Dagblaðið - 20.07.1978, Blaðsíða 12
og stutterma bolir á dömur og herra.
Pöstsendum.
Utilíf
Glæsibæ. Sími 30350.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1978.
íþróttir
íþróttir
Iþról
Alltíútilífið
Á laugardag sigraði Fram Þrótt — i gærkvöld komst Þróttur hins vegar i undanúrslit bikar-
keppni KSt en Fram féll út fyrir neðsta liðinu í 1. deild. Pétur Ormslev skallar að marki
Þróttar.
í kröppum dans í Eyjuin í gærkvöld. Sigurður
Þorleifssonar og Grímur Sæmundsen fylgist m
Meistarð
Einherj
— Skagamenn sign
gegn3. deild
íslandsmeistarar ÍA mættu Einherja, á
Vopnafirði í bikarkeppni KSÍ i gærkvöld.
Meistarar ÍA sigruðu forustulið F-riðils í 3.
deild, 6-1. Skagamenn höfðu forustu í leik-
hléi, 1-0, en i siðari hálfleik kom berlega i
Ijós, reynsla og snilli meistara í A. Stórsigur,
6-1, og þeir Matthías Hallgrimsson og Pétur
Pétursson, markakóngar þeirra Skaga-
manna, skoruðu þrennu hvor.
Jafnræði var með liðunum í upphafi,
leikmenn Einherja borðust vel, fljótir á
knöttin'n og áhorfendur studdu vel við bakið
á sínum mönnum. En Skagamenn náðu
tökum á leiknum og sóknarlotur þeirra
þyngdust sífellt. Vörn Einherja var þó sterk
og markvörður liðsins vakandi í markinu.
En Skagamenn náðu forustu, á lokamín-
útum fvrri hálfleiks. Pétur Pétursson komst
þá einn innfyrir vörn Einherja og skoraði af
öryggi. Þar með var tónninn gefinn —
Skagamenn sóttu látlaust í siðari hálfleik. Á
12. mínútu var Pétur aftur á ferðinni, Matt-
hias Hallgrímsson skoraði á 20. minútu, og
aftur fjórum mínútum síðar. Matthías gerði
Sigurmar
á ellefti
— Þróttursigraði
HalldórArasons
Þróttará4
Þróttur hefur tryggt sér sæti í undan-
úrslitum bikarkeppni KSÍ. í gærkvöld
mættu I. deildarlið Þróttar KR úr 2. deild í
Laugardal. Já tímarnir eru breyttir, en
Þróttur sigraði 3—2. Naumur var sigur
Þróttar, Halldór Arason skoraði sigurmark
Þróttar á 43. mínútu, að þvi er virtist rang-
stæður er hann skaliaði knöttinn I netið —
3—2 — og leikmenn Þróttar fögnuðu mjög.
Leikur Þróttar og KR fór fram á Laugar-
dalsleikvangi. Heldur var leikurinn þóf-
kenndur en á köflum sáust laglegar rispur
liðanna.
KR náði forustu á 38. mínútu fyrri hálf-
leiks. Sverrir Herbertsson sendi knöttinn lag-
lega fyrir á Sigurð Indriðason, sem aldrei
hefur leikið betur. Sigurður tók knöttinn lag-
lega niður og skaut föstu skoti i net-
möskvana að baki Rúnars Gíslasonar,
markvarðar Þróttars, 1—0. En leikmenn
Keith Burkinshaw með Argentínumönnunum Ardiles og Villa.
SHEFFIELD UNITED
FETAR í FÓTSPOR
TOTTENHAM
Sheffield United, i 2. deild á Englandi,
keypti I gær argentfnska landsliðsmann-
inn Arbela frá River Plate fyrir 160 þús-
und pund. Arbela var í landsliðshópi
Argentlnu 1 HM en lék ekki með liðinu.
Arbela á að baki 20 landsleiki með
Argentínu og lék með River Plate í
Buenos Aires. Arbela er þriðji Argen-
tinumaðurinn er heldur til Englands.
Áður hafði Tottenham keypt tvo lands-
liðsmenn, þá Osvaldo Ardiles og
Ricardo Villa fyrir um 700 þúsund
pund.
Núverandi framkvæmdastjóri Shef-
field United er Harry Haslam, en undir
hans stjórn komst Luton Town í 1. deild,
þó félagið dytti niður. Það var fyrrum
fyrirliði Argentínu, Rattin, sem var
milligöngumaður um kaupin á Arbela.
Rattin varð frægur á Englandi fyrir 12
árum. Þá mættu Englendingar
Argentínu í 8-liða úrslitum. Rattin var
þá rekinn af velli en neitaði að fara.
Settist niður og beita varð fortölum við
hann. Eftir þann leik kallaði Alf Ramsey
Argentínumenn rudda. Það var ekki fyrr
en með HM í Argentinu að sú nafnbót
hvarf af Argentinumönnum i knatt-
spyrnu.
