Dagblaðið - 19.06.1978, Qupperneq 14
14
DACiBLADID. MÁNUDAC.UR I9.JÚNÍ 1978.
HEILAGUR
BENEDIKT
OG FARÍSEINN
Kjallarinn
Ljóll oröbragö er hvimleitt. Eilt
öðrn fremur réttlaetir þó óvandaðan
munnsöfnuð: eða hvernig á að bregð
ast við fagurgala ómerkilegra manna.
sem sunginn er af þcim sjálfum til að
breiða yfir maðksmogið hugarfar og
óheilindi þeirra?
Mikill djöfulsins lygari og óheilinda-
maður er hann Benedikt Gröndal.
Lengur get ég ekki orða bundist.
Mér er svo óglatt við tilhugsun til
þessa vesalings manns, að ég veit varla
hvernig ég á að komast fram úr þvi.
sem um hann þyrfti að segja. Það eru
slík endemi að sannleikurinn verður
lyginni líkastur.
F.g held að ég verði að takmarka
það: þetta er þó maður þrátt fyrir allt.
þólt ótrúlegt sé.
Hans heilagleiki,
Benedikt Gröndal II.
Svo lengi sem ég hef setið á mér að
skýra frá morknum innviðum þessa
vesalings manns. gat ég það ekki leng-
ur eftir að ég hafði lesið heilagleika-
grein hans um sjálfan sig og Alþýðu-
flokkinn i Dagblaðinu sl. mánudag.
Þviumlikar endemis lygar og fals og
það gegn betri vitund.
í tilefni af því að eitt ógeðfelldasta
fyrirbrigði islenskra stjórnmála sem
upp hefur skotið kolli siðustu ár. ..nýr
Alþýðuflokkur á gömlum grunni". svo
notað sé orðalag Ben. Ciröndals úr
flokkakynningu á dögun
um. hafði ekki mannskap til þess að
sinna hefðbundinni kosningavinnu.
skrifar formaður fyrirbrigðisins grein
um. „Leyniskrár l'lokkanna om skoð
inir kjósenda". Tilgangurinn er sá
sami og með öllum öðrum áróðri Al
þýðuflokksins siðustu misserin: að slá
sjálfan sig til riddara á upplognum for-
sendum og jafnframt upplognum
starfsaðferðum annarra.
Formaðurinn hefur eftir málpipum
sinum: „Þessi yfirlýsing vakti nokkra
athygli, enda hreyft við mannréttind-
um, sem ótrúlega lítill gaumur hefur
verið gefinn hér á landi.”
Hel'ðu málpipurnar. formaðurinn
sem skipulagði þessa nýju „mannrétt-
indastefnu" og lýðskrumaramir aðrir
úr Alþýðuflokknum aflagt að fylgjast
með þvi hverjir komi á kjörstaðog um
leið hætt afskiptum af kjósendum á
kjördag. heföi ef til vill verið hægt að
hrópa húrra fyrir Alþýðuflokknum. og
ekki verið hægt að tala um lýðskrum.
óheilindi né heldur lygar.
En þvi var ekki að heilsa.
Alþýðuflokkurinn hélt uppi meiri-
háttar persónunjósnum dagana fyrir
kjórdag og á kjördag, margfalt meiri
en dæmi eru til frá því Varið Land
skipulagð harðvítugustu persónu-
njósnir á Islandi með óvönduðustu
meðulum sem þá þekktust. Og vel að
merkja: með dyggilegri aðstoð Alþýðu-
flokksins og Benedikts Gröndals, sem
m.a. lánaði mannvitsbrekkum land-
varnarliðsins merktar kjörskrár Al-
þýðuflokksins frá næstu kosningum
fyrir úthlaup þessara hugsjónabræðra
Benedikts í undirlægjuhætti við er-
lenda herstjórn.
Persónunjósnir Alþýðullokksins
fóru ekki fram á almannafæri. Þær
fóru ekki fram á kjörstöðum. en hefð
bundið starf stjórnmálaflokka á kjör-
stað kallar Benedikt persónunjósnir.
Þetta voru simanjósnir: framhald
þeirra njósna, sem Benedikt heilagur
og vandlætarinn Vilmundur skipu-
lögðu fyrir prófkjör þeirra tvimenn-
inga siðastá liðnuári.
