Dagblaðið - 20.07.1978, Side 5

Dagblaðið - 20.07.1978, Side 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1978. 5 Getur orðið gassprenging hérá landi? _ HVERFANDIHÆTTA A SPRENGINGUM VIÐ FLUTNING Á ELDSNEYTI — þóeraldrei hægtað setja undirallan leka Eftir tvær sprengingar í gasflutninga- bílum í útlöndum á fjórum dögum hafa þær spurningar vaknað i hugum margra á íslandi hvort slíkt gæti gerzt hér og hvar hættan væri mest. í könnun sem DB gerði á þessu máli kom í Ijós að hætt- an virðist engin á nákvæmlega sams konar sprengingu. Hins vegar er alltaf nokkur hætta á sprengingum í þeim bíl- um sem flytja bensín um byggðir lands- ins og steinolíu til notkunar á flugvélum. En hættan virðist ekki mikil. sem sést bezt á þvi að engin slys hafa nokkru sinni orðið við slíka flutninga hér á landi. Flugvélasteinolían . þarf að vera volg Knútur Höiriis hjá ESSÓ á Keflavík- urflugvelli sagði að á síðasta ári hefði tæpum 56 þúsund tonnum af flugvéla- steinolíu verið ekið frá Hafnarfirði og Reykjavík til Keflavíkurvallar á vegum oliufélaganna þriggja. Ástæðurnar fyrir þvi að oliunni er ekið i stað þess að skip lönduðu henni eru léleg hafnaraðstaða i Keflavík og geymaleysi á vellinum. Þau stóru skip sem hingað koma með olíu komast ekki inn i Keflavikurhöfn og þyrfti ef þau ættu að geta landað þar að koma upp lægi fyrir þau og leiðsl- um út í þau og alltaf væri hætta á að slikt ylli mengun. Einnig er mikið fyrir- tæki að koma upp olíugeymum á vellin- um þegar slíkir geymar eru fyrir í Reykjavík og Hafnarfirði. Sú flugsteinolía sem bandaríski herinn fær og er utan við þetta dæmi kemur með stórum skipum til Hvalfjarðar og er flutt þaðan með Litlafelli til Keflavíkur og fer þá með leiðslum upp á völl. Knútur sagði að litil eldhætta stafaði af flutningi á flugvélasteinolíu. Olían þyrfti að verða 40—50 gráðu heit til þess að kviknað gæti í henni og þó olíubíll ylti eða lenti í árekstri væru litlar líkur á að i kviknaði. Olían gæti hins vegar valdið nokkurri mengun sem auðvitað væri slæmt mál, ekki nærri því eins og olíueldur. Flugsteinolían gufaði þó fljót- lega upp og hyrfi þannig að mestu. Lítið f lutt af bensíni Ekki reyndist unnt að fá upp gefit' hversu mikið af bílabensíni er flutt á milli með bilum. öllum aðilum ber sam- an um að það væri mjög lítið magn sem flutt er frá stórum tönkum um næsta ná- grenni. Bensínið í tankana er hins vegar fluttáskipum. Bensín getur brunnið við nær hvaða hitastig sem er og fylgir því langtum meiri eldhætta en flugvélasteinolíunni. Þvi eru vissar kröfur gerðar til allra þeirra bílstjóra sem bensíninu aka um öryggi. Sjá alþjóðlegu olíufélögin um þessar kröfur og gæta að hvort þeim er fylgt. Viðmælandi, sem ekki vildi láta nafns síns getið, hjá einu olíufélaganna, sagði að mjög hart væri gengið eftir því við olíubílstjóra að þeir ækju varlega og hefði þvi ævinlega verið fylgt sem sæist ,bezt á þvi að engin slys hefðu orðið. Þó væri vitaskuld aldrei hægt að tryggja það fullkomlega að ekki yrðu af slys. Varkárnin ein gæti komið i veg fyrir það. Engin önnur leið en að aka bensín- inu virðist fær þar sem leiðslur yrðu gríðarlega langar ef nota ætti þær og fyrir utan hvað mikið þær kostuðu væri meiri hætta á mengun i kringum þær. DS. Ný sending —Ath. lágu veröin okkarl Teg. 563 Lrtur: Natur leður Stærðir: 36—41 Verðkr. 6.850.- Teg. 394 L'rtur. Naturleður. Stærðir: Nr. 36—41 Verðkr. 6.350.- Teg. 392 Litur: Ljósbrúnt leður. Stærðir: Nr. 36—41 Verðkr. 6.350.- Teg. 408 Litur: Millibrúnt leður Stærðir: Nr. 36—41. Verðkr. 4.885.- LiturRautt, svart eða hvítt denim. I ferðkr. 4.885 Stærðir 36—41. Verðkr. 3.385.- Teg.506 Lfrur Hvftt leflur. Stœrflir: Nr. 36-41 Verfl kr. 5.500.- Lrtur: Bemhvrtt leður, gylttskrautá tánni. Stærðir: Nr 36-41. Verðkr. 6.995.- Teg. 503 Litur: Ljósblátt leður. Stærðir: Nr. 36—41. Verðkr. 5.500.- Teg. 3012 Lrtur: Antik rauðbrúnt leður. Stærðir: Nr. 36—41. Verðkr. 4.985. Teg. 451 Litur: Ljósblátt Kanvas. Stærðir: Nr. 36—41. Verðkr.-6.520,- Teg.458 Lrtur: Rosa Kanvas. Stærðir: Nr. 36—41. Verðkr. 6.520.- Skóvérzlun Þórðar Péturssonar Sími14181 — Póstsendum *

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.