Dagblaðið - 23.09.1978, Page 9
9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978.
taflsins (1. e4 eS 2. Rc3 Rf6 o.s.frv.).
Annar leikur, sem talinn er leiða til tafl-
jöfnunarer3. — c6.
4. Rc3 Bc5 5. Bg5!?
Eftir 5. Rf3 d6 kemur upp ítalski lejk-
urinn og eftir 5. f4 d6 6. Rf3, kemur upp
kóngsbragð. Eftir 5. BgS!? kemur hins
vegar eitthvað nýtt og skemmtilegt upp!
5. — h6 6. Bh4 d6 7. Ra4 Bb6 8. Rxb6
axb6 9. f3
Larsen teflir mjög frumlega. Auk þess
að opna útgönguleið fyrir biskupinn á
h4, treystir þessi leikur e4-reitinn og er
þar af leiðandi undirbúningur fyrir d3-
d4 seinna meir.
9.— Be6 10. Re2d5
Svartur vill verða á undan að blása til
atlögu á miðborðinu. Þessi leikur er þó
vart timabær, þvi peðastaða svarts
versnar.
11. Bxf6 gxf6 12. exd5 Bxd5 13. Rc3
Be6 14. Bxe6 fxe6 15. Dd2
15. f4?! er svarað með 15. — exf4 16.
Dh5 + Ke7! og svartur stendur vel.
15. - f5 16. 0-0 Dd4+ 17. Khl 0-0-0
18. Hael h519.a3 h4
Skemmtileg staða er nú komin upp.
Kóngarnir hafa hreiðrað um sig á and-
stæðum vængjum og nú ryðjast peðin
fram til atlögu. Hans hátign, hviti kóng-
gat í hæsta lagi læknað Kalla, sent
hann á ný út i samfélag hinna heil-
brigðu, inn á sina borgaralegu frama-
braut. Þar rúmast ekki einlægni,
hreinar tilfinningar, sú kvika lífs sem
er Lára.
Sagan i leiknum er látin uppi í
mörgum stuttum laustengdum leikat-
riðum, alls ólíkum frásagnarhættinum
í öðrum leikritum Jökuls. Persónur
eru aðeins tvær, Lára og Kalli, raun-
trúir unglingar að öllu ytra atgervi og
orðfæri sínu. Mér heyrðist Árni
Blandon nú hafa miklu mynduglegri
tök á hlutverkinu en áður á sviðinu,
heilbrigður piltur, ósköp góður
drengur í eðli sínu, en bældur og kúg-
aður af ofríkri móður — sem Soffía
Jakobsdóttir lýsti i útvarpinu fjarska
glöggri, meinlegri lýsingu. Eiginlega
finnst mér ödípúsarefninu ofaukið i
lýsingu Kalla, þar verður leikurinn að
sjúkrasögu, hætt við að það dragi at-
hyglina frá aðalefni hans þótt það sé
að sönnu tilefni frásögunnar, undirrót
atburða. Ef forsaga Láru er vanskýrð,
og áheyranda látiðeftir að ráða I hana,
þá er saga Kalla ofskýrð. En ástir
þeirra Láru leysa Kalla undan áhrifa-
valdi móður sinnar, gera hann loks
færan um að takast á við lífið og heim-
inn, stúdentspróf og arkitektaskóla.
Þangað fer hann að vísu kynferðislega
og tilfinningalega bæklaður. Heil-
brigði sína lætur hann eftir hjá Láru.
Lífið er ekki hægt.
Aðrar persónur i leiknum, foreldrar
Kalla, læknirinn, eru ekki nema svip-
myndir til skýringar á aðalpersónun-
um tveimur. Hugblær leiksins, inni-
luktur heimur hans, örbirgðar og ein-
angrunar er hins vegar dreginn af
„kór” sjúklinga á hælinu. Guðrún
Stephensen og Karl Guðmundsson
fóru þann veg með hlutverk sín að
maður sá fólkið Ijóslifandi fyrir sér, en
af þögulu hlutverki Péturs Einars-
sonar, eftirminnilegu úr sýningunni,
var ekki eftir nema iskrandi hlátur
hans við rökvisi heimsins og hlutanna
— sem gerir tilfinningarnar, lifið sjálft
aðsjúkdómiíefninu.
urinn, getur þó litið bjartari augum á
framtíðina.
20. Df2 Hhg8?
Nauðsynlegt var fyrir svartan að
hindra drottningauppskipti, þvi enda-
taflið er greinilega betra á hvítt. Eftir t.d.
20. — Dd7 stendur peðið á e5 hins vegar
völtum fótum og eftir að riddarinn hefur
verið hrakinn burt með b2-b4-b5, missir
það fótfestu sina. Engu að síður var það
skárri möguleiki.
21. Dxd4 exd4 22. Rbl Kd7 23. Rd2
Ke7 24. Hf2 Kf6
Svarti kóngurinn verður að verja mið-
borðspeðin áföllum.
25. f4!
Veikleikinn á e6 er nú skorðaður
fastur og riddarinn fær óskareit á f3.
25. — Hde8 26. h3e5
Þessi tilraun til að losa um sig mis-
tekst, en aðgerðaleysi var jafnslæmt.
