Dagblaðið - 19.06.1978, Side 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR I9.JÚNÍ 1978.
27
BILLYJOEL, NÓTNABOXARINN
ÁSGEIR
TÓMASSON
— Nei, segir Billy
Joel, ég er ekki
prédikari og hef ekki
áhuga á að verða það.
Allt og sumt sem ég vil
að lögin mín geri er að
þau fái fólk til að
hugsa, endurmeta af-
stöðu sína og veita at-
hygU Utlu hlutunum
sem engu skipta i fljótu
bragði en mættu að
skaðlausu betur fara.
Það má skipta lögun-
um mínum í tvo hluta,
þau sjáfsævisögulegu
og hin sem ég sem upp
úr mér. Piano Man er
dæmi um hið fyrr-
nefnda, The Enter-
tainer um hið síðar-
nefnda.
í textum sínum syng-
ur hann af raunsæi um
óvissu hins dæmigerða
ameriska miðstéttar-
manns um nútið og
framtið, um hjónaskiln-
aði, um trúarlíf þeirra
sem voru aldir upp í
bókstafstrú en eru nú
teknir að efast. Hann
syngur um eiturlyf og
eiturlyfjaneytendur,
sem enn eru of ungir til
að vita neitt um
hvernig þau verka og
ótal margt fleira.
Billy Joel er loksins orðinn stór-
stjarna. Nýjasta platan hans, Strang-
er. færði honum titilinn i formi
tveggja platinuplatna, sem þýða
tvær milljónir seldra eintaka. Þriðja
platinuplatanerá leiðinni.
Það er í sjálfu sér ekki erfitt verk
að segja til um hvað geri Stranger að
jafngóðri plötu og hún er. Þar er
bókstaflega allt í sómanum. Söngur
og píanóleikur Joels'er til fyrirmynd-
ar, útsetningar allar einfaldar en á-
kaflega snyrtilegar, tónlistin létt og
gripandi og textanir, maður lifandi.
Stranger er fimmta sólóplata Billy
Joel. Sú l'yrsta Cold Spring Harbour
kom út árið 1971. Hún hlaut slæmar
viðtökur og er nú flestum gleymd. í
kjölfar hennar fylgdu alls kyns
leiðindi vcgna deilna við
umboðsfyrirtæki Joels. Hann stakk
þvi af og hélt til vesturstrandar
Bandaríkjanna. Þar vann hann fyrir
sér með því að spila á bar og fékk
greitt samkvæmt taxta. Minningar
frá þeim tíma koma fram i titillagi
næstu plötu Joels. Piano Man. Hún
kom út árið 1973 og titillagið hlaut
miklarvinsældir.
Síðan bættust þrjár stórar plötur
við. Streetlife Serenade kom út árið
1974, Turnstiles tveimur árum siðar
og loks Stranger i fyrra. Allar eru
þessar plötur sérstaklega vel gerðar
— Piano Man og Stranger bera þó
af.
Ritstjóri músikblaðsins Melody
Maker Ray Coleman, lagði sitt af
mörkum til að kynna löndum sinum
Joel og list hans. Til þess dugði ekki
minna en fjögurra síðna viðtai. auk
þess sent birtir voru tólf textar af
plötum hans. Áreiðanlega hefur
komið svipur á nokkra Tjalla er
ritstjórinn gekk svo langt að setja
Joel á stall með goðum eins og Bob
Dylan, Bruce Springsteen og John
Lennon. — En þegar nánar er að
gáð er það alls ekki út i bláinn. Billy
Joel hefur nákvæmlega jafnmikið að
segja og þessir menn og kemur
skoðunum sínum oft á tíðum mun
snyrtilegar frá sér en þeir. oft með
nistandi háði eða lymskulegri ádeilu,
sem stingur hvassar en mörg stór
orð.
M iðstétta rstráku r
á Long Island
Billy Joel er fæddur og uppalinn
New Yorkbúi. Þegar hann var
svertingjar voru i meirihlutar.
En þar var lifiðekki rómantiskt og
með brilljantinilmi. Eiturlyfjaneyt-
endur voru þar ófáir og heróin var
mest notað. Negrarnir kölluðu
heróinið Captain Jack og Billy Joel
minnist þeirra í lexta sem hann
kallarsama nafni.
Hnefaleikarnir
heilluðu, en..
Er stundir liðu fram hneigðist
hugur Billys æ meir að hnefaleik.
