Dagblaðið - 20.07.1978, Page 7

Dagblaðið - 20.07.1978, Page 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1978. 7 Friðarviðræður ísraels ogEgyptalands: VANCE SENDIR SÉR- LEGAN SENDIMANN TIL AÐ KOMA A FUNDI Vonir manna um friöarsamninga milli Egyptalands og ísrael eru ekki enn alveg brostnar þó svo aö fundur aðilanna, sem haldinn er i Leeds kastala i Kent á Englandi hafi iítinn sjáanlegan árangur borið. Þar hafa þeir utanríkisráðherramir frá Egypta- landi, lsrael og Bandarikjunum ræðzt við siðastliðna tvo daga. Haft er eftir hinum síðastnefnda, sem beitti sér fyrir fundinum, að sérstakur sendi- maður færi strax fyrir hans hönd til Miðausturlanda til að undirbúa leið- togafund þar. Vance utanríkisráð- herra sagðist sjálfur mundi koma þangað eftir um það bil tvær vikur. — Við höfum rætt ýmis atriði hér í kastalanum og ljóst er að verulegur meiningarmunur er milli ríkjanna tveggja, sagði utanríkisráðherrann. Hann sagðist þó bjartsýnn. Búið væri að komast niður á í hverju hinar mis- munandi skoðanir lægju en mikið verk væri framundan. Fundurinn í Leedskastala er fyrsti fundur háttsettra stjórnmálamanna Egyptalands og Ísrael síðan slitnaði upp úr viðræðum þeirra í janúar siðastliðnum. Er hans vel gætt af lög- reglusveitum og hermönnum en um- hverfis hinn þúsund ára gamla fundar- stað er einnig fom virkisgröf. Báðir aðilar hafa hafnað tillögum hins og sagt þær óaðgengilegar. Hvorki Moshe Dayan utanríkisráð- herra ísraels né Mohammed Ibrahim Kamel utanríkisráðherra Egyptalands drógu þessi orð sín til baka á fundin- um í Leedskastala. Sérfræðingum þykir þó viðræðurnar sjálfar sýna nokkurn friðarviija þó svo að hvorki hafi verið ákveðið hvenær né hvar næsti fundur eigi að fara fram. Hinn sérlegi 'sendimaður, sem Vance sendir til Miðausturlanda heitir Atherton. Mun hann ræða bæði við ráðamenn í Jerúsalem og Kairó. Verk- efni hans er að fá þá til að samþykkja einhvers konar friðarviðræður. Meginvandinn virðist enn vera framtíð Palestínufióttamannanna og kröfur um að þeir fái að búa í eigin landi á vesturbakka árinnar Jórdan og Gazasvæðinu. í þeim efnum greinir aðila mjög á og ekki virðast nein merki þess að undan verði látið. Cyrus Vance beitir nú öllum áhrifum sínum til að koma aftur af stað friðarviðræðum milli tsraelsmanna og Egvpta. Margir voru farnir að óttast að þær mundu alveg lognast út af. Erlendar fréttir i REUTER 8) Fjármál ólympíu- leika enn óleyst Tom Bradley borgarstjóri í Los Ange- les í Bandarikjunum, sem sótti um og fékk samþykki til að halda ólympíuleika næsta sumar sagði í gærkvöldi að ekkert væri hæft í fregnum sem borizt hefðu um að fundur hans og Killanin lávarðar væri fyrirhugaður. Allt stendur því óbreytt og Bradley ítrekaði þá ætlan sína að leggja til að Los Angeles hætti við að halda leikana. Al- þjóðaólympíunefndin undir forustu Killanins lávarðar bannaði Los Angeles nýlega að stofna sérstaka nefnd sem tæki að sér ábyrgð á fjárhagslegum halla af leikunum. Formleg undirskrift átti að fara fram fyrir þrítugasta og fyrsta júlí næstkom- andi. Horfur er því á að ekkert verði af undirskriftum. Önnumst hvers konar matvælareykingar fyrir verslanir, mötuneyti og einstaklinga. REYKIÐJAN HE SMIÐJUVEGI 36 © 7 63 40 16.LANDSMÓT UMFÍ SELFOSSI 21.-23.3ÚLl <978 FYRIR ALLA FJOISKVIDUNA FVRIR ALLT LANDID Á SEIFOSS"* L fandsmót Ungmennafélags íslands eru áhugaverð fyrir ýmsar sakir. Þau eru: A _ llsherjarhátlðimgmennafélagaraia.Þargefst áhorfendum kostur á að kynnast starfi þeirra i f reynd. jt^ jölbreytt skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Sambland keppni, sýninga og skemmtana. s . _ tærsta og fjölbreyttasta iþróttahátið sem haldin er hérlendis. Þar fer fram keppni i knattspymu, — sundi, —körfubolta, —frjálsum iþróttum, —glimu, —bOTðtennis, — blaki, — handknattleik, — júdó, — skák og starfsiþróttum. Þar sýna sýningarflokkar fimleika og þjóðdansa. Haldnar eru kvöldvökur og fjölskylduskemmtanir. Og siðast en ekki sist, stuðdansleikir verða öll kvöldin, hljómsveitin KAKTUS sér um að allir skemmti sér. Enginn heildarmiði — Ókeypis fyrir 10 ára ogyngri TJALDIÐ Á SELFOSSI UM HELGINA Fjölskyldutjaldbúðir — Almenningstjaldbúðir SKJÓTIST Á SELFOSS! Ungmennafélag íslands

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.