Dagana langa fyrir kjördag og kjör-
daginn sjálfan hringdu fylgisspökustu
málpípur heilags Benedikts i sima eftir
þátttökulista í prófkjöri flokksins og
hvöttu viðmælendur til þess að kjósa
nú rétt og fylgja eftir „sigrinum” frá
því i haust.
Og annað og meira gerðu þessir heil-
ögu vandlætarar; nokkuð sem enginn
annar flokkur gerði; þeir stungu út úr
kjörskrá alla þá kjósendur i Reykja-
vík, sem kjósa skyldu í fyrsta sinn og
hringdu til þeirra sem þeir komust yfir
aö hringja i, óskuðu þeim til hamingju
með kosningaréttinn og bentu viðkom-
andi á hvernig réttast væri að kjósa að
þessu sinni!!
Hvað skyldi heilagur Benedikt kalla
svona aðfarir. meðan hann nefnir
hefðbundið kosningastarf á kjördag
„njósnir”?
Hans heilagleiki
Benedikt Gröndal I
Sjálfsagt hefði ég látið þennan siðari
kafla óskrifaðan ef ekki hefði komið til
lyga- og lýðskrumsgrein heilagleikans í
Dagblaðinu siðastliðinn mánudag.
Þessi heilagi maður hefur varla opn-
að svo á sér talfærin undangengin
misseri að hann lofsyngi ekki „hina
opnu starfshætti Alþýðuflokksins og
Alþýðublaðsins". og siðan samkvæmt
formúlunni um að upphefja sjálfan sig
og niðurllægja aðra i leiðinni. úthróp-
að lygar og staðlausa stafi um starfs-
hætti annarra stjórnmálaflokka.
Það vill svo illa til fyrir heilagan
Benedikt að undirritaður var sá blaða
maður sem togaði játningar um er-
lenda bctliféö, sem Alþýðuflokkurinn
er rekinn fyrir og Alþýðublaðið gefið
út fyrir, upp úr heilagleikanum, eftir að
hann hafði þrásinnis neitað að slikt og
þvíumlikt hefði nokkru sinni gerst „sér
vitánlega”.
Meðan ég sit héma framan við rit-
vélina beiti ég mig hörðu til þess að
þegja yfir viðbrögðum Benedikts við
spurningum minum. yfir andlegu og
likamlegu ástandi hans þá daga sern ég
var að toga út úr honum játningarnar.
En hversu lengi ég get á mér setið veit
ég ekki. Að minnsta kosti ekki mikið
lengur ef ég held áfram að skrifa og
alls ekki ef Benedikt lætur ekki af að
reyna að selja þjóðinni sin óheilindi
sem heilagleik. sín pólitisku hórdóms-
brot sem jómfrúrdóm.
Hans heilagleiki
Benedikt Gröndal 0
Ég nenni ekki að ergja mig á þvi að
reyna að kenna Benedikt Gröndal
þætti i islenskri stjórnmálasögu. Þó
get ég ekki stillt mig um að nefna hon-
um til eina lexiu. Sama dag og hann
skrifar um það grein undir fyrirsögn-
inni „Ciamall draugur á ferð" i aukaút
gáfu heildsalasléttarinnar af Vísi. Al-
þýðublaðið. að „kooimúnistar" hali
rofið einingu alþýðusamtakanna á ís-
landi. birtist grein i Þjóðviljanum. þar
sem sannanir eru lagðar fram fyrir þvi
að Alþýðuflokkurinn hefur þegið er-
lent fé til starfsrækslu sinnar. ma.
bandaríska peninga, undir heitinu
Marshallfé. Þessum peningjagjöfum
ÚlfarÞormóðsson
fylgdi eitt skilyrði. Þetta skilyrði upp-
fyllti islenski Alþýðuflokkurinn eða
foringjar hans fyrir flokksins hönd.
Skilyröið var, að „kommúnistar”
kæmust ekki til valda og áhrifa innan
Alþýðuflokksins né heldur innan Ai-
þýðusambandsins.
Hvað skyldi heilagur Benedikt kalla
slikt fé? Varla mútufé? Slikt orðbragð
hæfirekki heilögum.
Og ef hann skyldi nú fara að velta
yfir sér nafngift á þetta erlenda betlifé
gæti hann duddað sér við að svara
spurningu á nýjan leik: þeirri: Hverjir
klul'u alþýðusamtökin i landinu og af
hverju?