Hann þótti liðtækqr i hringnum og
var spáð bjartri framtíð. En eins og
gefur að skilja fer það ekki vel með
hendur pianóleikara að standa. 'ar
smíðum. Hann varð þvi fyrr en s.ðár
að gera upp hug sinn hvort hann
vildi halda áfram að sinna tónlistinni
eða gerast atvinnuboxari. Hann
valdi pianóið „i staðinn fyrir að
verðabarinn i klessu".
Nú: tóku við sex erfið ár þegar
Billy varð að leggja sig allan fram við
• Það er ekki út i bláinn að mynda Billy Joel með hnefaleikahan/ka um ö\l. Im
tvítugt varð hann að velja á milli þess aö gerast hnefaleikakappi af lífi »g sál eða
halda sig eingöngu við tónlistina sem hann hafði stundaö tra fjögurra ára aldri.
Hann kaus síðarnefnda kostinn — sem betur fer.
„Þetta er ekki
vinna
„Það er ekk'i erfitt verk að leika á
hljómleikum.” segir Billy. „Ég vann
einu sinni i verksmiðju og þar
kynntist ég sko erfiði. Við fram
leiddum ritvélaborða. Ég stóð við
hjólið sem vefur borðana upp eftir
að þeir hafa farið í gegnum blek-
baðið og varð auk þess að sjá um að
nóg blek væri til aðdýfa þeim ofan i.
Þetta var VINNA. Mig sár-
verkjaði í hálsinn og ég var orðinn
rangeygur af að glápa sifellt á helvit-
is blekbandshjólið og fylgjast með
því að alít væri í réttum skorðum. —
El'tir þennan þrældóm og hnefa
leikana kalla ég það ekki vinnu að
semja lög og texta og flytja þá á
hljómleikum. Þaðeru forréttindi.”
Þó leggur Billy Joel ákaflega hart
að sér á hljómleikum. Hann er þrjár
klukkustundir á sviðinu I einu og
virðist aldrei fá nóg af að miðla
lögum sinum til fólks. Sviðsfranv
koma hans er látlaus. Hann klæðist
jakkafötum og gengur með háls-
knýti. sem er svo til óþekkt fyrir-
brigði meðal poppstjarna. — Það er
sama hvar á hann er litið. Billy Joel
cr alltaf aðeins öðruvisi en hinir.
Samantekt: ÁT-
• Á hljómleikum er Billy ólikur flestum rokkurum. Hann mætir ekki á sviðið
I glitrandi fntum með kinnalit og augnskugga heldur snvrtilega klipptur i
jakkafötum og með hálstau. Það er sem sagt ekki ytra útlit listamannsins sem
skiptir máli i augum aðdáenda hans heldur það sem hann hefur upp á að hjóða
— góð lög og snilldarlcgir textar
árangur og heinturinn viðurkenndi
Billy Joel sem frumlegan tónlistar-
niann. en ekki eftirlikingu Elton
John eða Tony Orlando. Hann
heldur samt mikið af hljóntleikum
ennþá og undantekningarlítið er
uppselt á þá.
Englendingar
taka við sér
Það gerðist i raun og veru ekki
fyrr en i byrjun þessa árs. að
Englendingar uppgötvuðu að til var
tónlistarmaður að nafni Billy Joel.
fjögurra ára gamall sendu l'oreldrar
hans hann til pianónáms. Heimili
hans var dæmigert miðstéttarheimili
á Long Island en Billy sem er illa við
allt. sem kailast kerfi. var sann
kallaður vandræðaunglingur, eða
töffari eins og við kynntumst i
American Graffiti. Hann stal
hjólkoppum. hrekkti lögregluna og
hékk á hamborgarabúllunum.
Sautján ára strauk hann að heiman
og flutti i litla ibúð i húsi þar sem
að koma löguAi sinum á framfæri.
Hann gerði sólóplöturnar fimm og
ferðaðist mikið um og hélt hljóm
leika. Framkvæmdastjóri bii.>j.
Elizabeth. sem jafnframt er eigin-
kona hans. var óþreytandi við að
hjálpa honum á þyrnum stráðri
braut tónlkstarmannsins. ,Nú þcldur
Eli/abeth sig heima við meðan Billv
er á hljómleikaferðalögum og sér um
fjármálin þaðan.
Að lokum bar brauðstritið