Dagblaðið - 19.06.1978, Qupperneq 13

Dagblaðið - 19.06.1978, Qupperneq 13
DAGÖLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 1978. Sjálfstæðisflokknum einum treystandi í utanríkis- og varnarmálum verður komist hjá því vegna innlendra stjórnmálaaðstæðna, og Ijóst er að það er framsóknarmönnum síður en svo kappsmál að Íslendingar taki áfram þátt í starfi Atlantshafsbandalagsins. Stefna Alþýðubandalagsins Í stefnuskrá Alþýðubandalagsins, sem gefin er út I Reykjavík árið 1975 segir svo i kafla um „utanríkis- og sjálfstæðismál”: „Stefna Alþýðubandalagsins i utan- ríkismálum tekur mið af viðhorfum þess til innanlandsmála og er þeim samofin. Meginmarkmiðið er að tryggja sjálfsákvörðunarrétt og full- veldi þjóðarinnar, varðveislu og við- gang íslenskrar menningar og þjóð- ernis, jöfnuð og lýðræði meðal lands- manna og örugga afkomu í bráð og lengd. Undirstaða þessa eru óskoruð yfirráð yfir landinu, gögnum þess og gæðum, ásamt öllum auðlindum islenska landgrunnsins og sjávarins yfir þvi. Baráttu íslendinga fyrir stjórnarfarslegu sjálfstæði ber að byggja á vinsamlegum samskiptum við önnur ríki á jafnréttisgrundvelli. Rétt okkar sem sjálfstæðs þjóðríkis eigum við að tryggja með virkri aðild að Sameinuðu þjóðunum og hlut- lausum alþjóðastofnunum. Á sjálfs- ákvörðunarrétti okkar hljótum við að standa af fullri reisn og einurð og verja hann með friðsamlegum hætti af þeim styrk sem felst í vopnleysi og hlutleysi i stórveldaátökum. í samræmi við þetta berst Alþýðubandalagið fyrir því að island standi utan allra hernaðar- bandalaga og leyfi engu ríki hér neins konar hernaðaraðstöðu eða gefi kost á að farið sé héðan með rangsleitni gegn öðrum þjóðum. Þvi er það stefna flokksins að bandarikjaher hverfi sem fyrst með allt sitt af íslenzkri grund og ísland segi sig úr Atlantshafsbanda- laginu. Á alþjóðavettvangi eiga íslendingar að styðja og setja fram þau sjónarmið er stuðla að þjóðlegu fullveldi ríkja gegn auðdrottnun og hernaðarsam- steypum stórvelda. Jafnframt verði af okkar hálfu fordæmd hvers kyns hernaðarihlutun í milliríkjasam- skiptum og lýst fylgi við almenna afvopnun til tryggingar heimsfriði. í utanríkisverslun ber okkur að leita sem víðast fanga og markaða fyrir íslenzkar afurðir, en forðast að ánetjast einstökum viðskiptasvæðum og samsteypum er skert gætu full- veldi okkar, efnahagslegt og stjórn- málalegt. Þannig eigum við að standa utan við markaðssamsteypur og efna- hagsbandalög, er lúta stórveldaforsjá, en taka þátt í efnahagssamvinnu á jafnréttisgrundvelli er miði að því að styrkja sjálfsforræði okkar sem smá- þjóðar. Á þessum grundvelli eigum við að leggja sérstaka rækt við téngsl okkar við aðrar norðurlandaþjóðir og hlúa að norrænu samstarfi er stefni að þvi að treysta samnorræna menningu og sjálfsákvörðunarrétt hverrar norður- landaþjóðar, svo og samvinnu þeirra á efnahagssviði og um alþjóðamálefni. Utanrikisþjónusta okkar þarf að vera virk og vinna að alhliða hags- munum þjóðarinnar, m.a. með þvi að tryggja nauðsynleg samskipti við alla heimshluta. Þar getur öflugt starf innan Sameinuðu þjóðanna orðið smá- þjóðaðmiklu liði. [ umhverfismálum á íslensk alþýða sérstakra hagsmuna að gæta við hlið þeirra þjóða er byggja norðlægar slóðir og hafa við sambærileg vanda- mál að glíma, svo og með