Dagblaðið - 23.09.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDÁGUR 23. SEPTEMBER 1978.
7
Íslenzkar smáflugvélar eru aðaltengiliðurinn við umheiminn. Hér er vél frá Sverri Þóroddssyni á vellinum og marga dreif að.
Jafnvel eskimóar telja vart byggilegt í
Meistaravík á Grænlandi:
Þar eru flugvélar, snjó-
plógar og sleðahundar
einu samgöngutækin
—skíði og snjóþrúgur hluti af skófatnaðinum
Flugskilyrði á Grænlandi eru oft erflð.
Hér flýgur Helgi Yngvason blindflug i
gegn um iskristalla á leiðinni.
Þegar blaðamaður DG kom inn til
lendingar I Meistaravik á Grænlandi i
flugvél flugfélags Sverris Þóroddssonar,
skildi hann að jafnvel eskimóum þykir
staðurínn ekki fýsilegur til búsetu.
Þar var alhvit jörð og frost. Umhverf-
ið eyðilegt, skreytt borgarísjökum á floti
undan ströndinni. Þrátt fyrir það er
þarna litið þorp vísindamanna og þrátt
fyrir fæð okkar Islendinga eigum við þar
einn fulltrúa, sem jafnframt er eina kon-
an og húsmóðirin á staðnum. Heitir hún
Karen Jónsdóttir, svo sem DB skýrði frá
fyrr i vikunni.
Vísindamennirnir fást einkum við
veðurfræði og jarðfræðirannsóknir og
um tima var islenzk flugvél frá Vængj-
um ásamt íslenzkri áhöfn I Meistaravik
og stundaði málmleitarflug þaðan með
árangri.
I september er veturinn ekki skollinn
á fyrir alvöru þrátt fyrir snjó og frost.
Því skildi leikmaöur ekki strax hvers
vegna farartækin eru flugvélar, til að
komast til og frá staðnum, öflugar jarð-
ýtur, þótt ekkert jarðrask standi fyrir
dyrum, fjórhjóladrifnir bílar með snjó-
plógum framan á, þriggja hjóla létt
Honda torfærumótorhjól og loks sleða-
hundar til að gripa til þegar öU önnur
ráð þrjóta.
Við útidyr húsanna má hvarvetna sjá
skiði og snjóþrúgur, sem eru nánast
hluti af skóbúnaði yfir harðasta vetrar-
tímann, auk þess sem þar hanga góðar
snjóskóflur og strákústar.
Vísindamennirnir dveljast þarna
aðeins um tíma hver, enda getur þessi
einangrun orðið mörgum þrúgandi.
Aðaltengiliðurinn við umheiminn eru ís-
lenzkar smáflugvélar sem flytja vísinda-
mönnunum ýmsar nauðsynjar og þá til
ogfrástaðnum.
Þegar lent var þar í siðustu viku á
góðum flugvelli á íslenzkan mælikvarða
komu allflestir niöur á flugvöll til að sjá
ný andlit, þó ekki væri annað. Aðrir áttu
þangað erindi til að taka á móti varningi
sem flugvélin flutti rannsóknarleiðangri
sem þar er i nágrenninu.
■ GS.
öflugir, þýzkir, fjórhjóladrifsbilar af jeppaætt, búnir snjóþeyturum, og sterklegar
jarðýtur eru meðal samgöngutækja Meistaravfkurbúa á veturna.
Létt Honda
skófatnaði heimamanna.
virðast vera hluti af nauðsynlegasta
.(■MWB"
«> ■» ■ *
* _ ^ ^ ^ .
Þegar allt um þrýtur er svo gripið til sleðahundanna sem i fristundum ala af sér af-
kvæmi sem hér sjást ásamt móður sinni.
Prœlsterkir
stálofnar
Framleiðum
samkvæmt íslenskri
hönnun, nýja tegund
stálofna sem eru
sérstaklega ætlaðir til
að þola og nýta
hitaveituvatn sem
best.
Ofnar þessir henta
einnig mjög vel við
önnur kerfi.
Þsireru:
★ Framleiddir úr þykkara og sterkara efni en
aörir ofnar hérlendis.
★ Fyrirferöalitlir, falla vel (umhverfiö. Þykkt
frá 15 mm. Einfaldir, tvöfaldir, þrefaldir
eöa fjórfaldir, eftir aöstæöum, til bestu
hitanýtnf fyrir hvern oq einn.
*■ Lágt verö, leitiö tilboöa. Stuttur
afgreiöslufrestur.
M STfiLOFNfiRHF.
rr SMIOJUVEG 58 - KÓPAVOGI - SÍMI73880