Dagblaðið - 15.09.1978, Síða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1978.
Nkomo ræðir
við Castro
lan Smith forsætisráðherra
Ródesíu og Joshua Nkomo hinn
útlægi leiðtogi blökkumanna þar í
landi lýsa því nú báðir yfir að ekk-
ert sé lengur um að ræða þeirra á
milli. Saka þeir hvor annan um
yfirgang og ofbeldi sem ekki
verði svarað öðruvisi en í sömu
mym. Nkomo mun nú vera
staddur i Addis Abeba þar sem bú-
izt er við að hann ræði við Castro
Kúbuleiðtoga, sem þar er 1 opin-
berri heimsókn.
Da Costafallinn
Portúgalska þingið felldi í gær
rúmlega hálfsmánaðargamla
stjórn Nobre da Costa við at-
kvæðagreiðslu um stefnuskrá
hennar. Voru það þingmenn
sósíalista og miðdemókrata á móti
henni. Kommúnistar sátu hjá en
hinir svokölluðu alþýðudemókrat-
ar greiddu stjórninni atkvæði sín.
Portisch
sigraði
Portisch, Ungverjalandi, sigraði í
Interpolis skákmótinu eftir að hafa
gert jafntefli við Roman Dzhindzhind-
ashvili í elleftu og síðustu umferð. Var
hann með sjö vinninga. Timman frá
Hollandi varð í öðru sæti með 6,5
vinninga og ísraelsmaðurinn með
langa nafnið i þriðja sæti ásamt
Huebner og Miles með sex vinninga.
Spassky, Browne og Hort voru með
5,5 vinninga, og Larsen var í níunda
sæti með5 vinninga.
Danmörk:
Spies vill hætta
flugrekstrí sínum
—vill samstarf við Tjæreborgarprestinn en ætlar sjálf ur að hætta
störfumárið 1981
Simon Spies danski ferðaskrif-
stofukóngurinn hefur ákveðið að
hætta rekstri flugfélags síns Conair,
þegar þær flugvélar, sem nú eru í
reksti verða úr sér gengnar. Segir
hann að möguleikar á rekstri risaþota
hafi verið kannaðir en til þess hafi
félagið ekki bolmagn nema með
verulegri verðhækkun. Segir Spies, að
ef ferðaskrifstofa hans og Tjæreborg
rejser, en þær munu vera tvær stærstu
dönsku ferðaskrifstofurnar, geti ekki
unnið saman að flugmálum muni SAS
eða annað stórt flugfélag koma til og
yfirtaka hinn skandinavíska leigu-
flugsmarkað.
Nærri hálf milljón farþega ferði. . á
vegum ferðaskrifstofu Spies á hverju
ári og telur hann sjálfur að ekki verði
hægt að auka þá tölu mikið úr þessu.
Tilkynnt hefur verið að haust- og
vetrarferðir muni hækka sem nemur
tiu af hundraði.
Simon Spies, sem lengi hefur verið í
forustu í dönskum ferðamálum og
hefur vakið athygli fyrir furðulegan
lífsmáta og undarleg uppátæki hefur
tilkynnt að hann muni hætta af-
skiptum af rekstri ferðaskrifstofunnar
árið 1981. Þá verður hann sjálfur
sextugur og skrifstofan fyllir þá
fjórðung aldar. Ekki hefur enn verið
ákveðið hver tekur við af Spies.
Simon Spies hefur brallað margt um
aevina. Hingað til hefur hann þö veríð
helzti keppinautur Tjæreborgar-
prestsins I ferðamálunum I Danmörku.
Nú óskar hann eftir samstarfi við hann
um flugrekstur.
KARPOV k NÚ UTLA
VINNINGSMÖGULQKA
—22. einvígisskákin f ór f bið og verður tef Id áf ram í dag
Kortsnoj lentí I geigvænlegu
tímahraki í 22. skákinni i heimsmeist-
araeinvíginu, sem fór I bið í gær eftir
47 leiki. Lék hann góðri stöðu niður í
allt að þvi tapaða, á örskömmum tíma,
stuðningsmönnum sínum til mikillar
hrellingar. Þegar leiknir höfðu verið
40 leikir fóru þeir flestir að tinast úr
salnum, búnir að bóka ósigur áskor-
andans. En skákin varekki búin. 1 42.
leik varð Karpov illilega á i messunni
og 5 leikjum síðar, er skákin fór i bið.
var ekki ljóst hvernig hann ætlaði að
sigra.
Karpov lék kóngspeðinu i I. leik að
vanda og Kortsnoj svaraði með
Franskri vöm, í annað sinn í einvíginu.
