Dagblaðið - 15.09.1978, Side 4

Dagblaðið - 15.09.1978, Side 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15.SEPTEMBER 1978. DB á ne ytendamarkaði Lítil kver um lækninga- mátt íslenzku jurtanna Geta læknað hósta, lifrarbólgu, þvagstemmu, örvað tíðir kvenna og hreinsað súra vessa burt úr líkamanum Fyrir nokkru barst Neytenda- siðunni litið kver sem heitið „Lítil ritgjörð um nytsemi nokkurra íslenzkra jurta eftir ýmsa höfunda”. Er það Jón Jónsson garðyrkjumaður sem safnað hefur þessari ritsmið saman. Var ritsmíð þessi upphaflega gefin út í Reykjavik árið 1880 hjá Einari Þórðarsyni á hans kostnað. Nú hefur kverið, sem er 40 bls. i litlu broti, verið gefið út á nýjan leik hjá bókaút- gáfunni Ljósbrá. K-verið er selt í Forn- bókaverzluninni Ingólfsstræti 3 og hjá bókaútgáfunni Ljósbrá. Almennar reglur og uppskriftir t kverinu segir hvernig safna skuli hinum ýmsu jurtum, hvaða jurtir hafa lækningamátt og við hvers konar kvilla hinar ýmsu jurtir eru. Hægt er að nota rætur, blöð, börk, blómstur, ber, fræ, mosa og ýmsar þangtegundir. t kverinu segir að hafa megi þrenns konar not af jurtunum, til lækninga, til nautnar fyrir menn og skepnur og í þriðja lagi til ýmissa hluta svo sem til litunar, til varnar foksandi o.m.fl. 1 kverinu er aðallega fjallað um jurtir til lækninga. Jurtir má nota ýmist til útvortis lækninga eða til inntöku. Jurtirnar verður að meðhöndla á ákveðinn hátt og er sagt fyrir um það i kverinu hverju sinni hvernig að lækningunni skuli staðið. Meðal þeirra jurta sem nefndar eru í kverinu góða, má nefna: lyfjagras, velansjurt, húsapunt, reyr, gulmöðru, hvítmöðru, götubrá, græðissúru, maríustakk, ljónslöpp, strandarfa, horblöðku, fjólu, þrenn- ingargras, maríuvönd, hvönn, kúmen, arfa, mýrasóley, sóldögg, heimilis- njóla, vallarsúru, aðalbláber, beiti- lyng, blóðarfa, sortulyng, smára, fjallagrös, krækiber, burkna, brennu- netlu ogbirki. Auk þessara jurta eru taldar upp margar fleiri. Um ætififil og bifukollu segir: „Þessi alþekkta jurt vex í túnum og ræktaðri jörð, nærri húsum og girðingum. Blöðum jurtarinnar skal safna áður en blómstrin springa út, en rótina skal grafa upp á haustin. Jurtin örvar vallgang og þvag, eyðir bólgu, mýkir, þynnir vessa, hún brúkast við meinlætum, vatnssýki, harðlífi, þvag- stemmu, skyrbjúgi, bólgu og ígerðum og útbrotum á hörundi. Af blöðum og rót jurtarinnar er búið til seyði og skal drekka af því svo tebollum skipti á dag. Einnig má gjöra safa af rótinni og hjartablöðunum og taka af þeim fulla teskeið í senn þrisvar á dag. Sömuleiðis má hafa mýkjandi grauta til að gjöra út kýli og meinsemdir. Þar að auki eru blöð jurtarinnar, séu þau soðin nú í mysu, eitt hið hag- kvæmasta fæði fyrir skyrbjúgs- sjúklinga og aðra sem veikir eru af spilltum vessum, svo sem kláöuga og holdsveika menn. Séu blómstrin soðin með vatni og álúni lita þau fagurgult.” Fyrir aldamótin siðustu vissu menn ekkert um vítamín eins og við þekkjum þau í dag. En þarna er bent á að fíflablöð séu holl fyrir þau sem liða af skyrbjúg, — en skyrbjúgur orsakast einmitt m.a. af C-vítamínskorti. — Þeir vissu áreiðanlega hvað þeir sungu, j>essir gömlu spekingar og alls ekki úr vegi fyrir nútímafólk að not- færa sér reynslu þeirra í sambandi við notkun jurta til lækninga. Ýmsar af þeim jurtum sem getið er um í kverinu góða fást í Náttúru- lækningabúðinni