27. Hfe2 He7 28. Rf3! exf4 29. Hxe7
Rxe7 30. Rxd4 Rd5 31. He6+ Kf7 32.
Hh6?
Að sögn Larsens var mun sterkara að
leika 32. He2! Nú fær svartur óvæntan
mótspilsmöguleika.
32. — Re3! 33.Hxh4Rxg2?
Hér varð Spassky illilega á I messunni.
33. — c5! var mun öflugra framhald.
Heimsmeistarinn fyrrverandi var hins
vegar i miklu tímahraki og lék þvi sem
hendi var næst.
34. Hh7 + KÍ6 35. Hh6+
Ef 35. Hxc7? þá 35. — Rel! ásamt 36.
— f3 og svartur vinnur.
35. — Kg5 36. Hh7 Kf6 37. Kgl!
Eini vinningsmöguleikinn. Hvíti
kóngurinn verður að sleppa út á f-línuna
til að stöðva svarta frelsingjann.
37. - c5 38. Re2 f3 39. Rc3 Rh4+?
Betri vörn er fólgin í 39. — Re3 +, þó
hvítur ætti samt sem áður að vinna. Nú
verður sigurinn hins vegar auðveldari.
40. KH Kg5 41. Rd5 He8 42. Hg7+
Kh6 43. He7! Hg8
Biðleikurinn. Að sögn Larsens vinnur
hvítur nú í öllum afbrigðum, með ná-
kvæmri taflmennsku.
44. He6+ Kg5 45. Hxb6 He8 46. Rc7!
Hg8 47. Re6+ Kf6 48. Rxc5+ Ke5 49.
Hh6 Kf4! 50. Hxh4+ Ke3 51. Re4!!
Skemmtileg lok. Svartur hótaði 51. —
f2.
51. — fxe4 52. Hxe4 + Kd253.Kf2
— og svartur gafst upp.
Bent Larsen.
Boris Spassky
Tilsburg 1978 Umferð og dags. Vinningar tO w co 1
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11
Nr. Nafn / / / / / / / / / / /
1 TiVnmO'V 'A’2 r “k '// 5/ •k 7 ‘k 'k‘ •k H’ "k é’A 2:
2 B, L-ctr-ýen /" 'O ‘k2 r 4'4 <// ’k 0' ‘k </ú '°0 s 9.
3 B. Spassky '// "k ‘k 2o 'tí '// 7 >/x ’O r '<k 6-3.
4 2.. Ribic /s '°0 O" '>k 3 ’/z U' 01 ‘0 k' Tx h ÍZ.
5 'p. ‘k' 90 'IT "k o1 “Æ o2 7 /,! '// 70 n iO-lf.
6 R. T>2-índ?-.... / 7 •'/+ V ’b &1 ''L <// “k r “k r 6 3rS.
7 jR»Húbner ‘0 '20 <// % Vz10 ’%) ’/T 2/ /3 'k i5 6
8 Gr, Sosonko “k 'h' Yz 0 /■ "0 ‘ti' '<k ‘tí ‘0 y/ n tOrfí
9 W* B ro wn e ‘0 r 'U *Q ’b /10 "/ '/i 2'4 <// S‘k Gr£
10 ff. Mil'ts "k ! 4 “k / ‘ r 90 V 0" 12 S Srú.
11 '/> Hort 2o >k‘ 7 ’/z “k >tí Yz O' 7 Wz 5% 6-2.
12 L. portisc.it. % r Wz. r “k ! ’ 'V r *0 k" “L 7- /.
Hvers vegna æ fleirí munu ferðast
til Filippseyja og Thailands
Þar er ýmislegt markvert aö skoða — meðal
annars hina sögufrægu borg Manila með hinum
spánska bakgrunni og 20. öldina í Makati rétt við
hliðina, eldfjallagígurinn í Týndadal þar sem
baðast er í jarðhituðum laugum, spennandi báta-
ferðir um gljúfur Pagsanjan-fossasvæðisins og
hinn dýrlegi hitabeltisgarður Punta Balurte,
musteri og borgarsýki Bangkok að ekki sé
talað um múnaðinn allan á Pattaya-strönd.
Nútímalegt en ósnortið — alþjóðleg hótel (gædd
litauðgi landanna beggja) ódýrar samgönguleiðir
með vögnum, einkabílum, áætlunarbílum, nætur-
klúbbar, sannkallað fjör (allir geta dansað eftir
hljómfalli okkar Filippseyinga), samt er allt svo
ósnortið. Þægindi vestursins ásamt austrænu
andrúmslofti. Slíkt er ekki auðvelt að finna nú til
dags.
Austrið er ekki dýrt — Drykkur á hótelinu, að
borða úti, leigubílar, minjagripir, og svo allt þetta
aukalega, allt svo ódýrt að það verður næstum
ánægjulegt að eyða peningum........Nokkuð sem
ferðamenn í öðrum löndum eru löngu búnir að
gleyma.
I Undirritaður vill gjarnan heyra mcira um hin fjarlægu austurlönd,
j Filippseyjar og Thailand. Vinsamlegast sendið upplýsingar til:
I Nafn: I
I
Heimili:
| Scndið tii Philippine Airlines, 10 Collingham Road, London SW5
®Philippine AiHines
TVISVAR f VIKU FRÁ EVRðPII