Úr Bókinni
Það eru mörg heilræðin að finna i
þjóðsagnasafni þvi sem réttilega hefur
verið nefnt Bók Bóka. Þar segir m.a.
frá misjafnri túlkunariðju Farisea
nokkurs annars vegar og tollheimtu
manns hins vegar.
Þessa sögu ættu kjósendur sem
hugsað hafa til þess að kjósa Alþýðu
flokkinn og heilagan Benedikt i kosn-
ingunum 25. júni að lcsa sér til glöggv-
unar á fyrirbærinu heilagur Benedikt
Gröndal. Enguni er Benedikt þessi lik-
ari en Fariseanum i ævinlýrinu þvi.
Þetta væri lika þörf lesning eftir svo
orðljóta grein og svo dónalegan endi.
sem hér kemur:
Latið ekki óheilindi. lýðskrum og
fleðulæti villa um fyrir ykkur i kjör
klefanum: gerið ykkur ekki þá skömm
að láta blekkjast: kjósið ekki undir
neinum kringumstæðum flokk Farise-
anna, Alþýðuflokkinn.
Úlfar Þormóðsson,
hlaðamaður.
ÞRKMA AFUÐ ENDURFUNDK)
Eitt mega amerikanar eiga. að þeir
birta hinar svonefndu leyniskýrslur
eftir ákveðinn árafjölda. Nú fyrir
skemmstu hafa verið birtar leyni-
skýrslur frá 1950 um samskifti við is-
lendinga. Þetta er mjög fróðleg lesning
þar sem svik. fiáttskapur og lygi lýsa
upphverja setnmgu.
„Algert
trúnaðarmál
Washington l.maí 1950"
Efni fyrstu skýrslu er um fram
kvæmd N.s.C 4021 (Stefnuskýrsla
þjóðaröryggis Bandarikjanna. frá
.1949). Afstaða Bandarikjanna til
öryggishagsmuna Bandaríkjanna og
Norður- Atlantshafsbandalagsins á Is-
landi. Þarna eru að sjálfsögðu. gfiðir
landsmenn. ckkert rætt um öryggi
islands. sem ekki er von. en að þvi
kemur siðar.
„Utanríkisráðuneytið hefur geri
áætlun með það fyrir augum, að
styrkja islensku rikisstjórnina gegn
mögulegri valdatöku kommúnista.
Áætlun þessari hefur verið á framfæri
i Bandarikjunum og lslandi.”
Allir sjá og skilja. að hér er ekki ver-
ið að tala um kommúnista. heldur alla
þjóðholla islcndinga; svoekki sé t;.lað
um svonefndan verkalýð. sem liefut
þuð til að æskja eltir kaupi. sem liægt
er að lifa á eftir siðaðra manna hætti
Siðaður maður telur sig þurfa mann
sæmandi lifskjör.
„Áætlun gerð af
utanríkisráðuneyt-
inu. Algert
trúnaðarmál".
Ráðstafanir til að hvetja islendinga
til sjálfshjálpar. Bandaríski sendiherr-;
ann. Edward B. Lawson, ætti aði
stinga upp á ráðstöfunum og ræða'
óformlega við utanrikisráðgjafa um
trúnaðarráðstafanir. Einnig taka is-
lenska menná eintal ogskiftast á heim-
ildum. Þetta likist helst þvi að mæta
kvenmanni. sem maður vill ná á vald
sitt og semja við hana um að hittast
aftur undir betri kringumstæðum. og
skiftast þá á skoðunum. Bjarni Bene-
diktsson mun bera aðalábyrgðina og
sóma af öllu þessu bralli; hann mun
vera sá eini sem hefur skilið málið til
hlítar, að hinum ólöstuðum. Enginn
frýði Bjarna vits, en kjarkurinn vóg
þar lítt á móti. Samningaplöggunum
var auðvitað ýtt til hinna líka og þeir
skrifuðu hara undir eins og jxttta væri
fæðingarvottorð.
Hvatning til að koma á óformlegu
heimavarnarliði, likt og gert var 1.
mars jjegar hvítliðunum var sigað á
saklausa áhorfendur sem þingið hafði
hoðað til .áheyrnar. Þetla Ihvita liðl
mun hafa verið meðal verslu ælingja
sem þetta land hefur alið. Þetta nýja
heimavarnarlið, átti að hafa á sér form
iþrótta eða likamsæfinga. Allt þetta
átti amerikaninn að greiða.
geta að sunt verkalýðslélög í þvisa
landi. hafa verið rekin af glæp-
onum. Flciri hópar voru boðn
ir og allt slikt greitt af vinunum.