Þegar í 6. leik breytti hann út af 16.
einvígisskákinni og lék leik, sem hann
hafði margoft leikið fyrir einvígið.
Karpov virtist vel undir hann búinn,
kom með nýjung og fékk betra tafl.
Fljótlega skiptist upp á drottningum
og stöðuyfirburðir hvíts urðu enn
greinilegri. Svartur hafði stakt peð á d5,
sem virtist ætla að veröa höfuðverkur
hans um ókomna framtið. En
höfuðverkurinn hvarf fljótt. Í stað
þess að leggjast I nauðavörn, fórnaði
Kortsnoj peðin (a la Nimzovich) og
fékk I staðinn mikilvæga bækistöð
fyrir menn sina. En þá kom tíma-
hrakið til sögunnar. Efnishyggju-
maðurinn kom upp I Kortsnoj, sem sá
fram á peðsvinning. Við það varð ridd-
ari hans illa staðsettur og Karpov
brunaði upp með d-peð sitt. Svarta
staðan var komin í rúst og vinningur i
augsýn hjá Karpov. En þá brást
honum bogalistin, eins og áður sagði.
Eflaust nagar hann sig nú í handar-
bökin fyrir að hafa ekki sett skákina í
bið eftir 40 leiki, en það ráðleggur fyrr-
um kennari hans, Botvinnik, öllum að
gera.
22. Einvígisskákin
Hvítt: A. Karpov.
Svart: V. Kortsnoj
Frönsk-vörn
1. e4e6!
Tilraunirnar með Pirc-vörnina og
Caro Kann vörnina báru ekki
árangur. Reyndar náði Kortsnoj jafn-
tefli í báðum skákunum, en það var
ekki byrjununum að þakka. Þaðer því
horfið aftur að Frönsku vörninni, sem
reyndist Kortsnoj svo vel í einvígi
þeirra 1974.
2. d4 d5 3. Rd2 c5 4. exd5 exd5 5.
Bb5 +
Þannig varð framhaldið einnig í 16.
skákinni. í einvígi þeirra 1974 lék
Karpov hins vegar alltaf 5. 5. Rgf3
Rc6 6. Bb5 og allar enduðu skákirnar
meðjafntefli.
5. <— Bd7 6. De2+ Be7
1 16. skákinni sætti Kortsnoj sig við
örlitið verra endatafl eftir 6. — De7. t
skákum sínum fyrir einvígið hafði
hann yfirleitt leikið 6. — Be7, svo
Karpov ætti að vera vel undir það
búinn.
7. dxc5 Rf6 8. Rb3
Talið betra en 8. Rf3 — 0—0 9.0—
0 Bxc5 10. Rb3 He8 11. Dd3 Bb6 og
staðan er jöfn. Þannig varð
framhaldið m.a. i skákunum Minic’-
Kortsnoj (Beograd 1964) og Beni-
Kortsnoj (Luhachovice 1969)
8. — 0—0 9. Be3 He8 10. Rf3
í skák sinni gegn Kuzmin, í Sovét-
ríkjunum 1973, náði Kortsnoj
auðveldlega að jafna taflið eftir 10.
0—0—0 — a6 11. Bxd7 Rbxd7 12.
Rh3 Rxc5!
10. — Bxc5
Á skákmóti í Moskvu 1971 lék
Kortsnoj hér 10. — a6 gegn Parma.
Eftir skákina kom hins vegar í Ijós að
eftir 11. Bxd7 Rbxd7 12. 0—0 Rxc5,
gat hvítur tryggt sér betri stöðu með
13. Rfd4!
U.RxcS!
Nýjung. Áður hafði aðeins verið
leikið 11. Bxd7 Rbxd7.1 einvígi þeirra
Larsens og Uhlmanns tefldist: 12.
Rxc5 Rxc5 13. Db5! Hc8 14. 0—0 a6
15. Db4 He4 16. Dd2 og nú með 16.
— Re6! telur Uhlmann stöðuna vera í
jafnvægi.
11. - Da5+ 12. Dd2 Dxb5 13. 0-
0—0 b6 14. Rxd7 Rbxd7 15. Kbl Re4
16. Dd3.
16. Dxd5?? er svarað með
fjölskylduskák á c3.
16. - Dxd3 17. Hxd3 Rdf6 18. h3.
Hvitur hefur aðeins betri möguleika
í endataflinu vegna veikleika svarts á
d5. í hvítu stöðunni eru aftur á móti
engir sjáanlegir veikleikar, svo svartur
hefur ekkert til að herja á. Það virðist
því nokkuð augljóst að hann verður í
vörn næstu leikina.
