Dagblaðið - 23.09.1978, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978.
Plymouth Road Runner340árg. '72
kynntur:
Fimm hundruð vinnustundir
fóru i málningarvinnuna
Bíllinn sem við kynnum að þessu
sinni var smíðaður árið 1972 í Chrysl-
er verksmiöjunum. Hann hlaut nafnið
Plymouth Road Runner 340 og var
fluttur til Fort Worth i Texas þar sem
hann var seldur. Tveir bræður keyptu
bílinn og áttu hann saman um skeið.
Sumarið 1975 brugðu þeir sér í ferða-
lag og lá leið þeirra til Florida. Er
þangað kom urðu bræðurnir ósáttir og
það svo að þeir seldu bílinn. Þar festi
islendingur kaup á honum og flutti til
landsins. Ári seinna kaupir núverandi
eigandi, Hjörtur Reynarsson, prentari
i Keflavik, bilinn.
í sandspyrnu
Haustið 1977 lætur Hjörtur skrá sig
í islandsmótið í sandspymu, og fer að
búa bílinn undir hana meðal
annars með því að breyta dempara-
festingum og hækka bílinn upp að aft-
an til þess að terrur komist fyrir undir
honum. Nokkrum dögum fyrir
keppnina fer Hjörtur upp á Garðsveg
til að prófa bílinn. Stillir hann bílnum
upp og spyrnir honum. Þegar Road
Runnerinn er búinn að ná góðri sigl-
ingu sér Hjörtur skyndilega Ijóslausan
Rambler fyrir framan sig i Ijósgeislan-
um frá sinum bíl. Hjörtur neglir
bremsurnar niður en þar sem Road
Runnerinn var á heldur meiri ferð en
almennt gerist sá hann fram á að hann
myndi lenda aftan á „Bleranum”.
Hann sveigði því bilinn í skyndi út af
veginum. Lenti hann þar í moldarflagi
og snerist Road Runnerinn einn og
hálfan hring i flaginu. Varönnur hlið
bílsins þakin mold og felgurnar fullar
af mold, en billinn hafði runnið langa
leiö út á hlið i flaginu.
Þegar Hjörtur náði aftur stjórn á
bílnum þrykkti hann skiptingunni í
fyrsta og hugðist ná ökumanni Blerans
og veita honum alvarlegt tiltal fyrir að
aka um Ijóslaus I svarta myrkri. Þeytti
hann Road Runnernum aftur upp á
Garðsveginn en þá losnaði krómhring-
ur af framfelgu og þeyttist upp í hjóla-
skálina með miklum skruðningum og
látum. Hélt Hjörtur að bíllinn væri að
hrynja og stöðvaði hann en Blerinn
slapp jafn Ijóslaus og fyrr út í myrkrið.
Hjörtur keppti svo i sandspyrnunni og
stóð sig vel. Hann lenti í þriðja sæti
fólksbilaflokksins og var bezti tími
hans8,68sek.
Tækniatriði
Vélin i Road Runnernum er 340
kúbiktommur að rúmmáli. Er hún að
mestu óbreytt frá þvi að hún kom frá
verksmiðjunni. Hjörtur er þó búinn að
setja á hana Weiand X celerator sog-
grein með 780 cfm Holley blöndungi.
Einnig setti hann JR flækjur á vélina
og annan knastás. Er knastásinn Fire-
ball ás frá Crane. Er hann 300 gráðu
heitur en lyftihæð hans er 0.298
tommur. Aftan á vélinni er 727
Torquflite sjálfskipting en undir bíln-
um er 8 3/4 hásingin frá Chrysler. í
henni et læst mismunadrif. Þá eru
Monroe loftdemparar undir bílnum að
aftan
Lakkið á Road Runnernum er
sennilega fallegasta lakkið sem sést á
nokkrum bil hér á landi. Fóru um 500
vinnustundir I að koma því á bílinn.
Vann Hjörtur bílinn sjálfur undir en
bíllinn var sprautaöur I Bilasprautun
JJ í Keflavik. Fjöðrunarbúnaður bíls-
ins er allur sér styrktur enda var bill-
inn hannaður fyrir „Road Racing"
(þjóðvega kappakstur) og NASCAR
kappakstur, sem fer fram á stórri
hringlaga braut. Eru fjaðrimar og
gormarnir sérstaklega stifir auk þess
sem jafnvægisstangir eru undir bilnum
bæði að framan og aftan. Boddi bils-
ins er byggt fyrir mikinn hraða og
sagðist Hjörtur vita til að sínum bil
hafi verið ekið á yfir 150 milna hraða.
m
Nr. 1. Chrysler verksmiðjurnar skírðu
Road Runnerinn eftir frægri teikni-
myndapersónu.
t Competition flokkl eru leyfðar miklar brevtingar á bílunum og eru margir þeirra
anzi skrautlegir eins og sjá má á ’27 módelinu hans Ed Sigmons.
Competitkm flokkur:
GOIMLU T MODEL-
IN TREKKT UPP
! Competition kvartmíluflokki eru
alls nitján undirflokkar. Fyrst er bilun-
um skipt í fjóra flokka eftir gerð og
byggingarlagi, en þeim fjórum flokk-
um siðan skipt niður eftir hlutfalli
þyngdar og rúmtaki vélarinnar.
reglum NHRA segir að í Compe-
tition bíl megi einungis vera ein vél.
Óleyfilegt er að hafa forþjöppu á
henni og er skilyrði að húrt gangi fyrir
bensíni. Að öðru leyti má breyta vél-
unum að vild. Helmar verða að vera á
að minnsta kosti tveimur hjólum og
heimilt er að nota fallhlífar til að
stöðva bílana betur.
Ef við lítum á heimsmetin í Compe-
titionflokki, þá er það 7,57 sekúndur í
fljótasta undirflokknum, en 9,62 sek. í
þeim hægasta. Á þessu sést að munur-
inn á undirflokkum er töluverður eða
allt að tveimur sekúndum. Slikar sek-
úndur eru mjög langur tími á kvart-
mílubrautinni.
Mesti hraði sem Competition bill
hefur náð er 181.08 mílur á klukku-
stund. Það samsvarar 304,21 km/klst.
Cómpetition bilar eru mjög ólikir hver öðrum i útliti og er algengt að sjá grindar-
bil og „venjulegan” bil reyna með sér.
Ekki eru allir keppendur i Competition flokki með átta strokka vélar. Joe Will-
iamsson er með sex strokka linuvél i T módelinu sinu og hefur hann náð góðum
árangri.