks verður ráðherra sekur eftir lögum þessum: a) ef hann misbeitir stórlega valdi sinu, enda þótt hann ‘hafi ekki beinlinis farið út fyrir embættismörk sin. 13. gr. Hafi ráðherra bakað almenningi eða einstaklingi fjártjón með framkvæmd eða vanrækslu sem refsiverð er eftir lögum þessum skal og þegar þess er krafizt jafnframt t hegningunni dæma hann til að greiða skaðabætur, en um skaðabótaskyldu hans fer eftir almennum reglum. Landsdómur fer með og dæmir mál þau sem Alþingi ákveður að höfða gegn ráðherra út af embættisrekstri þeirra." Núna er það kjósandinn sem dæmir við kjörborðið 25. júní 1978. Ef skipt verður um rlkisstjórn verður þá gert meira fyrir bileigendur? DB-mynd Ragnar. Ég er til í allt . . . búin 1340 watta afli og r 12 lítra rykpoka. « k (Made in USA) 1 STERKASTA RYKSUGA í HEIMI HOOVER S-3001 Hoover S-3001 er á tnargan hátt lang sterkasta heitnilisryksuga sem þekkist. Af 1340 watta afli hreinsar hún öll þtn teppi af hvers kyns óhreinindum. Breyta má um sogstyrk eftir því hvað hentar. Þér til mikils vinnuhagrceðis er rofinn íhandfanginu, undirþumal- fingrinum. Að hreinsa kverkar er aldeilis aUðvelt, stillanlegt sog- stykki sérfyrirþvi. Stór hjólog hringlaga lögun gera Hoover S-3001 einkar lipra í snúningum, hún rispar ekki húsgögnin þín. Til þceginda er sjálfvirkt inndrag á aðtauginni. Hoover S-3001 ber sjálf öll hjálpartceki, svo nú geturþú loksins haft fullt gagn af þeim. Og ekki síst, 12 lítra rykpoki sem enst getur þér t marga mánuði án tcemingar. Hringlaga lö rtin gefur hinum risastora 12 lítra rykpoka nœgjanlegt rými. HOOVER er heimilishjálp. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 ® Pekking /feynsla 'Þjonust SENDUM BÆKLINGA Finnst þér ástæða til að f riða hvali? Guðrún Jóhannsdóttir húsmóðir og verzlunarmaðun Nei. alls ekki. Þeir eru ekki i neinni hættu. Þessir Greenpeace menn hafa rangt fyrir sér. Pétur Ólafson leigubilstjóri: Ég vil benda á i þessu sambandi að hval eins og allan annan fisk á að friða ef hann er i hættu. Kannski væri i lagi að hvila hvalastofninn eitthvað en ég ber fullt traust til sérfræðinga okkar þegar þeir segja að hann sé ekki i hættu. Loftur Ásgeirsson Ijósmyndari: Nei. nei. Mér finnst ekkert hafa komið fram sem bendir til ofveiði en þeir verða auðvitað að passa upp á að til hennar komi ekki. Gils Guðmundsson alþingismaður: Eg tel nauðsynlegt að gæta mikilla varúðar í hvalveiðum. Hins vegar sé ég ekki nægilega sterka röksemd til þess að friða stofninn. Ef það er rétt að einstakar hvalaiegundir séu ofveiddar á hins vegar að takmarka veiðar á þeim. Guðjón Guðmundsson nemi i húsasmlði: Ég veit ekki. Ég held að við eigum nóg af hvölum til þess að leyfa veiðar. Það segir Matthias. Pétur Guðjónsson verzlunarmaður: Nei, það er allt i lagi að veiða þá. Það skapar atvinnu.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.