Dagblaðið - 19.06.1978, Page 10

Dagblaðið - 19.06.1978, Page 10
10 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19.JÚNÍ 1978. Hjólaskáflur Getum útvegað eftirtaldar hjólaskóflur með stuttum fyrirvara: 1. Michigan 175IIIA ’73, mjög góð. 2. IH Hough 90 ’70, mjög góð. Borgartúni24, R. Shnar28590og28575. PASSAMYNDIR t hvitt a í- min. * LITUR ENGIN • BIÐ ! * * Ljósmyndastofa AMATÖR * * LAUGAVEGI 55 ‘S' 2 27 18 * L -y? y? -x- -x- -x- -x- -x- -x- -x- *• W * -x- -x- ->f HOTEL LOFTLEIÐIR Kalda borðið -kjörið í hádeginu Kræsingar kalda borðsins í Blómasal eru löngu víðkunn- ar. Óteljandi tegundir af kjöt- og sjávarréttum auk íslenskra þjóðarrétta. Tískusýningar í hádeginu á föstudögum. Bjóðið viðskiptavinum og kunningjum í kræsingar kalda borðsins. Verið velkomin, Hótel Loftleiðir. ZINC 132 RYÐVARNAREFNI Myndar sterka húð, sem lokar yfirborðinu fyrir frekari ryðmyndun. Zinc. 182 er einnig ágætur grunnur undirlakk. Zinc 182 er frábært efni. Framleiðendur þeir sömu og framleiða hið vel þekkta Isopon og P-38 viðgerðar-og fyllingarefni. Þeir þekkja vandamálin.____ (fflílnaust h.f SlÐUMÚLA 7—9 • SlMI 82722 REYKJAVlK Argentína: Ritstjórí myrtur i bifreiö sinni fangelsum lögreglunnar Þekktur argentínskur ritstjóri, sem hvarf 2. júní síðastliðinn, fannst látinn í bifreið sinni á götu i Buenos Aires í siðustu viku. Er hann hvarf var hann á leið til læknis. Ekki er vitað með vissu hverjir morðingjar ritstjórans eru en talið vist að þar hafi einhver hryðjuverkahópanna sem njóta vernd- ar ríkisstjórnarinnar verið að verki. Munu þeir hafa fyrir venju að kynna sig sem sendimenn öryggislög- reglu landsins er þeir taka fórnardýr sín. Hafa þúsundir Argentínumanna horfið þannig sporlaust eða verið myrtir. Yfirvöld hafa ekkert viljað segja um dauða ritstjórans en vitað er að opin- berir aðilar hafa lýst yfir óánægju sinni með að blöð hafa meðal annars birt nöfn nokkurra blaðamanna sem horfið hafa sporlaust eða orðið fyrir árásum að undanförnu. í lok síðustu viku komu allt i einu þrír læknar í leitirnar en til þeirra hafði ekkert spurzt siðan 15. apríl. Kom í Ijós að þeir voru í gæzlu lögregl- unnar i Buenos Aires. Engin ákæra hefur verið birt á hendur læknunum og þeir ekki fengið að vita hvað þeim er gefið að sök. Ritstjórinn sem myrtur var skrifaði einkum um efnahags- og fjármál í blað sitt. Miklir jarðskjálftar voru í Japan fyrir nokkrum dögum og á myndinni sést hvernig bensínsöluskýli hefur dottið á hliðina. Ekki er vitað hvort einhver slasaðist þar en i heildina mun tuttugu og einn hafa farizt f jarðskjálftunum. Tíu fiskimenn skotnir niður Að minnsta kosti tíu thailenzkir fiskimenn létu lifið er fallbyssubátar frá Kambódíu réðust á togbáta þeirra á hafinu þar sem landhelgi rikjanna mætist á Thailandsflóa. Að sögn lögregluyfirvalda í Thai- landi var árásin gerð á laugardaginn er tveir fallbyssubátar vopnaðir sprengjuvörpum og hríðskotarifflum réðust að sjö togbátum og hófu á þá skothrið. Skömmu síðar komu thai- lenzkir varðbátar á vettvang og skipt- ust á skotum við hina kambódisku. Tókst þeim að eigin sögn að ná aftur þrem togbátum. Sambúð Thailands og Kambódíu hefur verið mjög stirð síðan rauðu kmerarnir tóku völdin í hinu síðar- nefnda. Raunar hefur Kambódia eld- að grátt silfur við alla nágranna sina síðustu mánuði. Japan: Þrjátíu og sex taldir drukknaðir í methita Talið er að þrjátíu og sex manns hafi drukknað er hundruð þúsunda Japana flykktust á baðstrendur um síðustu helgi. Ástæðan fyrir örtröðinni var mesti hiti sem nokkru sinni hefur komið þar siðan mælingar hófust.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.