fiskveiði- þjóðum um allan heim. 1 þessum efnum ber okkur að hafa frumkvæði um samvinnu og stuðla að alþjóða- samningum og svæðisbundnu sam- komulagi. Einnig ber okkur að eiga hlut að rannsóknum og eftirliti til vemdar vistkerfa sjávar og norðlægra landsvæða." Hér þarf í rauninni ekkert að koma á óvart, stefna íslenskra kommúnista í utanrikismálum hefur jafnan verið hin sama i meginatriðum. Sú stefna kann hins vegar að reynast háskalegri nú en oft áður, þegar allt virðist benda til þess að Alþýðubandalagið sé orðinn eða að minnsta kosti að verða, næst stærsti stjórnmálaflokkurinn hér á landi. Aðeins Sjálfstæðisflokkurinn er stærri, og því er enn mikilvægara en ella hið mikla hlutverk hans í að tryggja öryggi þjóðarinnar. Stefna Alþýðuflokksins í stefnuskrá Alþýðuflokksins, sem samþykkt var á 37. þingi flokksins, I október 1976, segir svo í IV. kafla, „ísland í samfélagi þjóðanna”: „Mikill hluti mannkyns býr við ófrelsi og ófrið, hungur og fáfræði. Þjóðir eru undirokaðar. Auði er mis- skipt. Það er kjarni jafnaðarstefnu að berjast gegn slíku ranglæti. Boðskapur hennar er friður um viða veröld, frelsi öllum til handa, jafnrétti i 'skiptingu lífsgæða og bræðralag með mönnum . og þjóðum. Með alþjóðasamstarfi skal vinna að friði í heiminum og aðstoð við þær þjóðir. sem eru afskiptar í efnahags- málum eða búa við órétt i stjórn- málum. Alþýðuflokkurinn telur, að utan- ríkisstefna lýðveldisins Islands eigi að markast af þjóðlegri reisn og metnaði til að varðveita fullveldi þjóðarinnar og lýðræðislegt stjórnarfar. Gæta verður efnahagslegs og menningarlegs sjálfstæðis þjóðarinnar. Alþýðuflokkurinn telur nauðsyn- legt að vinna að vinsamlegum sam- skiptum við allar þjóðir í þágu friðar í heiminum. Hann styður lýðræðislegar frelsishreyfingar kúgaðra þjóða og heilbrigða skiptingu á framleiðslu jarðar milli allra ibúa hennar. íslendingar eiga að byggja utanríkis- stefnu sína á þátttöku í Sameinuðu þjóðunum og norrænu samstarfi. Alþýðuflokknum er ljóst að afnám hvers konar hernaðarbandalaga er alger forsenda fyrir raunhæfri friðvæðingu í heiminum og afvopnun allra þjóða. Þess vegna styður hann og leggur áherzlu á alla raunhæfa viðleitni er stefnir að því marki. Alþýðuflokkurinn berst fyrir því að tryggja sjálfstæði og fullveldi íslenzku þjóðarinnar, öryggi hennar og alger yfirráð yfir landi, landgrunni og hafinu yfir þvi. Jafnaðarstefnan er i eðli, sinu. alþjóðahyggja og verður ekki fram fylgt til hlítar nema með samvinnui allra þjóða. Utanríkismál fela í sér viðleitmi mannkynsins til að móta eigin framtíð og eru að þvi leyti sambærileg hinum stefnumarkandi hugsunarhætti innan landsstjórnmála. Nú bjóðast smáþjóð um fá tækifæri til að koma fram hugsjónamálum eða heildarstefnu á alþjóðavettvangi, þar sem sérhags munir og hnefaréttur ráða mestu. íslendingar gera sér grein fyrir þessum leikreglum en vilja stuðla að breytingum á þeim i þá átt :ið atika mátt alþjóðasamtaka. alþjóðasairistarf og alþjóðlegrar stefnumörkunar i \cl ferðarmálum alls mannkyns.” Hér er hvergi minnst á Atlantshafs- bandalagið, hvergi minnst á varnar- liðið, hvergi er minnst á aukin umsvif Sovétmanna á norðurhöfum. hvað þá á þau umsvif sem Sovétrikin eru með í fjarlægari heimshlutum, til dæmis i Afríku. í ályktun flokksþingsins segir hins