HUSTJÖLD
4 manna
kr. 103.650.-
l--- 280--H
Sanngjam Vals-
sigur í Eyjum
— Valur sigraði Eyjamenn 2-0 í bikarkeppni KSÍ
40. mínútu. Hann tók aukaspyrnu, skaut
þrumuskoti neðst í markhornið — en
Sigurður Haraldsson bjargaði glæsilega. í
síðari hálfleik einkenndi uppgjöf leik Eyja-
manna. Þeir sóttu mun meir, Valsmenn
treystu á skyndisóknir en síðari hálfleikur
var daufur — þá vegna þess hve liðin
sköpuðu sér fá tækifæri. Valsmenn héldu
því til lands með sigur, undanúrslit bikar-
keppni KSÍ og vissulega eru Valsmenn
sigurstranglegir i Bikarnum, rétt eins og l.
deild.
Þeir Sigurður Haraldsson og Atli Eðvalds-
son voru beztu menn Vals og eins var Jón
góður, lagði upp bæði mörk Vals. Hjá ÍBV
var Örn Óskarsson beztur, eins voru
bræðurnir Sveinn, Karl og Ársæll Sveins-
synir allir góðir.
- FÓV
Það verður margt frægra kappa á Reykja-
víkurleikunum I sumar og vafalítið ber nafn
Mac Wilkins, ólympíumeistarans frá Mon-
treal og heimsmethafans í kringlukasti,
hæst. Liklegt er að Norðmaðurinn Knut
Hjeltnes komi en um helgina i keppni hans í
Brekstad þeytti hann kringlunni 61.90.
Hjeltnes, sem nú hefur hafið keppni aftur
eftir bann vegna neyzlu Ivfja, hafði mikla
yfirburði i Brekstad.
Þá standa vonir til, að Guy Abrahams frá
Panama og Steve Riddick frá Bandarikjun-
um taki þátt í spretthlaupunum — þannig að
þeir Vilmundur Vilhjálmsson og Sigurður
Sigurðsson fái verðug verkefni. Stangar-
stökkvarinn Larry Jessee, hefur spurzt fyrir
um mótið — á næstu vikum mun skirast
hverjir verða þátttakendur á Reykjavíkur-
leikunum.
Reiðarslag fyrir Fram, sem hafði sótt stíft
upphafsmínúturnar. Leikmenn Fram létu
þó ekki deigan siga og sóttu miklu meir en
alla sannfæringu vantaði i sóknarleik
Fram. Vörn Blikanna var traust með þá
Benedikt Guðmundsson og Einar Þórhalls-
son beztu menn og Sveinn Skúlason var
öruggur í markinu, endurkoma hans hefur
styrkt vörnina mjög.
Síðari hálfleikur var slakur, þófkenndur
en Fram hafði undirtökin. Sárafá tækifæri
en Sveinn varði vel gott skot frá Rafni
Rafnssyni. Það lá ekki fyrir Fram að jafna,
Blikarnir juku forustu sína. Á síðustu
minútum leiksins lék Jón Orri Guðmunds-
son inn í vítateig Fram, sendi á Hákon
Gunnarsson, sem skoraði laglega, 2—0.
Sigur Blikanna i höfn — fjögurra liða úrslit.
5 manna
kr. 119.190.-
Bikarmeistarar Vals ruddu Eyjamönnum
miskunnarlaust úr vegi i bikarkeppni KSÍ i
Eyjum i gærkvöld. Valsmenn sigruðu 2-0,
verðskuldaður sigur þó Eyjamenn hefðu
verðskuldaö mark eða svo en bæði var að
Sigurður Haraldsson var klettur í marki
Vals og eins var vörnin mjög sterk.
Valsmenn skoruðu fyrra mark sitt á 20.
mínútu fyrri hálfleiks. Jón Einarsson
brunaði upp vinstri vænginn, gaf góða send-
ingu fyrir og þar var fyrir Ingi Björn, sem
skallaði laglega í netið, 0-l.
Aðeins sex minútum síðar var Jón aftur á
ferðinni, gaf aftur góða sendingu á Guð-
mund Þorbjörnsson sem sneri laglega af sér
varnarmann og sendi knöttinn í netið, 0-2.
Eyjamenn áttu því á brattann að sækja.
Þó munaði litlu að Örn Öskarsson skoraði á
Blikarnir lögðu
Fram í Kópavogi
— 2-0 ogeru því komnir í undanúrslit
bikarkeppni KSÍ
Fallkandidatarnir í 1. deild, Breiðablik,
unnu óvæntan sigur á Fram i bikarkeppni
KSÍ I Kópavogi í gærkvöld, 2—0. Fyrsti
sigur Blikanna í Kópavogi í sumar boðar ef
til vill betri tið i 1. deild þó of seint virðist aö
bjarga liðinu trá falli. En Breiðablik er
komið i undanúrslit KSÍ, sem hlýtur aö gefa
leikmönnum byr undir báða vængi, nýja
von.
Breiðablik náði forustu beinlinis úr sinni
fyrstu sóknarlotu í Kópavogi, á 8. minútu.
Ákaflega slysalegt mark fyrir Fram. Gísli
Sigurðsson fékk knöttinn, lék á varnarmann
og skaut föstu skoti að marki. Knötturinn
fór í varnarmann, breytti stefnu og
Guðmundur Baldursson, markvörður Fram,
sem hafði kastað sér horfði hjálparvana á
eftir knettinum í netið, 1—0.