Dagblaðið - 15.09.1978, Side 12
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15.SEPTEMBER 1978.
Lögtaksúrskurður
Sýslumaðurinn í Árnesþingi hefur í dag kveðið
upp lögtaksúrskurð fyrir ógreiddum en gjald-
föllnum útsvörum, aðstöðugjöldum og kirkju-
garðsgjöldum álögðum í Selfosskaupstað 1978
svo og vöxtum og dráttarvöxtum og gjald-
skuldum.
Samkvæmt úrskurði þessum hefjast lögtök
fyrir gjöldum þessum að liðnum 8 dögum frá
birtingu hans.
SeHossi 12. september 1978,
Bæjarritarinn á Selfossi.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahúsið á Húsavík óskar að ráða hjúkr-
unarfræðinga nú þegar. Húsnæði í boði. Allar
upplýsingar veita hjúkrunarforstjóri í síma 96-
41333 og framkvæmdastjóri í síma 96-41433.
Sjúkrahúsið á Húsavík sf.
&
1
& 3 ^ % 'h
&
'ito
Læríð ?
að
dansa
Eðlilegur þáttur í almennri
menntun hvers einstaklings ætti
að vera að læra að dansa.
Ath. Afsláttur ef 3 systkini eða
fleiri eru í dansi.
Aukaafsláttur ef foreldrar eru
líka.
tnnrítun stendur yfir.
Dansskófí
jW Heiðars
Ástva/dssonar
Reykjavík, Kópavogur, Sel-
tjarnarnes, Hafnarfjörður,
Mosfellssveit. Símar 20345
— 24959 - 38126 —
74444 — 76624
Dansskófí
Sigurðar Hákonar-
sonar
Reykjavík, Kópavogur,
Hafnarfjörður. Sími 41557.
Dansskófí
Sigvaida
Reykjavík, Kópavogur,
Hafnarfjörður, Mosfellssveit.
Símar 84750 — 53158 —
66469.
Bafíettskófí
Eddu Scheving
Reykjavík. Sími 76350.
Bafíettskófí
Sigríðar Ármann
Reykjavík. Sími 72154.
*
S
V
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
TRYGGING fyrir réttri tilsögn í dansi
Menntaskólinn á Egilsstöðum byrjar haustið 1979:
„Fýsilegt að dvelja
hér við nám”
— segir Vilhjálmur
Einarsson
skólameistari
Það eru arldtektarair Örnölfur Hall og Ormar Þór sem hafa teiknað Mennta-
skólann á Egilsstöðum. — DB-mynd Bjarnleifur.
„Þetta er hið glæsilegasta hús og
ákaflega myndarlega að byggingu þess
staðið,” sagði Vilhjálmur Einarsson
skólameistari, þegar DB ræddi við
hann um byggingu Menntaskólans á
Egilsstöðum.
Vilhjálmur kvað bygginguna vel á
veg komna. Smíði mötuneytisálmu
væri að komast í höfn og verið væri að
Ijúka við uppsteypu heimavistarálmu.
Fyrir næsta haust á kennsluálma að
vera tilbúin og hefst þá kennsla í skól-
anum.
Búizt er við að á annað hundrað
nemendur verði i menntaskólanum
fyrsta starfsárið, en þegar hann er full-
búinn verður þar pláss fyrir 450 nein-
endur. Næsta haust verður hægt að
taka 70 nemendur inn á heimavist
skólans.
„Ég er ákaflega bjartsýnn á að-
sókn að skólanum,” sagði Vilhjálmur
Einarsson. „Margt ræður því að fýsi-
legt er að dvelja hér við nám. Hér er
veðursæld allt árið, og í grenndinni er
hægt að stunda ýmsar íþróttir, t.d.
skíði.”
Vilhjálmur Einarsson kvað almenn-
an áhuga vera fyrir skólanum á
Egilsstöðum og kvaðst hlakka til þess
að hann tæki til starfa.
- GM
Vilhjálmur, — bjartsýnn á að áhugi
verði fyrir nýja menntaskólanum á
Austurlandi.
Kaupmenn vilja ein-
földun á innheimtu
söluskatts
— auðveldara fyrirþrjá gosdrykkjaframleiðendur en þúsund kaupmenn
„Á fundinum komu fram áhyggjur
kaupmanna á framkvæmd hinna nýju
reglna um innheimtu söluskatts,”
sagði Gunnar Snorrason, formaður
Kaupmannasamtakanna. Þau boðuðu
til fundar Fél. matvörukaupmanna og
kjötverzlana i gærkvöldi. Til umræðu
voru hin nýju lög um breytingu sölu-
skatts á matvöru. Var fundurinn ein-
hver hinn fjölmennasti, sem þessir
aðilar hafa haldið.
Til fundarins voru boðnir þeir
Höskuldur Jónsson, ráðuneytisstjóri
fjármálaráðuneytisins, og Árni
Björgvinsson fulltrúi sem og Haraldur
Árnason, deildarstjóri á Skattstofunni.
Gunnar kvað tímann nauman og
svigrúm lítið fyrir kaupmenn að vinna
þá vihnu, sem lögin leggja þeim á
herðar. Þeir myndu þó að sjálfsögðu
hlýða landslögum sem fyrr.
„Fulltrúar hins opinbera, sem á
fundinum voru, voru allir af vilja
gerðir til þess að athuga aðferðir til
þess að einfalda og auðvelda álagn-
ingu og innheimtu söluskattsins,”
sagði Gunnar Snorrason.
Meðal annars komu fram hug-
myndir um að leggja söluskattinn á
vöru á framleiðslustigi eöa heildsölu-
stigi. „Það er t.d. augljóst, að hægar er
fyrir þrjá gosdrykkjaframleiðendur að
reikna söluskatt og leggja hann á
heldur en um þúsund kaupmenn,”
sagði Gunnar.
Eftirfarandi tillaga var samþykkt
samhlj. á fundinum: „Sameiginlegur
fundur Félags matvörukaupmanna og
Félags kjötverzlana haldinn á Hótel
Loftleiðum miðvikudaginn 13. sept.
telur að með reglugerð frá 8. sept. um
breytingar á innheimtu söluskatts sé
lagt á herðar kaupmanna stóraukinn
kostnaður og vinna við uppgjör á sölu-
skatti.
Fundurinn telur jafnframt, að
reglugerðin sé óframkvæmanleg í
þeirri mynd, sem hún er nú í, og skor-
ar á fjármálaráðuneytið að taka tillit
til kaupmanna með einföldun á fram-
kvæmd hennar.”
Nefnd kaupmanna og ráðuneytis-
manna var kjörin til þess að kanna
möguleikann á slikri einföldun. Gert
er ráð fyrir því að hún skili áliti í októ-
ber.
- BS
Spariskírteini 1. fl. 1966:
Missa vexti og verðbætur 20. september
Seðlabanki Islands hefur vakið at- vexti né bæta við sig verðbótum frá hafin sé ný útgáfa spariskírteina frá og
hygli eigenda spariskírteina i 1. fl. þeimdegi. með 15. september.
1966 á að lokagjalddagi þeirra er 20. Jafnframt bendir Seðlabankinn -GM
september nk. Bera skírteinin hvorki handhöfum þessa flokks skírteina á að