Dagblaðið - 15.09.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1978.
3
Haust
Opið:
Föstudag til kl. 7.
Laugardag 9—12.
Póstsendum.
Laugavegi 69 simi 16850
Miðbæjarmarkaði simi 19494
Svarti September
Eftir að hafa tekið við völdum 1.
september og stjórnað í nokkra daga
þar á eftir, hefur nýja vinstri stjórnin
fengið á vörum almennings nafnið
Svarti september. Ráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar þykja sem sagt nokkuð
dökkleitar og sumar svartar. Nægir að
nefna það nýmæli, að sjálf rikis-
stjórnin er farin að selja ferðagjaldeyri
á svörtum og var tími til kominn, að
svartur markaður yrði löggiltur hér á
landi. Þá hefur stjórnin ákveðið að
bjarga efnahagsmálunum með þvi að
hækka verð á grammófónplötum upp
úr öllu valdi og einnig „ýmsa hluti til
listmálunar”. Ekki er þó víst, að þetta
dugi til, og óneitanlega minnir það á
söguna af kaupmanni úti á landi fyrir
stríð, sem var að fara á hausinn. Greip
hann til þess ráðs að hækka fimmaura
karmellur upp í tvær krónur, en hann
fórnúsamtáhausinn.
Undarlegt þætti það fiskiskip
mannað, þar sem aðeins einn af
áhöfninni hefði komið á sjó áður, en
þannig er það með ráðherrana okkar.
Samt er Svarti september kominn á
fulla ferð og sjóveikir viðvaningar
teknir við stjórninni. Fum og fát er á
útstíminu og stefnan óklár og enginn
veit, hvort dallurinn slampast
nokkurn tímann að landi. Ef menn
athuga byrjendaverk stjórnarinnar i
þessu Ijósi er von, að ýmislegt komi
einkenniiega fyrir sjónir.
Bezta aðferðin til að skoða ástandið
er að lita á yfirlýsingu rikis-
stjórnarinnar um það sem hún ætlaði
sér að gera og virða svo fyrir sér, hvað
felst i fyrstu ráðstöfunum Svarta
september.
í samstarfsyfirlýsingu stjórnar-
flokkanna segir svo i upphafi máls:
„Ríkisstjórnin mun leggja áherzlu á að
draga markvisst úr verðbólgunni með
því að lækka verðlag og
tilkostnað..”
Nýju ráðstafanirnar hófust með
gengislækkun, sem þýðir um 17%
hækkun á öllum vörum, sem fluttar
eru til landsins. Hvernig þessi
ráðstöfun leiðir til þess að „lækka
verðlag og tilkostnað” er vandséð og
naumast getur hún talizt markvissari
en sum tilsvör Ólafs Jóhannessonar.
Næsta stórákvörðun var fólgin í því
að hækka svo til allt kaupgjald
Rikisstjóm Ólafs Jóhannessonar. Vestri nefnir hana Svarta september.
landsmanna. Ef einhver skilur hvernig
sú ráðstöfun á að lækka tilkostnað í
landinu, væri rétt að hann gæfi sig
fram við ríkisstjórnina undireins, því
vist er, að þar mundu fegnir menn
taka á móti honum. Sjálfsagt væri vel
þegið, ef hann hvislaði að þeim í
leiðinni áður óþekktri aðferð til að
stuðla að því að almenn kauphækkun
lækki verðlag (markvisst).
Það er því miður einfalt mál, að í
fyrstu viku (Svarta) september hefur
verið lagður grundvöllur að nýrri
verðbólguöldu með þvi að lækka
gengið og hækka samtimis kaup. Jafn-
framt sjást sjónhverfingar, sem fela
eiga verðbólguna í bili en breyta engu
um það, sem gerzt hefur. Það er
auðvitað verðbólga þótt Svarti
september þykist gefa þjóðinni þriðju
Db-mynd G.G.V.
hverja kartöflu, sem hún étur, þegar
kartöflurnar eru borgaðar með skatt-
peningum sömu manna, sem þær éta.
Slikir fimleikar eru hins vegar vel til
þess fallnir að rugla vísitöluna og er
það raunverulega allt sem hefur gerzt.
Sjúklingurinn er sem sagt með háan
hita en hitamælirinn vitlaus.
Opnunartími verzlana
— Akureyringar standa Reykvíkingum f ramar
Ingjaldur (n. 4711—0637) skrifan
Alveg finnst mér til háborinnar
skammar þjónusta matvöruverzlana
hér í Reykjavik, að þær skuli ekki hafa
opnar kvöldsölur. Vil ég i þvi sam-
bandi benda á að á Akureyri hafa
flestar matvöruverzlanir opna lúgu til
kl. 22.00 011 kvöld vikunnar. Er þetta
mjög gott fordæmi og ótrúlega
hentugt fyrir þá sem vinna fram yfir
lokunartíma verzlana. Mér þykir
furðulegt að Akureyringar skuli vera á
undan höfuðborgarbúum til þessarna,
þó svo að Reykvíkingarnir séu sjö
sinnum fleiri.
t gærkveldi lenti ég í þvi að mig
vantaði nokkrar nauðsynjavörur, svo
sem mjólk og brauð. í hálfan annan
tíma ók ég á milli þeirra sjoppa sem ég
sá opnar en án árangurs. Enga mjólk
var að fá og þaðan af síður brauð.
Hins vegar gat ég fengið nóg af kóki
og öðru slíku góðgæti.
Vil ég með bréfi mínu skora á mat-
vöruverzlanaeigendur hér í Reykjavík
að bæta þjónustu sína með kvöldsölu
hið snarasta. Farið eftir góðu fordæmi
Akureyringa.
S
SKOR
Kr. 13.515,
Kr. 13.515,
;------------------------------------------\
Vestri skrifar:
Spurning
dagsins
Ætlar þú að taka
slátur?
Ingibjórg Sigfúsdóttir húsmóðir: Já, ég
ætla að taka mikið af því. Ég hef gert
slátur á hverju hausti í mörg ár. Mér
finnst það ákaflega góður matur.
Steinunn Jensdóttir húsmóðir: Já, ég hef
húgsað mér það. Ég er ekki ákveðin i
því hvað ég tek mörg slátur nú í ár.
Slátur finnst mér vera góður matur.sér-
staklega blóðmörinn.
Ingibjðrg Þórormsdóttir húsmóðir: Já,
ég býst við þvi. Ætli ég taki ekki tíu
slátur. Ég geri slátur á hverju ári. Mér
finnst mikil búbót að eiga það heima.
Þorsteinn Guðmundsson kennari: Já, ég
býst við þvi. Ætli það verði ekki þrjú
slátur sem ég tek að þessu sinni. Já, ég
geri slátur flest ár. Eg verð nú að segja
að mér finnst lifrarpylsan betri en
blóðmörinn.
Hermann Ragnarsson blikksmiðun Já,
ég reikna frekar með þvi. Venjulega
höfum við tekið fimm slátur.
Persónulega er ég hrifnari af lifrar-
pyslunni.