Dagblaðið - 20.07.1978, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1978.
BÍLAVAL
Laugavegi 92
hefur opnað aftur
Vantar allar tegundir og árgerðir bíla á skrá.
Opið alla daga nema sunnudaga frá kl. 9.00—
19.00.
BÍLAVAL
Laugavegi92.
Slmar 19092- 19168
Nýkomið:
Jersey-kjólar,
jersey-blússur,
jersey-mussur.
Elízubúðin
SkiphoKi 5.
Framtíðarvinna
Traust fyrirtæki á sviði byggingarvöru
óskar eftir dugmiklum meðeiganda.
Verzlunarskólamenntun eða hliðstæð
menntun nauðsynleg. Viðkomandi þarf
að geta lagt fram nokkurt fjármagn og
mikla vinnu. Tilboð er greini helztu upp-
lýsingar óskast lögð inn á afgreiðslu DB
merkt „Framtíðarvinna —7201”.
Sérhæfum okkur í
Seljum í dag:
Rallybíll 71, 1740 rúmcentimetra mótor, ca 110 hestöfl.
Bifreiöin er hvlt og svört meö útvlkkun á brettum.
Bifreiðinnifylgir allur útbún aöur til ralllaksturs,
svo sem veltigrind, 4 punkta öryggisbelti, twin
master speed pilot, öryggishjálmar, kastarar ogfleira.
Auto Bianchi árg. 77
A uto Bianchi árg. 7 8
Saab 99 árg. 76, ekinn 33 þús. km.'
Saab 99 á rg. 73, ekinn 68 þús. km, 4 dyra.
Saab 99árg. 73, ekinn 76þús. km 4radyra
Saab 99 árg. 73, ekinn 97 þús. km
Saab.99 árg. 74, ekinn 68 þús. km
Saab 95 station árg. 74
Saab 96 árg. 73, ekinn62 þús. km
Saab 99árg. 76, ekinn 53 þús. km.
Látið skrá bila, höfum kaupendur
að ýmsum árgerðum.
’ BDORNSSON ±co
BiLDSHÖFÐA 16 SÍMI 81530 REYKJAVÍK
Heimsmeistaraeinvígið í skák:
Kortsnoj mætirmeð
spegilgleraugu við
skákborðið í dag
Viktor Kortsnoj áskorandi mun
mæta við skákborðið í dag með spegil-
gleraugu. Með þessu segist stór-
meistarinn vilja koma í veg fyrir að
hið stingandi augnaráð heimsmeistar-
ans Anatole Karpov trufli sig. Er haft
eftir aðstoðarmönnum Kortsnojs að
hin bláu augu heimsmeistarans hafi
truflandi áhrif á áskorandann. önnur
skákin hófst í dag en þá mun Karpov
aðeins sjá spegilmynd sína er hann
lítur upp frá skákborðinu yfir til and-
stæðings sins.
Þykir gleraugnaleikur Kortsnojs
gott dæmi um að taugastrið keppenda
sé stöðugt í fullum gangi. Keppendur
hafa enn ekki svo vitað sé ræðzt við en
báðir voru þeir inni við í gær og að
sögn við undirbúning skákarinnar í
dag.
Bíða menn spenntir eftir að sjá
hvort dauft jafntefli verði áfram
niðurstaðan. Fyrsta skákin varð jafn-
tefli eftir átján leiki. Þótti lítill heims-
meistarabragur á henni. Tal hinn
sovézki sem staddur er í Baguio á
Filippseyjum og skrifar í sovézk blöð
um skákina er með eigin kenningu um
hvernig einvígið muni þróast. Telur
hann að Kortsnoj stefni að jafntefli i
fyrstu skákunum í þeirri von að
Karpov verði síðar á einhver mistök
sem hann geti fært sér í nyt. Einviginu
lýkur, þegar annar hvor keppenda
hefur fengið sex vinninga. Jafntefli
eru ekki talin með.
Sölubann Carters
gamall kaldastríðs■
leikur
— segir Pravda, málgagn sovézka
kommúnistaflokksins
Aðgerðir Jimmy Carters eru visvit-
andi tilraunir til að spilla sambúð
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna segir
Pravda, opinbert málgagn sovézka
kommúnistaflokksins. Er þá verið að
ræða um þá ákvörðun Bandarikjafor-
seta að banna sölu á rafreiknum til
Sovétríkjanna og draga úr sölu á
tæknibúnaði fyrir olíuvinnslu þangað.
Var þetta haft eftir Pravda í sovézka
útvarpinu i gærkvöldi.
Bannið við sölu rafreiknibúnaðar-
ins, sem nota átti hjá sovézku frétta-
stofunni Tass, og oliubúnaðinum er
vegna óánægju Bandarikjastjórnar
með dómana yfir andófsmönnunum
fyrir nokkrum dögum. Segir Pravda
aðfarir Jimmy Carters minna á
aðfarir, þegar kalda striðið stóð sem
hæst. Hafi ákvörðun verið tekin vegna
mikils þrýstings á forsetann frá harð-
'línumönnum. í þeim flokki telur
Pravda meðal annarra þá James
Schlesinger, orkuráðunaut Carters, og
Zbigniew Brzezinski, ráðunaut hans í
alþjóðaöryggismálum.
Bergman
kallinn
sextugur
Ingmar Bergman sneri heim til
Sviþjóðar um daginn. Ekki þó fyrir
fullt og allt heldur aðeins til að
halda upp á sextugsafmæli sitt.
Börn hans og fyrrverandi eigin-
kvenna komu til að heiðra gamla
manninn sem hér er með blóma-.
krans á höfði. í fremstu röð eru
talið frá vinstri: Maria von Rosen,
Linn Ullmann dóttir Liv, Anna
Bergman sú er nú situr sem oftast
fyrir nakin og Eva Bergman.
í annarri röð eru Lena Berg-
man, Anna von Rosen og Caroline
von Rösen. 1 þriðju röð eru svo
Ingmar sjálfur og Ingrid núverandi
kona hans. Fjórðu röðina skipa
Ingmar Bergman yngri, Mats
Bergman og Jan Bergman. Aftastir
eru svo Daníel Bergman og Fred-
rik von Rosen.
Blaðburðarbörn
óskast strax / eftirtafín hverfí
LAUFÁSVEGUR
MIÐBÆR
MKHBIAÐID
Sprengjanfannst
fyrírflugtak
Sprengja sem falin hafði verið í far-
þegaþotu með eitt hundrað tuttugu og
sjö farþegum fannst á síðustu stundu í
gær. Hringdi ókunnur aðili til flugvallar-
ins en þá var þotan komin á brautarenda
og að leggja af stað í flugtak. Gerðist
þetta í borg í Perú en ferðinni var heitið
til Santiago. Þotunni var snúið frá
brautinni og farþegar fóru hið skjótasta
frá borði. Sprengjan fannst í tæka tið
þegar leitað hafði verið í vélinni.