Ekki ntan ég i svip hvað allt
þetta kram var nefnt. en ég man að
Jón Skaftason alþm. var þar tnikils
metinn. Allir þessir hópar áttu að
verða handlangarar. Konta skyldi á
fjarskiftum til að sjá hernum fyrir
njósnaupplýsingum. Þetta var ágætt
fyrir þá sem þreyttu við okkur þorska-
striðið. Svo var mútað á mörgum svið-
unt, Marshall Itjálp og ótal fleiri betli
liðir. Einnig var vesiur-þjóðvcrjum
gert aðskyldu að kaupa af okkur fisk.
HalldórPjetursson Stefnumið
Einnig átti að senda íslendinga út til
þjálfunar hjá amerisku lögreglunni.
Þar er nú sjaldan beitt vægari aðferð
en sem kostar örkuml eða dauða innan
skamms tima. Einn maður var sendur
út, en við sleppum nafni hans hér.
Einnig skyldi islenska stjórnin njósna
um landa sína og láta vinina vita um
hvert smáatriði, enda munu nú allir ís-
lendingar sem komnir eru til vits og
ára og kunna faðirvor, komnir á skrá
hjá vinunum, með sínar skoðanir. Þeir
sem ekki gátu flokkast undir komm-
únista voru titlaðir þjóðrembings-
menn. Hvetja skyldi bandarisk verka-
lýðsfélög til að bjóða íslenskum verka-
mönnum út til lærlingar, en þess má
„Markmið okkar gagnvart islend-
ingum, markast ekki einvörðungi af
þvi að halda vinsamlegum samskiftum
við lýðræðisþjóðir. Það er lcga eyjar
innar frá hernaðarlegu sjónarmiði!”
Hér hefur aðeins verið gripið niður
á stöku stað í þessum valda myrkviði
þar sent mannslifin liafa ekkert gildi.
bara númer; en hver íslendingur ætti
að skilja hvað okkur er ætlað ef til
ófriðar kemur, sem alltaf vofir yfir.
K-annski verður það hamingjusprengj-
an, sem hittir okkur og þá geta vinirnir
hirt hólmann. Þarf að segja okkur
meira til þess að við vitum hvar við
eigum að skipa okkur i næstu kosning-
um? Stjómarflokkarnir eru kannski
reiðubúnir til að deyja fyrir vinina, en
erum við það öll upp til hópa? Höfum
ekki stór orð. heldur hyggjum betur að
hver staða okkar er gagnvart börnum
okkar.
Ut úr öllu þessu öngþveiti er engin
leið önnur. en að fólk með heilbrigða
skynsemi taki höndum saman og viki
þcssum dáðlausu rányrkjumönnunt úr
seli. sem ekkcrt virðast skilja i þjóðfé
lagsmálum annaðen leggja á skatta og
nú er það verkefni lika að þrjóta. Allar
mútur amerikana hafa þcssir nicnn
hirt i gegnum árin eftir ótal leiðum,
svo þjóðin fengi ekki eyri þar af. Nú á
að endurvekja þriðja aflið, Þórarinn
þcgar kontinn á siað.Heimavamarhvít-
liðar munu vaktir upp á ný og boðin
standa enn um að þjálfa þá hjá vinun-
um. Nú er það kjörseðillinn einn sem
getur bjargað okkur út úr þessu öng-
þveiti. Hann er vopn réttlætisins, hafi
menn vit á að nota hann. Nú þýðir
ekki lengur að semja um kaup, sem
stjórnin tekur likt og máfur æðarunga.
Uppgjör við þessa menn verður ekki
gert nema á pólitískum vigvelli. Lífið
er fyrst og fremst slagur um það undir
hvaða formurn okkur er stjórnað.
Þetta dásamlega lif er of dýrt til að
kasta þvi fyrir hunda eins og gert var
við Jessabel. Ef við kjósum ekki af
okkur þessa stjórn i næstu kosningum.
er ekki vist að heimavarnarliðið bjóði
okkur kjörseðilinn á ný, heldur bara
kylfu úr tréeinsog9. nóvember.
Halldór Pjetursson
rithöfundur.