vegar; „Alþýðuflokkurinn berst fyrir því að tryggja sjálfstæði og full- veldi íslensku þjóðarinnar, öryggi hennar og alger yfirráð yfir landi, landgrunni og hafinu yfir þvi”. Hér vantar ekki kokhreystina. en hætt er við þvi að Sovétmenn tækju lítið mark á yfirlýsingum íslenskra krata ef þeir hygðu sér til hreyfings. Þeir hafa gert það I fjarlægum heimshornum, þeir hafa gert það I Evrópu, og reynslan sýnir að þcir meta einskis skoðanir okkar vesturlandabúa á hernaðaríhlutunum þeirra eða hvernig mannréttindamálum er háttað I hinum miklu fangabúðum, Sovétríkj- unum. Þvi skyldum við færa þeim sjálfstæði okkar á silfurfati? Sjálfstæðisflokknum einum er treystandi Það er alveg Ijóst, að eina aflið í islenskum stjómmálum sem treystandi er til að gæta hagsmuna lands og þjóðar i utanrikis- og varnarmálum, er Sjálfstæðisflokkurinn. Stefna flokksins er skýr og ákveðin, að óbreyttum að- stæðum á ísland að vera aðili að Atlantshafsbandalaginu, og hér skal enn um sinn dvelja bandariskt varnar- lið. Reynslan hefur sannað, að hvorki framsóknarmönnum né krötum er treystandi I þessum málurn nenia þegar þeir eru I stjórn með sjálfstæðis- mönnum. Valið stendur því á milli þess i alþingiskosningunum þann 25. júni. hvort stefna sjálfstæðismanna verður ráðandi I utanríkismálum áfram. eða hvort kommúnistar taki stjórn utan- rikis- og varnarmála i sinar hendur., Valið hlýtur að vera auðvelt fyrir þá sent vilja að ísland sé áfrant i sam- ielagi hinna lýðfrjálsu þjóða heints. en það eru engan veginn sjálfsögð lor rcttindi í þessum viðsjárserða hennr Anders llansen franik';eiinlaslj(iri. ^ Þörf áminning almennings til stjómmálaflokkanna er tvímælalaust mjög öflugt tæki til hagstjómar ef honum er rétt beitt. Því miður hefur reynslan orðið sú að hann hefur að verulegu leyti brugðist hlut- verki sínu, og hefur a.m.k. frysti- og saltfiskdeildum sjóðsins frekar verið beitt sem styrktarsjóði en verðjöfnunarsjóði. Flest árin hafa verið greiddar verðbætur úr sjóðnum, þrátt fyrir hagstætt árferði og ytri skilyrði. Þar sem sveiflur á út- flutningsverðmæti eru mikið álag á stjórn peningamála og breiðist fljótt út um allt efnahagslifið getur verðjöfnunarsjóður, ef honum er rétt beitt, verið mjög mikilvægt hagstjórn- artæki, ekki aðeins fyrir sjávarút- veginn, heldur lika einnig þjóðar- heildina. Þegar vel árar i sjáv.arútvegi, hefur líka verið of mikil tilhneiging til að auka opinber útgjöld og ráðast í framkvæmdir, og hlýtur það að vera veigamikill þáttur í að spenna upp verðbólguna. Gifurlegar erlendar lántökur eru í alltof ríkum mæli notaðar i óarðbærar fjárfestingar. — og til að jafna halla ríkissjóðs með verðlausum verðbólgu- krónum, — en þar er um beina aukningu á peningamyndun að ræða, — eða réttu nafni nefnt verðlaus seðlaprentun. Er þarna I vaxandi mæli farið inn á þá óábyrgu stefnu, að setja þungar byrðar á þá kynslóð, sem nú er að vaxa úrgrasi. Sú neikvæða vaxtastefna, sem við höfum búið við, hefur hlaðið undir verðbólgubálið. — Hún ýtir undir alls- konar fjármálabrask og færir fé frá þeim sem spara til þeirra sem nýta sér verðbólgu og neikvæða vexti á kostnað sparifjáreigenda og til þeirra sem geta haft óeðlilega greiðan aðgang að bankakerfinu. Og hverjir hafa svo aðgang að lána- markaðinum? — Þar er fólk dregið í dilka, — og