Dagblaðið - 19.06.1978, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19.JÚNÍ 1978.
Lauksúpan er með ódýrarí réttum
Allir voru með tömar skjöður þegar lagt var af stað en vel fullar þegar komið var til baka eftir klukkutlma verzlunarferð.
Fólkið var sammála um að þetta væri frábæriega góð þjónusta. DB-mvnd Bjarnleifur.
ELLILÍFEYRISÞEGU NU M
EKIÐ TIL OG FRÁ
VERZLUNINNI
„í Furugerði 1 býr fólk sem hefur
eldunaraðstöðu og þarf á því að halda
að geta komizt í búð og verzlað. Því
höfum við ákveðið að flytja þá sem
vilja koma að verzluninni, bíða í einn
klukkutíma og aka siðan fólkinu heim
aftur,” sagði Jóharines Jónsson
verzlunarstjóri í SS-búðinni í Austur-
veri i samtali við DB.
„Þessi þjónusta verður framvegis á
fimmiudagsmorgnum og efa ég ekki
að folkið verður fegið að fá flutning á
verzlunarstað, t.d. í vetur þegar færð
verður ekki eins góð og á sumardegi,”
sagði Jóhannes.
Fólkið var ákaflega ánægt með
þessa nýju þjónustu og ein konan,
sagði að þetta væri hreinasta guðsgjöf.
Allir luku upp einum munni um að
aðstaðan í Furugerðinu væri alveg til
fyrirmyndar.Hins vegar fannst gamla
fólkinu að verðlag I landinu á
nauðsynjavörum væri orðið óguðlegt
og ekki hægt að láta endana ná saman
nema með ýtrustu sparsemi og
ráðdeildarsemi.
A.Bj.
Flutningskostnaöur
gosdrykkjanna útá
land virðist gífurlegur
Raddir neytenda
Er ódýrara að flytja gos til
Grímseyjar en Egilsstaða?
Guðrúti Jónsdóttir á Egilsstöðum
hringdi:
Hún er fín hjá ykkur þessi nýja
neytendaþjónusta sagði Guðrún. Hún
lýsti sérstakri ánægju sinni með verð-
samanburðinn I Reykjavik og úti á
landi.
Guðrún benti okkur á að verð á gos-
drykkjum I Reykjavík og úti á landi
væri ákaflega ólikt og bað okkur að
bera saman.
Guðrún gaf okkur upp verð á
nokkrum algengum gosdrykkja-
tegundum sem fást í verzlunum á
Egilsstöðum. Við höfum aflað okkur
upplýsinga um verð á gosdrykkjum i
Grimsey og fer hér á eftir saman-
burður á þessu verði úti á landi og við
það sem verðlagsstjóri hefur gefið upp
sem hámarksverð á gosdrykkjum I
Reykjavik. í tilkynningu verðlagsstjóra
segir að „heimilt sé að bæta áföllnum
flutningskostnaði við hámarksverð
gosdrykkjanna.”
Tegund Egilsst. Reykjavík Grímsey
Minnsta kók 100 48 85
Líters kók 380 209 ekki til
Appelsín 110 59 90
Freska 120 65 ekki til
Malt 150 93 140
Sinalco 115 62 ekki til
Fanta — lítri 405 234 ekki til
Pilsner 155 96 ekki til
Thule ekki til 124 .138
Það kostar mismunandi mikið að svala þorstanum I gosdrykkjum hvort heldur þú
ert I Grímsey eða á Egilsstöðum og mun dýrara en það er 1 höfuðborginni.
SUMAR
VQRUR
«A* GRÁFELDUR HF.
#% ÞINGHOLTSSTRÆTI2
Mörgum þykir gott að fá piatar-
mikla súpu í stað heils miðdegisverðar.
Þá er frönsk lauksúpa tilvalin.
4—500 gr laukur (77.50)
1 matsk. smjörl.
1 kjötsoðeða
vatnogteningur(2) (20,40)
krydd:
timian, lávirðarlauf, (steinseljugrein)
pipar, chiliduft (50.00)
— Skammturinn rétt innan við 150 kr.
250 gr 45% ostur (388.75)
1/2 brauð (50.00)
4 franskbrauðsneiðar m/hvitlauks-
dufti.
594.00= 148.50 pr.skammt.
Laukurinn er skorinn smátt og
brúnaður í smjörlikinu (gætið þess að
hann brenni ekki). Ef hann vill festast
við má bæta 1—2 matsk. af vatni
saman við.
Soðinu er hellt á laukinn og soðið
við vægan hita í 1—2 klst. Kryddið er
soðið með.
Rífið ostinn og ristið fransk-
brauðsneiðarnar (þær mega gjarnan
vera fleiri en ein á mann). Súpunni er
hellt í ofnfasta súpuskál, brauðinu
raðað ofan á og þykku lagi af rifnum
osti stráð yfir. Bakist i 250° C heitum
ofni þar til osturinn er bráðinn og
myndazt hefur ostskán yfir alla skálina
eðaíumþað bil20mín.
Smyrjið franskbrauðsneiðar með
smjöri, stráið hvitlauksdufti yfir (ekki
hvitlaukssalti) og bakið i ofninum um
leið og súpuna í 5—10 min. og berið
fram meðsúpunni.
STARFSKR AFTU R
ÓSKAST.
Steypustöð Suðurnesja.
Sími 92—1133 og 92—1952.
Ný og góð þjónusta:
Hjallafiskur
Msrkið sem vann harðfisknunf nafn
F«St hjó: Þinghott
Gnindaretíg 2A
' ~*V' •
HJallíirhf.- Sölusími 23472