18. - Rc5 19. H3dl Re6 20. c3 b5
21. Rd4 a6 22. Rc2 a5 23. Hd3 Hab8
24. Hhdl h6 25. f4.
Nú var tími til kominn að láta til
skarar skríða. Hvítur hefur komið ár
sinni vel fyrir borð, hyggst nú vinna
aukið landrými á kóngsvængnum og
reka hina vel stæðu riddara svarts á
flótta. Þó er þessi áætlun ekki
gallalaus, eins óg sést á framhaldinu.
25. — Hbc8
Leikið eftir langa umhugsun.
26. g4.
Hvað á svartur nú til bragðs að
taka? Hann virðist vera kominn 1
stökustu vandræði með blessað d-
peðið sitt. Hvitur hótar einfaldlega 27.
g5 og það fellur fyrir borð. En
Kortsnoj er ekki.af baki dottinn og
finnur frábæra lausn á vandamálum
sínum.
26. —d4!
Frábær hugmynd. Kortsnoj fómar
einfaldalega sinu staka peði og kemur
því yfir á andstæðinginn!! Nú fær
hann hinn mikilvæga d5-reit fyrir
menn sína. Aðstoðarmaður Kortsnojs,
R. Keene var yfir sig hrifinn af þessum
leik og sagði hann vera i anda
Nimzovich sáluga. Keene er einmitt
mikill Nimzovich aðdáandi og hefur
ma. skrifaðbók um meistarann.
27. cxd4
Ekkert annað kemur til greina. Ef
27. Bxd4 þá 27. — Rxf4 og ef 27.
Rxd4? þá 27. — Rc5 og vinnur a.m.k.
skiptamun.
27.-Rd5 28.HH b4.
Það er Ijóst mál að svartur hefur
rétt mjög úr kútnum eftir þessa
peðsfórn sína. Timamunurinn var
samt sem áður mikill. Karpov hafði
notað 1 klst og 5 mínútur, en Kortsnoj
2 (!) klst. og 6 mínútur. Áskorand-
inn hafði því aðeins 24 mínútur til að
leika 12 leiki.
29. Bd2 He7 30. f5 Rg5?
Tímahrakið er þegar farið að segja
til sín. Kortsnoj fær augastað á peðinu
á h3 og hyggst jafna metin hið
snarasta. Við það lendir riddarinn hins
vegar út úr spilinu og d-peð hvíts þýtur
áfram. 30. — Rec7 var mun betra, en
þannig tryggir svartur völd sin á d5-
reitnum.
31. Re3! Rf6
Eða 31. - Rxe3 32. Bxe3 Rxh3 33.
Bxh6! og hvítur hefur góða vinnings-
möguleika.
32. d5 Rxh3 33. d6 Hd7 34. Rd5 Rxd5
35. Hxd5 Ha8
Staða Kortsnoj er nú orðin mjög
slæm og voru fáir sem hugðu honum
líf er hér var komið við sögu. Þar við
bættist svo, að hann var orðinn mjög
naumurá tíma.
36. Be3 Rg5 37. Bb6! Re4 38. Hfdl a4
39. H5d4 He8 40. Hxb4 Hxd6.
Þar með var svartur sloppinn yfri
tímamörkin og undir eðlilegum ring-
umstæðum hefði hvítur leikið hér
biðleik. Karpov var þó ekki á þeim
buxunum, enda hafði hann teflt hratt
hingað til og átti nógan tíma aflögu.
41. Hxd6 Rxd6.
42. Bc7?
Af hverju ekki 42. Hxa4? Hvítur
fær þá tvo samstæða frelsingja á
drottningarvængnum, sem svartur
virðist eiga allt annað en auðvelt með
að ráða við. Nú fóru undarlegir hlutir
að gerast á Filippseyjum....
42. Hel + 43. Kc2 Re8!
Vinnur leik, með því að setja á
biskupinn.
44. Ba5 a3! 45. Hb8 He7 46. Bb4
He2+ 47. Kd3
Hér fór skákin í bið og lék svartur
biðleik. Þrátt fyrir ónákvæmni hvits í
42. leik hefur hann enn nokkra sigur-
möguleika, þótt ekki séu þeir miklir.
Svartur hefur um tvo möguleika að
velja: 47. —axb2, sem hvítur svarar
best með 48. Bd2! og hið glæfralega
47. — Hxb2, þar sem svartur fórnar
riddara sinum, en reynir í staðinn að
ná uppskiptum á öllum peðum hvíts.