á Laugaveginum. A.Bj. Litla kveríð er ekki stórt um sig en þar er að tinna mjög gagniegar uppiýsingar um jurtir og heilsusamleg áhrif þeirra. Kveríð fæst í Fornbókaverzluninni í Ing- ólfsstræti 3 og bókaútgáfunni Ljósbrá og kostar 1.200 kr. Kaupum, seljum nýjar ognotaðar hljómplötur OPIÐKL.1-6 LAUGARDAGA KL. 9-12 Smurbrquðstofqn BJORNINN '^^NjáLgötu 49 - Simi 15105 Tilboð Tilboö óskast í eftirtaldar bifreiöir í tjóns- ástandi: FIAT127 ÁRG. ’73 CITROEN DS ÁRG.’71 FIAT 850 ÁRG. ’71 FIAT125PÁRG. ’78 BMW ÁRG. ’69 FORD ESCORT ÁRG. ’76 SKODA 110 S ÁRG. ’72 RANGE ROVER ÁRG. ’72 AUSTIN MINIÁRG. ’73 VW 1302ÁRG.’73 Bifreiðirnar verða til sýnis að Melabraut 28, Hafnarfirði, laugardaginn 16. september nk. kl. 13—17. Tilboðum óskast skilað til aðalskrifstofu gavegi 103 fyrir kl. 17 mánudaginn 18. se . nk. Brunabótafélag íslands. KAUPA RANDYRAR VITA- MÍNPILLUR EN FÚLSA VIÐ FÍFLABLÖÐUNUM í einu fíflablaði er álíka mikið af c-vítamíni og í þremur sítrónum, segir bréfritari Krístin Sigurðardóttir hríngdi: ' Hún sagði að sér þætti það skjóta nokkuð skökku við að íslendingar væru að kaupa sér rándýrar C-vítamín töflur á meðan þeir fúlsuðu við fifla- blöðunum, sem væru fyrsta flokks C- vítamíngjafi. í einu meðalstóru flfla- blaði er eins mikið af C-vítamíni og í 3 stórum sítrónum, sagði Kristín.------ „Fíflar þykja góðir í hrásalöt erlendis. í Frakklandi er notkun fiflablaða mjög útbreidd. Þegar Frakkar áttu viðdvöl hér á landi á skútuöldinni, þóttu þeir meira en lítið undarlegir er þeir stikuðu út um allt til þess að ná sér i fífla. t Frakklandi eru fiflar ræktaðir sem matjurtir og mikið notaðir í salöt,” sagði Kristín. Hún sagði ennfremur að hún ætti smáfugla í búri og gæfi hún þeim jafnan fiflablöð. Fuglarnir eru svo æstir í blöð að hún getur varla komið þeim inn í búrið til þeirra, þvi þeir „ráðast” á þennan eftirlætisrétt sinn um leið og hann kemur í námunda við búrið. Kristín sagðist sjálf oft nota fifla- blöð í salöt. Ekki er sama hvernig blöðin eru valin, bezt er'að nota nýjustu blöðin. Þegar fiflarnir eru orðnir úr sér vaxnir, vilja blöðin verða römm á bragðið, sagði Kristín. „Það er blóðugt að vita til þess að lslendingar skuli ekki notfæra sér þessa góðu og hollu jurt. Það er svo sem ýmis annar matur sem ekki er sinnt um hér á landi eins og t.d. öðuskel og kræklingur sem erlendis þykir herramannsmatur,” sagði Kristín. Raddir neytenda OSTUR A ALLTAF VIÐ EINNIG MEÐ FISKI Ostaneyzla hér á landi hefur aukizt á undanförnum árum. Fólk hefur lært að borða ost og þá fleiri tegundir en venjulegan 30 eða 45% brauðost. Mjög gott ostaúrval er til hér og er ostaframleiðslan sannarlega til fyrir- myndar. Ef ostur er til í húsinu má segja að alltaf sé hægt að búa til eitthvað sér- lega gott. Ostur passar lika bæði með kjöti og fiski. 1 einum af bæklingum Osta og smjörsölunnar eru margar uppskriftir af osta- og fiskréttum. Hér er ein /J þeirra: 500 gr ýsu- eða þorskflök salt 11/2 tsk. karrý 2 dl rifinn ostur Uppskrift dagsins Roðflettið flök og skerið í bita. Raðið fiskinum í smurt, eldfast mót. Kryddið með salti og karrýi. Stráið rifnum ostinum yfir. Bakist við 175— 200° C hita í um það bil 30 mín. Borðað með soðnum kartöflum. Verð: Allur rétturinn með soðnum kartöflum kostar um 582 kr. eða 145 kr. á mann. -A. Bj.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.