þar fá ýmsir að kenna á aðstöðumun, og ýmsum pólitiskum út- hlutunum, sem þar eiga sér stað. Lánakerfið er þvi orðið að pólitísku styrkjakerfi og stjórnlausum eigna- tilfærslum. Fróðlegar tölur hafa komið fram i þessu sambandi, sem sýna I raun fram á þessar peningatilfærslur frá sparifjáreigendunt til verðbólgu- braskara. — Reiknað. hefur verið út, að á sl. ári hafi sparifjáreig- endur orðið að sæta verðrýrnun i bankakerfinu er nam 14 milljörðum króna. Og á siðustu 4 árum nam hún um 40 milljörðum króna. — Þarna er lögleg leið notuð til að stela gífurlegum fjármunum frá almenningi. — Vaxtastefnan hefur þvi enn aukið á ranglætið i skiptingu tekna ogeigna. Til að hafa hemil á verðbólgunni og þessu mikla tapi sparifjáreigenda verður þvi að taka upp virkari vaxta- stefnu og beita vöxtum og visitölubindingu lána I mun rikari mæli, meðan verið er að vinna bug á verðbólgunni. Raunvextir til samræmis við verðbólgu og verðtrygging lána myndi líka hvetja til að meira tillit væri tekið til aukinnar arðsemi fjárfestinga. Reikningsskil Mikilvægur þáttur I uppbyggingu heilbrigðs efnahagslífs er að efnahags- stefnan njóti skilnings og viður- kenningar verkalýðshreyfingarinnar. — Forsenda þess að vel takist í þeim efnum er náið samstarf og samvinna við aðila vinnumarkaðarins. hvað varðar mikilvægar ákvarðanir I efna- hagsmálum. —Gæti sú samvinna betur leitt til þess að dregnar yrðu samræmdar línur í efnahags- og kjara- málurn, sem stuðluðu að stöðugleika efnahagslífsins, og tryggðu jafna og varanlega kaupmáttaraukningu og launajöfnuð. Grundvallaratriði fyrir slíkri sam- vinnu — og raunar algjör forsenda, — er að gerðir samningar um kaup og kjör launafólks séu haldnir jafnt og aðrar fjárskuldbindingar i þjóð- félaginu. Ég hef hér aðeins drepið á örfá at- riði, sem ég tel að beita ætti’gegn verðbólguvandanum, sem er orðinn ógnvaldur efnahagslegu frelsi þjóðarinnar. Verðbólgukapphlaupið er orðið svo gifurlegt að hér keyra allir-á fullu— boginn spenntur til hins itrasta — og kapphlaupið heldur linnulaust áfram við sífellt minnkandi verðbólgukrónur. — Af þessu leiðir að verðmætaskyn almennings er orðið svo brenglað, — og verðbólgu- hugsunarhátturinn svo gróinn i hug- um fólks, að í kapphlaupinú gleymir fólk öllu siðgæði og tilliti til náungans. Hér verður aðsöðla um. Undirslaða þess að þetta takist er lika breytt hugarfar, nteiri skilningur og traust ntilli atvinnurekenda og launþega. og ekki siður milli ríkisvalds og alls almennings i landinu. Rikisvaldið verður þarna að liafa frumkvæðið. •— Það hefur brugðist trausti almennings og mun því örugg- lega reynast erfitt að endurheimta það. En þeir hljóta sinn dóm I kjörklefunum, sent til þess hafa unnið. Almenningur krefst þess að mörkuð sé skýlaus og traustvekjandi stefna og forysta.—Hann krefst reikningsskila að starfað sé fyrir opnum tjöldum i íslenzkum stjórnmálum. —- Lýsa þarf upp skúmaskot fjármála, fjárfestingar- mála. bankamála, samtryggingakerfa. svoeitthvað sé nefnt. Þær þjóðfélagslegu umræður sem skapast hafa um vanda efnahags- lifsins, og spillinguna og siðleysið i kerfinu, er það aðhald og sá þrýstingur, sem knýr á um að frum skógur stjórnmálanna verði gri-.jaður. Jóhanna Sigurðardóttir skrifstofumaður.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.